Morgunblaðið - 27.11.2020, Qupperneq 34
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
N Ý F O R M
H Ú S G A G N A V E R S L U N
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Glæsileg borðstofuhúsgögnum
frá CASÖ í Danmörku
un þjóðgarðsins hafi verið meiri í
sumar en oft áður.
Skyndibiti eða sælkeramáltíð
Jón þjóðgarðsvörður segir reynslu
sumarsins kalla á breytingar á þjón-
ustu og áherslum í þjóðgarðinum.
„Erlendir ferðamenn eru yfirleitt
að flýta sér á næsta áfangastað og
samkvæmt mælingum stoppa þeir
oft ekki nema í 3-4 klukkustundir,“
segir Jón. „Í sumar komu Íslending-
ar hingað, fundu sér gistingu og
dvöldu margir í 3-4 daga.
Erlendir gestir haga sér oft eins
og þeir séu á skyndibitastað, þeim
liggur á og keyra hratt í gegn. Svo ég
haldi áfram með samlíkingar þá
breyttist þjóðgarðurinn í sumar í
sælkeraveitingastað þar sem fólk
vildi dvelja og njóta. Við áttuðum
okkur á því að við vorum farin að elt-
ast við hraðann, sem er röng hugsun.
Við ættum að gera breytingar hjá
okkur og einblína á þjónustu við Ís-
lendinga sem aðrir gestir munu þá
líka njóta. Við erum á krossgötum
núna og erum meðal annars að end-
urskoða verndaráætlun til tíu ára.
Þar reikna ég fastlega með að verði
að finna gestastefnu með þessum
áherslum.“
Óvissan enn mikil
Jón segir að mestu umsvifin hafi
verið yfir hásumarið eins og venju-
lega, en daufara hafi verið í haust.
Talsvert hafi þó komið af eldri kyn-
slóða gestum.
Stóra myndin hafi verið sú und-
anfarin ár að erlendir ferðamenn
hafa borið uppi umferð gesta um
Snæfellsnes. Þeir hafi verið um 90%,
en Íslendingar innan við 10%. Í sum-
ar hafi þetta hlutfall alveg snúist við,
samkvæmt mati. Fjöldi gesta er
byggður á talningum bifreiða, bæði á
vegum þjóðgarðsins og Vegagerðar-
innar, en einnig mati út frá heim-
sóknum í gestastofuna á Malarrifi.
Árið byrjaði vel í þjóðgarðinum og
talsverður fjöldi útlendinga var á
ferðinni. Jón segir að vissulega hafi
það verið högg fyrir reksturinn
hversu fáir útlendingar voru á ferð-
inni eftir að faraldurinn skall á. Taka
verði tillit til þessarar stöðu og fara
varlega í áætlanir næsta árs þar sem
óvissa sé mikil.
Fækkun milli ára sé þó ekki nema
60% sem sé mun minna en samdrátt-
ur erlendra farþega um Keflavíkur-
flugvöll. Yfir sumarmánuðina, júní til
ágúst, var fækkunin um 50% og
komu þá nær eingöngu Íslendingar í
þjóðgarðinn. Jón áætlar að þeir hafi
verið um 90 þúsund.
Í þjóðgarðinum Snæfellsjökli er
unnið að margvíslegum framkvæmd-
um. Stærsta einstaka verkefnið er
bygging gestastofu á Hellissandi og
er áformað að taka hana í notkun í
júní 2022. Gestastofan á Malarrifi
var opnuð 2017 og þar hefur aðkoma
verið lagfærð í ár og unnið við fram-
kvæmdir á lóð.
Nýlega var lokið við endurgerð á
gönguleið frá Hellnum að Arnar-
stapa og segir Jón að vandað hafi
verið til verka svo endurgerðin félli
vel að landinu.
Fyrirhugað er að gera hringleið
fyrir fólk sem gengur á milli Djupa-
lónssands og Dritvíkur og fleiri
hringleiðir í þjóðgarðinum séu á
teikniborðinu. Nokkuð sem ætti að
falla Íslendingum vel í geð.
LAKI SNÆFELLSNES
JÖKULSÁRLÓN
SKAFTAFELL
ÞINGVELLIR
ÁSBYRGI
DETTIFOSS
Fjöldi ferðamanna 2010-2020Fjöldi ferðamanna 2015-2020
Fjöldi ferðamanna 2011-2020 Fjöldi ferðamanna 2018-2020
Fjöldi ferðamanna 2016-2020Fjöldi ferðamanna 2012-2020
Fjöldi ferðamanna 2013-2020
Vor, sumar og haustSumar og haust
Sumar og haust Janúar-október
Janúar-október
Ágúst
Vor, sumar og haust
'10 '11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19 '20'15 '16 '17 '18 '19 '20
'11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19 '20 '18 '19 '20
'16 '17 '18 '19 '20'12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19 '20
'13 '14 '15 '16 '17 '18 '19 '20
Fjöldi ferðamanna jan.-des. 2019
Fjöldi ferðamanna jan.-des. 2019Fjöldi ferðamanna jan.-des. 2019
Fjöldi ferðamanna jan.-des. 2019
Fjöldi ferðamanna jan.-des. 2019
j f m a m j j á s o n d
j f m a m j j á s o n dj f m a m j j á s o n d
j f m a m j j á s o n d
j f m a m j j á s o n d
Fjöldi ferðamanna jan.-des. 2019
j f m a m j j á s o n d
Meiri notkun á þjóðgarðinum
Kærkomnar heimsóknir Íslendinga í þjóðgarðinn Snæfellsjökul Röng stefna að eltast við hraðann
Breyttar áherslur undirbúnar Varlega farið í áætlanir Byggt á Hellissandi og hringleiðum fjölgað
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Þegar liðlega mánuður er eftir af
því fordæmalausu ári 2020 segir Jón
Björnsson, þjóðgarðsvörður í þjóð-
garðinum Snæfellsjökli, að árið hafi
verið skemmti-
legt og merki-
lega annríkt í
þjóðgarðinum.
Nokkur fækkun
ferðamanna er
honum ekki efst í
huga heldur
kærkomnar
heimsóknir Ís-
lendinga, sem
ekki bara þjóta í
gegnum þjóðgarðinn heldur leyfa
sér einnig að njóta. Margfaldur
dvalartími hafi leitt til þess að notk-
Snæfellsnes Margir heimsækja Djúpalónssand árlega og í ár voru Íslendingar þar í miklum meirihluta.
Áskoranir hafa verið í rekstri
þjóðgarðanna á þessu ári eftir
að faraldurinn skall á. Breyt-
ingar á milli ára má lesa út úr
kortinu hér að ofan, en einnig í
samtölum við forsvarsmenn
þjóðgarðanna á Snæfellsnesi og
Þingvöllum og Vatnajökuls-
þjóðgarðs á þessari síðu og
blaðsíðu 36.
Þjóðgarðar
MIKLAR BREYTINGAR
Jón Björnsson