Bændablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 44

Bændablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 44
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 202044 LANDSSAMBAND KÚABÆNDA Erfiðir tímar í nautakjötsframleiðslu Nautakjötsmarkaðurinn hefur tekið töluverðum breytingum undanfarið, ekki einungis vegna fækkunar ferðamanna í kjölfar COVID-19 heldur hefur tollaum- hverfið einnig breyst. Saman hefur þetta töluverð neikvæð áhrif á framleiðslu og sölu nauta- kjöts hér á landi og hefur afkoma bænda farið versnandi. Innanlandsframleiðsla dregst saman Framleiðsla og sala nautgripakjöts innanlands fyrstu 8 mánuði ársins 2020 var tæplega 3.100 tonn. Það er 4,6% minni framleiðsla en á sama tímabili árið 2019 þegar fram leiðslan var um 3.240 tonn og árið 2018 þegar hún var um 3.225 tonn. Á sama tíma hefur verð til bænda lækkað, fyrst um og upp úr síðastliðnum áramót, þegar verð á kýrkjöti fór niður um 10%, og nú í septembermánuði þegar bæði SS og KS lækkuðu verð hjá sér. Lækkun SS náði yfir ungneyti, ungar kýr og naut og nam allt að 9,5% og KS lækkaði verð fyrir ungneyti og kýr í lökustu flokkunum um allt að 23,3% % (verðfelling vegna fituflokkunar undanskilin). Má rekja verðlækk­ unina til ýmissa samverkandi þátta samkvæmt fyrirtækjunum, s.s. langra biðlista, birgðasöfnunar á hakkefni og aukins innflutnings, auk um 75% verðlækkunar á tollkvóta frá Evrópusambandinu sl. 2 ár. Augljóst er að þessar verðlækk­ anir munu hafa töluverðar afleið­ ingar á búrekstur nautgripabænda, sem er í raun orðinn neikvæður miðað við síðustu verðlækkanir. Launaliður bóndans skerðist þannig enn frekar enda hefur bóndinn fáa vasa til að sækja sínar lækkanir úr. Meðalframleiðslutími fullbúins UN sláturgrips eru tæp 3 ár, rúm 2 ár á fæti m.v. 2019 og 9 mánuðir í burði. Það er því ljóst að sú framleiðsla sem bændur byggja þessa skertu afkomu sína á næstu misserin hefur þannig verið í bígerð síðan amk í ársbyrjun 2018. Afurðaverð til bænda fallið hratt Þegar horft er til þróunar verð­ skráa fyrir ungneyti (UN) eftir upptöku EUROP kerfisins frá áramótum 2018 er hægt að sjá að vigtað afurðarverð til bænda hefur einungis farið niður. Landssamband Kúabænda hefur verið að vinna að afurðarverðsmeðaltali fyrir UN kjöt með sömu forsendum og sauðfjár­ bændur hafa verið að taka saman afurðarverð til bænda. Á þessum tíma hefur hins vegar vísitala neysluverðs hreyfst í gagn­ stæða átt, hefur hækkað um 8,5 % á meðan vigtað afurðarverð til bænda fyrir UN kjöt hefur lækkað um rúm 10% með síðustu lækkunum nú í september. Öll aðföng og kostnaður hafa hækkað meðan verðið hefur lækkað og því augljóslega blikur á lofti. Það er því ljóst að þessi þróun þarf að liggja til grundvallar þegar bændur í dag undirbúa sig fyrir slátrun sumarsins 2023. Innflutningur 14,6% minni en í fyrra Innflutningur á nautgripakjöti fyrstu 7 mánuði ársins er 670 tonn leiðrétt fyrir beini. Þar af er einungis um 5,5 tonn ófrosin, sem er minna en maður hefði ætlað. Ljóst er að eft­ irspurnin eftir þessari tegund kjöts er nánast engin, innan við 1%, sem vekur upp spurningar um hinn mikla þrýsting sem var að heimila þennan innflutning. En markaður­ inn nú er vissulega minni en áður sökum COVID­19. Ferðamönnum fækkar og fólk er meira heimavið og veitingastaðir kaupa því minna en áður. Tollkvótar aukast áfram En fækkun ferðamanna var reyndar hafin fyrr. Árið 2019 komu 14,1% færri ferðamenn til Íslands en 2018 og má ætla að heildarfjöldi ferða­ manna árið 2020 verði einungis brot af þeim fjölda sem gert var ráð fyrir í öllum spám. Þrátt fyrir þetta eru tollkvótar að aukast ár frá ári og um næstu áramót verður tollkvóti fyrir nautakjöt frá Evrópusambandinu til Íslands orðinn 696 tonn, tæplega sjöföldun frá því sem var árið 2017. Þegar vaxandi tollkvótar og minnkandi eftirspurn fara saman gerir það að verkum að það magn sem er að koma til landsins hefur meiri verð­ myndandi áhrif á innanlandsfram­ leiðslu. Haldi þróunin áfram gæti farið svo að allt nautakjöt sem flutt