Bændablaðið - 24.09.2020, Side 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 20208
Félagsvísindastofnun Háskóla
Íslands hefur gefið út skýrslu
um rannsókn sem unnin var fyrir
Textílmiðstöð Íslands um viðhorf
sauðfjárbænda til ullarræktunar og
hvernig sé hægt að auka verðmæti
ullarinnar. Þar kemur m.a. fram að
rúmlega helmingur svarenda hafði
mjög eða frekar mikinn áhuga á
ullarræktun samanborið við 18% sem
höfðu mjög eða frekar lítinn áhuga.
Skýrsluhöfundar eru Guðbjört
Guðjónsdóttir, Guðný Bergþóra
Tryggvadóttir og Inga Rún
Sæmundsdóttir. Í rannsókn þeirra
kemur fram að veruleg óánægja er
meðal sauðfjárbænda um skilaverð
á ull en 71% telja frekar eða mjög
illa borgað fyrir ull. Langflestir
svarenda skiluðu ull af búinu til
Ístex og flokkuðu ullina samkvæmt
flokkunarkerfi Ístex.
Um 11% fannst mjög eða frekar
vel borgað fyrir kíló af fyrsta flokks
hvítri ull hjá Ístex. Um 69% svarenda
fannst ásættanlegt verð fyrir kíló af
fyrsta flokks hvítri ull liggja á bilinu
500 til 1.100 kr. Einungis 1% töldu
að mjög vel væri borgað fyrir ullina.
Ullarverð og stuðningsgreiðslur
Vert er að hafa í huga að skilaverð frá
vinnslustöðvum fyrir ull til bænda er
eitt, en auk þess fá bændur stuðning
samkvæmt búvörusamningum fyrir
ullarframleiðsluna. Þó flestum
bændum finnist verð sem Ístex
greiðir kannski lágt, þá er það samt
verulega mikið hærra en þekkist
á heimsmarkaði nú um stundir.
Fyrir framleiðslu ársins 2019 námu
greiðslurnar frá Ístex að meðaltali
fyrir haustull 285 krónur og 30
aura, en hún er flokkuð í 10 gæða
og litaflokka sem misjafnt verð
er greitt fyrir. Hæst var þá greitt
fyrir flokk sem heitir H-Lamb,
eða 515 krónur á kíló, en fyrir
1. flokk (H-1) voru greiddar 415
krónur fyrir kílóið. Þar við bættust
stuðningsgreiðslur ríkisins við
ullarframleiðslu í sauðfjárrækt
samkvæmt búvörusamningi en þær
námu að meðaltali 944,8 krónum á
kíló. Þar eru stuðningsgreiðslur líka
mismunandi eftir flokkum. Samtals
var því verið að greiða að meðaltali
fyrir haustullina 1.230,1 krónu á kg
og 1.398 krónur fyrir verðmætasta
flokkinn.
Fyrir vetrarullina er greitt talsvert
minna og stuðningurinn þar er
sömuleiðis lægri. Þar er ullin í sex
flokkum. Meðalverð hjá Ístex fyrir
vetrarull frá bændum 2019–2020 var
79,3 kr. á kíló. Stuðningur ríkisins til
bænda vegna vetrarullar nam 372,7
krónum að meðaltali á kíló. Samtals
gerir það að meðaltali 452 krónur
á kíló.
Ístex hefur gefið út verðskrá fyrir
ull sem bændur framleiða 2020 og
í vetur, en þar er um talsverðar
verðlækkanir að ræða í sumum
flokkum (Sjá nánar á bls. 47).
Ekki liggur fyrir hver endanlegur
stuðningur ríkisins verður við
ullarframleiðslu bænda núna, en
fyrirfram var ráðgert að hann yrði
hærri en í fyrra.
Kraftur er starfsemi
Textílmiðstöðvar Íslands
á Blönduósi
Mikill kraftur er í starfsemi Textíl-
miðstöðvar Íslands á Blönduósi
um þessar mundir en þar er Elsa
Arnardóttir forstöðumaður. Hún
segir að verið sé að efla rann-
sóknarvinnu m.a. með þátttöku í
stóru Evrópuverkefni sem skilar
sér í styrk upp á um 120 milljónir
króna á næstu þrem og hálfu ári. Þeir
fjármunir nýtast í uppbyggingu á
staðnum. Þá fékkst líka 17 milljóna
króna styrkur frá Innviðasjóði til að
styrkja rannsóknir.
