Morgunblaðið - 27.11.2020, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
ar komið var fram á sjómannadag
var ég búinn að skrifa 34 sögur,“ seg-
ir Ólafur.
Viðfangsefni sagnanna var fólk
sem Ólafur hafði kynnst í gegnum
tíðina, mest frá ferðum hans um
heiminn en svo segir hann að ýmsir
Íslendingar hafi farið að banka upp
á. „Það var ekki ætlunin í upphafi að
skrifa um Íslendinga en þeir fóru að
kalla úr hliðarsölum og fengu pláss á
sviðinu.“
Sérkennilegar uppákomur
Ólafur segir að upphaflega hafi
skrifin verið honum sjálfum til
dægrastyttingar en eftir að ýmsir í
fjölskyldu hans og vinir lásu sög-
urnar hafi kviknað sú hugmynd að
lesa þær inn á hlaðvarp. Sú varð
raunin og í byrjun september komu
þær út hjá Storytel, Apple Podcast
og Spotify. „Mér skilst að það hafi
margar þúsundir manna skemmt sér
við að hlusta á sögurnar. Það var nú
aldrei nein sérstök kynning á þessu.
Ég setti reyndar í loftið þrjú tíst en
eins og fráfarandi forseti í Banda-
ríkjunum hefur sannað er Twitter
áhrifaríkur miðill,“ segir Ólafur.
Bók Ólafs er létt og skemmtileg
aflestrar og greinilegt að hann hefur
skemmt sér við upprifjunina. „Já,
eins og dætur mínar segja – það góða
við þennan faraldur er að þú hættir
að flakka og fórst að gera eitthvað
skemmtilegt. Sögurnar voru fyrst og
fremst skrifaðar sjálfum mér til
skemmtunar. Ég skrifaði þær í ein-
lægni og hreinskilni en líka frá sjón-
arhorni kímninnar og með auga á
hinu kostulega. Í bókinni rek ég ýms-
ar sérkennilegar uppákomur, bæði
með frægðarfólki veraldar og ýmsum
öðrum, og leiði lesandann á bak við
tjöldin þar sem hlutirnir geta verið
óvæntir og fyndnir. En eins og gerist
stundum þegar maður sest niður á
hverjum morgni í skógarrjóðrinu, þá
læðast með ýmsar lexíur og lærdóm-
ar sem maður dregur á löngum
ferli,“ segir Ólafur og bætir við að
einhver hafi líkt lestrinum við að sitja
„masterclass“ í alþjóðastjórnmálum.
Margar sögurnar hafa aldrei verið
sagðar opinberlega, einkum frá al-
þjóðlegu starfi áður en Ólafur varð
forseti, og bókin er ríkulega mynd-
skreytt. „Í bókinni eru margir tugir
mynda sem hafa aldrei sést áður og
eru bæði mjög persónulegar og
óvæntar.“
Ærin vinna að skrifa ævisögu
Ólafur kveðst aðspurður ekki vera
með það á dagskránni að skrifa hefð-
bundna ævisögu þótt efniviðurinn sé
nægur. „Ég kom nú 250 kössum með
gögnum á Þjóðskjalasafnið. Í þeim
varningi voru margir tugir af minnis-
bókum og dagbókum. Það yrði nú
ærin vinna að fara að skrifa formlega
ævisögu og ég er ekki viss um að mér
myndi finnast það skemmtilegt.
Kannski er tími formlegrar ævi-
sögu liðinn, ég hef alla vega ekki ver-
ið með neinar áætlanir með það.
Þessi bók er að koma út af því farald-
urinn setti allt í fjötra, ef það hefði
ekki gerst hefði ég verið á flakki,“
segir Ólafur sem viðurkennir þó að
þessi nýja lífsreynsla, að skrifa sög-
ur, hafi verið ánægjuleg og hann hafi
skrifað með bros á vör.
„Ég hef svo haldið áfram seinni
part sumars og í haust og skrifað
öðruvísi sögur. Þær eru ekki um
frægðarfólk í útlöndum. Hvort ég gef
þær út verður að koma í ljós. Ég
sagði við dætur mínar að sögurnar
væru fyrir þær, þær eru alla vega
ekki fyrir Kára!“
Skrifar skemmtisögur í sveitinni
Ólafur Ragnar Grímsson notaði Covid-tímann í vor til að rifja upp kynni sín af þekktu fólki í gegn-
um tíðina Skemmtisögur hans nú komnar út á bók Skrifar með bros á vör og er alls ekki hættur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á heimaslóðum Ólafur Ragnar með hundinum Samson nálægt heimili hans og Dorritar Moussaieff í Mosfellsbæ.
VIÐTAL
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þótt ég hafi skrifað margt um æv-
ina, ræður og fleira slíkt, hef ég ekki
sest niður áður og skrifað texta mér
til skemmtunar,“ segir Ólafur Ragn-
ar Grímsson, fyrrverandi forseti Ís-
lands, sem blandar sér óvænt í jóla-
bókaflóðið í ár með bókinni Sögum
handa Kára.
Í bókinni er að finna frásagnir
Ólafs af ferðum hans um heiminn á
fjörutíu ára ferli í stjórnmálum og
kynnum af fólki. Meðal þeirra sem
koma við sögu eru Bill og Hillary
Clinton, Vladimír Pútín, Jiang Zemin
og Ted Turner auk fjölmargra
þekktra Íslendinga.
