Bændablaðið - 22.10.2020, Qupperneq 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. október 202024
LÍF&STARF
Á Vatnsenda í Flóahreppi hafa
orðið kynslóðaskipti, en Eydís
Rós Eyglóardóttir og Ingvar
Guðni Ingimundarson tóku árið
2015 við kjúklingabúskapnum af
Ingimundi Bergmann og Þórunni
Kristjánsdóttur sem höfðu byggt
upp Kjúklingabúið Vor. Vinna við
byggingagrunna að tveimur nýjum
877 fermetra eldishúsum er komin
af stað og þau Eydís og Ingvar
sömdu nýverið við Reykjagarð um
frekara samstarf um kjúklingaeldi.
Ingimundur og Þórunn hófu
kjúklingaeldi árið 1978 og er búið
því með þeim elstu í greininni. Ingvar
segir að foreldrar hans búi enn á
Vatnenda og þar hjálpist allir að. „Það
er rétt að krafa um fáa fugla á fermetra
hefur haft áhrif á það að við ráðumst
í þessa stækkun,“ svarar Ingvar. „Við
reiknum með að húsin verði komin í
rekstur í vor, en það má segja að þetta
hafi verið í undirbúningi með hléum
frá 2014. Þegar húsin verða komin í
fullan rekstur verður framleiðslan úr
þeim um 360 tonn á ári.
Húsin verða gerð úr steinsteypt-
um einingum. Veggir og gólf verða
steinsteypt en þökin verða gerð úr
stálburðarvirki og klædd með stein-
ullar samlokueiningum.
Húsin verða vel búin hvað varðar
allan búnað.
Þegar hann er spurður hvað verði
um það mikla magn af kjúklingaskít
sem komi frá slíku búi, segir hann
að það sé útbreiddur misskilning-
ur að það komi mikill úrgangur frá
kjúklingum. „Staðreyndin er sú að það
kemur sáralítill skítur frá kjúklinga-
eldi ef það er borið saman við fram-
leitt magn afurða. Kjúklingaskítur er
hins vegar afskaplega góður áburður
og verðmætur þeim sem þurfa áburð
á tún. Einnig er gott að nota skítinn
til landgræðslu,“ segir Ingvar.
Uppbygging í sunnlenskum
sveitum
Guðmundur Svavarsson, fram-
kvæmdastjóri Reykjagarðs, segir að
samningurinn gangi út á að ramma
enn frekar inn það góða viðskipta-
samband sem búið sé að byggja upp
á liðnum árum. „Þegar búið verður
komið í fulla notkun mun það verða
þriðja til fjórða stærsta búið sem
framleiðir fyrir okkur, um þriðj-
ungur af stærð Ásmundarstaða sem
er stærst.
Samningurinn felur í sér að
Kjúklingabúið Vor elur upp kjúklinga
og skilar þeim í formi afurðainn-
leggs til Reykjagarðs, sem vinnur
og markaðssetur afurðirnar undir
sínum merkjum. Þýðingin fyrir
Reykjagarð er sú að með honum
næst framleiðsluaukning án þess að
Reykjagarður þurfi sjálfur að fjárfesta
í og reka eldishús og búnað. Jafnframt
felst í þessu ákveðin áhættudreifing
í starfseminni. Stærsti ávinningurinn
eru svo auðvitað sá að með þessu
skjótum við styrkari stoðum undir
búskapinn á Vatnsenda og stuðlum að
uppbyggingu í sunnlenskum sveitum.
Afurðaverðið er bundið í samningn-
um út frá ákveðnum forsendum,“
segir Guðmundur.
Bjartsýni á áframhaldandi vöxt
„Þótt rekstrarumhverfi alifuglabú-
skapar sé erfitt um þessar mundir
vegna heimsfaraldurs COVID og
aukins tilkostnaðar af ýmsu tagi erum
við bjartsýn á að neysla á íslenskum
kjúklingi muni áfram fara vaxandi.
Við finnum fyrir vaxandi velvild í
garð íslenskrar framleiðslu og viljum
geta svarað kalli markaðarins þegar
við komumst út úr núverandi ástandi.
Við teljum því sóknarfæri til staðar í
greininni og viljum leiða þá sókn líkt
og undanfarin ár.
Miklar kröfur eru gerðar til
íslenskra kjúklingabænda með tilliti
til sjúkdómavarna, lyfjanotkunar,
aðbúnaðar, eftirlits og fleiri þátta.
Hvort sem litið er til búanna sjálfra
eða afurðastöðvanna eru þau örsmá
í hinum verksmiðjuvædda alifugla-
iðnaði sem tíðkast erlendis. Þrátt
fyrir það búum við að mörgu leyti
við strangari kröfur og höfum ekki
möguleika á að nýta okkur dýrar
verksmiðjulausnir við búskap og
úrvinnslu afurða. Á móti kemur að
hægt er að fullyrða að við stönd-
um nær hinum eiginlega búskap og
höfum auga á öllum ferlinum, allt frá
bónda til búðar. Þannig eigum við
auðveldara með að tryggja gæði og
heilnæmi afurðanna á öllum stigum,“
segir Guðmundur. /smh
Eftir undirritun samningsins var farið í skoðunarferð að byggingasvæðinu. Ingimundur Bergmann Garðarsson, Þórunn Kristjánsdóttir, Gréta Sóley Ingvarsdóttir,
Eydís Rós Eyglóardóttir, Ingvar Guðni Ingimundarson, Guðmundur Svavarsson, Magnús Huldar Ingþórsson, Ársæll Hafsteinsson og Ingveldur Ýr Jónsdóttir.
Lífland leggur til búnaðinn
Búnaðurinn er í tvö eldishús sem hvort um sig tekur um 14.000 fugla.
Lífland er söluaðili búnaðarins en hann kemur frá einum stærsta
og virtasta framleiðanda slíks búnaðar í heiminum, Big Dutchman
í Þýskalandi sem býður upp á heildarlausnir í hús fyrir allt er við-
kemur eldisfuglum, varphænum og svínaeldi.
Búnaðurinn að Vatnsenda samanstendur af fuglavogum, fóðurkerfi,
drykkjarlínum, loftræstikerfi, lýsingu, hitablásurum, iðnaðartölvu og við-
vörunarkerfi. Iðnaðartölvan stýrir af mikilli nákvæmni öllum aðgerðum
varðandi velferð fuglanna s.s. fóðurgjöf, lýsingu, hitastig, brynningu og
loftræstingu í eldishúsunum.
Sérstakir skynjarar nema koltvísýring, hita- og rakastig ásamt amm-
oníaksmagni í rauntíma. Þá heldur hún utan um allar mikilvægar upp-
lýsingar er varða áðurnefnd atriði. Einnig kemur með kerfinu sérstakur
hugbúnaður, Big Farm Net, sem gerir notanda kleift að fylgjast með
á tölvuskjá hvernig kerfin í húsunum eru að virka og heldur utan um
og skráir allar mikilvægar upplýsingar um velferð fuglanna og hvernig
þeir dafna.
Ingvar Guðni Ingimundarson, kjúklingabóndi á Vatnsenda, og Guðmundur Svavarsson, framkvæmdastjóri Reykja-
garðs, við undirritun samningsins. Myndir / smh
Sigurður Már Harðarson
smh@bondi.is
Reykjagarður semur við Kjúklingabúið Vor á Vatnsenda í Flóahreppi:
Tvö stór eldishús rísa á næsta ári
– Reiknað með 360 tonna ársframleiðsu inn í grein sem er í örum vexti