„Með þessu erum við að færast
inn í nútímann og getum fest kaup
á stafrænum vélbúnaði. Styrkir
hafa fengist sem nýttir verða til
að nútímavæða tækjabúnaðinn á
staðnum. Í þessu felast mjög mikl-
ir möguleikar. Þá getum við boðið
áhugasömum bændum að skoða
möguleika á að koma hingað og
vinna með ullina,“ segir Elsa.
Um fimmtungur hefur mikinn
áhuga á heimavinnslu ullar
Í könnun Félagsvísindastofnunar
kemur fram að 22% svarenda höfðu
mjög eða frekar mikinn áhuga á
heimavinnslu á ull, en 87% sögðu
enga heimavinnslu á íslenskri
ull vera stundaða á bænum. Þeir
sem svöruðu í könnuninni voru
á aldrinum 18 til 75 ára og eldri.
Meirihluti svarenda, eða 52%, voru
á aldursbilinu 46 til 65 ára.
Þau sem stunduðu heimavinnslu
á ull voru spurð hvort ullin sem
notuð væri í heimavinnslu kæmi
af búinu eða væri keypt. Rúmlega
helmingur sagði alla ull koma frá
búinu.
Um helmingur þeirra sem sögðu
að heimavinnsla væri stunduð á
bænum sögðust sinna henni sjálfir
og svipað hlutfall nefndi eiginkonu/
sambýliskonu.
Þar sem heimavinnsla var
stunduð var algengast að prjóna-
skapur eða hekl væri selt frá bænum
(16 svarendur) eða þæfð ull (7 svar-
endur). Um 42% svarenda höfðu
mjög eða frekar mikinn áhuga á að
láta spinna sérstakt band úr ullinni
sem væri hægt að rekja til búsins.
34% höfðu mikinn eða frekar
mikinn áhuga á vefverslun
Þegar spurt var hversu mikinn eða
lítinn áhuga svarendur hefðu á því að
taka þátt í að þróa sameiginlega vef-
verslun fyrir íslenska ull og ullarvörur
í samstarfi við Textílmiðstöðina,
kom í ljós að 34% höfðu mikinn eða
frekar mikinn áhuga á slíku.
Þá var spurt hvað væri sann-
gjörn álagning á vörur þeirra í
vefverslun og 87% svarenda taldi
sanngjarna álagningu vera á bilinu
lægri en 30% til 60%, en um 13%
töldu sanngjarna álagningu vera
hærri en 60%.
90% telja umhverfisvæna
ullarframleiðslu mikilvæga
Spurt var um viðhorf til náttúru-
vænnar ullarframleiðslu. Miklum
meirihluta, eða 90%, fannst mjög
eða frekar mikilvægt að ullarfram-
leiðsla á Íslandi væri umhverfis-
væn. Þegar spurt var hvað ætti að
einkenna umhverfisvæna íslenska
ullarframleiðslu merktu 79% við
að bandið/ullin væri 100% íslensk
og 74% að ullarvinnsla færi öll
fram á Íslandi. Um 30% höfðu
mjög eða frekar miklar áhyggjur
af umhverfisáhrifum af textíl-
framleiðslu í heiminum og svipað
hlutfall, eða 34%, höfðu mjög eða
frekar litlar áhyggjur.
Meirihluti sauðfjárbænda vill
fræðast meira um ullina
Þegar sauðfjárbændur voru
spurðir hvort þeir hefðu áhuga á að
auka þekkingu sína á ákveðnum
sviðum sem viðkoma ull og ullar-
ræktun, kom fram nokkur dreifing
á svörum þeirra. Algengast var
þó að fólk hefði áhuga á að læra
meira um meðferð ullar við og
eftir rúning (56%) og ræktun fjár
með ullargæði í huga (53%).
Vanda þarf betur til verka,
auka vöruþróun og breyta
viðskiptaháttum
Í lokin voru bændur spurðir í
opinni spurningu hvar þeir teldu
helstu möguleika sauðfjárbænda
liggja í að auka verðmæti ullar-
innar og komu nokkur megin-
þemu fram.
Fram kom að margir töldu
helstu möguleika liggja í að vanda
betur til verka við ullarvinnslu
heima fyrir, þar á meðal við rún-
ing og fjárræktun, aðrir töldu
möguleikana liggja í aukinni mark-
aðssetningu og vöruþróun á ull og
ullarvörum og enn aðrir í breyttum
viðskiptaháttum með ull.
