Bændablaðið - 22.10.2020, Side 9
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. október 2020 9
Byggðarráði Húnaþings vestra
hafa borist kvartanir frá íbúum
sveitarfélagsins vegna styttri
afgreiðslutíma lyfjaverslunar
Lyfju á Hvammstanga.
Byggðarráðið mótmælir
skerðingu á þjónustu við íbúa
Húnaþings vestra með styttingu
afgreiðslutíma Lyfju og hefur falið
sveitarstjóra að senda erindi til
fyrirtækisins og óskað eftir að
afgreiðslutímanum verði haldið
óbreyttum.
Samfélagslega mikilvægt
„Á tímum óvissu og vegna að
stæðna í samfélaginu er mikil
vægt að þjónusta lyfjaverslunar
sé óbreytt“, segir í bókun byggð
arráðs.
Einnig var því á sama fundi
harðlega mótmælt að útibúi TM
á Hvammstanga hafi verið lokað.
Var sveitarstjóra falið að óska eftir
fundi með fulltrúum TM vegna
lokunar þess. /MÞÞ
Nýlega undirrituðu Sveitarfélagið
Ölfus og Fiskeldi Ölfuss samkomu-
lag um fýsileikakönnun og upp-
byggingu áframeldisstöðvar á laxi
og vilyrði fyrir lóð.
Með samkomulaginu hefur Fisk
eldi Ölfuss undirbúning að rekstri
landeldisstöðvar sem á að geta fram
leitt um 20.000 tonn af fullöldum
eldislaxi á ári á 200.000 m2 lóð á
svæði í námunda við Þorlákshöfn.
Áætluð árleg útflutnings verðmæti
gætu legið nærri 22 milljörðum og
samhliða verða til ný störf og ný
tækifæri. /MHH
Áform um framleiðslu á 20.000 tonnum
af laxi á landi við Þorlákshöfn
Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, og Sigurður Ingi Jónsson, verkefnastjóri
hjá Fiskeldi Ölfuss, við undirritun samkomulags um fýsileikakönnun á upp-
byggingu áframeldisstöðvar á laxi í sveitarfélaginu.
Byggðarráð Húnaþings vestra
mótmælir skertri þjónustu
Nes listamiðstöð:
Þungur rekstur
í heimsfaraldri
Rekstur Ness listamiðstöðvar á
Skagaströnd er þungur sökum
kórónuveirufaraldursins. Lítið
er um bókanir og fyrirséð að svo
verði áfram næstu mánuði.
Stjórn listamiðstöðvarinnar
hefur óskað eftir fjárstuðningi frá
Sveitarfélaginu Skagaströnd til þess
að mögulegt sé að standa undir fjár
hagslegum skuldbindingum. Óskað
er eftir 800 þúsund krónum á mánuði
vegna tímabilsins frá október og út
desember. Þá er óskað eftir því að
við gerð fjárhagsáætlunar næsta árs
verði gert ráð fyrir sambærilegu
framlagi fyrstu sex mánuði ársins.
Sveitarstjórn Skagastrandar
samþykkti á fundi fyrir skömmu að
vísa styrkbeiðninni, að upphæð 2,4
milljónum króna, til endanlegrar
afgreiðslu næsta fundar og styrk
beiðni vegna næsta árs var vísað til
gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið
2021. /MÞÞ
Eyrbekkingur er nýr
forseti Klúbbs mat-
reiðslumeistara
Þórir Erlingsson frá Eyrarbakka
er nýr forseti Klúbbs matreiðslu-
meistara en á aðalfundi klúbbsins
um miðjan september tók hann
við emættinu af Birni Braga
Braga syni, sem gaf ekki kost á
sér til endurkjörs.
Þá kom nýtt fólk inn í stjórnina
með Þóri. Klúbbur matreiðslumeist
ara stendur fyrir fjölmörgum verk
efnum en það allra stærsta er rekstur
á Kokkalandsliði Íslands. Frábær
árangur hefur náðst á undanförn
um árum en þar ber hæst árangur
landsliðsins í febrúar síðastliðn
um þegar liðið náði þriðja sæti á
Ólympíuleikunum. Á næstu vikum
verður nýr landsliðsþjálfari kynntur
ásamt nýju kokkalandsliði, en það
mun taka þátt í heimsmeistaramótinu
í matreiðslu sem haldið verður árið
2022 en æfingar munu hefjast í byrj
un árs 2021. /MHH
Þórir Erlingsson, sem er nýr forseti
Klúbbs matreiðslumeistara.
Bænda
5.
nóvember