Morgunblaðið - 27.11.2020, Side 30
mikinn áhuga á sögu og er bókasafn-
ari, en síðan ólst ég náttúrlega upp á
Hólum í Hjaltadal, þar sem öll þessi
saga Jóns Arasonar talar til manns
við hvern hól og hvert horn. Þar
fæddist áhuginn á Jóni Arasyni og
raunar þessu tímabili í Íslandssög-
unni, sem síðar birtist í því að þegar
ég fór að læra hagfræði, þá skrifaði
ég B.Sc.-ritgerð mína um efnahags-
mál Íslands frá 1400-1600. Sem er
mjög athyglisvert tímabil, það er
frjáls verslun við Ísland og Eng-
lendingar, Hollendingar og Þjóð-
verjar eru mikið hér við landið.
Sá áhugi hefur alltaf lifað hjá mér
og 2003 gaf ég út ljóðmæli Jóns Ara-
sonar, en var þá raunar þegar byrj-
aður að vinna að þessari bók, sem er
að koma út núna.“
Kófið kveikti
Af hverju tókstu upp þráðinn?
„Það má segja að það hafi bara
gerst núna í kófinu, að þá kviknaði
áhuginn aftur og má eiginlega segja
að það hafi verið ákveðin hvíld frá
öllum þessum krísumálum, að geta
sökkt sér niður í siðskiptin!
En það er dágóður tími liðinn síð-
an og sýn manns á þessi efni og lífið
hafa breyst. Ég er orðinn fimm-
tugur og leyfi mér kannski að hugsa
frjálslegar um þessi mál en þegar ég
var að þessu fyrir tuttugu árum,
horfi meira til stjórnmálanna að
baki þessum viðburðum og svona.
En síðan finnst mér Jón Arason ein-
faldlega mjög áhugaverður maður.“
Já, manni finnst það skína í gegn
að þú nánast þekkir manninn. Er
það svo?
„Já já, mér finnst ég vera farinn
að þekkja hann. Einhvern veginn
gerist það þegar þú lest, kannski
ekki síst ljóð eftir menn, að þá fer
maður að skilja hvernig þeir hugsa
málin, hvað bærist að baki, úr
hverju þeir eru gerðir.“
Ísland í ölduróti umheimsins
Finnst þér Jón Arason eða þessi
saga eiga skírskotun til vorra tíma?
„Að einhverju leyti, já. Gleymum
því ekki að þegar dregur til tíðinda
þarna, þá var Jón í ágætri stöðu,
hann hafði samið við Danakonung
um að láta sig í friði á sínum kat-
ólska biskupsstól á Hólum, þó að lút-
erskan hefði verið tekin upp í Skál-
holti, að Sigurður sonur hans tæki
við biskupsembætti eftir sig og hann
hafði í raun engra frekari persónu-
legra hagsmuna að gæta.
En hann leit svo á að hann væri að
gæta þjóðarhagsmuna, að Danir
VIÐTAL
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Seðlabankastjóri hefur í nógu að
snúast alla daga og örugglega ekki
síður nú þegar kórónuveiran þreng-
ir að þjóðlífi, einangrar landið og
heldur stórum hluta atvinnulífs í
herkví, reynir mjög á heim-
ilisbókhald, ríkisfjármál og pen-
ingastefnu. Það vekur því athygli
þegar hann sendir
frá sér bók, en þar
fjallar hann um Jón
Arason biskup.
Jón var einn af
merkari mönnum
Íslandssögunnar,
braust úr sárri fá-
tækt til æðstu met-
orða í landinu og
varð biskup aðeins
36 ára. Hann var glæsilegur maður
á alla lund, bæði geistlegur og ver-
aldlegur valdamaður, gott og vin-
sælt skáld. Vald Dana, bæði á Ís-
landi og í evrópsku samhengi, var
veikt á þeim tíma og Jón Arason
bauð þeim birginn, en dó svo fyrir
kóngsins mekt.
