Bændablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 32

Bændablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 202032 Hinn 1. október næstkomandi eru fimmtíu á frá því að Blómaval var stofnað og miklar breyt ingar hafa orðið á rekstrinum síðan þá og í dag eru verslanir Blómavals sjö, víðs vegar um landið. Kristinn Einarsson, fram kvæmda stjóri versl­ unarsviðs Húsa smiðjunnar og Blómavals, segir að uppruna Blóma vals megi með góðum vilja rekja til 1965 þegar Stefán Árnason, sem var gjarnan kenndur við Syðri­Reyki, byggði gróðurhús við Sigtún í Reykjavík. „Stefán var uppátækjasamur og skemmtileg­ ur og hafði háleitar hugmyndir um garðyrkju og hvernig ætti að gera hlutina. Bræðurnir Bjarni og Kolbeinn Finnssynir leigðu af honum gróðurhúsið 1970 og stofn­ uðu Blómaval formlega 1. október 1970. Eftir því sem fyrirtækið stækkaði og dafnaði sá Kolbeinn meira um heildsöluþátt rekstursins en Bjarni meira um smásöluna, því auk versl­ unarinnar stofnuðu þeir heildsöluna Brum, sem flutti inn blóm og gróð­ urtengdar vörur. Reksturinn gekk vel og upp­ byggingin í Sigtúni var gríðarleg og hröð og sífellt verið að byggja við upprunalega gróðurhúsið og bæta við nýjum húsum og sagt að þeir bræður hafi sífellt verið uppi með nýjar teikningar. 37 ár í Blómaval „Ég kom fyrst í hlutastarf hjá Blóma vali árið 1983,“ segir Kristinn, „og því búinn að vinna þar í um 37 ár. Í mínum huga var Blómaval sett saman úr þremur grunnþráðum. Það eru blóm, garð­ yrkja og á sínum tíma grænmeti. Fyrst eftir stofnunina og lengi var Blómaval fyrsti stórmarkaður á Íslandi með grænmeti og á haustin var gríðarleg ásókn í haustuppskeru á útiræktuðu grænmeti.“ Kristinn segist hafa ferðast tals­ vert um heiminn og víða skoðað verslanir í svipuðum rekstri en ekki séð eina sem er rekin með sama sniði og því ekki til nein erlend fyr­ irmynd að Blómavali. „Við erum í grunninn blómabúð tólf mánuði á ári og salan á afskornum blómum er svipuð allt árið. Síðan snýst rekstur­ inn um tvo stóra árstíðabundna þætti, sem eru jólin í nóvember og desember og garðurinn í maí, júní og júlí. Þess á milli er sala á fræjum, vor­ og haustlaukum, gróðurtengd­ um vörum og ýmiss konar gjafavöru fastir þættir. Við höfum alltaf gert mikið úr jólunum og hreinlega umturnum verslununum okkar í jólabúðir með skreytingum og hreinlega breytum um karakter. Dæmi um þetta er Jólalandið, sem hefur verið hluti af Blómavali í rúm 30 ár og er einstakt hér á landi. Á vorin er svo öllu snúið við aftur og áhersla lögð á blóm og vörur tengdar garðinum og garðyrkju.“ Alls sjö búðir Verslanir Blómavals eru sjö í dag, tvær í Reykjavík, Súðavogi og Grafarholti, og á Selfossi, í Vestmannaeyjum, á Egilsstöðum, Akureyri og á Ísafirði. Blómaval í Skútuvogi er þeirra langstærst, um 3000 fermetrar, og álíka stór og verslunin í Sigtúni var á sínum tíma. Umfangið hefur því stækkað mikið og reksturinn orðinn viðameiri en hann var í Sigtúni á sínum tíma. Árið 1999 keypti Húsasmiðjan Blómaval og eru verslanirnar rekn­ ar samhliða en Húsasmiðjan hefur verið hluti af dönsku bygginga­ vörukeðjunni Bygma frá 2012. Góðir starfsmenn skipta mestu „Blómaval hefur notið þeirrar gæfu í gegnum tíðina að hafa marga góða starfsmenn og skemmtilega karakter með sér í liði. Án þess að gera lítið úr neinum þá langar mig að nefna þjóðargersemið Hafstein Hafliðason og Láru Jónsdóttur, sem er búin að vinna hjá Blómavali í tæp 40 ár og margir tengja heim­ sóknir sínar í verslunina við samtöl við hana og vilja hennar til að að­ stoða. Mig langar einnig að nefna Ásdísi Ragnarsdóttur, sem hóf störf sama ár og ég og er verslunarstjóri í útibúinu i Grafarholti, Berglindi Bjarnadóttur´, sem er rekstrarstjóri allra Blómavalsverslananna og Díönnu Allansdóttur, sem starfar í verslun Blómavals í Skútuvogi.