Bændablaðið - 22.10.2020, Page 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. október 2020 47
Sama hvað á gengur, það kemur
alltaf vetur eftir hvert haust, en
misjafnt er hversu snemma kemur
hálka og snjór. Í ár hefur snjórinn
og hálkan látið bíða eftir sér í flest-
um landshlutum, en með hverj-
um snjó og hálkulausum deginum
styttist í hálkuna og snjóinn og því
vissara að vera viðbúinn rétt eins
og björgunarsveitarmaðurinn sem
er alltaf tilbúinn.
Nagladekk eða naglalaus,
svarið er hættið að salta
Hjólbarðasalar keppast við að
auglýsa góðu ódýru dekkin sín og
fagmannlega þjónustu samanber
auglýsingu sem hljómar einhvern
veginn svona:
Trillir þú og tætir upp malbik-
ið...., en þarna er vísað til texta í
frægu lagi með HLH flokknum, en
einmitt í þessum texta eru mestu
öfugmæli Íslandssögunnar í texta-
gerð því þar er „Riddari götunnar
sagður tæta upp malbikið“ en það
er einfaldlega ekki hægt á malbiki
með mótorhjóli.
Í viðkomandi auglýsingu er
verið að auglýsa vistvæna hjólbarða
sem ekki eiga að skemma malbik.
Ég hef haldið því
fram og mun halda
fast við þá skoðun
mína að það er
ekki við naglana
eingöngu að sak-
ast með skemmd-
ir á malbiki. Mín
skoðun er að saltið
á götunum sé það
sem eyðileggur
malbikið. Svona
80% saltinu að
kenna, en umferðar-
þungi og vissulega
nagladekk séu hin
20%. Persónulega
mundi ég vilja að
allir væru á nöglum
og aldrei notað salt
á göturnar.
Verð og gæði fara saman í
hjólbarðakaupum
Dýrustu dekkin eru alltaf best, það
er einfaldlega ekki spurning. Þekkt
vörumerki í dekkjum sem hafa verið
seld hér í yfir 50 ár eru einfaldlega
bestu dekkin, samkeppnin þar er
hörð og gæðin alltaf betri og betri
ár frá ári. Endingin er líka betri.
Dæmi eru um að dýrustu dekkin
endist allt að þrisvar sinnum fleiri
ekna kílómetra en ódýrustu dekkin
á markaðnum.
Til að dekkin endist þarf að
huga sérstaklega að tveim þáttum.
Loftþrýstingur þarf að vera réttur
í hjólbörðum (oftast uppgefið á
límmiða inni í hurðarfalsi á bíl-
stjórahurð). Hitt er að bíll sé rétt
hjólastilltur, en rangt hjólamillibil
þarf ekki að vera mikið vitlaust til
að spæna niður ný dekk á stuttum
tíma. Á smæstu bílunum skekkjast
hjólamillibil of á hraðahindrunum
sem kallast hattar, en þar freistast
fólk til að fara með annað hjólið fyrir
utan hindrunina en hitt yfir kantað-
an hattinn. Þá skekkist bíllinn við
höggið og eyðileggur framdekkin
á stuttum tíma. Betra að fara beint
á þessar hraðahindranir því þá er
höggið jafnara og síður hætta á
skekkingu á hjólamillibili.
Vel varið tíma og góð fjárfesting
að mæla reglulega loftþrýsting
Að vera alltaf með réttan loftþrýsting
í dekkjunum er lykillinn að góðri
endingu dekkja, eldsneytissparnaði
og öryggi í umferðinni.
Flestir nýir bílar eru með skynjara
inni í dekkjunum sem láta vita í
mælaborð ef vantar loft í dekk, en
þeir láta ekki vita ef of mikið af lofti
er í dekkjum (nema í örfáum bílum).
Enn sem komið er eru ekki svona
nemar í þeim dráttarvélum sem ég
hef skoðað. Í flestum dráttarvélum
gefur framleiðandinn upp að hæfi-
legur loftþrýstingur sé á bilinu 22-25
psi. Oft hef ég aðstoðað menn við
að skipta um sprungið dekk á drátt-
arvélum, en þegar ég set nýviðgert
dekkið undir hef ég fengið kvörtun
um að ég hafi sett of mikið loft í
dekkið (oftast 28psi.). Þegar ég set
nýviðgert dekk undir vél loftjafna
ég almennt hin dekkin (hef verið
skammaður fyrir það, þá er of mikið
loft í dekkjunum að mati þess sem
á vél vinnur).
Auðvelt að eyðileggja
dráttarvéladekk með of litlu lofti
Of lítið loftmagn í dráttarvélar-
dekkjum eyðileggur á stuttum tíma
dekkin því að á móts við hverja
spyrnu skemmast þræðirnir inni í
dekkinu. Á milli felgu og hverrar
spyrnu myndast kúlur sem stækka
á stuttum tíma þar til að þræðirnir í
dekkinu liðast í sundur. Ekki ósvipað
og maður haldi á rafmagnsvír og
liði í sundur því að með nógu miklu
„juggi“ á vírnum fer hann í sundur.
Þetta sama gerist með þræðina í
dekkjum með dráttarvélamunstri og
kúlurnar á endanum gefa sig og þá er
ekki hægt að laga dekkið þrátt fyrir
að mikið sé eftir af spyrnumunstrinu.
