Morgunblaðið - 27.11.2020, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
Ný og endurbætt landamæraeft-
irlitsstöð á athafnasvæði Samskipa
við Kjalarvog í Reykjavík hefur
verið tekin í notkun. Fyrr á þessu
ári tilkynnti MAST að umsókn
Samskipa um uppfærslu á leyfi til
reksturs landamæraeftirlitsstöðvar
hefði verið samþykkt af hálfu ESA,
Eftirlitsstofnunar EFTA og Evr-
ópusambandsins, að því er fram
kemur í frétt á heimasíðu félagsins.
Landamæraeftirlitsstöðin ber
kennimerkið IS REY 1b og er
skráð sem slík bæði hjá MAST og
Evrópusambandinu. Á landamæra-
eftirlitsstöð Samskipa má afgreiða
allar pakkaðar vörur úr dýraríkinu,
hvort sem er til manneldis eða
ekki, ásamt pökkuðum vörum til
manneldis sem ekki eru úr dýrarík-
inu. Fyrra leyfi Samskipa náði til
færri vara og styður breytingin því
við aukna og bætta þjónustu Sam-
skipa við viðskiptavini.
„Þessi breyting á sér nokkurn
aðdraganda og mikil vinna sem
lögð hefur verið í þessa umsókn, en
afgreiðsla hennar hefur tekið nærri
tíu ár. Með nýrri landamærastöð er
kominn skýr rammi um allan inn-
flutning sem kallar á aðkomu
MAST og þjónusta Samskipa við
viðskiptavini eykst,“ segir Þórunn
Inga Ingjaldsdóttir, forstöðumaður
markaðs- og samskiptadeildar
Samskipa. sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Hari
Flutningar Hoffell á siglingu. Stöð í Kjalarvogi tekin í notkun.
Ný landamærastöð
Samskipa í notkun
SVIÐSLJÓS
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
„Það verður virkilega gaman og
spennandi að takast á við þetta
verkefni,“ segir Beate Stormo, járn-
og eldsmiður og bóndi á Kristnesi í
Eyjafjarðarsveit.
Ferðamálafélag Eyjafjarðar hef-
ur fengið hana til að hanna og smíða
risavaxna kú sem ætlunin er að
verði kennileiti Eyjafjarðarsveitar.
Hún á að minna gesti og gangandi á
mikilvægi mjólkurframleiðslu í
sveitarfélaginu og hversu stór hluti
þeirrar mjólkur sem framleidd er á
Íslandi á uppruna sinn í sveitar-
félaginu.
„Ég hef ekki áður unnið að verk-
efni af þessari stærðargráðu, þannig
að það má með sanni grípa til orða-
tiltækis sem vinsælt er um þessar
mundir og segja að ég fari „út fyrir
þægindarammann“ með smíði á
þessari risakusu,“ segir Beate, en
kýrin verður þrír metrar á hæð og
fimm á lengd. „Ég hef einkum verið
í fínni vinnu með smáa hluti, te-
skeiðar, ostahnífa og snaga svo
dæmi séu tekin, þannig að þetta er
töluvert umfangsmeira.“
Stefnt er að því að ljúka hönn-
unarvinnu og tilheyrandi papp-
írsvinnu á fyrstu dögum desember-
mánaðar og þá verður hægt að
sækja um styrki til áframhaldandi
vinnu við verkefnið. Fyrr í sumar
fékkst styrkur frá Sóknaráætlun
Norðurlands vegna hönnunarvinn-
unnar.
Aðstaða úti á hlaði
Beate hyggst nýta tímann yfir
hörðustu vetrarmánuðina til að
sanka að sér efniviði og koma sér
upp aðstöðu heima á hlaði í Krist-
nesi. „Ég ætla svo að byrja að setja
verkið saman þegar fer að vora og
aðeins að hlýna. Þetta er svo stórt
verk að ég verð að vera úti við smíð-
ina,“ segir hún. „Ég renni í raun
blint í sjóinn með hversu mikinn
tíma tekur að vinna þetta verkefni.
Hef aldrei áður unnið við verk af
þessari stærð en er að reyna að
gera mér grein fyrir umfanginu í
huganum.“
Beate fær aðstoð næsta sumar við
að setja verkið saman, eldsmiðir
bæði íslenskir og erlendir hafa boðið
fram aðstoð. Einn kemur frá Sviss
og þá dvelur stúlka frá Eistlandi,
lærður eldsmiður, á Kristnesi í vet-
ur. „Og svo kemur fólk úr greininni
héðan frá Íslandi til mín í júní og ég
heyri að menn eru spenntir að taka
þátt í þessu með mér,“ segir hún.
Sótt í sagnabrunn um kýr
Beate segist hafa sótt í sagna-
brunn um kýr við hönnun verksins,
m.a. sögur úr norrænni goðafræði
og fleiri þekktar fornsögur norræn-
ar þar sem kýr koma við sögu. Þá
nefnir hún að Davíð Stefánsson hafi
ort lofkvæði um kýr sem hún nýti í
verkið. Valgerður Bjarnadóttir
sagnakona er henni innan handar í
leit að heppilegum tilvitnunum sem
verða letraðar á verkið, og verða
þær 13 talsins.
Beate segir ferðamálanefndina
hafa gefið sér frjálsar hendur með
verkefnið og þá sé heldur engin
tímapressa, en sjálf hafi hún sett sér
að ljúka verkefninu næsta sumar.
Stefnt er að því að setja þetta
nýja kennileiti Eyjafjarðarsveitar
upp í byrjun ágúst í tengslum við
árlega Handverkshátíð á Hrafnagili.
Til skoðunar er að koma verkinu
fyrir við Sólgarð, þar sem fyrir er
m.a. Smámunasafn.
Risavaxin kýr í Eyjafjarðarsveit
Hoppa rækilega út fyrir þægindarammann, segir Beate Stormo eldsmiður sem hannar og
smíðar verkið Setja á kúna upp í tengslum við handverkshátíðina á Hrafnagili næsta sumar
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Kennileiti Beate Stormo með módelið að risakusunni. Stefnt er að því að þetta nýja kennileiti Eyjafjarðarsveitar verði tilbúið næsta sumar.
Risakýr Kýrin verður engin smásmíði; þrír metrar á hæð og fimm á lengd.
Kynntu þér úrval á vefverslun www.danco.is www.danco.is
Heildsöludreifing
Fyrirtæki og verslanir
Allt til innpökkunar fyrir
vefverslunina þína
Arkir litaðar Strekkifilma
Kraftpappír Pökkunarlímband
Arkir hvítar Teyjur
50x75 cm arkir
í mörgum litum
Hvítar 40x60 cm arkir
10 kg. búnt
50 mm pökkunarlímband
Kraftpappír
í mörgum stærðum
Strekkifilma