Bændablaðið - 22.10.2020, Page 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. október 20208
Eins og margir vita þá eru alltaf
nokkrar kindur með lömbum í
Heimakletti í Vestmannaeyjum sem
áhugabændur eiga. Um er að ræða
útigangskindur, sem una hag sínum
vel á klettinum.
Svavar Steingrímsson, sem er 84
ára, er eldhress Vestamannaeyingur,
sem gengur nánast á hverjum degi upp
á Heimaklett sér til ánægju og yndis
auka til að heilsa upp á kindurnar.
Hann er alltaf með brauð í poka og
það líkar þeim vel. Kindurnar, sem
eru um 45, eru flestar styggar og ekki
mikið gefnar fyrir fólk á klettinum en
öðru gegnir um Svavar, það er nóg
að hann flauti einu sinni eða tvisvar
út í loftið og þá koma þær hlaupandi
úr öllum áttum til hans og hópast í
kringum hann til að fá brauðmola.
Það hefur margoft sýnt sig að ef
einhverjir aðrir flauta og þótt þeir séu
með brauð með sér, þá láta kindurn
ar sér fátt um finnast og sýna engin
viðbrögð, þær koma bara ef Svavar
flautar. /MHH
FRÉTTIR
Heimaklettur í Vestmannaeyjum:
Kindurnar hlýða bara kalli
Svavars, 84 ára göngugarps
Pétur Steingrímsson, göngufélagi Svavars Steingrímssonar, tók þessar skemmtilegu myndir af honum og kindun-
um, sem hann á þó ekkert í. Hann hefur bara svo gaman af þeim og þær hafa greinilega gaman af honum líka.
Kúabændur í Hrunamannahreppi verðlaunaðir
Nýlega fór fram verðlaunaveiting
Naut griparæktarfélags Hruna
manna en vaninn hefur verið að
veita þau á aðalfundi félagsins
á vordögum, en vegna COVID
19 þá hefur fundurinn ekki enn
verið haldinn. Verðlaunin voru
því keyrð til verðlaunahafa af
stjórnar mönnum.
Verðlaunahafar ársins 2019
eru þessir: Efnilegasta kvígan var
Gullbrá 1604 frá Birtingaholti 4.
Hún var með 302 stig. Afurðahæsta
kýrin var Spurning 1818 frá
Birtingaholti 1. Hún mjólkaði
13.617kg. Afurðahæsta búið var
Skollagróf með 8000 kg af mjólk og
618 kg. MFP (verðefni). Ræktunar
bú ársins var Skollagróf með 618
kg MFP eða 80 kg aukningu milli
ára. Félagið veitir alltaf tvo far
andgripi en það er „Huppuhornið“
fyrir efnilegustu kvíguna. Það er frá
árinu 1946 og útskorið af Ríkharði
Jónssyni, merkisgripur. Síðan fær
ræktunarbú ársins farandgrip sem
Helga Magnúsdóttir í Bryðjuholti
skar út og málaði. Hann hefur verið
veittur frá 2017 og var gefinn til
minningar um hjónin í Dalbæ, þau
Hróðnýju og Jóhann Halldór.
/MHH
Svava Kristjánsdóttir, Birtingaholti 1 (t.v.), er með með verðlaunin fyrir
afurðahæstu kúna og Ingveldur Kjartansdóttir, Birtingaholti 4, er hér með
Huppuhornið fyrir efnilegustu kvíguna. Myndir / Marta Esther Hjaltadóttir
Fjóla Helgadóttir
og Sigurður Haukur
Jónsson í Skollagróf
fengu verðlaun fyrir
afurðahæsta búið og
ræktunarbú ársins.
Bænda