Morgunblaðið - 27.11.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
„Ég óttast ekki að það verði allt of mikið af fólki í húsi
enda raðirnar langar, fólk er ekki að standa í röð allan
daginn. Ég held að flestir muni nýta sér tilboð á netinu,“
segir Tinna Jóhannsdóttir markaðsstjóri Smáralindar í
samtali við Morgunblaðið.
Opið verður til 22 í Smáralind og til miðnættis í Kringl-
unni í kvöld, það er gert til þess að dreifa álagi vegna
svarts föstudags – eða Black Friday – og tryggja sótt-
varnir. Þá verður aukin öryggisgæsla á göngugötum og
tveggja metra reglan í biðröðum tryggð. Báðar versl-
unarmiðstöðvar leggja nú meiri áherslu á netverslun.
Sigurjón Örn Þórðarson framkvæmdastjóri Kringl-
unnar segir netverslun á vef Kringlunnar hafa margfald-
ast undanfarin misseri. Þá segir hann búðirnar öflugri en
áður að setja inn vörur á síðuna.
„Á Kringlukasti voru fleiri gestakomur á netið heldur
en í hús, sem er einsdæmi,“ segir Sigurjón.
Minna um að fólk vafri um búðir
Tinna bendir á að nýlega hafi verið opnaður syst-
urvefur Smáralindar herer.is, þar sem fólki er leiðbeint
varðandi kaup og vöruframboð í húsinu. „Okkar einbeit-
ing undanfarin misseri hefur verið á hann,“ segir hún. Þá
segir hún greinilegt að fólk undirbúi sig í meiri mæli og
mæti á staðinn til að kaupa sérstakar vörur, minna sé um
að fólk vafri um búðir og skoði. Hún segir áherslur þeirra
liggja í því að beina sjónum að vöruframboði í húsinu,
m.a. með virku samfélagsmiðlastarfi og það hafi skilað
sér í því að fólk komi undirbúið. „Það tekur þig bara óra-
tíma að fara í fjórar verslanir í dag.“ Hún telur það far-
sælt að fólk haldi áfram að koma en sé hnitmiðaðra í
kaupum enda ekki meiningin að fólk hætti að koma í
Smáralind.
Nóvember verði metmánuður
Fyrir faraldurinn var netverslun 3% af allri innlendri
verslun. Í apríl var hlutfallið orðið 9,1% en féll svo í sum-
ar þegar smit lágu niðri og fór í 3,9%. Í október var net-
verslun komin í 7,3% og býst Árni Sverrir Hafsteinsson
hjá Rannsóknarsetri verslunarinnar við meti í nóvember.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kringlan Framkvæmdastjóri Kringlunnar segir netverslun á vef Kringlunnar hafa margfaldast síðustu misseri.
Óttast ekki fullar
verslunarmiðstöðvar
Markaðsstjóri Smáralindar segir fólk koma vel undirbúið
Verslun Búist er við meti í netverslun í nóvember.
Kaup Búðir eru öflugri en áður við að setja vörur á vef.
„Það var virkilega huggulegt að
vera inni í hlýjunni og spila bingó á
þessu stormasama kvöldi,“ segir
Sigurður Þorri Gunnarsson, dag-
skrárgerðarmaður á K100, um
bingó sem hann stýrði ásamt Evu
Ruzu á mbl.is og á rás 9 hjá Síman-
um í gærkvöldi. Gríðarlegur fjöldi
fólks tók þátt í viðburðinum í gær-
kvöldi, en bingó mbl.is og K100 hef-
ur notið mikilla vinsælda síðustu
vikur.
Stærsti vinningur í gær var Sam-
sung Galaxy Tab S7-spjaldtölva, en
auk hennar var mikill fjöldi ann-
arra vinninga. Allir sem fengu
bingó hlutu veglega vinninga. Þá
skemmti tónlistarmaðurinn Krist-
inn Arnar Sigurðsson, betur þekkt-
ur sem Krassasig, þátttakendum.
Aðspurður segir Siggi að viðburð-
urinn hafi gengið virkilega vel.
