Bændablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 52
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 202052
Mikið er rætt um stöðu ferða
þjónustunnar í dag. Oft á þann
veg að ætla mætti að greinin væri
einangruð og komi ekki öðrum
við en þeim sem eiga hana og þar
starfa og komi lítt við aðra þætti
þjóðfélagsins. Lítum aðeins á stöð
una:
Greinin hefur verið í vexti um
áratuga skeið og fyrir bankahrunið
var hún orðin ein af þrem höfuð
undir stöðum í efnahagslífi þjóðar
innar. Í kjölfar hrunsins og síðan
eldgosa sem stöðvuðu allt flug um
tíma var farið í markaðsátak sem
enginn sá fyrir hverju skilaði þegar
upp var staðið. Við tók nánast veld
isvöxtur sem stóð fram til 2018.
Allt í einu var ferðaþjónustan orðin
stærsta atvinnugrein landsins og
hafði algjörlega snúið við áratuga
langri baráttu við að halda gengi
krónunnar uppi og hafði í raun styrkt
hana umfram það sem greinin sjálf
þoldi. Við var að taka aðlögunar
tímabil með hægum vexti og nýrri
nálgun; við þurftum á því að halda:
Taka stöðuna og marka stefnu til
framtíðar.
Áhrif COVID
Svo kom COVID. Rétt til að árétta
hvað er að gerast þá er staðan nú sú
að stærsta atvinnugrein þjóðarinnar
verður tekjulítil og í sumum tilfellum
tekjulaus í eitt ár í það minnsta. Þá
bendir allt til þess að það muni taka
tvö til fjögur ár að koma greininni á
lappir aftur ef allt gengur vel.
Margt hefur gengið vel í
baráttunni við efnahagslegu áhrifin
á síðustu mánuðum. Tekist hefur
að örva innlenda eftirspurn þannig
að samdráttur landsframleiðslu
hefur verið minni en reiknað var
með. Þá eru bæði ríkissjóður og
Seðlabankinn í stöðu til að geta veitt
kröftuga mótstöðu.
Ef við setjum þetta í sögulegt
samhengi þá eru áhrif tímabund
ins tekjuhruns aðalatvinnuvegar
þjóðarinnar nú minni en hrun á
einni tegund í sjávarútvegi þegar
síldin hvarf á sjöunda áratug síð
ustu aldar. Það eru miklu fleiri stoðir
sem bera okkur uppi í dag. Það hefur
verið kallað eftir einhverju nýju og
ferðaþjónustan svaraði því kalli. Við
skulum hins vegar hafa það alveg
á hreinu að ef ekki tekst að koma
fótunum hratt aftur undir greinina
stöndum við frami fyrir gríðarlegum
efnahagslegum vanda.
Dýrasta leiðin
Snúum okkur aftur af ferða þjón
ustunni: Þær aðgerðir sem gripið var
til á síðasta vori miðuðu allar við
að hlutirnir mundu falla í fyrra horf
með haustinu og það væri verið að
fleyta greininni yfir nokkra mánuði.
Nú liggur fyrir að svo er ekki: Það
þarf nýja nálgun þar sem nú liggur
fyrir að greinin í heild stendur ekki
undir rekstrarkostnaði og á ekkert
upp í fjármagnið í eitt ár eða meira.
Hvað er til ráða? Duga hefðbundin
ráð og verkfæri viðskiptalífsins
síðustu áratugina til að bregðast
við þessari stöðu. Fjármálafræðin í
dag mun aldrei endurreisa greinina
aftur nema á mjög löngum tíma.
Við skulum horfast í augu við að
leið fjöldagjaldþrota og alls sem
þeim mundi fylgja er dýrasta leiðin.
Fyrir greinina sjálfa, fjármálakerfið,
ríkissjóð og þar með þjóðina alla.
