Bændablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2020 49
Ónýtar girðingar, gaddavír og
annað rusl er til mikillar óprýði
í umhverfinu víða um land.
Sveinn Runólfsson, fyrr verandi
landgræðslustjóri, hafði orð á
þessu í síðasta Bændablaði og
hvatti menn til að taka til hendi
við hreinsun á þessum girðing-
um. Þegar blaðið kom út barst
ábending til Bændablaðsins
um að í hrauninu í utanverð-
um Hafnarfirði hafi verið farin
nýstárleg leið til að gera áhuga-
verða hluti úr ónýtum girðing-
um.
Þegar betur var að gáð er búið
að gera fjölda skúlptúra í hraun-
inu úr girðingastaurum, vírneti,
trollnetum sem menn hafa nýtt
í girðingar og fleiru lauslegu.
Þarna vestur af enda Herjólfsgötu
út að Bala, Dysjum og áfram með
ströndinni er vinsælt útivistar-
svæði, Garðbæinga, Hafnfirðinga
og fleiri. Hafa þessar fígúrur laðað
að forvitna vegfarendur og lista-
menn, enda býst fólk ekki við slíku
á þessum stað.
Ruslasöfnunarárátta
varð að listsköpun
Höfundur þessara verka heitir
Ægir Geirdal listamaður og segir
hann upphafið að þessu vera að
undanfarin átta ár hafi hann haft
þá áráttu að ganga um þetta svæði,
hreinsað upp rusl og koma því
síðan í förgun.
„Fyrir um ári síðan fór fólk að
benda mér á gaddavírsgirðingar
sem lægju þarna hálfgrónar niður
í jarðveginn. Ég hafði reyndar ekki
góða reynslu af slíku því gamli
hundurinn minn festist einmitt
þrisvar sinnum í gaddavír. Ef ég
hefði ekki verið til staðar til að
klippa hann lausan, þá hefði hann
drepist.
Ég byrja því fyrir ári síðan að
klippa á þennan vír og rífa hann
upp úr jörðinni og safna honum
saman. Í stað þess að fara menn
hann út á bílastæði fór ég að
vefja honum utan um staurana
á staðnum. Ég geri þarna tvær
styttur eða hrúgöld úr vír og
grænu neti sem bændur notuðu
gjarnan til að girða. Svo fann ég
regnbogafána rekinn í fjörunni og
stuttu seinna fann ég bolta sem líka
var í regnabogalitunum. Þar sem
það er samkynhneigt fólk í minni
fjölskyldu datt mér í huga að það
gæti verið gaman að gera eitthvað
úr þessu fyrir það. Þá sé ég viðtal
í sjónvarpi við tvær fyrrverandi
handboltakonur í Englandi sem
höfðu verið saman í 40–50 ár án
þess að nokkur áttaði sig á að þær
væru samkynhneigðar. Þarna koma
þær út úr skápnum og gifta sig. Þá
fæ ég þá hugljómun, eða straum, og
ríf sundur hrúgöldin sem ég hafði
búið til. Tíni svo til ýmislegt sem
ég hafði fundið þarna í gjótum og
úr verða tvær samkynhneigðar
konur. Önnur er brúðurin sem er í
hvítu og í blárri treyju. Til að minna
á hið gamla er svo kolryðgaður
gaddavírinn sem er innan í henni.
Ég klauf svo sundur regnbogalitaða
boltann og bjó til úr honum höfuð á
vinkonurnar með kampavínstappa
fyrir augu. Á höfðinu er svo hár af
hundinum mínum sem dó í fyrra.“
Skynjar ýmislegt
sem aðrir finna ekki
Ægir segist skynja ýmislegt úr
umhverfinu sem ekki sé öllum
gefið. Því vilji hann meina að það
séu vættir sem leiðbeini honum
við þetta.
„Þetta er ekki mín hugmynd, ég
byrja ekki á svona ímynd, hún bara
verður til og atvikin ráða því að
hún vex smám saman,“ segir Ægir.
Hann bendir á fleiri verur
sem hann hafi sett saman þarna
í hrauninu. Við hliðina á parinu
er transvera sem hann hafði áður
kallað Kýra, en heitir núna Kýrin.
Þá kemur völvan Magna þar
vestanvið. Þegar prófessor Goddur
hafi komið í heimsókn hafi hann
hrifist mjög og látið taka mynd af
sér við Mögnu.
Trömpína, Kári og þríeykið
Fimmta veran er setta saman á
svipaðan hátt. Í efnivið fann hann
m.a. sjórekinn appelsínugulan bol
sem hann notaði í höfuð. Þegar
fundur republicana var svo haldin
í Bandaríkjunum nýverið hafi þeirri
hugmynd skotið niður í kollinn
að kalla þessa veru Trömpínu
en kvenkynsnöfnin séu tilkomin
vegna þess að þetta eigi allt að vera
völvur.
Örlítið vestar í hrauninu er ein
stór fígúra með þrem minni sér við
hlið. Þetta segir Ægir að séu Kári
Stefánsson og COVID-þríeykið.
Þá tók Ægir sig til einn daginn og
hreinsaði til í gömlum kofarústum
sem eru á svæðinu, sópaði gólf og
gerði rústirnar ásjálegri fyrir þá
sem leið eiga um svæðið.
Hvetur fólk til átaks í hreinsun
sem gerð verði að samkeppni
milli landshluta
Ægir hyggst halda áfram að gera
skemmtilega hluti úr girðingum
sem liggja þarna víða flatar á
jörðinni. Hvetur hann bændur og
annað hugmyndaríkt fólk um land
allt til að íhuga að gera slíkt hið
sama. Í stað þess að það þurfi að
vera kvöð í augum fólks að rífa
upp ónýtar girðingar, þá megi
búa til úr slíku skemmtilegan leik
eða samkeppni milli landshluta.
Þar keppist menn við að gera
sem skemmtilegustu fígúrurnar
úr hlutum sem annars eru bara til
ama. /HKr.
Í hrauninu upp af ströndinni í vestanverðum Hafnarfirði:
Ónýtar girðingar, gaddavír og rusl verður að listaverkum
– Höfundur hvetur fólk til átaks í hreinsun sem gerð verði að skemmtilegri samkeppni milli landshluta
Hvatning Sveins Runólfssonar,
fyrrverandi landgræðslustjóra, hefur
ýtt við hugmyndum um að gera slíka
hreinsun að skemmtilegri uppákomu
meðal landsmanna en ekki kvöð.
Ónýtar girðingar og annað drasl í nýju hlutverki. Tvær samkynhneigðar og
fyrrverandi handbolta konur í Englandi voru kveikjan að þessum verkum
Ægis Geirdal.
Ægir með fígúrum sem hann kallar Kára Stefánsson og þríeykið í hrauninu
í Hafnarfirði.
Transveran Kýra heitir nú Kýrin og
er með forláta Loftleiðahúfu.
Trömpína sem minnir óneitanlega á
ónefndan forseta stórþjóðar.
Magna er ansi vel búin og komin með
staf við hæfi.
MENNING&LISTIR
jardir.is