Bændablaðið - 22.10.2020, Page 25

Bændablaðið - 22.10.2020, Page 25
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. október 2020 25 Stofnfuglaræktun Ferill kjúklingaframleiðslunnar á Íslandi, áður en kjúklingurinn kemur í eldishúsin, er fastmótaður og þróaður. Hann gengur undir heitinu stofnfuglaræktun, þar sem kjúklingaafbrigðið Ross 308 er ræktað. Það byrjar hins vegar allt með framleiðslu eggja í Svíþjóð. Að sögn Magnúsar Huldars Ingþórs sonar, framleiðslustjóra hjá Reykja garði, er ræktunartegund- in notuð um allan heim. „Ross er bandarískt fyrirtæki með höfuð- stöðvar fyrir Evrópu í Skotlandi. Aviagen er síðan framleiðslufyrir- tæki Ross, staðsett í Svíþjóð. Félag kjúklinga- og eggjabænda á og rekur fyrirtækið Stofnunga á Hvanneyri sem flytur meðal annars inn eggin frá Aviagen. Eggin koma í flugi til Íslands þar sem þau fara beint í sóttvarnarstöð Stofnunga á Hvanneyri. Stöðin er undir ströngu eftirliti Matvælastofnunar. Í sótt- varnarstöðinni á Hvanneyri eru eggin klakin. Þegar egg eru klakin eru ungar kyngreindir. Það er gert þrátt fyrir það að eggin séu þegar greind í hana og hænulínuegg frá fram- leiðanda. Þessi greining fer fram af erlendum aðilum þar sem fag- þekking á þessu sviði er ekki til hér á landi. Þetta er gert til að tryggja rétt hlutföll kven- og karlfugla í ræktuninni,“ segir Magnús Huldar um fyrstu stig stofnfuglaræktun- arinnar. Dagsgamlir í einangrunarstöðvar Magnús segir að frá Hvanneyri fari ungarnir dagsgamlir í einangrunar- stöðvar þar sem þeir eru í sóttkví í 9 til 12 vikur. Þá sé tekið úr þeim blóðsýni á vegum Matvælastofnunar sem lætur skima fyrir algengustu fuglasjúkdómum í Evrópu. „Með þessum hætti hefur Ísland verið varið fyrir alifuglasjúkdómum í ára- tugi. Úr einangrunarstöðvum fara fuglarnir 20 vikna í varphús. Þessi fugl hefur varp við 24 vikna aldur og er í daglegu tali kallaður stofnfugl eða foreldrafugl. Egg þessara fugla eru klakin í útungunarstöðvum á vegum framleiðenda einu sinni til tvisvar í viku. Klak eggja foreldrafuglanna tekur um það bil 21 dag. Dags- gömlum er ungum síðan ekið í sérútbúnum kössum í eldishús. Eldishúsin eru aðallega á suð- vesturhorni landsins; á Kjalarnesi og á Suðurlandi. Þá eru kjúklingaeldi starfrækt í Borgarfirði, Grindavík, Hrútafirði og á Dalvík. Þess má geta að vegalengdir sem ungar eru flutt- ir hér á landi eru stuttar miðað við önnur lönd. Unginn finnur lítið fyrir flutningum miðað við það sem gerist víða erlendis þar sem um langan veg þarf að fara frá útungun í eldishús. Lykilatriði í ræktun kjúklinga er aðbúnaður, smitvarnir og umhirða í eldishúsum. Þegar fuglinn kemur í húsið þarf hitastig að vera um 33 gráður. Hitastigið er síðan lækkað með aldri fuglsins og er um 20 gráð- ur þegar fuglinn hefur náð 20 daga aldri. Fuglinn þarf að hafa frjálst aðgengi að fóðri og vatni allan ræktunartímann. Samsetning fóð- urs skiptir ekki síður máli en aðrir þættir í heildarmyndinni. Fuglinn fær hreint og gott vatn að drekka. Fyrstu 10–12 dagana er gefið svo- kallað byrjunarfóður. Næstu 18–20 dagana er síðan gefið eldisfóður og svo lokafóður síðustu fimm dagana. Fóðrið í fuglinn er innflutt ýmist full blandað eða sem hrávara og blandað hjá íslenskum fóðurframleiðendum. Um lítinn markað er að ræða og veð- urfarslega ekki hægt að framleiða hráefni í fuglafóður hér á landi en uppistaðan í því er hveiti, maís og soja. Þéttleiki í eldishúsum er 33 til 39 kíló á fermetra sem er mun rýmra en víða í Evrópu þar sem algengt er að miðað sé við 42 kíló.