Bændablaðið - 22.10.2020, Blaðsíða 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. október 202018
HROSS&HESTAMENNSKA
Hrútasýning Fjárræktarfélags Sveinsstaðahrepps:
Vel þegin samverustund
í amstri haustsins
Hrútasýning Fjárræktarfélags
Sveinsstaðahrepps var haldin í
byrjun þessa mánaðar í Hvammi
í Vatnsdal. Sýningin var vel sótt
og þátttakan góð að sögn Jóns
Gíslasonar, bónda á Hofi. „Þetta
var vel þegin samverustund í
amstri haustsins.“
Keppt var í þremur flokkum.
Að lokum voru sigurvegararnir í
flokkunum þremur bornir saman og
besti hrútur sýningarinnar valinn.
Dómarar voru Gunnar Þórarinsson
og Guðni Ellertsson.
Í flokki kollóttra stóð efstur
hrútur no 248 frá Hofi. Faðir er
Árangur 15-159 frá Árbæ og móðir
Strönd 17-811 frá Hofi. Hann var
jafnframt valinn besti hrútur sýn-
ingarinnar.
Í flokki mislitra stóð efstur
svartur hrútur, no 73 frá Hæli.
Faðir er Glæpon 17-809 frá Hesti
og móðir 18-052 frá Hæli.
Í flokki hyrntra stóð efstur hrútur
no 69 frá Hæli. Faðir hans er einnig
Glæpon 17-809 frá Hesti, en móðir
er 18-041 frá Hæli. /MÞÞ
Samruni þriggja matvælavinnslufyrirtækja:
Samkeppniseftirlit óskar
eftir umsögnum
– Vill m.a. umsagnir frá bændum og neytendum
Samkeppniseftirlitið hefur óskað
eftir umsögnum og sjónarmiðum
hagsmunaaðila vegna fyrirhugaðs
samruna matvælavinnslufyrir
tækjanna Norðlenska, Kjarna
fæðis og SAHafurða.
Umsagnarfrestur rennur út 28.
október næstkomandi. Samkeppnis-
eftirlit hefur gefið aðgang að sam-
runaskrá án trúnaðarupplýsinga. Við
mat á samruna verður horft bæði til
hagsmuna bænda og neytenda.
Áhrif á hag bænda og neytenda
Samkeppniseftirliti var tilkynnt um
fyrirhugaðan samruna fyrirtækjanna
upp úr miðjum ágúst síðastliðnum.
Norðlenska er framleiðslufyrirtæki
á sviði kjötvöru og hefur starfs-
stöðvar á þremur stöðum á landinu,
Akureyri, Reykjavík og Húsavík.
Fyrirtækið sér m.a. um slátrun
á hrossum, nautgripum, sauðfé
og svínum og framleiðir og selur
margvíslegar vörur sem unnar eru
úr kjötinu, m.a. undir vörumerkj-
unum, Goði, KEA, Húsavíkurkjöt
og Bautabúrið. Kjarnafæði er
ennig matvælavinnslufyrirtæki
sem framleiðir og selur ýmsar
vörur úr lamba-, nauta-, grísa- og
hrossakjöti. Kjarnafæði á fyrirtækið
SAH-afurðir sem rekur sláturhús og
afurðasölu á Blönduósi. Starfsemi
þess felst í slátrun á hrossum, naut-
gripum, sauðfé og sölu á afurðum
til matvælavinnslufyrirtækja.
Samkeppniseftirlitið óskar nú
sérstaklega eftir því að sjónarmið
um áhrif samruna fyrirtækjanna
á hag bænda og neytenda komi
fram. Einnig að fram komi hverjar
samkeppnisaðstæður í slátrun gripa
hér á landi verði og áhrif samrun-
ans á samkeppni á milli sláturhúsa
í slátrun hrossa, nautgripa, sauðfjár
og svína. Þá er óskað eftir sjónar-
miðum er varðar áhrif samrunans
á þá markaði sem fyrirtækin starfa
á hefur og loks leitar eftirlitið
eftir almennum sjónarmiðum um
samkeppnisaðstæður á mörkuðum
fyrir kjötafurðir hér á landi, allt frá
ræktun gripa til sölu á fullunnum
kjötafurðum.
„Við mat á áhrifum samruna aflar
Samkeppniseftirlitið gagna frá aðil-
um máls og öðrum þeim sem málið
varðar, eftir því sem nauðsynlegt
þykir hverju sinni. Í þessu máli telur
Samkeppniseftirlitið mikilvægt að
gefa bændum, öðrum viðskipta-
vinum, keppninautum og öðrum
hagsmunaaðilum tækifæri á að
koma sjónarmiðum og upplýsing-
um á framfæri“, segir í tilkynningu
Samkeppniseftirlits. /MÞÞ
FRÉTTIR
Austurvegi 69 // 800 Selfoss // 480 0400 // buvelar.is
Búvélar er umboðsaðili
Massey Ferguson
buvelar.is
Kynningarafsláttur
á heyvinnutækjum!
þrír efstu í flokki kollóttra hrúta. Lengst til vinstri er Birgir Haraldsson með hrút frá Kornsá í 3. sæti, þá Jón Árni
Magnússon með hrút frá Steinnesi og lengst til hægri er Jón Ægir Jónsson með sigurvegarann, hrút frá Hofi.
Myndir / Jón Gíslason
Börnin í skrautgimbraflokknum eru, talin frá vinstri: Magnús Ólafsson, Jó-
hanna Einarsdóttir, Salka Kristín Ólafsdóttir og Harpa Katrín Sigurðardóttir.
Sigurvegarar í hverjum flokki. Lengst til vinstri er Jón Kristófer Sigmarsson
með mislita hrútinn, Helene Finzel með þann hyrnta í miðið, og lengst til
hægri er Jón Ægir Jónsson með þann kollótta, besta hrút sýningarinnar.
Miklar svæðisbundnar sveiflur í hita á jörðinni:
Næstheitustu 12 mánuðir á jörðinni en
þeir níundu heitustu í Bandaríkjunum
Svæðisbundið hitastig á jörðinni
virðist mjög sveiflukennt og þannig
hefur verið talsvert kald ara í Banda
ríkjunum undanfarna mánuði að
meðaltali en meðalhiti á jörðinni
gefur tilefni til að álykta.
Samkvæmt gögnum bandarísku
umhverfismiðstöðvarinnar NOAA
hefur meðalhiti í Bandaríkjunum
í september 2020 ekki verið lægri
síðan 2008. Ef miðað er við 12
mánaða tímabil hefur hitinn átta
sinnum verið hærri síðan 1895 þí
hitinn nú sé tæplega einni gráðu
hærri en 12 mánuðina þar á undan.
Þetta lítur vissulega undarlega
út miðað við fréttir af hitum og
gríðarlegum skógareldum á vest-
urströndinni, en september nú er
aðeins númer 37 í röðinni yfir heit-
ustu septembermánuði síðan 1895
með meðalhita 18,89° á Celsíus.
Meðalhitinn á jörðinni mældist
hins vegar sá heitasti síðan 2016 og
sá næstheitasti síðan mælingar hófust
eða 0,94°C yfir meðaltali. /HKr.