Hraður bati byggir á
ferðaþjónustunni
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar miða
flestar við að landið rísi hratt aftur
þegar tök nást á heimsfaraldrinum.
Það er að til staðar verði fram
leiðsluaukning til að mæta skuld
setningu sem óhjákvæmilega fylgir
þeim auknu framkvæmdum sem
ríkissjóður er að fara í til viðbótar
þeim kostnaði sem fellur til við að
gerðir á vinnumarkaðinum. Það er
aðeins eitt sem getur skilað okkur
þeim hraða bata sem stefnt er að:
Það er að ferðaþjónustan verði
í stakk búin til að taka hratt við sér
þegar birtir til. Aðgerðir ríkisstjórn
arinnar hvað varðar endurreisn
Icelandair og viðtökur við hluta
fjárútboðinu benda til að til staðar
sé skilningur á að gjaldþrotaleiðin
skili ekki þeim árangri sem stefnt
er að: Það nákvæmlega sama á við
um aðra þætti atvinnugreinarinn
ar. Þeir verða að vera til staðar og
í startholunum en til þess að svo
verði verður að taka á skuldavand
anum. Viðskiptamódelin sem unnið
er eftir reikna ekki með tekjulausu
ári. Ef ekkert verður tekið á málinu
heildstætt mun endurreisn ferða
þjónustunnar taka í það minnsta
tvöfaldan þann tíma sem nefndur
var hér að ofan með.
Það verður ekki öllum bjargað
Nú má enginn skilja þessi skrif
þannig að öllum verið bjargað.
Það var hafin endurskipulagning
í greininni fyrir COVID:
Hún mun halda áfram. Fyrirtæki
munu sameinast, önnur leita eftir
nýjum meðeigendum og einhver
hætta starfsemi. Jákvæðu hliðarnar
eru að til staðar er uppbygging og
mikil þekking til að byggja á; en
eins og alltaf fylgja skuldir hraðri
uppbyggingu:
Þar liggur vandinn sem nú þarf
að taka á. Í þessum pistli er fyrst
og fremst fjallað um skuldavand
an. Það væri einnig hægt að fjalla
um þætti eins og fasteignagjöld og
tryggingar á tekjulausu ári en það
er ekki gert hér.
Ný nálgun í ferðaþjónustu
Ef við berum gæfu til að taka heild
stætt á málinu verður ferðaþjón
ustan í stakk búin til að standa undir
vexti á nýjan leik. Vexti sem þarf
ekki mikla nýja fjárfestingu. Fólkið
í ferðaþjónustunni gerir sér grein
fyrir að það verðu ekki horfið til
fyrri tíma. Ný nálgun í ferðaþjón
ustu mun að öllum líkindum byggja
á færri en lengri ferðum og fyrst
um sinn eftirspurn eftir fámenni
frekar en stórborgum ásamt meiri
umhverfisvitund. Allt eru þetta
þættir sem falla að íslenskri ferða
þjónustu. Að láta reka á reiðanum
gagnvart vandanum er ávísun á
hægan bata sem mundi gera áætl
anir ríkisstjórnarinnar um að vaxa
út úr vandanum að engu.
Það þarf samræmdar aðgerðir
Það liggur fyrir að fresta þarf af
borgunum og vöxtum: Einnig
að tryggja vaxtakjör sem eru í
einhverju samræmi við það sem
samkeppnisaðilarnir í öðrum
löndum Evrópu búa við ásamt
endurgreiðsluáætlun í samræmi við
þann tíma sem tekur að koma fótum
undir greinina að nýju. Upphæð
skulda sem fá þessa með ferð þarf
að hafa þak sem getur verið upphæð
á herbergi í hótelum og gistiheim
ilum og hlutfall af tekjum í öðrum
greinum. Aðgerðir í þessa átt er
eina leiðin til að tryggja jafnræði og
en verða ekki framkvæmdar nema
með frumkvæði og atbeina stjórn
valda. Þessi leið getur einnig gert
aðkomu nýrra fjárfesta á forsendum
greinarinnar auðveldari. Þetta er
ekki einfalt mál og þarfnast vand
aðs undirbúnings og vilji er allt sem
þarf en stefnumótun í þessa veru
þarf að liggja fyrir sem allra fyrst:
Hitt er bara vinna.
