Bændablaðið - 22.10.2020, Síða 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. október 202048
MATARKRÓKURINN
LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR
Jens er úr Reykjavík og Sigurdís
er fædd og uppalin í Neðri-
Hundadal.
Sigurdís hóf sinn sauðfjárbúskap
upp úr 2005 en Jens kemur hingað
2009 og hefur alltaf dreymt gröfur og
trukka frá því að hann var lítill snáði
og er nýlega búinn að stofna verk-
takafyrirtæki með gröfur og kranabíl.
Foreldrar Sigurdísar búa einnig
á bænum.
Býli: Neðri-Hundadalur 2.
Staðsett í sveit: Í sögusveitinni,
fögru, Dalasýslu í Miðdölum (eða
Suðurdölum einsog menn vilja kalla
það í dag).
Ábúendur: Sigurdís Elísa Lilja
Sigursteinsdóttir og Jens Líndal
Sigurðsson ásamt börnum.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Sigurdís Elísa Lilja Sigursteinsdóttir
og Jens Líndal Sigurðsson ásamt
börnum.
Stærð jarðar? Jörðin er tæpir 1.600
ha.
Gerð bús? Sauðfjárbú og verktakar.
Fjöldi búfjár og tegundir? Við
erum með 150 ullarhnoðra (kindur)
og nokkrar fagrar landnámshænur.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Jens fer í vinnu hvar sem hún er
hverju sinni, núna er hann t.d. á
Grundartanga á gröfu. Hjá Sigurdísi
er það, þessi misserin, eftirleitir og
rollurag fyrir ásetning og sláturhús.
Aukavinnan og girðingavinna.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Ég get alveg sagt ykkur
það að það er ótrúlega leiðinlegt að
standa í rúningi…bara mjög leiðin-
legt.
Það skemmtilegasta er auðvit-
að sauðburðurinn og að fara að
smala. Jens myndi auðvitað segja
að það skemmtilegasta sé að komast
í gröfu-djobb einhvers staðar úti
mýri og honum finnst hundleiðin-
legt að smala.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir
ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Það
er ekki gott að segja.
Hvar teljið þið að helstu tækifær-
in séu í framleiðslu á íslenskum
búvörum? Þetta er ansi stór spurning
en m.a. mætti rýmka betur fyrir Beint
frá býli svo fátt eitt sé nefnt.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Smjör, ostur, egg, mjólk, innocent
safi og bjór.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Heimatilbúnir ham-
borgarar og kotasælubúðingur.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Það er svo ótrúlega
margt en það fyrsta sem poppaði
upp í hausinn er þegar Jens var hjá
nágranna okkar á liðléttingnum að
keyra út steypta gólfbita úr fjósinu
hjá þeim og í síðustu ferðinni þá gaf
gólfið sig og félagarnir sunkuðu
með liðléttingnum niður í forina.
En á einhvern undraverðan hátt
þá komust þeir allir aftur upp án
þess að sökkva og á þurrum fótum
og dekkjum og án alvarlegra
meiðsla eða skemmda.
Ítalskur kjúklingaréttur og blómkál
Þessi yndislegi kjúklingaréttur er
saðsamur ítalskur kvöldverður til
að elda heima. Sleppið chili eða
takmarkið magnið fyrir börnin.
Skiptið kartöflum mögulega út
fyrir þistilhjörtu og salat og þið
getið líka notað íslenskt grænmeti
sem er enn að flæða inn í búðir.