/HKr.
FRÉTTIR
Könnun Félagsvísindastofnunar HÍ á viðhorfi íslenskra sauðfjárbænda til ullarræktunar:
Helmingur bænda hefur mikinn
áhuga á ull en 18% lítinn
– Um 71% finnst frekar illa eða mjög illa greitt fyrir ullina og um 90% telja umhverfisvæna ullarframleiðslu vera mikilvægaHversu mikinn eða lítinn áhuga hefur þú á ullarræktun?
0% 5% 10% 15% 20% 25% 30% 35% 40%
Mjög mikinn áhuga
Frekar mikinn áhuga
Hvorki mikinn né lítinn áhuga
Frekar lítinn áhuga
Mjög lítinn eða engan áhuga
13%
37%
32%
13%
5%
Hversu mikinn eða lítinn áhuga
hefur þú á ullarræktun?
Heimild: Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands
Bæ
nd
ab
la
ði
ð
/ H
Kr
.
Úr vinnslusalnum hjá Ístex. Mynd / HKr.
Guðmundur Hallgrímsson að sýna
réttu handtökin við að rýja kind.
Ull á leið í vinnslu.
Bændamarkaðir haldnir í Eyjafjarðarsveit þrjár næstu helgar
– Góð reynsla frá í sumar hvetur okkur áfram, segir Karl Jónsson, framkvæmdastjóri Matarstígs Helga magra
„Við ætlum að taka upp þráð
inn á nýjan leik og halda þrjá
bænda markaði næstu helgar,“
segir Karl Jónsson, fram kvæmda
stjóri Matarstígs Helga magra í
Eyjafjarðarsveit. Bænda markaðir
voru tvívegis haldnir í sumar sem
leið og gáfu góða raun.
„Við ákváðum svo að hætta við alla
okkar fyrirhuguðu viðburði út af kór-
ónuveirunni sem skaut upp kollinum í
sumar, bændamarkaðir og Matarhátíð
Helga magra sem fyrirhuguð var urðu
þannig veirunni að bráð. Það voru
okkur mikil vonbrigði.“ Bændamarkaðir voru við Hrafna-
gilsskóla, á svæði við íþróttamið-
stöðina, en aðgangur að þeirri
aðstöðu er ekki fyrir hendi nú og
þarf því að færa bændamarkaðinn
um set. Tónlistarhúsið Laugarborg
í Hrafnagilshverfi varð fyrir valinu
26. september og 3. október, en 10.
október verður markaður á Brúnum,
hjá þeim Einari og Hugrúnu í
Brúnirhorse.
Mjög góðar viðtökur
„Viðtökur við mörkuðunum í sumar
voru mjög góðar. Við hófum leik í
byrjun júlí og í frábæru veðri opn-
uðum við fyrsta markaðinn. Það kom
margt fólk, margir forvitnir um hvað
við höfðum upp á að bjóða og ágæt
sala. Tveimur vikum síðar í skíta-
veðri, kulda og rigningarskúrum,
kom mun færra fólk en velta þess
markaðar var talsvert betri en þess
fyrri. Við merktum að fólk var að
koma gagngert til að kaupa ákveðnar
vörur eftir að hafa svalað forvitni
sinni á fyrsta markaðnum,“ segir
Karl.
„Við renndum blint í sjóinn með
þessa markaði en reynsla sumarsins er
sannarlega góð og hvetur okkur áfram.
Nú er mikill uppskerutími og því má
búast við fjölbreyttari afurðum,“ segir
hann.
Á markaðnum verður boðið upp
á lambakjöt, nautakjöt og svínakjöt,
papriku og gúrku, egg, ís, splunku-
nýjar kartöflur auk sultutaus og
annarrar smáframleiðslu sem gjarn-
an er í boði á þessum árstíma, allt
frá framleiðendum í sveitinni. Þá
höfum við fengið gestasöluaðila til
liðs við okkur til að auka breiddina
og hvetja okkar fólk áfram í sinni
vöruþróun.“ /MÞÞ
Bændamarkaðir verða tvær næstu
helgar í Laugarborg og sá þriðji á
veitingastaðnum Brúnirhorse á
Brúnum. Framleiðendur úr Eyja
fjarðarsveit bjóða þar fjöl breyttan
varning. Mynd / Karl Jónsson