Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1980, Page 78
76 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR
11. mynd: Loftmynd af Stafholtstungum (nr. 9152) tekin 8. ágúst 1960. Landsvæði sem greint er á
myndinni er afmarkað, en það er um 15 km2 eða þriðjungur myndflatarins. (Birt með leyfi Landmælinga
Islands).
Fig. 11: An aerialphotograph (no. 9152, Aug.8,1960). The rectangle indicates tkatþart of thephotograph which is usedfor
field mapping. The area is apþroximately 15 km1‘(Courtesy of Landmœlingar íslands - Iceland Geodetic Survey).
Flokkun gróðurhverfa og mörk þeirra
eru ákvörðuð eftir sjónhendingu og mati
hvers starfsmanns. Til þess að tryggja sem
bezt samræmi í mati starfsmanna eru ný-
liðar þjálfaðir um nokkurra vikna skeið,
áður en þeir fara að vinna við gróður- og
landgreiningu. Sá þjálfunartími er mis-
langur og ræðst mjög af því, hversu kunn-
ugir nýliðar eru loftmyndum og gróðurríki
landsins. Þá eru menn líka misjafnlega
íljótir að tileinka sér færni og öryggi í
notkun loftmynda. Ymis störf, sem unnin
eru af starfsmönnum í sameiningu, til að
mynda uppskerumælingar og mat á teg-
undasamsetningu í ýmiss konar gróður-
rannsóknareitum, gróðurgreining í beit-
arhólfum og fleira af því tagi, stuðla mjög
að samhæfingu starfsmanna í greiningu
gróðurfélaga, ákvörðun gróðurþekju, mati
á því, hversu grýtt landið er og hvernig
greina skal ógróið land af ýmsu tagi.
Eins og áður var sagt, er gengið um
landið og mörk dregin á milii gróð-
urhverfa og þau þannig afmörkuð og
merkt með viðeigandi bókstaf og tölustaf
(Ai, B3, Hi o. s. frv.). Ef gróðurhverfi eða
gróinn landskiki er ólíkur þeim gróður-
hverfum, sem þegar hafa verið skráð, eru
tákn þessi ekki notuð, heldur eru skráðar
þær plöntutegundir, sem ríkjandi eru á