Bændablaðið - 22.10.2020, Blaðsíða 50
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. október 202050
LESENDABÁS
Spennusaga um íslenska Hetju og sanna vináttu
Björk Jakobsdóttir leikkona,
leikskáld og nú höfundur, gefur
nú út sína fyrstu skáldsögu og ber
hún titilinn Hetja.
„Það er löngu kominn tími
til að gefa út nýja skáldsögu um
íslenska hestinn, þarfasta þjóninn
og vin okkar sem að hefur verið
samofinn sagnaheimi okkar frá
landnámi. Sagan er sögð annars
vegar frá sjónarhóli Hetju, 5 vetra
meri, og hins vegar Bjargar, 15 ára
unglingsstúlku og eiganda Hetju,“
segir Björk.
Þegar Hetja er tekin úr heima
högunum upphefst æsispennandi
leit að henni og Hetja reynir allt
hvað hún getur að komast heim. En
það getur reynst þrautinni þyngri
þegar hestur lendir á hinum enda
landsins og ekkert nema ókunnug
fjöll á alla vegu.
„Ég hef sjálf umgengist hesta
allt mitt líf. Fyrst í sveitinni og
síðan með mína eigin hesta. Eins
hef ég fararstýrt í hestaferðum með
stóð um hálendi Íslands í fjölda ára,
bæði í beljandi stormi og brakandi
sól. Ég nýti mér þá reynslu í bók
inni.
Það eru til margar gerðir af
hestamennsku. Ég er ekki í keppn
is hestamennsku og myndi eflaust
seint vinna landsmót með mína
hesta,“ segir Björk og hlær; „en
ég er orðin ansi læs á stóðið og
hegðun þess
Þetta er fyrst og fremst spennandi
örlaga og þroskasaga ungrar merar
og unglingsstúlku, en á sama tíma
langar mig að veita innsýn hvernig
hestar skynja tilveru sína og hvernig
ber að nálgast þá. Þeirra samskipti
eru aðeins ólík okkar og maður
verður að læra hesta málið.
Eins geta mannverur verið ólíkar
í samskiptum. Björg er til dæmis
snertifælin og er greind á einhverfu
rófi í mannheimum en er afburða
greind í samskiptum við hesta. Það
eru til svo margar mismunandi
greindir.
Aðalmarkhópurinn eru börn
og unglingar (8 ára og eldri), en
fullorðnum þykir hún eflaust líka
skemmtileg.“
Það hefur aldrei verið
nauðsynlegra að veita
börnum aðgang að dýrum
Björk segir hestamennsku hafa
ótal kosti.
„Talandi um COVID og
einangrun, þennan kvíða sem
er að aukast hjá börnum og
unglingum – og ég finn það hjá
sjálfri mér líka. Það er ekki til meiri
núvitund en að fara upp í hesthús
og kúpla sig út úr daglegu amstri.
Þarf þarf ekki alltaf að fara á bak
eða vera rosa flinkur og eiga flottan
hest, bara að fara upp eftir, klappa
mjúkri hestasnoppu, opna heyrúllu
og finna lyktina af seinasta sumri í
skammdeginu, hleypa út og moka.
Þetta er stórkostlegur lúxus
í þjóðfélagi sem er að aftengjast
þegar kemur að náttúrunni. Það
hefur aldrei verið nauðsynlegra að
veita börnum aðgang að dýrum, nú
þegar þau fara ekki í sveit eins og í
gamla daga.
Foreldrar halda oft að hesta
mennskan sé of dýr og að börn geti
ekki stundað hana nema að fjöl
skyldan eigi hesta. En í dag er hægt
að nálgast hestaíþróttina í borg og
bæ án þess að barnið eigi hest og það
þarf ekki að kosta báða handleggi.
Ef fólk langar að kanna þennan
kost þá er bara að taka upp símann
og hringja í hestafélagið í þínu bæj
arfélagi og fá frekari upplýsingar.
Að umgangast dýr eykur víð
sýni og umburðarlyndi. Fyrir mér
er ávinningurinn fyrst og fremst
andlegur, en þetta er líka heilmik
il líkamsþjálfun. Það er alveg eins
hægt að stunda hestamennsku eins
og handbolta, fótbolta eða fimleika.“
Björk bendir á að hægt sé að nota
frístundastyrkinn fyrir hestaíþróttir.
