Bændablaðið - 22.10.2020, Síða 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. október 202022
UTAN ÚR HEIMI
Sauðfjárbúskapur er mjög öflugur á Nýja-Sjálandi. Árið 2014 var talið að rúmlega 6 kindur væru á hvern íbúa í
landinu, eða um 29 milljónir fjár. Í júní 2019 voru 26,7 milljónir fjár á Nýja-Sjálandi. Samsvarandi tala fyrir Ísland í
dag þýddi að hér væru um 2,2 milljónir fjár, en ekki rétt rúmlega 400 þúsund eins og nú er.
Ný rannsókn tækniháskólans í Auckland á Nýja-Sjálandi:
Sauðfjár- og nautgriparækt á Nýja-
Sjálandi nánast kolefnishlutlaus
– Ástæðan er rakin til mikillar kolefnisbindingar trjágróðurs á jörðum bænda
Rannsókn tækniháskólans í
Auckland sýna að sauðfjár-
og nautgripabændur á Nýja-
Sjálandi eru nú mjög nálægt
því að hafa kolefnisjafnað sinn
búskap.
Rannsóknin var leidd af Bradley
Case, sem er reyndur fyrirlesari við
vistfræðistofnun háskólans. Þar er
áætlað að trjágróður á beitarlandi
bænda sauðfjár- og nautgripabænda
bindi á milli 63–118% af því kolefni
sem losnar við þessa landbúnaðar-
framleiðslu. Að meðaltali er kolefn-
isbindingin talin nema um 90% af
losun þessara landbúnaðargreina.
Rannsóknin var fjármögnuð af
„Beef and lamb New Zealand“ og
rýnd af Fionu Carswell og Adam
Forbes, æðsta vísindamanni í land-
nýtingarrannsóknum við háskólann
í Canterbury. Segir Bradley Case
að niðurstaða rannsóknarinnar sýni
að full ástæða sé til að viðurkenna
þá kolefnisbindingu sem fram fer á
jörðum bænda.
Íslendingar með hlutfallslega
fátt fé miðað við Nýsjálendinga
Sauðfjárbúskapur er mjög öflugur á
Nýja-Sjálandi. Árið 2014 var talið
að rúmlega 6 kindur væru á hvern
íbúa í landinu, eða um 29 milljónir
fjár. Í júní 2019 voru 26,7 milljónir
fjár á Nýja-Sjálandi. Samsvarandi
tala fyrir Ísland í dag þýddi að hér
væru um 2,2 milljónir fjár, en ekki
rétt rúmlega 400 þúsund eins og
nú er.
22 kindur á íbúa þegar mest var
Mestur var sauðfjárfjöldinn á Nýja-
Sjálandi 1982, um 70 milljónir, eða
rúmlega 22 kindur á íbúa miðað við
íbúafjölda á þeim tíma (3.156.000).
Sauðfjárrækt hefur dregist mikið
saman frá 1982 samfara aukinni
nautgriparækt og mjólkurfram-
leiðslu.
Þess má geta að Nýja-Sjáland
er rúmlega tvöfalt stærra en Ísland,
eða um 268 þúsund ferkílómetrar
og íbúar í dag eru rúmlega 4,8 millj-
ónir. Fjárfjöldi í dag samsvarar því
tæplega 6 kindum á íbúa. /HKr.
Tesco í Bretlandi:
Metnaðarfull markmið í sölu
á matvælum úr jurtaríkinu
Matvöruverslanakeðjan Tesco í
Bretlandi er fyrsta smásölufyrir-
tækið í landinu sem setur metnað-
arfull markmið í sölu á matvælum
úr jurtaríkinu en á næstu fimm
árum hafa forsvarsmenn fyrir-
tækisins í hyggju að auka sölu á
kjötlíki í verslunum sínum um 300
prósent.
Síðastliðið ár hefur eftirspurn
eftir kældum vörum úr kjötlíki
aukist um 50 prósent. Vegna þessa
mun keðjan nú bjóða upp á fleiri
vöruflokka í sölu og möguleikum
fyrir neytendur að kaupa skammta
fyrir tvo eða fleiri með matvælum
úr jurtaríkinu. Þessi nýja stefna er
liður í sjálfbærnistefnu fyrirtækisins
sem hefur verið þróuð í samstarfi við
Alþjóðasjóð villtra dýra (WWF) sem
ætlar að helminga áhrif á umhverfið
á meðalmatvælakörfu í Bretlandi á
næstu árum.
