Bændablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 8

Bændablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 20208 Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hefur gefið út skýrslu um rannsókn sem unnin var fyrir Textílmiðstöð Íslands um viðhorf sauðfjárbænda til ullarræktunar og hvernig sé hægt að auka verðmæti ullarinnar. Þar kemur m.a. fram að rúmlega helmingur svarenda hafði mjög eða frekar mikinn áhuga á ullarræktun samanborið við 18% sem höfðu mjög eða frekar lítinn áhuga. Skýrsluhöfundar eru Guðbjört Guðjónsdóttir, Guðný Bergþóra Tryggvadóttir og Inga Rún Sæmundsdóttir. Í rannsókn þeirra kemur fram að veruleg óánægja er meðal sauðfjárbænda um skilaverð á ull en 71% telja frekar eða mjög illa borgað fyrir ull. Langflestir svarenda skiluðu ull af búinu til Ístex og flokkuðu ullina samkvæmt flokkunarkerfi Ístex. Um 11% fannst mjög eða frekar vel borgað fyrir kíló af fyrsta flokks hvítri ull hjá Ístex. Um 69% svarenda fannst ásættanlegt verð fyrir kíló af fyrsta flokks hvítri ull liggja á bilinu 500 til 1.100 kr. Einungis 1% töldu að mjög vel væri borgað fyrir ullina. Ullarverð og stuðningsgreiðslur Vert er að hafa í huga að skilaverð frá vinnslustöðvum fyrir ull til bænda er eitt, en auk þess fá bændur stuðning samkvæmt búvörusamningum fyrir ullarframleiðsluna. Þó flestum bændum finnist verð sem Ístex greiðir kannski lágt, þá er það samt verulega mikið hærra en þekkist á heimsmarkaði nú um stundir. Fyrir framleiðslu ársins 2019 námu greiðslurnar frá Ístex að meðaltali fyrir haustull 285 krónur og 30 aura, en hún er flokkuð í 10 gæða og litaflokka sem misjafnt verð er greitt fyrir. Hæst var þá greitt fyrir flokk sem heitir H-Lamb, eða 515 krónur á kíló, en fyrir 1. flokk (H-1) voru greiddar 415 krónur fyrir kílóið. Þar við bættust stuðningsgreiðslur ríkisins við ullarframleiðslu í sauðfjárrækt samkvæmt búvörusamningi en þær námu að meðaltali 944,8 krónum á kíló. Þar eru stuðningsgreiðslur líka mismunandi eftir flokkum. Samtals var því verið að greiða að meðaltali fyrir haustullina 1.230,1 krónu á kg og 1.398 krónur fyrir verðmætasta flokkinn. Fyrir vetrarullina er greitt talsvert minna og stuðningurinn þar er sömuleiðis lægri. Þar er ullin í sex flokkum. Meðalverð hjá Ístex fyrir vetrarull frá bændum 2019–2020 var 79,3 kr. á kíló. Stuðningur ríkisins til bænda vegna vetrarullar nam 372,7 krónum að meðaltali á kíló. Samtals gerir það að meðaltali 452 krónur á kíló. Ístex hefur gefið út verðskrá fyrir ull sem bændur framleiða 2020 og í vetur, en þar er um talsverðar verðlækkanir að ræða í sumum flokkum (Sjá nánar á bls. 47). Ekki liggur fyrir hver endanlegur stuðningur ríkisins verður við ullarframleiðslu bænda núna, en fyrirfram var ráðgert að hann yrði hærri en í fyrra. Kraftur er starfsemi Textílmiðstöðvar Íslands á Blönduósi Mikill kraftur er í starfsemi Textíl- miðstöðvar Íslands á Blönduósi um þessar mundir en þar er Elsa Arnardóttir forstöðumaður. Hún segir að verið sé að efla rann- sóknarvinnu m.a. með þátttöku í stóru Evrópuverkefni sem skilar sér í styrk upp á um 120 milljónir króna á næstu þrem og hálfu ári. Þeir fjármunir nýtast í uppbyggingu á staðnum. Þá fékkst líka 17 milljóna króna