Bændablaðið - 22.10.2020, Síða 15

Bændablaðið - 22.10.2020, Síða 15
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. október 2020 15 Mikil bráðnun hefur verið á hafís á norðurhveli jarðar í sumar. Hefur verið íslaust á stór- um svæðum norðan við Rússland og er bráðnunin áberandi mikil á austurhluta svæðisins í kjöl- far mikillar hitabylgju í Síberíu. Endan legar tölur fyrir bráðnun sumarsins munu þó væntanlega ekki liggja fyrir fyrr en í nóv- ember eða desember. Mælingar sýna samt að meiri hafís var nú í ágúst en í fyrra. Samkvæmt gögnum rann- sóknamiðstöðvar NOAA hefur bráðnunin ár hvert náð hámarki í september, en þá dregur hratt úr henni um leið og veturinn geng- ur í garð. Þróun hefur verið sú að meðaltalið sýnir aukna bráðnun hafíss yfir sumartímann frá 1979. Trúlega sést það ekki fyrr en eftir tvö til þrjú ár hvort hægst hefur á þessari meðaltalsniðursveiflu frá 2013 miðað við sex ár þar á undan. Það sést samt trúlega ekki fyrr en eftir tvö til fjögur ár hvort þróunin sé mögulega að snúast við. Tölur fyrir septembermánuð liggja ekki enn fyrir hjá NOAA, en útbreiðsla hafíss í september var langminnst á árinu 2012. Hefur hafísinn verið meiri í ágúst öll árin frá 2013. Mesta bráðnun í júlí síðan 1979 Tölur fyrir júlí 2020 sýna aftur á móti mestu bráðnun hafíss á þeim tíma allavega frá 1979. Í lok júlí 2020 var mældist hafísþekjan vera 7,28 milljónir ferkílómetra sem er 2,9 milljónum ferkílómetrum undir meðaltali áranna 1981-2010 og 3,03 milljónum ferkílómetra minni en ísbreiðan var í júlílok 1979 þegar hún var 10,31 millj- ónir ferkílómetra. Var bráðnunin nú 310.000 ferkílómetrum meiri en á síðasta ári. Meiri hafís í ágúst 2020 en 2019 Staðan í ágúst reyndist ekki sýna alvega eins mikla minnkun hafíss. Var ágústmánuður 2020 sá þriðji ísminnsti síðan 1979 og var t.d. meiri ís nú en í fyrra, þó ekki muni neinum ósköpum. Var ísþekjan nú Minnstur var hafísinn í ágúst hins vegar árið 2012 eða 4,72 milljónir km2. Hafísþekjan jókst síðan verulega í ágúst árið 2013 eða í 6,1 milljón km2 og aftur jókst hann 2014 þegar hann mældist vara 6,8 milljónir km2. Síðan hafa verið nokkrar sveiflur í útbreiðslu hafíss í ágúst en með- altalið sýnir enn meðaltalsminnk- un hafísþekjunnar. /HKr. – VERKIN TALA Gylfaf löt 32 ● 112 Reykjavík ● Sími 580 8200 ● www.velfang. is ● Óseyri 8 ● 603 Akureyri Vélfang ehf. selur og þjónustar jafnt nýjar sem notaðar vélar og tæki fyrir landbúnað, verktaka, golfvelli og sveitarfélög ásamt varahluta- og viðgerðarþjónustu. Framúrskarandi þjónusta við viðskiptavini Fer fremstur Leiðandi afl í 190 ár Styrkur - afköst- skilvirkni Nýsköpun - metnaður - framsækni Fjölskyldufyrirtæki í fararbroddi Framtíðarsýn í landbúnaði FRÉTTIR Hafísinn á norðurhveli jarðar: Meiri ís í ágúst 2020 en 2019 þrátt fyrir metbráðnun í júlí Þetta kort NSIDC sýnir stöðuna á hafísnum á norðurhveli jarðar þann 11. október síðastliðinn. Sími: 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is 41,9% fólks á landsbyggðinni les Bændablaðið 21,9% 41,9% á landsbyggðinni á höfuðborgarsvæðinu 29,2% landsmanna lesa Bændablaðið Lestur Bændablaðsins: BÆNDABLAÐIÐ ER GEFIÐ ÚT Í 32 ÞÚSUND EINTÖKUM Á TVEGGJA VIKNA FRESTI Heimild: Prentmiðlakönnun Gallup, okt.-des. 2019. Aldur 12-80 ára. Hvar auglýsir þú?

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.