Bændablaðið - 22.10.2020, Page 3

Bændablaðið - 22.10.2020, Page 3
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. október 2020 3 Atvinnu- og nýsköpunaráðuneytið auglýsir: Umsóknir um styrki og skil á haustskýrslum Jarðræktarstyrkir til útiræktunar á grænmeti og garðávöxtum til manneldis Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um jarðræktarstyrki til útiræktunar á grænmeti og garðávöxtum til manneldis í samræmi við breytingar á samningi um starfsskilyrði framleiðenda garðyrkjuafurða milli ríkis og bænda, sem var undirritaðar 14. maí 2020. Nú þarf að sækja um þessa styrki sérstaklega, en ekki sem hluta af almennri jarðræktarumsókn. Opið er fyrir umsóknir til miðnættis mánudagsins 26. okt n.k. Sótt er um í AFURÐ, greiðslukerfi landbúnaðarins (www.afurd.is), en aðeins er tekið við rafrænum umsóknum. Skilyrði fyrir styrk er að viðurkennt túnkort fyrir spildur sem sótt eru um framlög fyrir sé til staðar og að spildurnar verði skornar upp á því ári sem framlag er greitt. Skilyrði fyrir styrk er jafnframt að viðtakandi leggi fram skýrsluhald og gangi frá skýrslu um ræktun ársins sem unnið er í jarðræktarforritinu Jörð (www.jörð.is) þar sem fram komi uppskerumagn, tegund ræktunar, notkun áburðar, notkun á plöntu- verndarvörum og heildarstærð ræktunarrýmis. Framlag á hvern hektara fyrir hvert bú tekur mið af heildarfjölda hektara sem sótt er um. Ekki er greitt fyrir ræktun undir einum hektara. Greiddir eru styrkir út á rótarafurði til manneldis eins og kartöflur, rófur, gulrætur, næpur og sambærilegar afurðir og afurðir ræktaðar ofanjarðar m.a. blómkál, hvítkál, kínakál, rauðkál og aðrar sambærilegar afurðir. Hver framleiðandi getur ekki fengið hærri greiðslur samtals en 10% af því fjármagni sem er til ráðstöfunar á árinu. Innlausnarmarkaður fyrir greiðslumark sauðfjár Innlausnarmarkaður fyrir greiðslumark sauðfjár verður haldinn í fyrstu viku nóvember. Innlausnarverð er núvirt and virði beingreiðslna næstu tveggja alman- aksára, kr. 12.764,- pr. ærgildi. Það greiðslumark sem er inn leyst er jafnframt boðið til sölu á innlausnarverði. Framleiðendur sem eiga 100 kindur eða fleiri og eru með ásetningshlutfallið 1,0 eða hærra skulu hafa forgang að 100% þess greiðslumarks sem er í boði á markaði, þar af 60% til þeirra sem eiga 200 kindur eða fleiri og hafa ásetningshlutfallið 1,6 eða hærra. Það skiptist hlutfalls lega milli aðila sem hljóta forgang í samræmi við það magn sem þeir óskuðu eftir að kaupa. Hver framleiðandi getur ekki óskað eftir ærgildum umfram þau sem tryggja honum óskertar bein greiðslur í samræmi við fjárfjölda og ásetningshlutfall. Það greiðslumark sem ekki er úthlutað til fram leið enda í forgangshópi skal boðið öðrum umsækjendum. Með beiðni um inn lausn á greiðslumarki skal fylgja veðbókarvottorð ásamt staðfestingu á eignarhaldi að lögbýli og samþykki ábúanda, sam eigenda og veðhafa í lögbýlinu. Kaupandi greiðslumarks nýtir greiðslu- mark frá og með 1. janúar 2021. Opnað hefur verið fyrir tilboð um kaup og sölu greiðslumarks í Afurð, greiðslukerfi landbúnaðarins, www.afurd.is. Einungis er hægt að skila tilboðum með rafrænum hætti í Afurð. Tilboðsfrestur rennur út á miðnætti 1. nóvember 2020 Tilkynnt verður um niðurstöðu markaðarins eigi síðar en 8. nóvember 2020. Greiðslufrestur vegna kaupa á greiðslumarki er til 1. desember 2020. Auglýst er eftir umsóknum um styrki til nýrra ræktunaraðferða í garðyrkju Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að styrkja sérstaklega framþróun nýrra ræktunaraðferða á Íslandi til að bregðast við áhrifum Covid-19 á samfélagið. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir hér með eftir umsóknum vegna þessa. Stjórnvöld leggja áhersla á að styðja umhverfisvænar aðferðir, nýsköpun og framþróun sem eru til þess fallnar að styrkja grænmetisframleiðslu hér á landi. Rafrænar umsóknir skulu skráðar í Afurð, greiðsluker- fi landbúnaðarins, (www.afurd.is). Til úthlutunar eru 15 milljónir króna. Miðað er við að hámarksstuðningur til einstaks verkefnis verði 3 milljónir króna. Umsóknum verður forgangsraðað eftir verkefnum. Mestan forgang fá verkefni sem byggja á umhverfisvænni framleiðslu, sem er hafið og reyns- la er komin á aðferðafræðina, næstmestan forgang verkefni sem eru komin á undirbúningsstig og fyrsta framleiðsla áætluð innan sex mánaða o.s.frv. Nánari reglur um forgangsröðun er að finna í umsókn á Afurð. Umsóknarfrestur er til miðnættis 4. nóvember 2020 og úthlutun fer fram á þessu ári. Búfjáreigendur: Skila þarf haustskýrslu eigi síðar en 20. nóvember Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur opnað fyrir skráningar á haustskýrslum fyrir árið 2020 í Bústofni. Í samræmi við 10. gr. laga um búfjárhald nr. 38/2013, er öllum umráðamönnum búfjár skylt að skila ra- frænni haustskýrslu í Bústofni (www.bustofn.is), eigi síðar en 20. nóvember hvert ár. Í haustskýrslunni skal koma fram fjöldi ásetts búfjár af hverri tegund, allt búfé í hagagöngu og á hvaða jörð eða landspildu það er. Einnig skal koma fram gróffóðuruppskera af hefðbundnum nytjatúnum og leigutúnum og fyrningar, auk upplýsinga um aðra fóðuröflun og landstærðir. Eigendur hrossa, sem ekki þurfa að gera grein fyrir öðru búfé, geta skilað haustskýrslu í upprunaættbók íslenska hestsins (www.worldfengur.com). Skilyrði fyrir stuðningsgreiðslum í landbúnaði eru fullnægjandi skil á haustskýrslu. Skráning í Bústofn er með rafrænu skilríki eða Íslykli. Stjórnarráð Íslands Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.