er inn til landsins sé á tollkvótum og því enn ódýrari en ella. Í ljósi þessa höfum við fundað með utanríkisráðherra og lagt þunga áherslu á að tollasamningurinn við Evrópusambandið verði hið minnsta endurskoðaður, enda forsendur samningsins löngu brostnar. Nýjar úthlutunarreglur tollkvóta þungar fyrir nautgriparæktina Til viðbótar við aukningu á tollkvót­ unum kemur svo að í júnílok var í fyrsta sinn beitt nýjum úthlutunar­ reglum á tollkvótum, svokölluð hol­ lensk leið. Kom breytingin verst út fyrir nautakjöt en verð á tollkvótum hríðféll og var þá einungis fjórð­ ungur þess sem það var í upphafi árs 2018. Hafði Landssamband kúa­ bænda varað við þessu frá upphafi viðræðna um innleiðingu þessa kerfis og höfum við nú óskað eftir fundi með landbúnaðarráðherra til að ræða þá erfiðu stöðu sem komin er upp fyrir samkeppnishæfni greinarinnar. Breyttir tímar kalla á ný ráð Það hefur svo ótal margt gott áunnist undanfarin ár og þeim árangri má ekki glata. Nýtt erfðaefni í holdanautarækt er komið út í hjarðir víðsvegar um landið, bæði með sæðingum og Angus nautum sem seld hafa verið frá einangrunarstöðinni á Stóra Ármóti. Flokkun gripa þokast uppá við og veitinga­ og kjötiðnaðarfólk hefur haft orð á því að gæði innlendrar framleiðslu hafi aukist mjög á stuttum tíma. En til að halda uppi sterkri hagsmunagæslu í harðnandi samkeppni er mikilvægt að gögn séu til staðar, gefi rétta mynd af stöðunni hverju sinni og séu sett fram á aðgengilegan hátt. Við hjá LK höfum óskað eftir að gögn um innflutning berist fyrr en hefur verið sem og að skráningar á birgðum og sölu í opinberum gögnum séu nákvæmari. Þá er einnnig gerð gagnagrunns fyrir fyrrgreint afurðarverðsmeðaltal nautgripa í vinnslu hjá samtökunum. Samkeppni við innflutt matvæli fer líka harðnandi og við þreytumst seint á að berjast fyrir betri merkingum til neytenda, hvort sem er í búðum, á veitingustöðum eða í mötuneytum. Það er ekki nóg að eiga gögnin, það þarf líka að huga að markaðssetningu vörunnar. Um þessi mál hefur verið rætt á flestum fundum bænda undanfarin ár og erum við hjá LK nú að vinna að gerð sérstakrar merkingar fyrir íslenskt nautakjöt svo greinilegra sé fyrir neytendur að um sé að ræða íslenska vöru. Hafa sláturleyfishafar og kjötvinnslur tekið vel í slíkar merkingar og vonumst við eftir að sjá afrakstur þeirrar vinnu í búðum landsmanna fyrir lok þessa árs. Þau eru mörg og fjölbreytt verk efnin sem þarf að ráðast í í nautakjötsframleiðslu á Íslandi. En við búum hins vegar vel að eiga fagfólk víða um land sem starfar af reynslu, þekkingu og hugsjón. Við stöndum á tímamótum þar við getum með réttum handtökum og bættu erfðaúrvali náð fram mikilli framþróun í gæðum nautgripakjöts. Deilum þekkingu, hugum vel að fóðrun, náum fleiri gripum í hærri flokka og verum stolt af framleiðslunni okkar. Höfundar: Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda, Höskuldur Sæmundsson, verkefnastjóri markaðsmála hjá LK. 600 Kr. 620 Kr. 640 Kr. 660 Kr. 680 Kr. 700 Kr. 720 Kr. 740 Kr. 85 90 95 100 105 110 115 ja n. 18 fe b. 18 m ar .1 8 ap r.1 8 m aí .1 8 jú n. 18 jú l.1 8 ág ú. 18 se p. 18 ok t.1 8 nó v. 18 de s.1 8 ja n. 19 fe b. 19 m ar .1 9 ap r.1 9 m aí .1 9 jú n. 19 jú l.1 9 ág ú. 19 se p. 19 ok t.1 9 nó v. 19 de s.1 9 ja n. 20 fe b. 20 m ar .2 0 ap r.2 0 m aí .2 0 jú n. 20 jú l.2 0 ág ú. 20 se p. 20 Vigtað meðalverð kr. Vigtað meðalverð kr. Vigtað meðalverð Index 100 Vísitala Neysluverðs index 100 0 200 400 600 800 1000 1200 0 200 400 600 800 1000 1200 Tollkvótar 2015 Tollkvótar 2016 Tollkvótar 2017 Tollkvótar 2018 Tollkvótar 2019 Tolkvótar 2020 Tolkvótar 2021 Þróun Tollkvóta og innfluttnings ESB EFTA WTO Samtals innflutningur 3 per. Mov. Avg. (Samtals innflutningur) - 500.000 1.000.000 1.500.000 2.000.000 2.500.000 3.000.000 3.500.000 4.000.000 2016 2017 2018 2019 2020 Sala og innfluttningur fyrstu 7 mánuði ársins Innlend sala Innflutt nautgripakjöt leiðrétt f. beini Margrét Gísladóttir. Höskuldur Sæmundsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.