„Kveikjan að þessari bók er ann-
ars vegar sá, að ég hef alltaf haft
væru að arðræna Ísland og að boða
trúvillu, sem hann lagði nokkuð að
jöfnu. Það er við því sem hann vill
bregðast. Þar kristallast þessi gamli
vandi smáþjóða, að sagan er ekki
ákveðin hjá okkur, við tökum því
sem gerist úti í hinum stóra heimi og
bregðumst við því. Ekki ósvipað og í
dag. Jón Arason er hins vegar eina
dæmið um Íslending, sem reynir að
taka söguna í eigin hendur.“
Var hann þá ekki að fást við Evr-
ópuspurninguna íslensku, líkt og áð-
ur hafði verið svarað með Gamla
sáttmála og hefur nokkrum sinnum
borið á góma síðar?
„Jú, ég held það. En það er eins
og Laxness sagði í öðru samhengi
síðar, að Danmörk er útkjálki Evr-
ópu. Á þessum tíma voru Danir í
mikilli vörn gagnvart Þjóðverjum,
en Jón virðist hafa álitið að undir
handarjaðri Þjóðverja myndu Ís-
lendingar fá pólitískt frelsi og þeir
láta sér nægja að versla við okkur.
Það er misskilningur að Danir
hafi höggvið fólk fyrir að vera kat-
ólskt og að því leyti hefur of mikið
verið gert úr hinu trúarlega inntaki
siðskiptanna, sem af hálfu dönsku
krúnunnar snerust mun frekar um
veraldlegt vald og auð. Jón Arason
var ekki hálshöggvinn fyrir villutrú,
heldur fyrir landráð eða drottins-
svik, öllu heldur, því hann var að
reyna að ráða landið af konungi.
Það var ekki ofmat hjá Dönum,
hann hafði það beinlínis á prjón-
unum og sú ráðagerð var miklu
raunverulegri og betur hugsuð, en
flestir hafa áttað sig á.“
Niðurlægingarskeið í kjölfarið
En þetta endar með síðusta bar-
daga á Íslandi, á Sauðafelli 1550,
Jón er höggvinn, Danakonungur
treystir mjög völd sín hér og síðar er
einokunarversluninni komið á, svo í
kjölfarið siglir mesta niðurlæging-
arskeið þjóðarinnar, sem lýkur ekki
fyrr en rúmum tveimur öldum síðar.
„Jú. Gleymum ekki að Danir voru
ekki voldug þjóð og þeir gátu ekki
staðist samkeppni við stærri þjóðir.
Danir voru einfaldlega ekki heppi-
legt viðskiptaland fyrir Ísland, þar
var hvorki markaður fyrir helstu af-
urðir Íslendinga né höfðu þeir þá
vöru sem við þurftum. Þeir voru því
alltaf milliliðir og stóðust enga sam-
keppni við aðra, svo þess vegna
þurftu þeir að koma einokunarversl-
uninni á, sem reyndist Íslendingum
einstaklega þungbær, eins og Jón
Sigurðsson forseti rakti síðar í Nýj-
um félagsritum.
Áhrifin voru víðtækari, því fyrir
þennan tíma fóru Íslendingar til
Englands, Þýskalands, Frakklands
og víðar til að mennta sig, en eftir
þetta fóru nær allir til Hafnar. Þetta
var því ekki aðeins einokun og ein-
veldi, heldur einnig einangrun hug-
arfarsins frá því sem verið hafði.
Danir voru um flest frekar áhuga-
lausir um Ísland og segir sína sögu
að eftir 500 ára valdatíð stóð nánast
ekkert eftir þá til marks um hana,
eitt fangelsi.“
Milljónaþjóðin sem ekki varð
En ef þetta hefði nú gengið upp
hjá Jóni?
„Það er ómögulegt að fullyrða um
það, en þó má benda á að Þjóðverjar
voru farnir að fjárfesta í sjávar-
útvegi á Íslandi og það hefði haft
mikil áhrif ef hann hefði náð sér á
strik 250 árum fyrr en raunin varð,
efnalega, með þéttbýlismyndun og
samfélagsáhrifum. Væntanlega vær-
um við um ein milljón manna í dag
eða meira ef það hefði gerst. Einok-
unin kom í veg fyrir það.“
Er þetta bók um drauminn, sem
ekki rættist?