styrkur frá Innviðasjóði til að styrkja rannsóknir. „Með þessu erum við að færast inn í nútímann og getum fest kaup á stafrænum vélbúnaði. Styrkir hafa fengist sem nýttir verða til að nútímavæða tækjabúnaðinn á staðnum. Í þessu felast mjög mikl- ir möguleikar. Þá getum við boðið áhugasömum bændum að skoða möguleika á að koma hingað og vinna með ullina,“ segir Elsa. Um fimmtungur hefur mikinn áhuga á heimavinnslu ullar Í könnun Félagsvísindastofnunar kemur fram að 22% svarenda höfðu mjög eða frekar mikinn áhuga á heimavinnslu á ull, en 87% sögðu enga heimavinnslu á íslenskri ull vera stundaða á bænum. Þeir sem svöruðu í könnuninni voru á aldrinum 18 til 75 ára og eldri. Meirihluti svarenda, eða 52%, voru á aldursbilinu 46 til 65 ára. Þau sem stunduðu heimavinnslu á ull voru spurð hvort ullin sem notuð væri í heimavinnslu kæmi af búinu eða væri keypt. Rúmlega helmingur sagði alla ull koma frá búinu. Um helmingur þeirra sem sögðu að heimavinnsla væri stunduð á bænum sögðust sinna henni sjálfir og svipað hlutfall nefndi eiginkonu/ sambýliskonu. Þar sem heimavinnsla var stunduð var algengast að prjóna- skapur eða hekl væri selt frá bænum (16 svarendur) eða þæfð ull (7 svar- endur). Um 42% svarenda höfðu mjög eða frekar mikinn áhuga á að láta spinna sérstakt band úr ullinni sem væri hægt að rekja til búsins. 34% höfðu mikinn eða frekar mikinn áhuga á vefverslun Þegar spurt var hversu mikinn eða lítinn áhuga svarendur hefðu á því að taka þátt í að þróa sameiginlega vef- verslun fyrir íslenska ull og ullarvörur í samstarfi við Textílmiðstöðina, kom í ljós að 34% höfðu mikinn eða frekar mikinn áhuga á slíku. Þá var spurt hvað væri sann- gjörn álagning á vörur þeirra í vefverslun og 87% svarenda taldi sanngjarna álagningu vera á bilinu lægri en 30% til 60%, en um 13% töldu sanngjarna álagningu vera hærri en 60%. 90% telja umhverfisvæna ullarframleiðslu mikilvæga Spurt var um viðhorf til náttúru- vænnar ullarframleiðslu. Miklum meirihluta, eða 90%, fannst mjög eða frekar mikilvægt að ullarfram- leiðsla á Íslandi væri umhverfis- væn. Þegar spurt var hvað ætti að einkenna umhverfisvæna íslenska ullarframleiðslu merktu 79% við að bandið/ullin væri 100% íslensk og 74% að ullarvinnsla færi öll fram á Íslandi. Um 30% höfðu mjög eða frekar miklar áhyggjur af umhverfisáhrifum af textíl- framleiðslu í heiminum og svipað hlutfall, eða 34%, höfðu mjög eða frekar litlar áhyggjur. Meirihluti sauðfjárbænda vill fræðast meira um ullina Þegar sauðfjárbændur voru spurðir hvort þeir hefðu áhuga á að auka þekkingu sína á ákveðnum sviðum sem viðkoma ull og ullar- ræktun, kom fram nokkur dreifing á svörum þeirra. Algengast var þó að fólk hefði áhuga á að læra meira um meðferð ullar við og eftir rúning (56%) og ræktun fjár með ullargæði í huga (53%). Vanda þarf betur til verka, auka vöruþróun og breyta viðskiptaháttum Í lokin voru bændur spurðir í opinni spurningu hvar þeir teldu helstu möguleika sauðfjárbænda liggja í að auka verðmæti ullar- innar og komu nokkur megin- þemu fram. Fram kom að margir töldu helstu möguleika liggja í að vanda betur til verka við ullarvinnslu heima fyrir, þar á meðal við rún- ing og fjárræktun, aðrir töldu möguleikana liggja í aukinni mark- aðssetningu og vöruþróun á ull og ullarvörum og enn aðrir í breyttum viðskiptaháttum með ull. /HKr. FRÉTTIR Könnun Félagsvísindastofnunar HÍ á viðhorfi íslenskra sauðfjárbænda til ullarræktunar: Helmingur bænda hefur mikinn áhuga á ull en 18% lítinn – Um 71% finnst frekar illa eða mjög illa greitt fyrir ullina og um 90% telja umhverfisvæna ullarframleiðslu vera mikilvægaHversu mikinn eða lítinn áhuga hefur þú á ullarræktun? 