Tilurð bókarinnar er óvenjuleg og
tengist kórónuveirunni sem breytt
hefur lífi margra. Síðan Ólafur lét af
embætti forseta Íslands fyrir rúmum
fjórum árum hefur hann ferðast vítt
og breitt um heiminn. Þegar veiran
tók yfir voru ýmis áform og verkefni
sett á ís.
„Ég var í byrjun mars bæði á Ind-
landi og í Berlín og þá voru nú ekki
margir að tala um þessa veiru.
Tveimur vikum síðar var búið að loka
báðum þessum löndum. Skömmu eft-
ir að ég kom heim veiktist Dorrit.
Hún var hér í einangrun og ég sinnti
henni eins og lög gerðu ráð fyrir. Í
lok apríl sá ég að þetta ástand myndi
halda áfram og því var spurning hvað
ég myndi gera,“ segir Ólafur.
Hann segir að þá hafi rifjast upp
fyrir sér símtal frá Kára Stefánssyni,
forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar,
árið áður. Kári hafði leitað ráða
vegna glímu við yfirvöld í Kína og
kveðst Ólafur hafa sagt honum
nokkrar sögur af samskiptum sínum
við Kínverja. Kári hafði gaman af
sögunum og hvatti Ólaf til að festa
þær á blað.
„Í einangruninni í apríl þegar
maður horfði bara á trén og snjóinn
og Kári var alltaf í sjónvarpinu þá
rifjaðist þessi hvatning upp. Ég byrj-
aði að setjast niður og skrifa og þeg-
Heimsókn Haraldur Noregskonungur og Sonja drottning með Dorrit og
Ólafi á Bessastöðum árið 2000. Noregskonungur sýndi vinarþel eftir hrunið.
Morgunblaðið/Arnaldur
Í bók sinni Sögur fyrir Kára segir
Ólafur Ragnar meðal annars af
kynnum sínum og Haraldar Nor-
egskonungs. Hann rekur heimsókn
konungs og Sonju drottningar hing-
að árið 2000 og bætir við að árin á
eftir hafi hann og Dorrit hitt kon-
ungshjónin við ýmis tækifæri.
„Hrunið skóp þó hlé á ferðum.
Glíman hér heima varð dagleg önn.
Ísland reri lífróður. Leiðtogar Norð-
urlanda voru okkur ekkert sérstak-
lega hliðhollir; stóðu með Bretum og
Hollendingum í deilum um Icesave;
fylgdu hinni hörðu línu Evrópusam-
bandsins; drógu lappirnar í stjórn
IMF,“ skrifar Ólafur Ragnar.
Hann hafi því ekki vitað hvernig
Haraldur myndi taka sér á hátíða-
höldum í Litháen árið 2009. „Har-
aldur gekk fagnandi á móti mér, tók
mig í fangið og sagði: „Það hafa ver-
ið erfiðir tímar hjá þér, vinur.“ Hlýr
og skilningsríkur; spurði grannt um
glímu Íslendinga, hvernig fólkinu
vegnaði; hefðu sjómenn haldið
áfram að róa? Ég lýsti hugarfarinu
og vandanum. „Það mun birta,“
sagði konungurinn. „Hugur minn er
hjá ykkur.“ Í kjölfarið var þeim
Dorrit boðið í heimsókn til konungs-
hjónanna, táknrænt boð sem sýndi
vinarþel að mati Ólafs.
„Sannarlega reyndist hann okkur
betur en aðrir sem réðu norrænum
ríkjum. Þegar Íslendingar voru bún-
ir að ná sér á strik og EFTA-
dómstóllinn hafði kveðið upp sinn
dóm – Ísland bar þar sigurorð af
Bretum, Hollendingum og Evrópu-
sambandinu – komu forsætisráð-
herrar Norðurlanda saman í Stokk-
hólmi. Það var vorið 2013. Jóhanna
sat heima því hún hafði tapað kosn-
ingunum. Sendiherra Íslands mætti.
Í kvöldverðinum sagði forsætisráð-
herra Noregs upp úr þurru: „Það er
nú meiri skandallinn, þessi úrskurð-
ur EFTA-dómstólsins í Icesave-
deilunni!“ Kollegar hans nikkuðu.
„Dómararnir hljóta að hafa verið
galnir,“ bætti forsætisráðherra Dan-
merkur við.
Sendiherra Íslands rak í roga-
stans. Hann reyndi þó að malda í mó-
inn: „Þið teljið þá að almenningur
hafi átt að borga skuldir bankanna?“
„Já, svaraðu nú, Jens,“ sagði kona
hins norska og hló. Leiðtogar krata
á Norðurlöndum kusu þá að þegja.
Þegar ég heyrði frásögnina af
þessum kvöldverði varð mér hugsað
til framgöngu konungsins. Árétta
því: Þegar Íslendingar ræða lær-
dóma af hruninu skiptir miklu að
gleyma ekki vináttu Haralds V
Noregskonungs,“ segir í bók Ólafs
Ragnars.
Töldu Icesave-úr-
skurð vera skandal
Vinarþel Haraldar Noregskonungs
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranesi | Sími 511 2022 | dyrabaer.is
Úrval náttúrulegra bætiefna og fóðurs fyrir hunda og ketti.
Nánar á dyrabaer.is
HOLLUSTA OG HEILBRIGÐI FRÁ