Bændablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 4

Bændablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 20204 FRÉTTIR Landssamtök sauðfjárbænda segja afurðaverð 2020 mikil vonbrigði: Segja tækifæri til að hagræða í slátrun, vinnslu og markaðssetningu – Forstjóri SS segir að til að hækka verð þurfi að vera hóflegur skortur á vörunni Í fyrstu útgáfum af verðskrám sláturleyfishafa, vegna sauð­ fjár slátrunar 2020, var lands­ meðaltalshækkun á afurðaverði til bænda 6,4 prósent frá síðasta ári, eða reiknað meðalverð upp á 499 krónur á kíló dilka. Fljótlega eftir að allar verðskrár höfðu verið birtar bárust uppfærslur á þeim frá tveimur sláturleyfishöf­ um. Eftir þær hækkanir stendur reiknað meðalverð í 502 krónum, sem er hækkun um 7,1 prósent. Byggja þeir útreikningar á útkomunni úr síðustu sláturtíð. Lands samtök sauðfjárbænda (LS) höfðu í ágúst gert kröfu um að afurðaverð til bænda færi í 600 krónur á kílóið að lágmarki í ágúst og byggði hana meðal annars á almennri verðlagsþróun í landinu. Til samanburðar má nefna að árið 2019 var 16,7 prósent lands­ meðaltalshækkun frá 2018, eftir þær uppbætur sem þá skiluðu sér í verðskrár. Forsendur fyrir meiri hækkunum Guðfinna Harpa Árnadóttir, for­ maður LS, segir mikil vonbrigði að það afurðaverð sem fram er komið sé ekki hærra. „Það eru, að okkar mati, forsendur fyrir meiri hækkun til sauðfjárbænda. Ef fer sem fram horfir þá munum við áfram sjá verulegan samdrátt í greininni. Það má segja að við séum að horfa á fjórða árið í röð þar sem mörg bú munu hafa mjög takmarkaða launagreiðslugetu. Nú er staðan sú að hjá mörgum bændum er ekki af neinu að taka og þá er ljóst hvert mun stefna,“ segir Guðfinna Harpa. Ýmsir hafa furðað sig á því að afurðastöðvarnar geti ekki boðið betur, sérstaklega vegna þess að löngum hefur verið talað um að þær séu nú í eigu sauðfjárbændanna sjálfra og því ætti að vera til stað­ ar skilningur á stöðu greinarinnar. Guðfinna Harpa segir málið ekki svo einfalt að sauðfjárbændur eigi afurðastöðvarnar. „Þær eru ólíkar að uppbyggingu, eigendasamsetningin ólík og sauðfjárbændur í miklum minnihluta stjórnarmanna í þessum félögum.“ Kallað eftir skýringum afurðastöðvanna Að sögn Guðfinnu Hörpu hafa LS kallað eftir því að afurðastöðvarnar komi fram og skýri stöðuna; hvers vegna ekki náist fram leiðrétting á afurðaverði. „Við vitum að á undanförnum misserum hafa orðið grundvallarbreytingar á tollvernd sem breyta miklu varðandi stöðu afurðastöðvanna gagnvart verslun­ inni. Verðþróun lambakjöts á smá­ sölumarkaði hefur ekki fylgt þróun vísitölu neysluverðs og ekki má síðan gleyma þeim áhrifum sem COVID­19 hefur haft með beinum hætti á rekstur afurðastöðva og ekki síður þróun á mörkuðum hér á landi og erlendis. Við ítrekum það hins vegar að það eru fyrst og fremst stjórnendur afurða­ stöðvanna sem þurfa að stíga fram og skýra stöðuna og hvað þarf til, til þess að afurðaverð á lambakjöti verði það sem það þarf að vera til að rekstur sauðfjárbúa gangi upp. Sendar voru fyrirspurnir til þriggja af stærstu sláturleyfis­ höfunum, þar sem óskað var eftir viðbrögðum við þessu ákalli LS. Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands, segir í sínu svari að félagið hafi farið varlega í að segja til um framtíðina því hún sé um margt óviss. „Breyting í fram­ boði eða verði á einni kjöttegund – sama hvort hún er innlend eða innflutt – hefur áhrif á aðrar. Um kindakjöt gildir sama og um allar aðrar vörur. Til að hækka verð þarf að vera seljendamarkaður sem kallað er, þ.e. hóflegur skortur á vörunni. Svo gildir það um flestar vörur að hærra verð dregur úr eftirspurn. Verðhækkun getur því minnkað inn­ landssölu svo mikið að auka þurfi útflutning aftur sem dregur þá niður verð,“ útskýrir Steinþór. Rekstur afurðafyrirtækja verið þungur Ágúst Torfi Hauksson, fram­ kvæmda stjóri Norðlenska, segir stöðuna vera þannig að kostnaður við rekstur framleiðslufyrirtækja í kjötgeira hafi hækkað mjög mikið umfram verðlag á síðustu árum, til dæmis hafi laun og flutningar hækkað langt umfram verðlag. Þetta hafi meðal annars valdið því að rekstur afurðafyrirtækja hefur verið þungur undanfarin ár. „Það er því alveg ljóst að þótt verð á lambakjöti til dæmis hefði haldið í við verðlag væri samt ekki um það ræða við þessar aðstæður að verð til bænda hefði getað gert það – afkoma afurðastöðva er ekki slík að þær geti tekið á sig fyrrgreindar kostnaðarhækkanir í meiri mæli en verið hefur. Það verður ekki betur séð þegar horft er heilt á geirann að afurðastöðvarnar hafi tekið á sig talsvert af þessum kostnaðarhækk­ unum undanfarinna ára en þol til að ganga lengra í þeim efnum er lítið sem ekkert,“ segir Ágúst Torfi. Hann bætir við, að ofan á það leggist svo að verðþróun á lambakjöti hafi ekki fylgt annarri verðlagsþróun, sem sé í raun afleiðing offramboðs á markaði. „Á árinu 2019 og fram til dagsins í dag hefur verð lamba­ kjöts hins vegar hækkað umfram verðlag. Aðstæður hafa verið á þá lund að unnt hefur verið að þokast í átt til leiðréttingar á verði lamba­ kjöts. Vonandi getur sú þróun haldið áfram, þó það sé því miður alls ekki auglóst á þessum óvissutímum.“ Skúli Þórðarson, sauðfjárbóndi og framkvæmdastjóri Sláturfélags Vopnfirðinga, telur að ekki þurfi að fækka fé meira – innanlands­ markaðurinn sé kominn í jafnvægi. Hann telur að með því að halda framleiðslunni í samræmi við sölu, sé smám saman hægt að auka virði sauðfjárafurða svo bændur beri meira úr býtum. „Svo þarf að hækka afurða­ verðið um tíu prósent á ári þar til að framleiðslukostnaði er náð. Það tekur þrjú ár í viðbót; úr 500 krónum á kíló­ ið í 550, síðan í 610 krónur og loks 670 krónur,“ segir Skúli. Ágústi Andréssyni, forstöðu manni Kjötafurðastöðvar Kaup félags Skag­ firðinga, var einnig send fyrirspurn en svör hafa ekki borist. Tækifæri til hagræðingar og sóknar Þegar Guðfinna Harpa er spurð út í sjónarmið bænda um hver vanda­ mál greinarinnar séu – og mögu­ legar leiðir út úr þeim – segir hún að vandamálin séu margþætt. „Það eru flestir sammála um að það séu tækifæri til að hagræða í slátrun, vinnslu og markaðssetningu. Hluti af vandanum er sá að við höfum enga aðkomu að verðmyndun á markaði. Eins og kerfið er uppbyggt í dag þá geta allir aðilar í virðiskeðjunni tryggt sína afkomu meðal annars með því að lækka afurðaverð til bænda. Það geta ekki talist eðlileg viðskipti.