„Það er alveg rétt. Og saga Jóns
hefur raunar vafist svolítið fyrir
þjóðinni. Það var ákveðið að gera
hann að þjóðhetju í kringum lýð-
veldisstofnun, Jónas frá Hriflu, sem
mótaði hina íslensku söguskoðun
mikið, stóð fyrir því, en þar í kring-
um seinna stríð þótti sjálfsagt ekki
gagnlegt að minnast á að hann hefði
verið að makka með Þjóðverjum.
Hins vegar hefur íslensku þjóðkirkj-
unni aldrei verið neitt um Jón, það
t.d. er enginn sálmur eftir hann í
sálmabókinni.“
En hvernig fer það saman að vera
Seðlabankastjóri og sagnfræði-
grúskari?
„Ég held að það fari prýðilega
saman. Ég tel að það geti enginn
orðið góður hagfræðingur án þess
að kunna skil á hagsögu; kannski
ekki svona langt aftur, en þannig að
menn hafi skilning á hagkerfinu og
kröftum þess. Það hefur raunar ver-
ið þróunin núna eftir fjármála-
kreppu, að hagsagan hefur komið
nokkuð sterk inn aftur.
Nördaskapur
Maður finnur það á bókinni að þú
brennur svolítið fyrir þetta, hún er
fjörlega skrifuð og þér þykir þetta
skemmtilegt.
„Mjög svo. Eins og ég nefndi þá
var ég byrjaður að skrifa þessa sögu
fyrir löngu og þá voru efnistökin um
sumt alvarlegri. Nú er ég orðinn
fimmtugur og hef engu að tapa,“
segir Ásgeir og hlær. „Það má vel
skrifa skemmtilega um þessa hluti
og sumpart gerist það af sjálfu sér.
Þetta voru mjög litríkir menn og
stórir karakterar, sem helst komu
við sögu, og talsvert um hliðarsögur
af þeim í frumheimildum, sem
kannski snerta ekki allar söguþráð-
inn, en lýsa þeim vel.“
Það hefur varla verið létt verk að
tína þær til?
„Til þess að geta gert þetta, þá
þarftu eiginlega að vera nörd, sem
gerir þetta af því honum þykir þetta
skemmtilegt á kvöldin, svona frekar
en að glápa á Netflix.“
Ert þú ekki landsins æðsti nörd?
„Jú, ég er landsins æðsti nörd,“
hlær Ásgeir. „En eins og ég segi,
fyrir mér var þetta bæði hvíld og
nautn. Í kófinu má maður ekki fara
neitt eða gera neitt og ef ég er ekki
heima hjá mér að vinna, þá er í
Seðlabankanum, svo þetta var kær-
komin tilbreyting.“
Megum við þá eiga von á meiru
slíku?
„Já. Eða ég vona það. Ég hef mik-
inn áhuga á öðrum manni og mál-
efnum hans tíma, sem Íslandssagan
hefur farið frekar hratt hjá, og það
er Sæmundur fróði. Það verður
næsta nördaverkefni hjá mér.“
Íslands æðsti nörd
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Sagnfræði Dr. Ásgeir Jónsson notaði kófið til þess að sinna eigin hugðarefnum og skrifaði bók um Jón Arason biskup.
Seðlabankastjóri skrifar bók um Jón Arason biskup Jón var höggvinn fyrir drottinssvik, ekki
villutrú Leitaði sjálfstæðis frá Danaveldi í skjóli Þjóðverja Þurftum að bíða framfara í 250 ár
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
BLACK TILBOÐ
Bankastræti 6 | 551 8588Bankastræti 12 | Sími 551 4007
FRIDAY
20% afsláttur
af Sign skartgripum
10% afsláttur
af öllum öðrum vörum
skartgripirogur.is
15% afsláttur
af By Lovisa
20% afsláttur
af Vera Design
í verslun & netverslun
nú 55.400
áður 69.250
nú 44.720
áður 55.900
nú 26.320
áður 32.900
nú 31.920
áður 39.900
20% afsláttur öllum úrum
SÚPER
TILBOÐ
Fleiri SÚPER TILBOÐ
35%
afsláttur
nú 26.845
áður 41.300