Bændablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 46

Bændablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 202046 PLÖNTUR&PLÖNTUHEITI Að gera kleinu úr líparíti; mikilvægi fræðiheita Mörgum er illa við fræðiheiti plantna og kjósa heldur að halda sig við íslensk heiti. Gott og vel, enda mörg íslensku heitin afar fal- leg og vel heppnuð. Hins vegar eru ekki til íslensk heiti á allar plöntur og auk þess oft heppilegra að vita fræðiheitin, vilji maður leita sér nánari upplýsinga. Fræðiheitin segja okkur líka oft meira um plöntuna, á meðan almennu heitin geta jafnvel verið villandi. Randagin er t.d. ekki nýtt íslenskt gin, heldur blómplanta sem nefnist Linaria repens á fræðimálinu. Lin naría? En hvað segir fræðiheitið okkur um plöntuna? Linaria vísar til þess að hún tilheyrir þeirri ættkvísl og á eflaust margt sameiginlegt með ættingjum sínum. Repens í nafninu vísar til þess að plantan liggur flöt, skríður um og festir svo rætur hér og þar. Nefna má skriðsóley, hvítsmára og húsapunt sem dæmi um þessa skriðulu hegðun í íslensku flórunni. Blóðberg hegðar sér svosem ekki ósvipað, án þess þó að bera þess merki í nafninu. Skríður barn, skríður bleia En aftur að latínunni. Þegar maður lærir orð sem vísar til skriðullar hegðunar, veltir maður auðvitað fyrir sér hvar annars staðar þetta gæti átt við. Lýsingin gæti átt við um unglinga, eða jafnvel ungbörn. Þau skríða jú um og festa stundum rætur í dágóða stund. Alþjóðlegur þýðandi sem ég fann á netinu lagði til „Liberi repens“ sem þýðingu á „skriðul börn“. Þar datt maður auðvitað lengra ofan í holuna og týndi sér í latínunni. Endingar skipta máli. Libero þýðir t.d. ókeypis, sem rímar afar illa við verðlagningu á samnefndum bleium. Libera þýðir afhenda og liber er bók. Næsta spurning til þýðandans var augljós: „Liberi libera libero liber“ hlýtur þá að þýða „Börn afhenda ókeypis bók“? Nei, ekki hélt hann það. Þetta þýddi hann sem „Frítt frítt frítt“. Ekki er öll vitleysan eins. Líklega skiptir samhengi og röðun einnig máli. Nema þýðandinn sé bara ekki eins klár og hann heldur. Gekk Bólu-Hjálmar um með dvergaslæðu? Nóg um það. Ekki tími til að læra latínu núna. Virðist allt of mikið ves en. Skoðum frekar fleiri skriðular plöntur. Hvar finnur maður víðar „repens“? Flottasta plöntunafnið í hópnum er líklega klakadrottning. Drottningu hæfir þó varla að skríða, en líklega hefur heitið klakaungbarn þótt óþjált. Heldur eðlilegra kannski að maður búist við að sjá dvergaslæðu (Gypsophila repens) og lágdeplu (Veronica repens) liggjandi við jörðu. Einnig slæddist þarna með Dermatitis repens. Ekki er þar á ferð planta, heldur kvilli sem hrjáir okkar stærsta líffæri: húðina. Skilgreint sem „Langvinnt og þrálátt form bólukvilla í húð yst á fingrum og tám“. Hafandi nýlega lært um orðið „repens“ gefum við okkur að kvillinn hljóti að vera skriðull. Ætli Bólu-Hjálmar hafi kynnst þessu? Skríða úlfaldar í eyðimörkinni? Svar er ekki á reiðum höndum, því augað rataði fljótt á hið skriðula úlf- aldablóm (Kleinia repens). Næsta verkefni var því að finna stað á Íslandi þar sem úlfaldablóm vex upp úr mýflugnagrasi (Liparis loes- elii), eða jafnvel í jarðvegi úr sam- ansöfnuðum leifum mýflugnagrass. Hið raunverulega dæmi um úlfalda úr mýflugu. Athugun á lýsingum þessara plantna gerði manni þó fljótt ljóst að þær væru ólíklegar til að vaxa saman og hvorug þeirra lifir villt á landinu okkar fína, þó íslensk heiti þær hafi. Myndin verður því ekki að veruleika að sinni. Að gera Kleinia repens úr Liparis loeselii, er þó auðveldlega hægt að snara yfir í vitleysuna: – „Að gera kleinu úr líparíti“. Stefnumót við plöntur Fræðiheitin segja auðvitað bara rétt formálann. Plöntulýsingar gefa okkur þær upplýsingar sem vantar. Með