Til að ná þessum markmiðum
hefur Tesco sett upp nokkra þætti í
áætlun til að ná þeim:
• Framboð: Kynna og rækta kjöt
úr jurtaríkinu í öllum verslun-
um með vörum sem nær yfir
20 vöruflokka sem innihalda
meðal annars tilbúnar máltíðir,
pylsur, bökur, hamborgara og
fleira.
• Hagkvæmni: Halda áfram að
fjárfesta í virði þannig að hag-
kvæmni verði ekki hindrun í
að kaupa mismunandi valkosti
kjötlíkja.
• Nýsköpun: Vinna með birgjum í
að koma með nýsköpun til við-
skiptavina.
• Sýnileiki: Veita valkosti við kjöt
þar sem kjötlíki lítur út eins og
venjulegt kjöt.
/ehg - FoodMatters
Norðmenn kaupa stöðugt
meira af umframmat
Á þessu ári hafa Norðmenn sótt
yfir milljónir matarpoka frá sam-
starfsaðilum Too Good To Go í
Noregi sem eru til dæmis versl-
anir, bakarí og þjónustustaðir.
Aukningin frá sama tíma í fyrra
er 13 prósent en Too Good To Go
er alþjóðlegt fyrirtæki sem vinn-
ur í 15 löndum að því að minnka
matarsóun.
Í gegnum app fyrirtækisins tengj-
ast verslanir og matsölustaðir sem
hafa umframmat fólki sem óskar
eftir því að bjarga matnum og kaupa
hann á lækkuðu verði. Í Noregi eru
2.200 samstarfsaðilar Too Good To
Go um allt land en á þessu ári hafa
hátt í 300 þúsund manns bæst við
sem skráðir notendur í appinu þar
í landi.
„Margar verslanir og neytendur
eru jákvæðir og það hefur mikið
gerst á nokkrum árum. Þegar við
byrjuðum hér í Noregi árið 2016
var matarbjörgun ekki algeng en
nú er þetta orðið hugtak sem lofar
góðu í baráttunni gegn matarsóun.
Okkur dreymir um að þetta verði
jafn algeng hugsun fyrir fólki eins
og að fara með dósir í endurvinnsl-
una,“ segir framkvæmdastjóri Too
Good To Go í Noregi, Ann-Kristin
Raknes Pfründer.
Henda 385 þúsund tonnum
Norsk stjórnvöld og matvælaiðnað-
urinn hafa undirritað samkomulag
um að minnka matarsóun um helm-
ing til ársins 2030 sem er í takt við
sjálfbærnimarkmið Sameinuðu
þjóðanna.
„Þetta er búið að vera mjög sér-
stakt ár og aukningin hjá okkur hefði
verið mun meiri ef ekki hefði orðið
þessi kórónakrísa sem hefur komið
illa við marga samstarfsaðila okkar.
En það eru fleiri sem hafa náð að
halda venjulegum dampi og við
höfum til dæmis fengið inn fleiri
nýjar matvöruverslanir á þessu ári,“
segir Ann-Kristin.
Í Noregi er árlega kastað í kring-
um 385 þúsund tonnum af mat og
er áætlað að um 60 prósent þess
magns sé það sem norskir neytendur
henda. Reiknað er með að almenn-
ur neytandi hendi áttunda hverjum
innkaupapoka sem hann kaupir. Á
hverjum degi sækja Norðmenn nú
í kringum 6 þúsund poka frá Too
Good To Go en metdagurinn varð
24. september síðastliðinn þegar
6.366 pokar voru sóttir um allt
land, pokar sem voru allir fullir af
mat á niðursettu verði, sem komið
var í veg fyrir að færi í ruslið þann
daginn. /ehg - Bondebladet
Frá Osló. Mynd / HKr.
Afríska svínapestin heldur áfram
að breiðast út í Þýskalandi
– Um 18 milljónir tonna af svínakjöti taldar fara til spillis í Kína á þessu ári
Afríska svínapestin hélt áfram
að breiðast út í austurhluta
Þýskalands í síðustu viku. Á
miðvikudag var greint frá fjór-
um nýjum smittilfellum í villtum
svínum og voru tilfellin þá orðin
69 í heildina frá 10. september.
Engar fregnir voru þó af því að
smit hafi borist inn í svínabú í
landinu.
Þýsk yfirvöld líta málið mjög
alvarlegum augum, enda um gríðar-
lega hagsmuni að ræða varðandi
útflutning á svínakjöti. Vegna smits-
ins sem fannst í villisvínum lok-
uðu nokkrar helstu viðskiptaþjóðir
Þjóðverja í Asíu fyrir innflutning á
svínakjöti.
