Morgunblaðið - 27.11.2020, Qupperneq 36
36 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
Mikil fækkun erlendra ferðamanna
einkennir árið 2020 hjá Vatnajökuls-
þjóðgarði. Þrátt fyrir að Íslendingar
hafi verið duglegir að ferðast innan-
lands hafa þeir ekki náð að brúa bil-
ið sem útlendingar skildu eftir sig.
Ásbyrgi er eina
undantekningin,
en þar tífaldaðist
fjöldi Íslendinga
miðað við und-
anfarin ár og var
aðsóknin yfir há-
sumarið sam-
bærileg við sum-
arið 2019.
Magnús Guð-
mundsson, fram-
kvæmdastjóri
Vatnajökulsþjóðgarðs, segir að þró-
unin í Ásbyrgi hafi verið mjög gleði-
leg. Aðspurður um skýringar á þess-
ari góðu aðsókn þar segir Magnús
að sólríkt og gott veður á Norður-
landi síðasta sumar hafi aukið að-
sókn mikið og svo sé svæðið einstök
náttúruperla.
Minni fækkun en vænta mátti
Hann segir einnig að sums staðar
hafi gestum fækkað minna en búast
hafi mátt við, sérstaklega á áfanga-
stöðum á hálendi Íslands. Þökk sé
ferðavilja Íslendinga.
Áfram var mikil umferð við Jök-
ulsárlón en þar fækkaði ferðamönn-
um nokkuð á milli ára þótt áfram
hafi verið mikið álag á svæðinu yfir
sumarið. Talsverð fækkun varð á
gestakomum í Skaftafell, en eigi að
síður komu dagar í sumar þar sem
takmarka þurfti aðgang að tjald-
svæðum, en vegna kórónuveikinnar
voru fjöldatakmarkanir á tjald-
svæðum.
Magnús segir að á vormánuðum
2020 hafi verið fyrirsjáanlegt fall
sértekna Vatnajökulsþjóðgarðs
vegna fækkunar gesta í tengslum
við kórónuveirufaraldurinn. Sér-
tekjur ársins 2019 voru ríflega 300
milljónir en nú í lok nóvember 2020
stefnir í að þær verði um 100 millj-
ónir þegar árið verður gert upp.
Brugðist hafi verið við þessari alvar-
legu stöðu af umhverfis- og auð-
lindaráðuneytinu strax á vormán-
uðum með aukaframlagi til að
standa straum af ráðningu sumar-
starfsmanna sem leitt hafi til þeirrar
ánægjulegu niðurstöðu að mögulegt
hafi verið að halda uppi eðlilegri
þjónustu á starfsstöðvum þjóðgarðs-
ins sumarið 2020.
Magnús segir að almennt sé
reiknað með að sumarið 2021 verði
svipað og síðasta sumar. Óvissu-
þættirnir séu þó margir og fréttir
um bóluefni gefi tilefni til aukinnar
bjartsýni.
Kraftur í framkvæmdum
Þrátt fyrir nokkru færri gesti í
þjóðgarðinum þessi misserin er mik-
ill kraftur í framkvæmdum við inn-
viði í Vatnajökulsþjóðgarði og hefur
verið áætlað að framkvæmt verði
fyrir á annan milljarð króna í þjóð-
garðinum á árinu 2020 og 2021, en
svæði hans nær yfir um 15% af yf-
irborði Íslands.
Magnús nefnir að þjóðgarðurinn
fékk í fyrra úthlutað 130 milljónum
úr landsáætlun um uppbyggingu
innviða til að betrumbæta fráveitu-
mannvirki í Skaftafelli. Undirbún-
ingur framkvæmda hefur staðið yfir
síðan um mitt ár 2019 en útboði
vegna hreinsimannvirkja og fram-
kvæmda er nú lokið og fram-
kvæmdir hefast á næstu vikum.
aij@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Náttúruperla Ásbyrgi skar sig úr og þar fjölgaði íslenskum ferðamönnum
meira en víðast hvar annars staðar. Myndin er tekin á sumardegi 2017.
Íslendingar tífalt
fleiri í Ásbyrgi
Eðlileg þjónusta í Vatnajökulsþjóðgarði
Magnús
Guðmundsson
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Árið hefur verið erfitt í þjóðgarð-
inum á Þingvöllum vegna kórónu-
veirufaraldursins. Erlendir ferða-
menn hafa varla sést, sértekjur hafa
hrunið og grípa hefur þurft til mik-
illa uppsagna og
breytinga í
rekstri. Ljósu
punktarnir hafa
tengst uppbygg-
ingu til framtíðar
og góðri aðsókn
Íslendinga yfir
hásumarið og
fram eftir hausti,
ekki síst tengt
hrygningu urr-
iðans í Öxará og
fegurð haustlitanna.
