Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1977, Qupperneq 52

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1977, Qupperneq 52
50 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR kúa í nautgriparæktarfélögunum í Árnes- sýslu á árunum 1960—1963. Hann fann, að átta og níu ára gamlar kýr skiluðu mestum afurðum. Kýr, sem báru í janúar skiluðu mestum afurðum, en kýr, sem báru í júní og júlí ásamt desemberbærum, voru afurðalægst- ar. Kýr, sem báru í janúar, skiluðu um 11 % meiri mjólk en þær, sem báru í júní. Áhrif aldurs og burðartíma á fimprósenm hjá kúnum reyndust lítil í þessari rannsókn. Sigurjón Steinsson (1967 og 1972) gerði athugun á áhrifum burðartíma á afurðir fullmjólka kúa í tveimur nautgriparæktarfé- lögum í Eyjafirði, Ongulstaðahreppi og Svarfaðadal, fyrir skýrsluárin 1966 og 1970. Hann fann, að janúarbærur skiluðu mestum ársafurðum, en kýr, sem báru í júní-ágúst, voru afurðalægstar. Munur á afurðum kúa í beztu og lökustu burðarmánuðum var yfir 20%. Bjarni Arason (1969) kannaði áhrif aldurs og burðartíma á afurðir hjá fyrsta- kálfskvígum, sem komu á skýrslu í naut- griparæktarfélögunum í Borgarfirði á ámn- um 1960 til 1967. Hann mældi afurðir sem hlutfall af meðalafurðum fullmjólka kúa á viðkomandi búum á sama tíma. Rannsókn þessi náði til fremur fárra gripa, og áhrif burðartíma vom því fremur óljós. Guðmundur Steindórsson (1970) kann- aði áhrif aldurs og burðartíma á afurðir hjá fyrstakálfskvígum á svæði S. N. E., sem bám á ámnum 1958 til 1968. Fyrir hvern mánuð, sem kvígurnar urðu eldri, þegar þær báru fyrsta kálfi, jukust afurðir til jafnaðar um 53 kg. Mestum afurðum skiluðu þær kvígur, sem báru í desember, en afurðir vom minnstar hjá júníbærum. Munur á af- urðum milli bezta og lakasta burðarmánaðar var 23%. Þórður G. Sigurjónsson (1973) notaði sömu tölur og Guðmundur að viðbætt- um upplýsingum um kvígur, sem bám fyrsta kálfi á ámnum 1969 og 1970, til að kanna áhrif ýmissa þátta á hæzm dagsnyt og mjólk- urþol. Hann fann, að áhrif aldurs og burðar- tíma á þessa þætti voru samantvinnuð, þann- ig, að þegar leiðrétt var fyrir burðartíma- áhrifum, var samtímis meginhluta aldurs- áhrifa eytt. I báðum þessum rannsóknum var unnið með afurðatölur beint, án þess að tillit væri tekið til búsáhrifa. Sigurður Steindórsson (1975) rann- sakaði afurðatölur fyrir kvígur, sem vom í afkvæmarannsókn á kynbótastöðinni í Laug- ardælum á árunum 1954—1972. Við af- kvæmarannsóknir er að því stefnt, að kvíg- urnar beri sem mest á sama tíma, og þess vegna er líti'l burðartímaáhrif að finna í slík- um gögnum. Innan burðarmánaða fann hann engin aldursáhrif á afurðir, en aldursbreyti- leikinn í þessum gögnum er einnig minni en gerist hjá bændum. Við ákvörðun á leiðréttingarstuðlum vegna útreikninga á kynbótaeinkunnum fyrir gripina í nautgriparæktarfélögunum var stuðzt við rannsóknir Magnúsar B. JÓNS- sonar (1968). Reynir Sigursteinsson (1973) kannaði leiðréttar afurðatölur fyrir kýr í nautgriparæktarfélögunum á Suðurlandi árin 1970 og 1971. Hann fann, að ungar kýr virtust of mikið leiðréttar með stuðl- um Magnúsar. Tekið var tillit til þessara niðurstaðna, þegar endanlegir smðlar vom ákveðnir, en þeir eru sýndir í 1. töflu. Jón Viðar Jónmundsson (1976) kann- aði leiðréttar afurðatölur í skýrslum naut- griparæktarfélaganna árið 1975. Hann fann þar ákveðnar bendingar um víxiláhrif milli aldurs og burðartímaáhrifa og einnig bendingu þess, að um gæti verið að ræða einhver víxláhrif þessara þátta og landshluta. Rannsókn þessi, sem gerð var á vegum Búnaðarfélags íslands, benti til þess, að ástæða væri til þess að kanna nánar áhrif aldurs og burðartíma á afurðir íslenzkra kúa. Rannsókn sú, sem hér verður gerð grein
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.