Ítalskur kjúklingaréttur
› 1,6 kg heill kjúklingur, úrbeinaður
(það styttir eldamennsku að fletja
kjúklinginn út og þá er klippt með
fram bakhliðinni)
› 2 msk. ólífuolía
› 2 msk. sítrónusafi og ein sítrónusneið
að auki
› 2 hvítlauksrif, þunnt skorin
› 1 langur rauður chili, fræin tekin úr
og þunnt skorið
› 1 tsk. þurrkað oregano
› 1 msk saxað ferskt timjan, auk 4 kvista
› 8 marineruð þistilhjörtu með stilk
(í dós)
› 200 ml þurrt hvítvín
Aðferð
1. Hitið ofninn í 220 gráður.
2. Setjið kjúkling með skinnið
ofan á smurða pönnu. Setjið
smá af olíu og sítrónusafa
yfir, sítrónusneið, hvítlaukur,
chili, oregano, saxað timjan
og kvistar. Kryddað vel. Bætið
þistilhjörtum út á pönnuna og
hellið síðan víninu yfir.
3. Steiktu kjúklinginn í 30-35
mínútur þar til skinnið er orðið
gyllt og safinn rennur tær þegar
þykkasti hlutinn er gataður með
hníf (lækkið hitann á ofninum
í 200 gráður ef hann brúnast
of hratt).
4. Flytjið kjúklinginn á borð og
skerið í 8 bita. Hellið pönnu-
safanum í sósukönnu.
5. Berið kjúkling fram með æti-
þistlum og dálitlum pönnusafa.
Salat með blómkáli
› 1 höfuð blómkál, má skera í tvennt
eftir stærð (íslenska blómkálið er
aðeins smærra en innflutt)
› 5 msk. jómfrúarolía
› 5 msk. heslihnetur
› 1 msk. sherry edik
› 1½ tsk. hlynsíróp
› ¼ tsk. malaður kanill
› ¼ teskeið malað allspice eða annað
gott krydd við höndina
› 1/3 bolli granateplafræ
› 1 stór sellerístöngull, skorinn í sneiðar
› 1/3 bolli steinseljublöð
› Sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar
Aðferð
Hitið ofninn í 185 gráður.
Setjið blómkálið á bökunarplötu með
smjörklípu, setjið 1-3 msk. af ólífuolíu
og kryddið með salti og pipar. Steikt
í ofninum í 25-35 mínútur þar til yfir-
borðið er gulbrúnt. Flytjið í stóra skál
og setjið til hliðar til að kólna.
Lækkið hitann á ofninum í 150
gráður. Dreifið heslihnetunum á
bökunarplötuna og bakið í kring-
um tíu mínútur.
Í skál skuluð þið þeyta saman 2 mat-
skeiðum af ólífuolíu, sherryediki,
hlynsírópi, kanil og allspice. Setjið
til hliðar.
Leyfið hnetunum að kólna svolítið,
saxið þær gróft og bætið blómkál-
inu við ásamt granateplafræjun-
um, selleríinu, steinseljunni og
dressingunni. Hrærið, smakkið til
og kryddið með salti og pipar eftir
smekk.
Steikt grasker með fetaosti og
hunangi
Nú þegar grasker er í boði í versl-
unum fyrir útskurð, er tilvalið að
prófa ýmsa graskersrétti, og nota
afskurðinn til matargerðar.
› grasker (um 600 g)
› 3 msk. olía (gott að nota ólífuolíu)
› 2 msk. sesamfræ
› 3 msk. hunang
› 1 msk. balsamik edik
› 50 g fetaostur, mulinn
› ½ tsk. chilliflögur
› salt og pipar
Aðferð
Hitið ofninn í 210 gráður. Notið
bökunarplötu og bökunarpapp-
ír. Afhýðið graskerið og skerið
í bitastóra teninga. Fjarlægið
fræin.
Veltið graskersteningunum upp
úr olíunni og bakið í 20 mínútur.
Fjarlægið úr ofninum og blandið
við sesamfræin. Setjið aftur í ofn
í 10 mínútur og ofnsteikið þar.
Kryddið með hunangi, balsa-
mikediki, feta og chiliflögum.
Bragðbætið með salti og pipar.
Berið fram heitt eða kalt.
Bjarni Gunnar Kristinsson
Matreiðslumeistari
Neðri-Hundadalur 2