“ Verðum að tryggja viðunandi afkomu og meiri stöðugleika „Í þessu umhverfi leita bændur nýrra leiða. Fyrir suma eru tækifæri sem felast í því að selja beint til neytenda og jafnvel taka yfir hluta af fram­ leiðsluferlinu frá slátrun til smásölu. Þetta mun aukast og er af hinu góða. En samt sem áður verðum við að tryggja heilt yfir að afkoma í sauð­ fjárrækt sé viðunandi og ekki síður að við búum við meiri stöðugleika og fyrirsjáanleika en verið hefur,“ segir Guðfinna Harpa enn fremur. /smh Ágúst Torfi Hauksson, framkvæmda­ stjóri Norðlenska. Mynd / Aðsend Guðfinna H. Árnadóttir, formaður LS. Mynd / smh Fáir erlendir ráðunautar á landinu í sumar: Ráðgjafarmálin leyst með innlendum ráðunautum og fjarfundum Síðasta heimsóknin fyrir lokun var 9.–11. mars þegar Annichen Eriksen, ráðunautur í lífrænum vörnum í gróðurhúsum, kom frá Noregi. Karvel L. Karvelsson, fram kvæmdastjóri RML, segir að eftir að ferðalög voru heimiluð aftur 15. júní með þeim skilyrð­ um að ferðamenn færu í skimun, hafi Benny Jensen kartöfluráðu­ nautur komið frá Danmörku dagana 22.–25. júní. „Hann fór í skimun í Danmörku fjórum dögum fyrir komu og svo aftur við komuna til landsins. Benny heimsótti kartöflubændur og fóru samskipti fram utandyra án snertinga eða návígis. Benny kom aftur í byrjun ágúst og mun aftur fara í skimun í Danmörku, en eins og staðan er núna er ekki krafa um skimun við komu hingað frá Danmörku,“ segir Karvel. Hollenskur paprikuráðunautur var á landinu í júlí „Chris Verberne papriku­ ráðunautur kom hingað frá Hollandi 19. júlí og heimsótti paprikubændur. Hann fór í skimun fyrir komu og aftur við komuna til landsins. Hann fór inn í gróðurhús og var þá í hlífðarfatnaði vegna plöntusóttvarna og þar að auki með andlitsgrímu og fylgdi eðlilegum sóttvarnarvenjum,“ segir Karvel og bendir á að í öllum tilfellum heimsókna sé vilji einstakra bænda kannaður og þeir upplýstir fyrirfram um sóttvarnir og varúðarráðstafanir. Óvissa um framhald heimsókna „Fyrirhugaðri heimsókn Annichen Eriksen í ágúst var frestað fram í nóvember og ákvarðanir um framhald heimsókna verða teknar fljótlega og þá tekið mið af þörf og áhættu. Einn íslenskur aðili kom svo frá Svíþjóð og dæmdi á einni kynbótasýningu en fór í grein­ ingu áður. Öllum öðrum komum hefur verið frestað og hefur þá verið leyst með okkar ráðunautum þar sem hægt hefur verið að koma því við í gegnum fjarvinnslu. Þetta hefur bjargast hingað til og ekki er vitað til þess að neinar greinar hafi orðið fyrir tjóni. Fyrst og fremst eru þetta ráðunautar sem koma vegna inni­ og útiræktunar á grænmeti og blómum. Við munum fylgjast með ástandinu áfram og endurmeta það í ljósi aðstæðna,“ segir Karvel. /smhKarvel L. Karvelsson, framkvæmdastjóri RML. Breytingar frá 2019 Sláturleyfishafi Lömb Fullorðið SS 8,5% -2% NL 6,4% 0% SAH 9% 0% KS og SKVH 6% 18,5% Fjallalamb 5,7% 8,6% SV 8,5% 0% Landsmeðaltal 7,1% -0,83% Verð 2020 Sláturleyfishafi Lömb Fullorðið SS 505 kr. 121 kr. NL 490 kr. 111 kr. SAH 503 kr. 115 kr. KS og SKVH 508 kr. 139 kr. Fjallalamb 483 kr. 122 kr. SV 507 kr. 117 kr. Landsmeðaltal 444 kr. 124 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.