„Svo vona ég að bókin mín Hetja
auki skilning barna og áhuga á okkar
stórkostlega hestakyni sem hefur
verið órjúfanlegur partur af menn
ingararfi okkar Íslendinga
frá upphafi.“
Fyrirhuguð hátíð Hetju
og hestamennsku frestast
vegna COVID-19
Í tilefni af útgáfu skáld
sögunnar Hetju ætluðu
Horses of Iceland, Forlagið
og hestamannafélagið Sörli að
bjóða til hátíðar sunnudaginn
25. október þar sem kynna átti
kosti hestamennsku og útgáfu
bókarinnar.
„Sú hátíð átti að vera núna um
helgina en frestast eitthvað vegna
COVID.
En við látum það ekki draga úr
okkur kjarkinn og verðum bara með
hátíðina þegar reglur leyfa.
Þar verður hestasýning æsk
unnar, happdrætti, veitingar, upp
lestur og börn geta klappað sögu
hetjum úr bókinni og ýmislegt fleira.
Við auglýsum það í Bændablaðinu
þegar nær dregur,“ segir Björk
Jakobsdóttir.
Bókin Hetja fæst í öllum betri
bókabúðum og á vefsíðu Forlagsins.
www.forlagid.is. Í tilefni af útgáfu
bókarinnar býður Forlagið bókina
á tilboðsverði, áritaða og með frírri
heimsendingu innanlands. /HKr.
Það hefur aldrei verið nauðsynlegra að veita börnum aðgang að dýrum, nú
þegar þau fara ekki í sveit eins og í gamla daga.
Hetja og Björk.
Þar slaknar konum skaut
Finnbogi Hermannsson, rithöf-
undur og fyrrum útvarpsmað-
ur til fjölda ára, hefur sent frá
sér nýja bók. Ber hún titilinn
Skarðsstrandarrolla og Einræður
Steinólfs í Ytri-Fagradal. Í undir-
titli segir að þetta sé eins konar
inngangsfræði að sögu mannsand-
ans á Skarðsströnd.
Finnbogi hefur ritað fjölmargar
bækur í gegnum tíðina og allar
afskaplega vel skrifaðar. Í þessari
nýju bók fetar hann slóðir sem
lesendur hans ættu að kannast við
úr bókinni Illur fengur sem kom út
hjá Skruddu 2014. Hún vakti líka
mikla athygli og segir frá langri
afbrotasögu í afskekktu héraði við
Breiðafjörð á öndverðri 20. öld.
Hér er brot úr nýjustu bók hans,
Skarðsstrandarrolla og Einræður
Steinólfs í YtriFagradal:
„Á Ballará eru örnefni mörg.
Eitt þeirra er Snorraskjól og var
það sjálfskipaður áningarstaður,
þá menn riðu fyrir Klofning áður
fyrr. Í Snorraskjólum er nokkuð um
að slegið hafi verið undir í barn og
stundum í ótíma eða til þess höfð
viðleitni, þótt ei mætti takast. Er
enn einhver mögnun eða útgeislun
á þessum áningarstað frá fyrri tíð.
Rís mönnum þar gjarnan hold að
þarflausu einum á ferð. Einnig slakn
ar konum þar skaut, þótt einsamlar
séu. Hafa orðið eftir í Snorraskjólum
einhvers konar taufur, sambærileg
við reimleika þar sem voveiflegir
atburðir hafa átt sér stað, nema þvert
á móti. Getur hver og einn farið og
prufað á sjálfum sér, beri hann brigð
ur á að hér sé farið með rétt mál. Ég
fór eitt sinn með hópi fólks í rútu
bíl að segja þeim frá staðháttum á
Skarðsströnd. Þegar kom að frásögn
inni um Snorraskjól, véfengdi farar
stjórinn áhrifamátt staðarins. Það var
kona. Ég bauð henni að stíga út og
prófa á sjálfri sér, en hún guggnaði
þegar á hólminn var komið.
Reynikelda er býli á Skarðs
ströndinni en þar kviknaði ófreskja
sú sem dýrtíð kallaðist á öndverðri
síðustu öld. Upp runalega var það
mjólkurkýr bóndans, sem nefnd var
þessu nafni, en honum höfðu verið
settir afarkostir með verð á kúnni.
Hann bjó við tvíkvæni, sem algengt
var á Íslandi á þeirri tíð, og átti börn
með báðum, sem þörfnuðust mjólk
ur. Kýrin umbreyttist nokkuð við
þessa nafngift, gekk aftur og var við
góða heilsu fram undir þennan dag.
Dragnótaveiði fundin upp
Frakkanes heitir enn bær á
Skarðsströnd og liggur land að sjó,
vogskorið. Frakkanes er í eyði, en
fjörur þess gagnsamlegar, einkum
til hrognkelsaveiði. Til þessa sjávar
útvegs voru ekki gerðir út bátar sem
annars staðar, heldur var útgerðin
rekin með hrossum. Á þessar fjörur
var farið á útfalli og í svo djúpt vatn,
að tók merum í burðarlið. Svamlað
var um fjörurnar á hrossunum og
hrognkelsin stungin með lensum.