Fjármálafræði andskotans
Hin hefðbundna leið fjármálafræða
síðustu áratuga mun að mati undir
ritaðs í öllum tilfellum vera dýrasta
leiðin fyrir alla. Tökum eitt dæmi
hvað það varðar: Bankarnir eru að
hækka vexti til fyrirtækja þvert á
lækkun stýrivaxta Seðlabankans á
grunni þess að áhætta á lánatöpum
fari vaxandi og því verði að mæta
með hærri vöxtum. Við þær aðstæður
sem ferðþjónustan stendur frami fyrir
í dag og hér hefur verið rakin er þetta
fjármálafræði andskotans og mun ef
eitthvað er auka tapáhættu bankanna
og seinka efnahagsbatanum: Það
blóðmjólkar enginn bestu mjólkur
kúna sína í geldstöðu. Við þetta má
svo bæta að væntanlega er hægt að
flokka stöðuna í ferðaþjónustunni í
dag undir Force Majeure (ófyrirsjá
anlegar aðstæður sem ekki verður
komist undan; algjöran forsendu
brest). Velta má fyrir sér hvort við
þær aðstæður sé forsvaranlegt og
jafnvel löglegt að innheimta vexti.
Keynes eða Friedman
Við höfum um árabil búið við
efnahags og fjármálastefnu ný
frjáls hyggjunnar sem byggir á að
Seðlabankar heimsins hafa verið við
stýrið og stjórntækin eru stýrivextir
og peningamagn í umferð. Í hinni
einföldu mynd tók Milton Friedman
við að John Keynes hvað varðar
stjórnun efnahagsmála þó það hafi
ekki átt við um aðra þætti þjóðlífs
ins. Margt bendir til að þessi stefna
hafi leitt til hraðari eignatilfærslu en
þekkst hefur áður. Á þessari hug
myndafræði byggir einnig sú fjár
málastefna sem íslensku bankarnir
eru fastir í nú um stundir. Ofan af
því verður ekki undið nema með
aðgerðum ríkisvaldsins. Það er í
sjálfu sér rökrétt þar sem ríkisstjórnir
heimsins eru í dag hver af annarri
að hverfa aftur til Keyenisma þar
sem ríkisfjármálin og aðgerðir rík
isvaldsins eru drifkrafturinn í efna
hagslífinu:
Eru við stýrið með Seðlabankana
í aftursætinu eins og einn hagfræð
ingur orðaði það nýlega. Allt fer í
hringi:
Getur ekki verið að hugmynda
fræðin sem meðal annars Roosvelt
byggði New Deal stefnu sína á
eigi rétt á sér í dag. Á slíkri stefnu
breytingu byggja þær hugmyndir
sem hér eru settar fram.
Jóhannes Geir
Sigurgeirsson. Höfundur
er ferðaþjónustubóndi á
Norðurlandi.
LESENDABÁS
Ferðaþjónustan og fjármálafræðin
Jóhannes Geir Sigurgeirsson.
Úr Eyjafirði. Mynd / HKr.
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
Við bjóðum upp á allar stærðir
og gerðir af Ingersoll Rand loftpressum.
Mjög hljóðlátar og einfaldar í viðhaldi.
Bjóðum upp á þjónustusamninga
og leggjum mikla áherslu á að veita
góða viðgerðar- og varahlutaþjónustu.
Gerðu kröfur — hafðu samband við
Gunnar í síma 590 5135 eða sendu línu
á gma@klettur.is og kynntu þér þína
möguleika.
Loftpressur
í hæsta
gæðaflokki