Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1980, Síða 129
ÍSL. LANDBÚN.
j. agr. res. icel. 1980 12,2: 127-134
Næringargildi beitargróðurs
Gunnar Ólafsson
Rannsóknastofnun landbúnabarins
Keldnaholti, Reykjavík.
INNGANGUR
Allmikið hefur verið unnið að því hér á
landi að safna einstökum tegundum
beitarplantna í úthaga og ákvarða nær-
ingargildi þeirra, eins og áður er getið.
Slíkar rannsóknir veita mikilvæga vitn-
eskju um mismunandi efnainnihald og
næringargildi eftir tegundum og hvernig
það breytist með þroskastigi plantnanna.
Þær hafa hins vegar þann annmarka, að
plöntusýnunum er safnað með klipping-
um, og í ljós hefur komið, að gróðursýni,
sem þannig er safnað, hafa nær ævinlega
minna næringargildi en sá gróður, sem
bitinn er, enda þótt um sömu tegundir sé
að ræða. Búfé hefur þann hæfileika að geta
valið að nokkru marki þann gróður og
þann hluta plantnanna, sem hafa mest
næringargildi á hverjum tíma. Þegar líða
fer á vaxtartíma plantnanna og næringar-
gildi þeirra tekur að minnka, reynir búféð
að bíta nýgræðing og ný blöð og sprota
plantnanna, sem hafa meira næringar-
gildi. Til þess að meta raunverulegt nær-
ingargildi gróðurs í beitilöndum er því
nauðsynlegt að ákvarða næringargildið í
hinum bitna gróðri. Þetta er gert með því
að nota ær með hálsopi, eins og áður er
lýst. Með þessu móti er ákvarðað næring-
argildi hins bitna gróðurs í heild, en ekki
er unnt að ákvarða næringargildi ein-
stakra tegunda eða tegundaílokka sér-
staklega, t. d. grasa, tvíkímblaða blóm-
jurta, hálfgrasa eða trjákennds gróðurs.
Næringargildi ólíkra gróðurhverfa er mjög
breytilegt, og fer það eftir ríkjandi teg-
undum plantna í gróðurhverfinu og því
úrvali plantna, sem landið býður upp á.
1. TAFLA.
Samhengi milli magns jurta í fóðri og næringar-
gildis þess, meðaltal júní-september.
TABLE 1.
The relationship between the content of herbs in the diet and
itsfeeding value, means for june-september.
Magn jurta í fóðri Content of herbs Meltanleiki þ.e. í fóðri % % digestibility of DM in diet Kg þ.e. í fóðureiningu Kg DM/feed unit
Lítið
Low Nokkuð 50 2.4
Medium Mikið 55 2.0
High 60 1.7
Tún
Cultivated pasture 70 1.3