„Þetta er orðið nokkuð vel æft hjá
okkur enda í fimmta skipti sem við
gerum þetta og ásóknin var sem áð-
ur mjög góð,“ segir Siggi og bætir
við að bingóið verði að sjálfsögðu á
sínum stað á fimmtudag í næstu
viku klukkan 19.
aronthordur@mbl.is
Bingóæðið hélt
áfram í gærkvöldi
Vinningar ruku út í bingói K100
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bingó Siggi, ásamt Evu Ruzu, stýrði bingóinu af mikilli snilld í gærkvöldi.
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Þetta gæti verið lítið skref í átt að því að stuðla
að meiri sátt í samfélaginu um fiskveiðistjórn-
unarkerfið,“ segir Páll Magnússon, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, um frumvarp sem snýr að
breytingu á lögum um stjórnun fiskveiða. Páll
stendur að baki frumvarpinu en það var tekið til
skráningar á Alþingi í gær. Markmiðið með
frumvarpinu er að kveða afdráttarlaust á um að
þegar einstakur aðili kaupir hlut í öðru útgerð-
arfyrirtæki sem á fiskiskip með aflahlutdeild,
hvort sem keyptur er minni hluti eða meiri hluti,
leggist það hlutfall aflaheimilda sem því fylgir,
við það sem fyrir var í eigu kaupanda.
Í núgildandi lögum miðast hámark aflaheim-
ilda við 12%. Kaupi sjávarútvegsfyrirtæki hins
vegar í öðru félagi, sem
sömuleiðis á aflaheimildir,
bætist það ekki við aflahlut-
deildina. Aðspurður segist
Páll vilja skerpa á þessu í
lögum. „Eins og lögin eru
núna þá gæti eitt sjávarút-
vegsfyrirtæki fræðilega
keypt 49% hlut í öllum hin-
um fyrirtækjunum. Þar sem
þetta er ekki meirihluti telst
hlutdeild þeirra fyrirtækja
ekki með í aflaheimildum kaupandans. Fyrir-
tækið væri jafnframt að vinna í samræmi við nú-
gildandi lög. Ég ákvað því að leggja frumvarpið
fram og tryggja þannig með afdráttarlausum
hætti að þetta 12% þak haldi,“ segir Páll og bæt-
ir við að með þessu sé ekki verið að ganga lengra
en í núgildandi lögum. „Mín sannfæring er sú að
við eigum ekki að ganga lengra í samþjöppun
aflaheimilda en 12% regla fiskveiðistjórnunar-
laga kveður á um. Ég lít á þetta sem gloppu sem
þarf að laga.“
Stuðlar að meiri sátt
Skipting aflaheimilda og stjórnun fiskveiða
hefur verið þrætuepli stjórnmálaflokka í mörg
ár. Páll segist vilja stuðla að aukinni sátt um
málaflokkinn. „Það getur verið að þetta stuðli að
aukinni sátt. Með þessu erum við að sýna að
pólitíkin er á vaktinni gagnvart samþjöppun í
sjávarútvegi, eða alla vega meiri samþjöppun en
lögin gera ráð fyrir. Mér finnst það bara vera
gloppa að þú getir eignast 49% í félaginu án þess
að nokkuð af aflaheimildum þess teljist til þinna.
Að mínu mati á þetta bara að vera hlutfallslegt,“
segir Páll og bætir við að hann vonist til að frum-
varpið njóti stuðnings. „Ég veit að allmargir
þingmenn flokksins styðja efnisatriði málsins.
Ég kaus hins vegar að leggja þetta frumvarp
fram einn og var ekki að reyna að safna öðrum
þingmönnum inn á það. Það verður síðan bara
að koma í ljós hvaða hljómgrunn það fær, en ég
hef mikla sannfæringu fyrir því að þetta sé brýn
bót á fiskveiðistjórnunarlögunum.“
Spurður hvort til greina komi að leggja fram
fleiri tillögur um breytingu á fiskveiðistjórnun-
arlögunum segir Páll það koma til greina. Þó sé
hann í öllum megindráttum sáttur við núverandi
kerfi. „Ég hef verið í sókn og vörn fyrir fisk-
veiðistjórnunarkerfið lengi. Ég tel, í öllum aðal-
atriðum, að við séum með besta og arðsamasta
sjávarútveg í heimi. Þetta frumvarp gæti hins
vegar stuðlað að frekari sátt um kerfið í heild.“
Vill girða fyrir meiri samþjöppun
Páll
Magnússon
Leggur til breytingar á lögum um stjórnun fiskveiða í nýju frumvarpi Gloppa í núgildandi lögum