Fyrir stuttu vann ég við vél sem
var með 20 psi. í framdekkjum og 10
psi. aftan (átti að vera 22-25 í öllum
dekkjum). Öll dekkin voru að verða
ónýt á þeirri vél og varla hálfslitin, en
allt í kúlum á hliðum og þræðirnir að
gefa sig. Öll 4 dekkin undir þessa vél
kosta yfir milljón krónur. Afar döpur
meðferð á dekkjum. Samt mátti ég
ekki setja réttan loftþrýsting í dekkin
því þá væri vélin svo höst að ekki
væri hægt að keyra hana.
GÆÐADEKKIN ÞÍN
FÁST ÓDÝRARI
HJÁ OKKUR!
SENDUM HVERT Á LAND SEM ER
NOTAÐU AFSLÁTTARKÓÐANN: BONDI
Funahöfða 6, 110 Reykjavík • Njarðarbraut 11, 260 Reykjanesbær
Sími: 519-1516 • WWW.DEKK1.IS
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
KROSSGÁTA Bændablaðsins
Lausn á krossgátu í síðasta blaði
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Bænda
Smáauglýsingar 56-30-300
YFIR-
BRAGÐ
ÖÐRUVÍSI S FLUGA R SVART-LIST
BJÓLA
FUGL F
S
KOLEFNIS-
DUFT
BLÖKK Ó T F L Y G S A HLJÓM-SVEIT
AT L Í A DÚLLA K R Ú T T
KSÍKI Í L
MASAR
NÁTTÚRU-
VÆTTUR M A L A R
K STOÐKK NAFN S T Ý F A BERJA Í
ÍÞRÓTT
SKORDÝR
PANTA M A U R A R ÁTT Í KALLORÐSKRUMA H Ó
BLEKKJALÓÐ
KTVEIR EINSBLEÐILL
KUÐUNGUR
L
O B B I NÓTAVARKÁRNI R E ÆPA Ö S K R A ÓNOTASTB
S L Ó Ð A GÁ G E L T ANGRANÖTRA A M ADROLLARA
T A K I Ð FRUMÖGN I SKRIFTLITUR L E T U R G
HAND-
FESTAN
ÁTELJA
A K A RANGALIHLUTA G Ö N G TRUFLUNÓVISS F I P A NS
S RÆKT
HRAFNA-
SPARK
UMRÓT P Á R ARÐUR R E N T A VÆTTA Ú
K A R A T E ÓLMURANDMÆLI Æ F U R SKYLDIRHLÉ Á AÍÞRÓTTFYLGSNI
E L U R GERI I N N I
SAMAN-
LAGT
STING A L L SF
R
I
Ú
Ð
S
K
T
A
ATORKA
N
N
D
E
I
N
HANGA
N
S
A
L
EINATT
Ú
O
T
F
A
TTÓFT
KEPPANDI
M
Y
N
D
:
R
U
TH
H
A
R
TN
U
P
(
CC
B
Y
-S
A
2
.0
)
H
Ö
FU
N
D
U
R
B
H
•
B
R
A
G
I@
TH
IS
.I
S
•
K
R
O
SS
G
A
TU
R
.G
A
TU
R
.N
ET
139
MEIRI
GLUND-
ROÐI
BOLUR
SKVAMPA
SEMINGI
HUGLÍTIL
FALL-
BEINN
HRIKTA
VALDI
ÁSTÆÐA
GÍMALD
HJÓL-
GJÖRÐ
HNETUR
PRÚTTA
SEINKAÐI
MIKLU
GRAS-
BOLLI
MÁLTÆKI
GINNA
AFBRIGÐI
TVEIR EINS
MOKA
STERKAPAKKHÚS
EKKI
SÝRING
FJARRITI
TVEIR EINS
BULLA
RANGT RÁÐRÍKIS
ÁÐUR
STILLA
RÁÐ
FALLEGUR
TVEIR
EINS
RÆKI-
LEGAR
TVÖ
ÍLÁTI
PARTA
LJÓMI
TOR-
TRYGGJA
HEIMASÍÐA
STÖKUM
KK NAFN
STAFUR
FIKT
SVEIFLA
TEGUND
ESPAR
FYRIR-
BOÐI
SKRUDDA
RÁS
IÐKA
VAÐA
KREMJA
FORBOÐ
MÁSI
ÁTT
HÓTUN
GER-
SIGRAR
HISMIGÓÐGÆTI
UPPÁTÆKI
M
Y
N
D
:
P
IX
A
B
A
Y
/
O
LI
V
ER
K
EP
K
A
(
CC
0)
H
Ö
FU
N
D
U
R
B
H
•
B
R
A
G
I@
TH
IS
.I
S
•
K
R
O
SS
G
A
TU
R
.G
A
TU
R
.N
ET
140
Árlegar haustdekkjahugleiðingar
Of lítið loftmagn í dráttarvélardekkjum eyðileggur á
stuttum tíma dekkin því að á móts við hverja spyrnu
skemmast þræðirnir inni í dekkinu.
Mikilvægt er að bíll sé rétt hjóla-
stilltur, en rangt hjólamillibil þarf
ekki að vera mikið vitlaust til að
spæna niður ný dekk á stuttum tíma.