Eins og fram kom í síðasta
Bændablaði þá eru engar áætlanir
um að stöðva innflutning á svína-
kjöti til Íslands frá Þýskalandi sem
hefur verið talsverður. MAST reiðir
sig alfarið á eftirlit í ESB-ríkjunum
og að þar fari ekkert í gegn sem leitt
gæti til þess að smitað svínakjöt
berist til Íslands. Þetta hefur sætt
gagnrýni í ljósi þess að kjöt sem selt
hefur verið á milli Evrópulanda í
skjóli heilbrigðisvottorða hefur ekki
alltaf staðist kröfur. Stór kjötsvindl-
mál hafa þannig komið upp á liðn-
um árum innan Evrópusambandsins
þrátt fyrir eftirlitskerfið.
Leitarmenn nota dróna við leit
að sýktum villisvínum
Þann 11. október var greint frá því
á vefsíðu þýska blaðsins Märkische
Oderzeitung að fjölmörg dauð
villisvín hafi fundist með aðstoð
dróna á eyjunni Oder í Küstrin-
Kietz. Í Oderbruch voru einnig
notaðir drónar með hitamyndavélar.
Með aðstoð dróna fundust hópar
villisvína á eyjunni Oder. Þar voru
30 lifandi dýr og 17 dauð.
Um 300 björgunarsveitarmenn
voru settir í að leita að sýkt-
um villisvínum í sveitarfélaginu
Bleyen við pólsku landamærin.
Leitarsvæðið er um 4.500 hektarar.
Undir forystu yfirvalda í umdæmi
Märkisch-Oderland kom fjöldi
bænda, lögreglumanna, slökkvi-
liðsmanna og hjálparsveitarmanna
að leitinni. Talið var of hættulegt að
senda leitarmenn of nærri svínunum
sem fundust, því veik dýr eru sögð
mjög árásargjörn.
Samkvæmt fréttum ýmissa
svæðisbundinna fjölmiðla voru
einnig skrokkar dauðra dýra á
öðrum stöðum á leitarsvæðinu og
er nú verið að rannsaka hvort sýni úr
þeim innihaldi svínapestarvírusinn.
Þjóðverjar reyna að
markaðssetja sitt svínakjöt í
gegnum önnur ESB lönd
Samkvæmt fréttum Reuters reyna
þýskir svínakjötsframleiðendur nú
að markaðssetja í Evrópulöndum það
kjöt sem annars hefði verið selt úr
landi. Þar er um að ræða umtalsvert
magn. Enda lokuðu Kínverjar, sem
eru langstærstir í þeim viðskiptum,
fyrir öll viðskipti með þýskt svína-
kjöt í byrjun september.
Þrátt fyrir að birgðir hafi verið
að hlaðast upp hjá þýskum fram-
leiðendum, þá hefur það enn ekki
leitt til verðlækkana á svínakjöti í
Evrópu. Þá virðast Þjóðverjar líka
stóla á að þeir geti selt sitt kjöt til
annarra ESB-landa og að þaðan
verði viðskiptunum haldið uppi við
kínverska viðskiptavini.
Þar sem reynslan sýnir að erf-
iðlega hefur gengið að halda uppi
upprunaskilgreiningum á kjöti
innan Evrópu velta menn fyrir
sér hvort tryggt sé að kjötið sem
Kínverjar kaupa frá öðrum ESB-
löndum komi ekki frá Þýskalandi.
Það flækir svo málið enn frekar að
afríska svínapestin er þegar til stað-
ar í 11 ESB-löndum, en pestin barst
þangað frá Rússlandi og Belarus
(Hvíta-Rússlandi).
Talin er hætta á að fella verði
allan svínastofninn í Búlgaríu sem
telur 600.000 dýr. Hafa Búlgarar
fengið 2,9 milljónir evra í aðstoð
frá ESB til að berjast við pestina.
Staðan hefur einnig verið mjög
slæm í Rúmeníu samkvæmt upp-
lýsingum Matvælaöryggisstofnunar
Evrópu.
Hrikaleg staða hjá Kínverjum
Kínverjar hafa orðið langverst úti
í útbreiðslu svínapestarinnar. Á
þessu ári búast sérfræðingar við
að um þriðjungur svínakjötsfram-
leiðslu Kínverja glatist, eða um 18
milljónir tonna. Það er tvöfalt það
magn sem að jafnaði er verslað
með á heimvísu á ári. Vegna þessa
hafa Kínverjar leitað með logandi
ljósi að svínakjöti um allan heim.
Ef kaup á 5 milljónum tonna á ári
frá Þýskalandi dettur alveg út eykur
það enn á vanda Kínverja til að upp-
fylla sínar innanlandsþarfir. /HKr.