0% 5% 10% 15% 20% 25% 30% 35% 40% Mjög mikinn áhuga Frekar mikinn áhuga Hvorki mikinn né lítinn áhuga Frekar lítinn áhuga Mjög lítinn eða engan áhuga 13% 37% 32% 13% 5% Hversu mikinn eða lítinn áhuga hefur þú á ullarræktun? Heimild: Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands Bæ nd ab la ði ð / H Kr . Úr vinnslusalnum hjá Ístex. Mynd / HKr. Guðmundur Hallgrímsson að sýna réttu handtökin við að rýja kind. Ull á leið í vinnslu. Bændamarkaðir haldnir í Eyjafjarðarsveit þrjár næstu helgar – Góð reynsla frá í sumar hvetur okkur áfram, segir Karl Jónsson, framkvæmdastjóri Matarstígs Helga magra „Við ætlum að taka upp þráð­ inn á nýjan leik og halda þrjá bænda markaði næstu helgar,“ segir Karl Jónsson, fram kvæmda­ stjóri Matarstígs Helga magra í Eyjafjarðarsveit. Bænda markaðir voru tvívegis haldnir í sumar sem leið og gáfu góða raun. „Við ákváðum svo að hætta við alla okkar fyrirhuguðu viðburði út af kór- ónuveirunni sem skaut upp kollinum í sumar, bændamarkaðir og Matarhátíð Helga magra sem fyrirhuguð var urðu þannig veirunni að bráð. Það voru okkur mikil vonbrigði.“ Bændamarkaðir voru við Hrafna- gilsskóla, á svæði við íþróttamið- stöðina, en aðgangur að þeirri aðstöðu er ekki fyrir hendi nú og þarf því að færa bændamarkaðinn um set. Tónlistarhúsið Laugarborg í Hrafnagilshverfi varð fyrir valinu 26. september og 3. október, en 10. október verður markaður á Brúnum, hjá þeim Einari og Hugrúnu í Brúnirhorse. Mjög góðar viðtökur „Viðtökur við mörkuðunum í sumar voru mjög góðar. Við hófum leik í byrjun júlí og í frábæru veðri opn- uðum við fyrsta markaðinn. Það kom margt fólk, margir forvitnir um hvað við höfðum upp á að bjóða og ágæt sala. Tveimur vikum síðar í skíta- veðri, kulda og rigningarskúrum, kom mun færra fólk en velta þess markaðar var talsvert betri en þess fyrri. Við merktum að fólk var að koma gagngert til að kaupa ákveðnar vörur eftir að hafa svalað forvitni sinni á fyrsta markaðnum,“ segir Karl. „Við renndum blint í sjóinn með þessa markaði en reynsla sumarsins er sannarlega góð og hvetur okkur áfram. Nú er mikill uppskerutími og því má búast við fjölbreyttari afurðum,“ segir hann. Á markaðnum verður boðið upp á lambakjöt, nautakjöt og svínakjöt, papriku og gúrku, egg, ís, splunku- nýjar kartöflur auk sultutaus og annarrar smáframleiðslu sem gjarn- an er í boði á þessum árstíma, allt frá framleiðendum í sveitinni. Þá höfum við fengið gestasöluaðila til liðs við okkur til að auka breiddina og hvetja okkar fólk áfram í sinni vöruþróun.“ /MÞÞ Bændamarkaðir verða tvær næstu helgar í Laugarborg og sá þriðji á veitingastaðnum Brúnirhorse á Brúnum. Framleiðendur úr Eyja­ fjarðarsveit bjóða þar fjöl breyttan varning. Mynd / Karl Jónsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.