Bændablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 9
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2020 9
Ný prjónabók
22 nýjar uppskriftir - Lopi 40
Bókin er fáanleg í öllum verslunum sem selja Lopa
Valsárhverfi á Svalbarðseyri í uppbyggingu í fjölskylduvænu umhverfi á góðum útsýnisstað:
Leitast við að ná fram eiginleikum sveitaþorps
Björg Erlingsdóttir, sveitarstjóri
í Svalbarðsstrandarhreppi, segir
töluverðan áhuga fyrir nýju
hverfi, Valsárhverfi, sem verið
er að byggja upp við þéttbýlið á
Svalbarðseyri. Mikil umferð sé um
svæðið og fjöldi fyrirspurna um
lóðir hafi borist.
Nýlega rann út frestur til að sækja
um lausar lóðir á Svalbarðseyri og
var tveimur lóðum úthlutað í kjölfar-
ið. Björg segir að alls hafi verið aug-
lýstar 10 lóðir, þar af voru 8 einbýlis/
parhúsalóðir og tvær raðhúsalóðir.
Áður var búið að auglýsa 17 lóðir og
hefur fjórum þeirra verið úthlutað.
Fyrstu húsin risin
Fyrstu húsin í hverfinu hafa þegar
risið og fleiri eru í farvatninu.
Uppbyggingu hverfisins verður skipt
upp í nokkra áfanga að sögn Bjargar
en um þessar mundir er verið að
ljúka við seinni hluta fyrsta áfanga.
Gatnagerð í hverfinu er einnig að
ljúka og segir Björg að þá verði
auðveldara fyrir áhugasama að sjá
hvernig gatan liggur, hvert útsýnið
er og hvernig húsin munu standa
í landslaginu. „Við gerum svo ráð
fyrir að halda áfram með gatnagerð
þegar við höfum selt megnið af
lóðunum,“ segir hún.
Sveitarfélagið byggir parhús
Björg segir að margir sýni nýjum
lóðum áhuga, þar er m.a. um að ræða
ungt fjölskyldufólk sem hefur hug á
að snúa aftur heim á Svalbarðseyri
og einnig hafi fólk sem nú búi á
Akureyri áhuga fyrir að flytja sig
um set.
„Það getur hins vegar verið flókið
að takast á við stórt verkefni eins og
húsbyggingu,“ segir Björg og bendir
á að sveitarfélagið hafi í hyggju að
byggja parhús á einni þeirra lóða
sem auglýstar voru núna.
„Við höfum fengið fyrirspurnir
frá fólki sem hefur áhuga á að kaupa
húsnæði af sveitarfélaginu,“ segir
hún.
Fjölskylduvænt umhverfi
Björg segir að Valsárhverfi bjóði
upp á fjölskylduvænt umhverfi þar
sem tekið er mið af þörfum barna og
barnafjölskyldna. Skipulagssvæðið
einkennist af talsverðum landhalla
sem býður upp á fallegar útsýni-
slóðir. Nýja byggðin mun umvefja
skóla og íþróttasvæði og allar bak-
lóðir nýju byggðarinnar snúa að
opnu landi eða útivistarstíg. Með
því er leitast við að ná eiginleikum
sveitaþorps. „Við bjóðum upp á
ákveðinn sveigjanleika í skipulagi
hverfisins bæði hvað varðar húsa-
gerðir og íbúðastærðir. Í fyrstu
tveimur áföngum hverfisins er
gert ráð fyrir um 100 íbúðum, til
helminga verða þar einbýlishús
og par- eða raðhús til helminga á
móti,“ segir Björg. Í fyrsta áfanga
sem verið er að klára núna er gert
ráð fyrir 19 einbýlishúsum og 26
rað/parhúsum. Björg segir að ekki sé
gert ráð fyrir að leik- og grunnskóli
í sveitarfélaginu þurfi að stækka fyrr
en hafist verður handa við annan
áfanga.
Margvíslegir kostir
„Við teljum okkur geta boðið upp
á margvíslega kosti, útsýnið er fal-
legt yfir fjörðinn og stutt í góðar
gönguleiðir og útivist, mannlífið er
gott og fjölskylduvænt, börn kom-
ast til og frá skóla án þess að fara
yfir götu og svo er stutt í þjónustu á
Akureyri. Friðsældin fylgir ókeypis
með og hvað er nú betra á þessum
síðustu tímum hraða og áreitis en
að eiga aðgang að öllum þessum
gæðum?“ segir Björg. /MÞÞ
Björg Erlingsdóttir.
Nýtt hverfi, Valsárhverfi, er í uppbyggingu við Svalbarðseyri og er verkefninu skipt upp í nokkra áfanga.