Bændablaðið - 22.10.2020, Page 1
20. tölublað 2020 ▯ Fimmtudagur 22. október ▯ Blað nr. 573 ▯ 26. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Svavar Steingrímsson er 84 ára og eldhress Vestmannaeyingur. Hann gengur nánast á hverjum degi upp á Heimaklett sér til ánægju og yndisauka og til að heilsa upp á kindurnar sem þar hafast
við. Hér er hann að gefa kindunum brauð á góðum degi í sumar. – Sjá nánar bls. 8 Mynd / Pétur Steingrímsson
Íslenski hesturinn nýtur vaxandi vinsælda utan landsteinanna:
Algjör sprenging í útflutningi á íslenskum hestum
– Það sem af er ári hafa verið flutt utan hátt í 1.500 hross og ástæðan er m.a. rakin til gengisfalls íslensku krónunnar
Á þessu ári hefur orðið algjör
sprenging í útflutningi á íslenskum
hestum en það sem af er ári hafa
hátt í 1.500 hross verið flutt utan
og er að mestu talið gengisfalli
íslensku krónunnar að þakka, en
einnig á markaðsverkefnið Horses
of Iceland drjúgan þátt í vinsæld-
um íslenska hestsins á erlendri
grundu.
Frá 2015 til dagsins dag hafa
verið flutt út rúmlega átta þúsund
hross frá Íslandi, þar af eru rúm-
lega fjögur þúsund hryssur, rúm-
lega þrjú þúsund geldingar og hátt í
1.400 stóðhestar. Langstærstur hluti
hrossanna er fluttur út til Þýskalands
en Austurríki, Sviss, Danmörk,
Svíþjóð, Holland, Noregur og
Bandaríkin fylgja þar á eftir ásamt
fleiri löndum.
„Við finnum fyrir gríðarlegri
aukningu í útflutningi á hestum á
þessu ári. Við skráum flutninginn
í kílóum og það sem af er ári erum
við að sjá 40% aukningu. Staðan
hjá okkur er í raun sú að við erum
í smá brasi að ráða við þetta. Það
eru flöskuhálsar sem myndast
þegar aukningin er svona skyndi-
leg og mikil. Við eigum ákveðið
marga gáma fyrir þennan útflutn-
ing sem eru sérútbúnir og dýrir og
eru sérstaklega útbúnir fyrir íslenska
hestinn. Það eru ákveðnar örygg-
iskröfur og alþjóðlegir staðlar um
flutning á dýrum sem þarf að fara
eftir þegar kemur að gámunum. Við
erum einmitt núna að láta útbúa fyrir
okkur gám til viðbótar til að anna
eftirspurninni.“
Gengisfall krónunnar og Horses
of Iceland-verkefnið hafa áhrif
„Aðalskýringarnar á þessari aukn-
ingu tel ég vera þrjár og þar er að-
alskýringin gengisfelling en einnig
að fólk er að nota ferðapeninga og
annað til að sinna áhugamálum
sínum ásamt því að ég er sannfærður
um að Horses of Iceland-verkefnið
hjá Íslandsstofu eigi sinn þátt í
þessum árangri,“ segir Mikael Tal
Grétarsson, yfirmaður útflutnings-
sviðs Icelandair Cargo.
Ótrúlegur uppgangur í
hestaútflutningi
Þórunn Eggertsdóttir hefur undan-
farin þrjú ár rekið ásamt manni
sínum, Halldóri Svanssyni, og
hjónunum Friðfinni Hilmarssyni og
Önnu Valdimarsdóttur útflutnings-
fyrirtækið Fákaland export. Þórunn
segir árið í ár fara fram úr björt-
ustu vonum enda mikill uppgangur
í útflutningi sem skýrist að öllum
líkindum í hagstæðu gengi og því
góða orðspori sem fer af íslenska
hestinum erlendis.
„Frá því að við byrjuðum höfum
við tvöfaldað útflutninginn og erum
komin með í heildina yfir 300 hross
sem hafa farið frá okkur. Fyrsta árið
fluttum við um 40 hross út en á þessu
ári er mikil aukning þar sem við
erum að nálgast 200 hross. Ég held
að þetta skýrist helst í því að fólk er
meira heima og sinnir hestaáhuga-
málinu betur, gengi erlendra gjald-
miðla er líka afskaplega hagstætt og
síðan lækkuðu til dæmis stjórnvöld í
Þýskalandi virðisaukaskatt úr 19% í
16% í kjölfar COVID-19 sem hjálp-
ar að sjálfsögðu til,“ segir Þórunn
og bætir við:
„Í þessum bransa stekkur maður
ekki til og fær marga viðskiptavini
einn tveir og tíu, maður þarf að skapa
sér nafn, fólk þarf að vita af okkur
og heyra hvernig þjónustan er, svo
þetta tekur tíma. Við reynum að hafa
eins persónulega þjónustu og við
getum og leyfum viðskiptavininum
að fylgjast með útflutningnum alla
leið. Langflestir sem kaupa tamin
hross eru að kaupa þessa góðu
traustu töltgengu hesta hvort sem
þeir eru hugsaðir í keppni eða ekki.
Stærsti hlutinn er að leita að slíkum
hestum en einnig eru margir erlendir
aðilar sem eru að rækta hér heima
og flytja hrossin sín út. En þó að
flestir hestarnir séu tamdir þá er tölu-
verður fjöldi af ótömdum trippum
en mikilvægt að þau séu að minnsta
kosti bandvön fyrir útflutninginn.
Aukningin á þessu ári er eitthvað
sem við þorðum ekki að vona, þegar
það er samdráttur á flestum sviðum í
heiminum þá ber ekki á því í útflutn-
ingi á íslenska hestinum.“ /ehg
– Sjá nánar á bls. 2
Þórunn Eggertsdóttir ásamt hjónunum Önnu Valdimarsdóttur og Friðfinni
Hilmarssyni, sem eiga og reka fyrirtækið Fákaland Export ásamt manni
Þórunnar, Halldóri Svanssyni, sem vantar á myndina.
Sveinn Margeirsson sýknaður
vegna meintra brota á lögum
um slátrun og sláturafurðir
2 26
Dreifir hraustum og veirulausum
býflugum til nýrra svæða
Fyrsti íslenski hvítlauksakurinn er á
Efri-Úlfsstöðum í Austur-Landeyjum
28–29