Morgunblaðið - 27.11.2020, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Pólverjar vinna að því að draga úr
notkun kola og gass og færa sig yfir í
umhverfisvænni orkugjafa, eins og
jarðhita, að sögn Michałs Kurtyka,
ráðherra loftslags- og umhverfis-
mála í Póllandi: Hann kveðst vera
ánægður með samstarf Pólverja og
Íslendinga í orkumálum, ekki síst
varðandi nýtingu á jarðhita sem er
víða að finna í Póllandi. Pólverjar
stefna að því að minnka árlega losun
koltvíoxíðs (CO2)
um 600.000 tonn
næstu ár.
„Pólland er að
færa sig í áttina
að grænum og
sjálfbærum
lausnum í orku-
málum,“ segir
Kurtyka við
Morgunblaðið.
„Við höfum séð
mikinn vöxt í
notkun endurnýjanlegrar orku. Í
júní síðastliðnum fögnuðum við því
að við höfðum yfir að ráða tíu þús-
und megavatta afli frá grænni orku.
Við erum samt enn langt frá þeim
árangri sem við getu mögulega náð.
Alþjóðaorkustofnunin áætlar að á
árunum 2019 til 2024 muni afkasta-
geta endurnýjanlegra orkugjafa í
Póllandi aukast um 65%. Þetta setur
landið í fremstu röð ESB-ríkja varð-
andi aukningu í notkun endurnýjan-
legrar orku.“
Vænta mikils af samstarfi
Kurtyka segir að Pólverjar leiti
orkugjafa sem eru hagfelldir lofts-
lagsmarkmiðum. Þess vegna vænta
þeir mikils af samstarfi við Íslend-
inga á sviði jarðhitanýtingar.
Þótt jarðhitaauðlindir Póllands
séu ef til vill ekki sambærilegar við
jarðhitann á Íslandi að umfangi fel-
ist engu að síður í þeim umtalsverðir
möguleikar til orkunýtingar. Mikil-
vægt sé að fá að njóta reynslu og
þekkingar Íslendinga á þessu sviði.
„Við tökum með þökkum þeim
stuðningi sem við fáum frá Íslend-
ingum í gegnum Uppbyggingarsjóð
EES. Þeim fjármunum er m.a. beint
til jarðhitaverkefna,“ segir Kurtyka.
Hann segir að samstarf Orkustofn-
unar og pólskrar stofnunar sem fer
með orkumál hafi reynst mjög gott
og árangursríkt.
Nú stendur yfir önnur áætlun
Uppbyggingarsjóðs EES (2014-
2021) en hún nær m.a. til orkumála.
Efnt var til útboðs verkefna á sviði
jarðhita og lítilla vatnsaflsvirkjana á
vegum samkvæmt umhverfis-, orku-
og loftlagsáætlun sjóðsins, sem var
slegið saman í eina áætlun fyrir Pól-
land. Áætlunin er sú allra stærsta
sem varðar þennan málaflokk á veg-
um sjóðsins. Verja á 140 milljónum
evra til áætlunarinnar úr sjóðnum
og auk þess mun Pólland leggja
fram sömu fjárhæð í mynd lána og
styrkja. Heildarfjármagnið verður
því 280 milljónir evra eða um 45
milljarðar króna. Fjármagn kemur
úr fleiri áttum og getur því heildar-
umfang verkefnanna mögulega orðið
allt að því 73 milljarðar króna.
Upphaflegur skilafrestur er liðinn
en loftslags- og umhverfisráðuneyti
Póllands ákvað að framlengja hann
fram á gamlársdag vegna tafa á und-
irbúningsvinnu í heimsfaraldrinum.
Miðað er við að þessum verkefnum
ljúki í apríl 2024. Þau snúa m.a. að
uppbyggingu hagkvæmrar nýtingar
jarðhita á miklu dýpi. Reynist það
hagkvæmt er hugmyndin að nota
jarðhita til rafmagnsframleiðslu en
þó fyrst og fremst til húshitunar.
„Mesta orkunotkun pólskra heim-
ila er vegna húshitunar,“ segir Kur-
tyka.
Víða í Póllandi eru fjarvarmaveit-
ur sem fengið hafa hitaorku úr kol-
um eða gasi. Dreifikerfi fyrir heitt
vatn er því til. Það er stórt skref ef
hægt er að skipta í endurnýjanlegan
orkugjafa sem ekki losar gróður-
húsagas. Búið er að kortleggja mörg
jarðhitasvæði í Póllandi. Kurtyka
segir að nú þegar séu ýmis tilrauna-
verkefni í gangi. Þannig er stærsta
jarðhitaveita til húshitunar í löndum
ESB í bænum Zakopane og ná-
grenni við rætur Tatra-fjalla syðst í
Póllandi. Ráðherrann segir að það
geti verið kalt þarna í fjöllunum og
borgarbúar hafi gjarnan hitað upp
með því að brenna kolum í gömlum
kötlum, sem er ekki umhverfisvænt.
Vilji er til að hætta kolabrennslunni
og auka nýtingu jarðhita. Víðar í
Póllandi er heitt vatn að finna og
segir Kurtyka að vilji sé til að auka
nýtingu þess eins mikið og mögulegt
er.