Þau voru síðan þrædd upp á snæri og
það dregið fram og aftur um fjöruna.
Bætt var á snærið á meðan hrossið
dugði. Er hugmyndin að dragnóta
veiði og togaraútgerð komin frá
Frakkanesi. Hestamennska annars
staðar í Dalasýslu hefur alltaf verið
tilkomulítil miðað við hrossaút
gerð á Skarðsströnd.
Býlið Kross er innan við
Frakkanes og fannst þar fyrir
nokkru kristinn grafreitur. Taldi
Kristján Eldjárn, þjóðminja
vörður og síðar forseti, að hér
gæti verið um grafreit papa að
ræða og þyrfti rann sóknar við.
Örnefni er í túni Kross og heitir
Suður Ameríka. Eigi kann ég
skil á því nafni. Lækjarspræna
rennur meðfram túninu og
heitir Kvígildislækur, mjög
gagnsamlegur. Húsfreyjur
fóru að læknum þá hentaði og
brytjuðu í pott silung kvikan.
Búsifjar þungar fylgdu Krossi
sem voru óvættir og áttu sér bústað
í hólma einum í Krossvatni. Þær
voru jafnan í álftalíki og hröktu
og börðu málnytupening ábúenda
svo að hann kom þurrjúgra á stöðul
hvert kvöld. Þar kom að þrútnaði
svo skap þeirra, að óvættunum var
sökkt með haglaskotum. Stóð sú
viðureign lengi dags og þótti með
ólíkindum hversu þær flutu með
mikinn þunga blýs. Fleira yfirskil
vitlegt tengist Krossvatni. Eftir
yfirgengið stórviðri og vatnagang,
hafði dauðan nykurkálf rekið upp
á vatnsbakkann. Var hann nýttur
sem eldsmatur og brann með þráa
legri þefjan. Samkvæmt síðari tíma
rannsóknum er talið að hér hafi
verið svín á ferðinni úr eigu kaup
mannsins í Skarðsstöð. Svínið hafi
sloppið út og fallið niður um ís. Því
hafi síðan skolað á land löngu seinna
og líkst þá mjög nykurkálfum eins
og þeim er lýst í kynjasögum. Kross
er nú í eyði ásamt Oddrúnarstöðum,
enda keypti hreppsnefnd Skarðs
hrepps farseðla til Ameríku handa
heimilisfólkinu, en enga til baka.
Á er styst bæjarnafn norð
an Múndíufjalla og var um aldir
hjáleiga frá Skarði. Býlið er nú í
sjálfseign bóndans og hefur þrisvar
fengið verðlaun frá gestahliðanefnd
Dalasýslu. Á Á hefur búið formaður
sóknarnefndar Skarðssóknar
um langan aldur. Það er engu
líkara en ýmis embættismanna
setur tilheyri landslaginu og
er það vel. Breytingar á því er
frávilla vor. Mikið annríki var
oft á tíðum við störf formanns
sóknarnefndar. Hann skal sjá
um að kirkjudyr séu opnar,
einkum þá daga sem ásauður
heimskur er rekinn af fjalli, svo
sekir menn geti hlaupið þang
að og hlotið kirkjugrið, því átök
geta orðið og þvergirðingur við
smalamennskur. Það er einkenni
Skarðsstrendinga að tapa oft og
tíðum skapstillingu sinni og hugar
ró við þessar aðstæður.
Innheimta sóknargjalda er mjög
slítandi í seinni tíð, einkum hjá
Fagradalsbónda. Hann hefur ekki
fengist til að játast undir nein trúar
brögð, hvorki innlend né erlend. Ef
kona hans greiðir ekki hin lögmætu
gjöld eða aðrir fyrir hann, verður
að taka þau með lögtaki eða annarri
nærgangandi pínd. Af öllu þessu
er hjarta sóknarnefndarformanns
Skarðssóknar mjög angurvært.
Geirmundarstaðir eru neðar
Skarði og er það landnámsbær
Geirmundar heljarskinns. Þar
eru nú skrifstofur og varnarþing
sauð rækt unar félags Skarðshrepps
og heitir að vonum Geirmundur
heljarskinn. Hefur Geirmundur
heljarskinn mjög beitt sér fyrir
því að láta hanna létt eyrnamerki
á unglömb svo að þau haldi betur
haus og halli ekki á.“ /HKr.