Bændablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 15
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2020 15
HUGUM AÐ HAUSTI
Handhafi gjafabréfsins á inni gistingu í standard tveggja manna herbergi í eina nótt á
Icelandair hóteli að eigin vali, ásamt morgunverðarhlaðborði og þriggja rétta kvöldverði
að hætti hússins fyrir tvo.
Sími 480 5600
Gunnbjarnarholti, 804 Selfossi
Sími 480 5610
Kaupvangi 10, 700 Egilsstöðum
Gjafabréf fylgir öllum seldum haugtækum í september!
*Verð eru birt með fyrirvara um gengisbreytingu
Er ekki tilvalið
að skella sér í frí
eftir að skítverkunum
lýkur?
Verslaðu þá tæki
hjá Landstólpa svo
að þetta haast
nú af fyrir jól
Storth - Haugdælur
Verð frá 1.228.000 + vsk*
HiSpec - Haugsuga
Verð 4.349.000 + vsk
HiSpec - Keðjudreifari
Verð 1.770.000 + vsk*
Storth - Haughrærur
Verð frá 649.000 + vsk*
IcelandairHotelsGjafabréffylgir
Ef verslaðer fyrir1.10.2020
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
Hvanneyrargötu 3, 311 Borgarnesi
Sími 430-4300
Bændur/ábúendur lögbýla
Nú eða aldrei!
Framleiðnisjóður landbúnaðarins kallar eftir umsóknum um styrki
til verkefna á sviði nýsköpunar og þróunar á lögbýlum (B-flokkur)
Í meira en hálfa öld hefur Framleiðnisjóður landbúnaðarins stutt ötullega við nýsköpun og þróun í
íslenskum landbúnaði. Sjóðurinn hefur sinnt fjölbreyttum verkefnum og hefur starf sjóðsins jafnframt
markast af þeirri sýn að landbúnaður hafi mikilvægu hlutverki að gegna í byggðalegu samhengi.
Matvælaframleiðsla er vissulega meginmarkmið greinarinnar, en slík framleiðsla á sér ekki stað í
einangrun frá öðrum atvinnugreinum dreifbýlisins. Tækifæri framtíðarinnar liggja m.a. í nýjum leiðum
til hlunninda- og landnýtingar, landverndar, sem og í mótun þjónustu af ýmsum toga.
Stjórnvöld hafa nú ákveðið að Framleiðnisjóður verði lagður niður í lok ársins 2020. Stjórnendur
Framleiðnisjóðs hafa ákveðið að síðasta úthlutun sjóðsins beinist fyrst og fremst að grasrótarstarfi
bænda og þeirra viðleitni til eflingar atvinnu í sveitum. Hér er því kallað eftir umsóknum um styrki til
verkefna á sviði nýsköpunar og þróunar á lögbýlum.
Forgangs njóta þau verkefni sem fela í sér verulega nýbreytni, sem líkleg eru til að leiða af sér um-
talsverða atvinnusköpun og þar sem stuðningur sjóðsins hefur afgerandi þýðingu. Umsækjendur eru
jafnframt beðnir að kynna sér sérstaklega frekari upplýsingar um takmarkanir er gilda um verkefni á
ákveðnum sviðum, styrkhæfan kostnað, framkvæmdatíma verkefna, o.fl. á heimasíðu sjóðsins, www.fl.is.
Umsóknum skal skilað á sérstökum umsóknareyðublöðum sem er að finna á heimasíðu sjóðsins,
www.fl.is, undir flipanum EYÐUBLÖÐ, B-form, umsókn og greinargerð.
Mikilvægt er að vanda til gerðar umsókna og gera grein fyrir öllum efnisatriðum sem farið er fram á í
umsóknarforminu. Sjóðurinn leggur ríka áherslu á að vanda skuli til gerðar allra fylgigagna umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 30. október 2020.
Umsóknum skal skilað á rafrænu formi á netfangið fl@fl.is og með hefðbundnum pósti til
Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, Hvanneyrargötu 3, 311 Borgarnes.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Framleiðnisjóði landbúnaðarins í síma 430-4300 eða um netfangið
sigridur@fl.is.
Menntaskólinn að Laugarvatni:
Stúlkur eru 70% nemenda
en piltar eru aðeins 30%
Alls stunda 147 nemendur nám við
Menntaskólann að Laugarvatni í
vetur, þar af 59 nýnemar. Af öllum
hópnum eru um 30% nemenda
piltar og 70% stúlkur.
Skólinn er heimavistarskóli og
því þarf að gera sérstakar ráðstafanir
vegna COVID-19. „Já, við förum
þá leiðina eftir mikla skoðun og
fundahöld að vera eingöngu með
einn árgang í staðnámi í einu. Núna
fyrstu tvær vikurnar eru nýnemar,
nemendur í 1F og 1N, í skólanum.
Nemendur í efri bekkjum hófu
fjarnám/fjarvinnu 31. ágúst. Þann
7. september komu nemendur 3. árs í
staðnám en þá voru nýnemar komnir
í fjarnám. Eins verða nemendur
annars ársins í fjarnámi viku í
viðbót en koma svo í staðnám. Þá
verða nemendur fyrsta og þriðja árs
í fjarnámi. Eftir það koma nýnemar
aftur í staðnám um stund. Svona mun
námi og kennslu vera háttað á meðan
þessi staða er,“ segir Halldór Páll
Halldórsson skólameistari og bætir
við: „Útfærsla þessi er tilkomin
þar sem þetta er heimavistarskóli
með mötuneyti og niðurstaða
okkar var sú að þetta væri eina
leiðin að fara með sóttvarnareglur
í framhaldsskólum í huga.“ Alls
34 starfsmenn vinna við skólann
og af þeim eru 20 við kennslu og
stjórnun. Margir starfsmannanna
eru í hlutastarfi, s.s. við kennslu,
ræstingar og vistarvörslu. /MHH
Halldór Páll Halldórsson, skólameist-
ari Menntaskólans að Laugarvatni.
Mynd / MHH
Frá Laugarvatni. Mynd / HKr.