Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1980, Page 118

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1980, Page 118
1 16 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR tegundir og mannhæðarhár víðir, en í landi var mosi ríkjandi ásamt fjalldrapa og öðrum lélegum beitarplöntum (2. mynd) (Halldór Porgeirsson, 1979). Uppskera gróðurs í eyjunni var 21,0 hestburður, en í landi 2,8 hestburðir á hektara. Munurinn á beitargildi er þó enn meiri en svarar til uppskerumunar, því að í eyjunni eru ríkjandi ýmsar beztu beitar- plöntur, sem völ er á hér á landi. Þarna er að vísu óvenjumikil gróska, ekki sízt með tilliti til hæðar yfir sjávarmáli, en víðtækar mælingar hafa sýnt, að úthaginn hefur að jafnaði margfalt minna beitargildi en landsvæði, sem hafa verið friðuð, hóflega eða lítið beitt um langan tíma. Til sönn- unar því má nefna, að eftir 50 ára friðun hefur botngróður í Hallormsstaðaskógi að jafnaði um fimm sinnum meira beitargildi en landið utan skógarins, bæði vegna meiri uppskeru og betri beitargróðurs. Við þetta bætist svo ársvöxtur trjánna. 3. TAFLA. Meðalársuppskera nokkurra mikilvægra gróður- lenda jarðar og á Islandi. TABLE 3. The annual production of some plant communities of the world, and in Iceland. Gróðurlendi Kg þ.e./ha Plant communities Kg DM/ha Lágskógar og kjarrlendi tempraða beltisins Woods and shrublands of the temperate zone ................................... 6000 Graslendi tempraða beltisins Grasslands of the temperate zone .... 5000 Hálendi og freðmýrar jarðar Alpine and tundra vegetation ofthe world 1400 Lágskógar á Islandi Woodlands in Iceland ................... 4000 Skóglaus úthagi á Islandi Open rangelands in lceland .............. 900 Loks skal hér gerður samanburður á uppskeru skóglendis og úthaga á Islandi og þremur algengustu gróðurlenda jarðar í sömu gróðurbeltum og ísland (3. tafla) (Ingvi Þorsteinsson, 1977). Þess skal getið, að Steindór Steindórsson telur lág- lendi landsins gróðurfarslega til tempraða beltisins, en hálendið til heimskautabelt- isins (Steindór Steindórsson, 1964). Tölur um uppskeru í skóglendi landsins eru fengnar með mælingum af friðuðum og beittum svæðum Þær mælingar ná að- eins til botngróðurs, en ársvöxtur trjánna er áætlaður í samráði við íslenzka skóg- ræktarmenn. Uppskera skóglenda er um fjórum sinnum meiri en úthaga, og eins og að framan greinir, er beitargildi þeirra enn meira vegna betra gróðurfars. Þrátt fyrir þetta er uppskera kjarr- og skóglendanna hér um þriðjungi minni en í tempruðu beltunum, og er það að vonum, því að aðeins lítill hluti skóglendisins hér er friðaður og að minnsta kosti fjórðungur þess liggur undir skemmdum vegna beitar (Skógrækt ríkisins, Skógræktarfélag ÍSLANDS, 1977). Það er athyglisvert, að jafnvel gróður- lendi hálendis og freðmýra jarðar gefa að jafnaði mun meiri uppskeru en íslenzkir úthagar, og er orsaka þess naumast að leita í lélegri gróðurskilyrðum hérlendis. I heild eru gróðurlendi íslands rýr beitilönd, og aðeins hluti þeirra getur tal- izt góður. Sum gróðurlendi eru rýr vegna slæmra gróðurskilyrða, t. d. mosaþembur og ýmis gróðurlendi hátt til fjalla. önnur gefa mikla uppskeru, en hafa lítið beitar- gildi vegna lélegra beitarplantna, t. d. ýmsir flóar og blautustu mýrar. En það er mun algengara, að beitiland sé rýrt vegna eyðingar skóganna og ofbeitar, sem hefur leitt til skaðlegra brey.tinga á gróðurfari,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.