„Við viljum að borgir okkar verði
„grænni“. Meira en 23 milljónir Pól-
verja búa í borgum og við viljum að
borgirnar verði betri til búsetu með
því að stækka almenningsgarða,
verja þær fyrir flóðahættu og útvega
borgarbúum hreina orku,“ segir
Kurtyka. Í því felst m.a. að opinber-
ar byggingar og skólar verði hituð á
umhverfisvænni máta en nú. Einnig
þarf að draga úr losun gróðurhúsa-
lofts frá samgöngum.
„Um 60% mengunar í miðborg
Varsjár koma ekki frá húshitun
heldur frá samgöngum. Þess vegna
erum við að breyta almennings-
samgöngum þannig að engin losun
verði t.d. frá strætisvögnum. Þetta
er mjög metnaðarfull áætlun hér í
Póllandi,“ segir Kurtyka.
Hann kveðst vona að Pólverjum
takist að kanna jarðhitaauðlindir
sínar betur í góðri samvinnu Íslend-
inga og Pólverja og að auka nýtingu
þeirra með nýjustu tækni. Undir
ráðuneyti hans heyra málefni jarð-
vísinda í Póllandi og hann kveðst
hafa áhuga á að gert verði átak í
jarðhitarannsóknum í landinu.
Þakklátir fyrir stuðning Íslands
Pólverjar vilja stórauka nýtingu jarðhita sem er víða að finna í landi þeirra Uppbyggingarsjóð-
ur EES kemur að stórum verkefnum Vilja njóta sérþekkingar og reynslu Íslendinga af jarðhita
Ökumaður bíls, sem ekið var um
Mánárskriður, vestan Siglufjarðar,
fær ekki tjón bætt á bílnum eftir að
ekið var á grjót úr fjallinu. Trygg-
ingafélagið taldi kaskótryggingu bíl-
eigandans ekki réttlæta bótagreiðslu
og undir þetta tekur úrskurðarnefnd
í vátryggingamálum í nýlegu áliti
sínu.
Bíllinn var þarna á ferð að kvöldi
til í lok nóvember 2019 og lýsti öku-
maðurinn því svo að grjótið hafi
komið úr hruni úr fjallinu og lent á
veginum rétt við bílinn. Benti öku-
maðurinn á að fleiri bílar hafi
skemmst á sama tíma og annað
tryggingafélag viðurkennt bóta-
skyldu vegna sambærilegs tjóns.
Taldi ökumaðurinn að ekki hafi
verið aðrir kostir en að lenda á
grjótinu sem kom niður fjallið, þar
sem snarbratt sé niður í sjó við veg-
brún og ekki hægt að sveigja undan.
Tryggingafélagið taldi trygginguna
ekki ná til þess ef laust grjót hrekkur
upp undir ökutæki í akstri, eða ef
ökutæki „tekur niðri í ójöfnum, s.s.
jarðföstu eða lausu grjóti“.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Mánárskriður Grjóthrun úr skriðunum er þekkt og hefur valdið tjóni á
mörgum ökutækjum. Tjónið fæst hins vegar ekki alltaf bætt.
Ók á grjót og fær
tjónið ekki bætt
Annað tryggingafélag bætti svipað tjón
Michał Kurtyka, ráðherra lofts-
lags- og umhverfismála í Pól-
landi, lauk námi frá École Poly-
technique í París, fékk styrk við
National Institute of Standards
and Technologies í Bandaríkj-
unum og vann þar undir leið-
sögn William D. Phillips, Nób-
elsverðlaunahafa í eðlisfræði.
Hann lagði stund á hagfræði hjá
Jean Tirole, Nóbelsverðlauna-
hafa í hagfræði. Kurtyka nam
við háskólann í Louvain-la-
Neuve, lauk meistaragráðu frá
SGH-hagfræðiskólanum í Varsjá
og varði doktorsritgerð við Há-
skólann í Varsjá. Hann tók við
ráðherradómi í orkumálaráðu-
neyti Póllands 2016 og núver-
andi ráðherraembætti 2018.
Hagfræði og
loftslagsmál
MICHAŁ KURTYKA
Ljósmynd/Orkustofnun
Pólland Samstarfsmenn frá Íslandi, Póllandi, Noregi og EFTA-skrifstofunni skoða hitaveituna í Zakopane.
Michał
Kurtyka
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | WWW.VR.IS
VR óskar eftir vönduðum sumarhúsum eða orlofs-
íbúðum á leigu til framleigu fyrir félagsmenn sína.
Við leitum að húsnæði á landsbyggðinni fyrir
næsta sumar.
Áhugasöm sendi upplýsingar á vr@vr.is fyrir 15. desember 2020.
Nauðsynlegt er að góðar ljósmyndir og lýsing á umhverfi fylgi með.
Öllum tilboðum verður svarað.
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja tilboði:
– Lýsing á eign og því sem henni fylgir
– Ástand eignar og staðsetning
– Stærð, fjöldi svefnplássa og byggingarár
– Lýsing á möguleikum til útivistar og
afþreyingar í næsta nágrenni