Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1977, Side 99
ÖRYGGI í AFKVÆMADÓMI Á NAUTUM 97
að dreifðar afkvæmarannsóknir sýni yfirleitt
það öryggi, sem er að vænta eftir þeim erfða-
stuðlum, sem fundir eru í stofninum. Víxl-
áhrif milli erfða- og umhverfisáhrifa virðist
hafa sárálítil áhrif. Náist ekki væntanlegt
öryggi við afkvæmarannsóknina, virðist það
vera vegna þess, að framkvæmd hennar sé
að einhverju leyti misheppnuð.
RANNSÓKNAREFNI
OG RANNSÓKNARAÐFERÐIR.
Rannsóknin var reist á afurðatölum úr skýrsl-
um nautgriparæktarfélaganna árin 1974 og
1975. Hefur gögnunum verið lýst nánar í
annarri grein í þessum greinaflokki (Jón
Viðar JÓNMUNDSSON et.al., 1977a). Allar
afurðatölur eru leiðréttar fyrir áhrifum áldurs
og burðartíma með leiðréttingarstuðlum,
sem gerð er grein fyrir í sömu grein (Jón
Viðar Jónmundsson et al., 1977a). Afurðir
eftir hvern einstakan grip eru síðan metn-
ar sem frávik frá leiðréttu búsmeðaltali.
Búunum var skipt í þrjá flokka eftir leið-
réttu búsmeðaltali í mjólkurmagni. Lágt bús-
meðaltal er þar, sem leiðrétt búsmeðaltal er
lægra en 3500 kg. Meðallags-búsmeðaltal er
þar, sem leiðrétt búsmeðaltal er á bilinu 3500
til 4000 kg. Hátt búsmeðaltal er síðan á þeim
búum, þar sem leiðréttar meðalafurðir eru
hærri en 4000 kg.
Fyrir öll naut, sem áttu dætur í þessum
gögnum, var síðan reiknaður afkvæmadómur
í hverjum einstökum búsmeðaltalsflokki.
Afkvæmadómurinn er reiknaður sem meðal-
tál af frávikum allra dætra í flokknum. I þeim
dæmum, þegar dóttirin var á skýrslu bæði
árin, var tilviljun iátin ráða, hvort árið var
tekið með í afkvæmadóminn.
Síðan var reiknuð einföld fylgni milli af-
kvæmadóma við mishátt búsmeðaltal. Vænt-
anlegt gildi þessarar fylgni (Vr ) má síðan
reikna út á eftirfarandi hátt, eins og Bere-
skin og Lush hafa sýnt (1965):
/ Ni . Nó .
Nl / 1i * 2i
7 \J Ni^+ Ai N^.+ A2
en hér er N j fjöldi dætra í ita búsmeðaltals-
flokki,
A.
1
er arfgengi,
N er fjöldi nauta alls
Þetta væntanlega gildi var reiknað á tvo
vegu. I fyrsta lagi var notað arfgengið 0.16
við öll búsmeðaltöl (Vr ), en í öðru lagi var
öryggið reiknað og þá notað það arfgengi,
sem fannst í hverjum einstökum flokki bús-
meðaltala (Vr ) og gerð er grein fyrir í ann-
arri grein (Jón Viðar Jónmundsson et. al.,
1977b).
Dætur elztu nautanna þótti ekki rétt að
taka með í þessari rannsókn. Þessi naut eiga
aðeins orðið fullorðnar dætur, og eru þær því
meira eða minna valdar með tilliti til eigin
afurða. Þess vegna gefa þær ekki lengur
neina rétta mynd af kynbótagildi nautsins.
Auk þess má gera ráð fyrir, að úrval geti
verið verulega misjafnt eftir búum, háð með-
alafurðum á búinu.
Nautin voru flokkuð á fjóra vegu. I fyrsta
lagi voru tekin öll naut, sem átm 30 dætur
eða fleiri í báðum búsmeðaltalsflokkunum.
Þar koma aðeins með naut, sem í þessum
gögnum eiga ungar kýr, þó að sum þeirra
eigi einnig fullorðnar dæmr. I öðm lagi vom
tekin sér naut, sem höfðu einkennisnúmer
frá 58037 til 66011. Til þess að nautið yrði
tekið með í útreikningana, þurfti það að
eiga ekki færri en átta dæmr í báðum bús-
meðaltalsflokkunum. I þennan hóp em valin