Bændablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 17
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2020 17
NÝ VERSLUN Á SELFOSSI
Rekstrarland | Austurvegi 69 | 800 Selfoss | 480 1306 | rekstrarland.is
Í Rekstrarlandi fást gæðavörur fyrir heimili, einstaklinga, fyrirtæki, iðnað, landbúnað og sjávarútveg. Verið velkomin!
OPIÐ
MÁN.–FIM. 8–18
FÖS. 8–17
Tunguhálsi 19 • 110 Reykjavík • Sími 588 9747
FRÁBÆRU ENDINGARGÓÐU KYMCO
FJÓRHJÓLIN KOMIN AFTUR
GÖTUSKRÁÐ HJÓL TILVALIÐ Í LEIK OG STARF
Veglegur aukahlutapakki fylgir:
Öflugt spil, dráttarkúla,
prófíltengi, sæti og sætisbak
fyrir farþega, álfelgur
og 26” Maxxis Bighorn dekk.
Bænda
8. október
Blautklútaklumpur úr togi við Akranes. Auk blautklútanna „veiddust“ ýmsar
aðrar hreinlætisvörur, eins og dömubindi, eyrnapinnar, latexhanskar og
umbúðir sem eiga líklega rætur að rekja til skólps. Myndir / Hafrannsóknastofnun
Meðafli í Grunnslóðaleiðangri Hafró:
Blautklútaveiðar í Faxaflóa
Í Grunnslóðaleiðangri Haf rann
sókna stofnunar eru stundaðar
rannsóknir á flatfisktegundum,
sandsíli og sæbjúgum á grunnslóð
allt í kringum landið. Í ár var nýs
og óskemmtilegs meðafla vart,
en blautklútar, ættaðir úr skólpi
þéttbýlisstaða, voru algengir í
togum við Faxaflóa.
Samkvæmt frétt á vef Haf
rann sóknastofnunar fengust blaut
klútar í flestum togum í Grunn
slóðarleiðangri við flóann en
mest var magnið við Akranes og
við mynni Borgarfjarðar, eða tæp
2 kíló við Akranes og rúmt kíló í
Borgarfirði. Auk blautklútanna
„veiddust“ ýmsar aðrar hreinlætis
vörur, eins og dömubindi, eyrnap
innar, latexhanskar og umbúðir sem
eiga líklega rætur að rekja til skólps.
Hafra nnsóknastofnun hefur ekki
skráð hreinlætisvörur til „tegunda“
í leiðöngrum sínum en það er upp
lifun leiðangursmanna að magn
hreinlætisvara sé mun meira í ár en
árin á undan.
Ekki sturta niður rusli
Fólk er því hvatt til að passa sig að
henda þessum hlutum í ruslið, en
ekki sturta þeim niður, því að jafnvel
þó að á umbúðunum segi að klútarnir
séu niðursturtanlegir, þýðir það ekki
að þeir brotni hratt niður í náttúrunni.
Stofnmæling flatfiska og sandsílis
Í leiðangrinum er togað með fjögurra
metra bjálkatrolli á grunnsævi. Mark
mið leiðangursins er stofn mæling á
flatfiskum og sandsíli. Sérstaklega er
verið að reyna að fá mat á nýliðun
flatfiska.
Í ár var einnig bætt við leiðang
urinn togstöðvum til að fylgjast með
þéttleika sæbjúgna en vonir standa
til að niðurstöðurnar muni nýtast við
ráðgjöf á þessum nýja nytjastofni er
frá líður. /VH
Blautklútaklumpur kominn á borð
vísindamanna.