fræðiheitin í farteskinu getum við flett upp plöntulýsingum svo að segja hvar sem okkur lystir. Í ljósi þess að flestar plöntur sem hér finn- ast, eiga sér heimili mun víðar um heiminn, er augljós hagur í slíku. Ég verð þó að játa að næstu vangaveltur snerust um nýtingu plantnanna á sínum eigin plöntulýsingum. Ætli plöntur myndu lýsa sér á sama hátt og við lýsum þeim? Hvernig myndi plöntu „Tinder“ líta út? Ættum við kannski sjálf að taka upp sambæri- legan orðaforða til eigin lýsinga? Fremur harðger og frjó. Vöxtur breiður, en að mestu uppréttur. Axlablöð oft með purpurarauða slikju og dálítið af brúnum blett- um. Egglaga, randhærð króna með löngum hárum, þó öllu hárlausari eftir því sem ofar dregur. Oft, en ekki alltaf, tennt. Leggir langir, hárlausir og oft rytjulegir. Fær gjarnan sveppasýk- ingar. Miðhlutinn á stuttum stilk. Pípan mjó, áberandi vörtótt. Oft upprétt eða uppsveigð, en styttri og hang- andi eftir að fræjum hefur verið slöngvað burt. Þrífst best í hálf- skugga eða sól. Fræðiheitin opna nýjan heim Þó fræðiheitin kunni að virðast flókin, eru þau afar nytsamleg. Svo sem ástæðulaust að skella sér í háskólanám í latínu til þess eins að læra meira um plöntur. En með því að venja sig á að nota fræðiheitin fer maður smám saman að muna alengustu hluti. Félagsskapurinn frómi, Garðyrkjufélag Íslands, myndi væntanlega nefnast Hortorum Cultus Societas Islandiae á latínu, svo dæmi sé tekið. Garður+menning er garðyrkja og seinni helmingurinn einfaldlega Félag Íslands. Annars er ég reyndar að hugsa um að bæta plöntu í garðinn. Skyldi ég velja fjalldrapa (Betula nana – ættkvísl: birki. Smávaxin), svartylli (Sambucus nigra – ættkvísl: yllir. Svört), rauðrifs (Ribes rubrum – ættkvísl: rifs. Rautt) eða sólber (Ribes nigrum – ættkvísl: rifs. Svört)? Kannski maður skelli sér bara á ætihvönn/englahvönn (Angelica archangelica) enda margrómuð heilsuplanta og bragðbætir. En þar flækist málið aðeins. Angelica vísar okkur á ættkvíslina hvönn. Archangelica er hins vegar aðlagað úr gríska heitinu fyrir erkiengil, enda átti einn slíkur að hafa sagt til um notkun hennar til lækninga. Fræðiheitin geta auðvitað verið misjafnlega lýsandi, en það er engin ástæða til að óttast þau. Svo fremi sem maður fer ekki um víðan völl frekar en að halda fókus, þá er þetta ekkert svo flókið. Þaðan af síður ástæða til að gera úlfalda úr mýflugu. Já eða kleinu úr líparíti. (Ritað með fyrirvara um lauslegar þýðingar og arfaslakan útúrsnúning). Kristján Friðbertsson Ég sagði nú reyndar randagin (Linaria repens), ekki randagras (Phalaris arundinacea). Þarna hefði fræðiheitið átt að hjálpa. Þótt ótrúlegt megi virðast, eiga sveppaldin líka sín fræðiheiti. Samkvæmisleikurinn „sólber eða snigill“ slær alltaf í gegn á hverju stefnumóti. Kristján Friðbertsson. Dráttarvélar á ferð flest dráttarvélaslys á vegum úti verða þegar vél mætir öðru ökutæki eða keyrir út af. Gætið að því að fara ekki of nærri lausum vegköntum og hagið akstri eftir aðstæðum. Hvað getur þú gert til að auka öryggi í umferðinni? • Notaðu speglana og fylgstu með umferðinni á eftir þér • Notaðu stefnuljós • Er ljósabúnaður í lagi? • Sjáðu til þess að stefnu- og bremsuljós sjáist vel • Ekki gleyma að slökkva á vinnuljósum á vegum úti • Aktu með varúð • Forðastu hraðar beygjur • Forðist akstur dráttarvéla á vegum þegar umferðarþunginn er mikill. • Stillið hraða miðað við farm og bremsueiginleika dráttarvélarinnar. • Akið með ámoksturstæki í lágri stöðu, um 20-30 cm frá jörðu, og gætið þess að þau hindri ekki útsýni úr stýrishúsi. Kynntu þér leiðbeiningaefni um öryggi og vinnuvernd í landbúnaði á bondi.is er þitt bú öruGGur oG Góður vinnustaður? PO RT h ön nu n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.