“ Kristinn segir að konur hafi lengi verið í stjórnunar stöðum hjá Blómavali og í dag séu allir deildar­ stjórar Blómavalsverslananna konur og að í því felist mikill styrkur. Vorverkin „Páskaverslunin er líka ákveðin þungamiðja hjá okkur og þá förum við á fleygiferð inn í vorið og garð­ yrkjuvaran kemur inn, vor lauk arnir, fræin og í fram­ haldi af því í apríl og fram í maí er garðskálinn fylltur af sumar­ blóm um og trjám auk þess sem því fylgja pottar, mold, áburður og aðrar vörur fyrir garð inn. Að mínu mati er vorið skemmti­ legasti tíminn í búðinni, allt farið að lifna við og í blóma.“ Aukinn áhugi á gróðri Kristinn segir að frá því að hann hóf störf hjá Blómavali hafi áhugi fólks á gróðri verið stöð­ ugt að aukast. „Áhugi á græn metis­ og heima­ ræktun óx mikið eftir hrunið, 2008 til 2010, og við áttum aldrei nóg af matjurtaplöntum eða matjurtafræi. Svipaða sögu er að segja um við­ brögðin við COVID og fólk sýni ræktun og að gera fínt í kringum sig aukinn áhuga og áhugi á ræktun aukist. Það er því eins og kreppur og blómabransinn tali saman því að það er eins og þegar kreppir að sé yfirleitt meira að gera í blóma­ bransanum. Fólk bætir sér því annað upp með því að kaupa sér og rækta blóm. Sala á pottaplöntum hefur verið að aukast, eftir að þær fóru úr tísku um tíma, og komnar á mikið flug. Fyrstu árin mín í Sigtúni voru potta­ plöntur í öllum gluggum og salan á þeim mikil. Síðan þegar mínímal­ isminn og hvítabylgja tröllreið yfir og föla andlitið var allsráðandi þá minkaði áhuginn á þeim og eina plantan sem seldist að einhverju ráði var orkidea og helst þrjár saman í potti. Þrátt fyrir þetta héldum við fast við að hafa alltaf margar tegundir pottaplantna á boðstólum og standa undir nafni sem blómabúð. Vinsældir pottaplantna hafa aftur aukist og í dag vill fólk, ekki síst ungt fólk, hafa í kringum sig fjölbreyttan gróður og ekki síst pottaplötur. Aukningin í sölu á pottaplöntum og vörum þeim tengdum hefur því aukist mikið.“ Farsæll rekstur „Árið 1999 keypti Húsasmiðjan Blómaval og verslunin hætti að vera fjölskyldufyrirtæki. Samhliða því breyttist reksturinn og verslunin var flutt í Skútuvog auk þess sem verslununum fór að fjölga. Reksturinn gengur vel og það er í honum jöfn stígandi. Verslanir Húsasmiðjunnar og Blómavals styðja hver við aðra og ég sé ekki annað en að reksturinn komi til með að verða farsæll áfram og að við opnum jafnvel fleiri verslanir úti á landi í framtíðinni. Ég sé því fram á bjarta framtíð fyrir Blómaval.“ Afmælishátíð fram undan „Afmælisdagur Blómavals er 1. október og í tilefni þess ætlum við að vera með ýmsar uppákomur á næstunni. Okkur er reyndar sniðinn stakkurinn vegna þeirra sóttvarnareglna sem eru í gangi en við eru samt byrjuð að undirbúa afmælið. Við verðum með fjölda veglegra tilboða í gangi út árið og svo verða einhverjar veislur í verslunum okkar um allt land og með skemmtilegar uppákomur þeim tengdum,“ segir Kristinn Einarsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Húsasmiðjunnar og Blómavals. LÍF&STARF blómabúð Kristinn Einarsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Húsasmiðjunnar og Blómavals, segir að árið 1999 hafi Húsasmiðjan keypt Blómaval og samhliða því breyttist reksturinn og verslunin var flutt í Skútuvog auk þess sem verslununum fór að fjölga. Á innfelldu myndinni er flaggskip Blómavals, verslunin í Skútuvogi. Myndir / VH Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is Kristinn Einarsson og Lára Jónsdóttir, sem hefur starfað hjá Blómavali í 40 ár og margir tengja heimsóknir sínar í verslunina við samtöl við hana og vilja hennar til að aðstoða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.