Bændablaðið - 22.10.2020, Page 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. október 2020 39
honum. Bændurnir sem talað er við
eru frá Höfnum og lýsa fuglinum
og atferli hans. Stundum sjá þeir
hann úti á sjó og skondnar lýsingar
eru á því þegar fuglinn eltir þá eins
og hann sé forvitinn og vangaveltur
um það hvort hann sjái eða ekki.
Geirfuglar og fleiri fuglategundir eru
með sérstaka himnu yfir auganu sem
opnast og lokast og virðast sumir
bænda hafa haldið að geirfuglinn
væri blindur.
Af handritinu má ætla að veiði-
mennirnir hafi sjaldan skoðað
fuglinn í návígi og að þeir hafi bara
arkað upp á sker og eyjar, drepið
nokkra fugla og selt þá.
Annað sem er áhugavert er að
fuglarnir virðast hafa verið spakir
og móttökur þeirra kurteisar og þeir
því auðveld bráð. Í annarri lýsingu
segir frá því þegar vinnumaður hefur
með sér lifandi fugl í land og ríður
með hann til Keflavíkur í von um
að selja hann.“
Fækkun fugla
og aukin eftirspurn
„Geirfuglakjöt þótti góður matur
og Íslendingar átu þá og egg þeirra
öldum saman, eins og minjar sýna,
og fiðrið var notað í fatnað og
sængur og beinin brennd sem eldi-
viður.
Þegar fuglunum fór að fækka óx
eftirspurnin eftir þeim frá söfnum og
söfnurum sem vildu eignast eintak
og verðið hækkaði. Þessi hugsun
tengist Viktoríu-tímanum og söfn-
unaráráttu þess tíma samhliða því
að helstu náttúrugripasöfn í heimi
verða til. Það urðu allir að eiga ein-
tak og eftir því sem fuglinn varð
fágætari því meiri var eftirspurnin
og samkeppnin um eintak, hvort sem
það egg, uppstoppaður fugl eða geir-
fuglshamur.“
Wolley og Newton
„Bretarnir sem skráðu Geir-
fuglabókina hétu John Wolley og
Alfred Newton og voru báðir for-
fallnir fuglaáhugamenn sem höfðu
farið víða til að skoða fugla en geir-
fuglinn var ástríða þeirra.
Newton var á þessum tíma að
vinna sig upp virðingarstigann
við Cambrige-háskóla. Wolley er
formlega skráður fyrir handritinu,
en andaðist árið eftir Íslandsferðina.
Heim kominn kynnist Newton nátt-
úrufræðingnum Charles Darwin og
þeir eiga töluverðar samræður og
hljóta að hafa rætt um geirfuglinn
og afdrif hans. Fræðilega skildi þó
leiðir þeirra þar því Darwin talar um
aldauða á þúsundum ára þar sem
tegundir koma og fara vegna þró-
unar en Newton er að horfa upp á
fuglategund sem er nánast að deyja
út í beinni útsendingu og af manna-
völdum.
Nýlega sagði bandarískur vís-
indasagnfræðingur að Alfreð
Newton hefði verið fyrstur til að
vekja athygli á aldauða tegunda með
geirfuglinum og að aldauði geir-
fuglsins sé upphaf nútíma umræðu
um aldauða tegunda af mannavöld-
um. Geirfuglabókin er því tvímæla-
laust einstök heimild um aldauða eða
endalok tegundar.“
Maðurinn sem stal sjálfum sér
Gísli er fæddur í Vestmannaeyjum en
var í sveit í Landeyjum þar sem hann
kynntist náttúrunni og fékk áhuga á
henni. Hann safnaði eggjum og átti
svolítið safn af þeim og þar kviknaði
áhugi hans á fuglum.
Hann er prófessor emerítus í
mannfræði við Háskóla Íslands og
höfundur fjölda bóka um mannfræði
og ekki síst um tengsl manna og
náttúru. Auk þess sem hann er höf-
undur bókarinnar Maðurinn sem stal
sjálfum sér og segir frá ævi þeldökks
manns, þræls frá Jómfrúareyjum sem
kemur til Íslands árið 1802. Gerist
bóndi, kvænist, eignast börn og endar
sem verslunarstjóri á Djúpavogi.
Bókin naut mikilla vinsælda og var
þýdd á ensku, frönsku og dönsku og
uppi eru hugmyndir um að gera eftir
henni kvikmynd þótt ekkert sé fast í
hendi með það að sögn Gísla.
Geirfuglinn, Pinguinus impennis, var stór, um 70 sentímetra hár og fimm kílóa þungur, ófleygur fugl af stofni svartfugla.
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
Comac sótthreinsitæki
Kynntu þér hvernig þetta virkar á comac.is
Grensásvegi 16, Rvk. ✆ 445-4885
vortexvelar.is comac.is
Um 80 uppstoppaðir geirfuglar hafa varðveist til dagsins í dag og er einn
þeirra að finna í vísindasafni Náttúrufræðistofnunar Íslands. Mynd / Erling Ólafsson
Egg geirfugls.
Varahlu�r i VOLVO
Vinnutæki
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300