Bændablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 57
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2020 57
Prjónuð hipster húfa á herra úr DROPS Flora. Húfan
er prjónuð í stroffprjóni.
DROPS Design: fl-055
Stærðir: S/M (M/L) L/XL
Höfuðmál: ca 54/56 (56/58) 58/60 cm.
Hæð með tvöföldu uppábroti ca: 25 (26) 27 cm.
Garn: DROPS FLORA (fæst í Handverkskúnst): 100
(100) 100 g litur á mynd: indigo nr 10
Prjónfesta: 26 lykkjur x 32 umferðir í sléttu prjóni
= 10x10 cm.
Prjónar: Sokkaprjónar og hringprjónn 40 cm nr 2,5
HÚFA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Smám
saman er lykkjum fækkað, skiptið yfir á sokkaprjóna
þegar þörf er á.
HÚFA: Fitjið upp 144 (152) 160 lykkjur á hringprjón.
Tengið í hring og setjið prjónamerki sem markar upp-
haf umferðar. Prjónið stroff hringinn með 2 lykkjur
slétt og 2 lykkjur brugðið. Prjónið stroffprjón þar
til stykkið mælist ca 26 (27) 28 cm (eða prjónið að
óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm til loka).
Nú byrjar úrtaka fyrir toppinn á húfunni, prjónið
þannig:
FYRSTA ÚRTAKA: *Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið
næstu 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja brugðið*, prjón-
ið frá *-* alls 36 (38) 40 sinnum í umferð (fækkað um
36 (38) 40 lykkjur) = 108 (114) 120 lykkjur.
Prjónið með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og
brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur í 2 cm.
ÖNNUR ÚRTAKA: Prjónið 1 lykkju slétt, færið prjóna-
merkið hingað (þ.e.a.s. prjónamerkið er fært um 1
lykkju til vinstri og þetta er núna byrjun á umferð).
*Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið næstu 2 lykkjur slétt
saman*, prjónið frá *-* alls 36 (38) 40 sinnum í
umferð (fækkað um 36 (38) 40 lykkjur) = 72 (76)
80 lykkjur. Allar brugðnar lykkjur eru núna horfnar.
Prjónið slétt í hring, 1 cm.
ÞRIÐJA ÚRTAKA: Prjónið 2 lykkjur slétt saman út
umferðina (fækkað um 36 (38) 40) = 36 (38) 40
lykkjur í umferð. Prjónið slétt í hring, 1 cm.
FJÓRÐA ÚRTAKA: Prjónið 2 lykkjur slétt saman út
umferðina (fækkað um 18 (19) 20 lykkjur) = 18 (19)
20 lykkjur í umferð.
Klippið frá. Notið nál til að þræða þráðinn í gegnum
síðustu lykkjurnar nokkrum sinnum. Herðið að og
festið vel. Húfan mælist ca 30 (31) 32 cm. Brjótið
uppá kantinn 2 sinnum að réttu ca 2½ cm í hvort
skipti. Húfan mælist ca 25 (26) 27 cm með uppábroti.
Prjónakveðja,
mæðgurnar í Handverkskúnst,
www.garn.is
Georgetown-húfa
á herra
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
8 6 5 2 4
2 8 3
4 1 2 8 7
6 2 7 4 8
1 3 5 6 7
8 3 9 5 2
9 4 8 6 3
3 6 5
5 8 1 7 9
Þyngst
9 5 8
6 8 3 5 4
5 4 7 1
9 4 2 6
1 7 9 2
7 1 3 5
8 9 7 6
2 4 9 3 7
3 1 4
2 3
4 8 6
9 1
2 3 6
5 6 9 1 3
8 5 7
7 8
1 6 9
5 4
1 7 9 3
5 3 1
4 6
1 7 6 4
5 2
2 6 3 8
8 6
2 8 7
9 6 3 2
Æfi sund og spila á gítar
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Sigrún Halla Olgeirsdóttir er 12
ára. Hún á einn bróður sem er
þremur árum yngri og innan
skamms bætist hundur við fjöl
skylduna.
Sigrún Halla er ljúf, samvisku
söm og hörkudugleg stelpa sem
hefur áhuga á sundi og tónlist.
Nafn: Sigrún Halla Olgeirsdóttir.
Aldur: 12 ára.
Stjörnumerki: Sporðdreki.
Búseta: Bolungarvík.
Skóli: Grunnskóli Bolungarvíkur.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Heimilisfræði.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hundur.
Uppáhaldsmatur: Sushi.
Uppáhaldshljómsveit: Billie
Eilish.
Uppáhaldskvikmynd: Greatest
showman.
Fyrsta minning þín? Þegar ég
braut framtennurnar.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Já, æfi sund og er að
æfa mig að spila á gítar.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Ég veit það ekki.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Fara í rússíbana.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í
sumar? Fór í útilegu.
Næst » Sigrún skorar á Kjartan
Stein, sem var með henni í bekk en
er fluttur til Akureyrar.
Sími: 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is
41,9% fólks
á landsbyggðinni
les Bændablaðið
21,9% 41,9%
á landsbyggðinni
á höfuðborgarsvæðinu
29,2%
landsmanna lesa
Bændablaðið
Lestur Bændablaðsins: BÆNDABLAÐIÐ ER GEFIÐ ÚT Í 32 ÞÚSUND
EINTÖKUM Á TVEGGJA VIKNA FRESTI
Heimild: Prentmiðlakönnun Gallup, okt.-des. 2019. Aldur 12-80 ára.
Hvar auglýsir þú?
www.bbl.is