“ Aðbúnaðurinn tekinn út af Matvælastofnun Sérstakar reglur gilda um dýravelferð í eldishúsum, þar á meðal er varðar lýsingu. Magnús segir að skylt sé að hafa lýsingu að lágmarki 20 lúx og að ljós séu slökkt á í 6 tíma á sólar- hring þar af 4 tíma samfellt. Þetta sé þó breytilegt eftir aldri fuglanna. Öll hús séu úttektar- og eftirlitsskyld af Matvælastofnun. „Síðustu tímana fyrir tínslu er allt fóður tekið frá fuglinum og hann fær aðeins vatn. Þetta er gert til að undir- búa fuglinn fyrir flutning í sláturhús. Fuglinn er síðan tíndur við litla birtu og settur í kassa. Markmiðið er að gæta þess að flutningur í sláturhús valdi fuglinum sem minnstu álagi. Allur fugl er handtíndur hjá íslensk- um ræktendum. Vegalengdir í slát- urhús eru oftast stuttar hér á landi og er fuglinn ekki lengi frá uppeld- isumhverfi sínu. Ræktun kjúklingsins stendur yfir í 30 til 45 daga en algengast er að ala hann í 33 til 36 daga en þá hefur hann náð um 2,1 til 2,5 kg lífþyngd. Þá er honum slátrað undir eftirliti dýralæknis frá Matvælastofnun.“ Innkallanir munu tilheyra fortíðinni hjá Reykjagarði Íslenskir neytendur geta, að sögn Magnúsar, verið mun öruggari með gæði vörunnar gagnvart fugla- sjúkdómum en neytendur á öðrum mörkuðum. „Matvælastofnun hefur nú viðurkennt svokallaða PCR greiningu fyrir salmonellu hjá rannsóknarstofunni Sýni. Þetta gerir það mögulegt að greina salmonellu í kjötsýni á innan við 24 klukku- stundum. Reykjagarður nýtir sér þessa aðferð hjá Holtakjúklingi fyrstur íslenskra kjötframleiðenda. Þetta gerir það að verkum að ekk- ert kjöt fer á markað frá fyrirtækinu án þess að rannsóknarniðurstöður liggi fyrir. Innkallanir á kjúklingi frá Reykjagarði munu því tilheyra fortíðinni,“ segir Magnús. Hann segir að vert sé að minn- ast einnig á þær framfarir sem hafa orðið í kjúklingarækt á síðustu árum. Fóðurnýting hafi batnað til muna og vaxtarhraði fuglanna aukist um þrjú til fjögur grömm á dag, síðustu sjö til tíu ár. /smh Mótorar og varahlutir á lager Hröð og góð þjónusta Dreifingaraðili BRIGGS & STRATTON á ÍSLANDI MHG Verslun ehf | Víkurhvarf 8 | 203 Kópavogi Sími 544-4656 | www.mhg.is UAZ FARMER · FJÖLHÆFIR OG STERKIR PALLBÍLAR Tilboð 3,3 m án vsk. Tilboð 3,5 m án vsk. Vökvastýri · Aflbremsur · Beinsk. 5 gíra · Burðargeta 1.225 kg. Fjölventla bensínvél · Eyðsla 12.5 L/100km. · Spicer drif Afgreiðslutími 16 vikur · UAZ Iceland ehf. · russajeppar.is · uaz.is Sími 581-1010 milli kl. 13 og 14. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi friðlýstra og friðaðra húsa og mannvirkja, sbr. reglur um úthlutun úr húsafriðunarsjóði nr. 577/2016. Veittir verða styrkir úr sjóðnum til: • viðhalds og endurbóta á friðlýstum og friðuðum húsum og mannvirkjum, og öðrum húsum og mannvirkjum, sem hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi. • byggingarsögulegra rannsókna, þar með talið skráningu húsa og mannvirkja, og miðlun upplýsinga um þær. • sveitarfélaga til að vinna tillögur að verndarsvæði í byggð, í samræmi við ákvæði laga nr. 87/2015 og reglugerðar nr. 575/2016 um verndarsvæði í byggð og til verkefna innan verndarsvæða í byggð. Umsóknir eru metnar m.a. með tilliti til varðveislugildis, t.d. vegna byggingarlistar, menningarsögu, umhverfis, upprunaleika og tæknilegs ástands ásamt gildis fyrir varðveislu byggingararfleifðarinnar. Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar, m.a. úthlutunarreglur, er að finna á vef Minjastofnunar Íslands, www.minjastofnun.is. Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2020. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur koma ekki til álita við úthlutun styrkja. Minjastofnun Íslands hefur eftirlit með að styrkt verkefni séu viðunandi af hendi leyst og í samræmi við innsend umsóknargögn. Bent er á leiðbeiningarit um verndarsvæði í byggð og um viðhald og endurbætur friðaðra og varðveisluverðra húsa sem finna má á vef Minjastofnunar Íslands (undir Gagnasafn). Í Húsverndarstofu í Árbæjarsafni er veitt endurgjaldslaus ráðgjöf um gerð styrkumsókna og viðhald og viðgerðir á gömlum húsum (sjá nánar á heimasíðu safnsins www.borgarsogusafn.is). Suðurgötu 39,101 Reykjavík Sími: 570 1300 www.minjastofnun.is husafridunarsjodur@minjastofnun.is Minjastofnun Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki úr húsafriðunarsjóði fyrir árið 2021 Magnús Huldar Ingþórsson, fram- leiðslustjóri hjá Reykjagarði.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.