Mikið var lagt í undirbúning árs-
ins á Þingvöllum og í tilefni af 90 ára
afmæli þjóðgarðsins var öllum Ís-
lendingum boðið á sýninguna Hjarta
Íslands í gestastofunni á Hakinu.
Faraldur, tímabundin lokun og
fjöldatakmarkanir drógu úr heim-
sóknum og segir Einar Á.E. Sæ-
mundsen þjóðgarðsvörður að af-
mælið hafi farið fyrir ofan garð og
neðan hjá landsmönnum. Hann segir
að skoða megi að láta afmælisboðið
standa áfram og fagna þannig 91 árs
afmæli þjóðgarðsins, en það verði
skoðað betur síðar.
Skiluðu sér strax til Þingvalla
Síðustu tvö ár komu um 1,3 millj-
ónir ferðamanna í þjóðgarðinn hvort
ár, að langstærstum hluta erlendir
ferðamenn eða yfir 90%. Í ár er útlit
fyrir að alls verði gestafjöldinn í
þjóðgarðinum um 330 þúsund og
nemur fækkunin því tæplega einni
milljón ferðamanna. Erfitt er að
áætla hlutfall Íslendinga en varlega
má ætla að hlutfall þeirra hafi hækk-
að í rúmlega 30%-40 prósent.
Hlutfall erlendra ferðamanna af
heildinni skýrist af mánuðunum fyr-
ir faraldurinn en árið byrjaði á svip-
aðan hátt og árin tvö á undan. Sama
dag og landamærin opnuðust í sum-
ar skiluðu ferðamenn sér til Þing-
valla og því er fjöldinn í sumar að
stórum hluta erlendir ferðamenn.
Þrátt fyrir það hefur borið meira á
Íslendingum í ár og segir Einar að
margir hafi haft á orði að nú loksins
geti þeir heimsótt Þingvelli og aðra
vinsæla ferðamannastaði.
Yfir vetrartímann hafa erlendir
ferðamenn haldið uppi heimsóknum
síðustu ár, en þeir hafa varla sést á
Þingvöllum í ár. Eftir að þriðja
bylgja faraldursins skall á í haust
hefur einnig stórlega dregið úr
heimsóknum Íslendinga.
Sárafáir á ferðinni
Einar segir að suma daga sjáist
varla nokkur maður á ferð og á það
jafnt við um Hakið, Almannagjá og
Öxarárfoss. Sláandi eru tölur úr telj-
urum sem sýna fjölda gangandi um
Almannagjá og á leiðinni að Öx-
arárfossi í Stekkjargjá um síðustu
helgi og sömu helgi fyrir ári. Þessa
helgi í fyrra fóru 7.463 um Al-
mannagjá og 3.298 voru taldir við
Öxarárfoss. Sömu þrjá daga í ár
voru þessar tölur 246 í Almannagjá
og 316 við Öxarárfoss, yfir 90%
fækkun í báðum tilvikum.
Einar segir að næsta ár geti orðið
erfitt í þjóðgarðinum og rekstrar-
forsendur hafi gerbreyst. Hann seg-
ist þó gera sér vonir um að úr rætist
og hægt verði að fjölga starfs-
mönnum á ný er líður á veturinn.
Staðan verði metin reglulega þar
sem hlutfall sértekna í tekjugrunni
rekstraráætlunar næsta árs er enn
nokkuð hátt og veltur starfsemin því
að nokku á þviíhvernig rætist úr
ferðahömlum.
Á framkvæmdasviðinu hefur tím-
inn verið vel nýttur í ár og unnið að
verkefnum sem bæta aðstöðu og
upplifun fyrir gesti þegar ferðaþjón-
ustan tekur við sér. Á næstu vikum
hefst kynningarferli vegna deili-
skipulagstillögu fyrir þingstaðinn og
nærsvæði fyrir sveitarfélaginu og
öðrum umsagnaraðilum.
Unnið hefur verið að þeirri tillögu
í nokkurn tíma en hún byggist á
stefnumörkun Þingvallanefndar þar
sem gert er ráð fyrir að stærri hluti
bílastæða og uppbyggingar færist
upp fyrir Almannagjá með uppbygg-
ingu bílastæða fjær þingstaðnum
forna og viðkvæmasta svæði þjóð-
garðsins. Samkvæmt skipulaginu
eru nýir göngustígar á teikniborðinu
og gert er ráð fyrir að rafskutlur
verði nýttar innan þjóðgarðsins.
Hugsað til lengri framtíðar
Einar segir að fyrir um áratug
þegar ferðaþjónustan tók við sér á
Íslandi hafi hið opinbera verið nokk-
uð gagnrýnt fyrir að hafa ekki haft
áætlanir eða innviði í lagi. Með þess-
um aðgerðum og fleirum sem séu
fyrirhugaðar sé hugsað til lengri
framtíðar fyrir Þingvelli.
Undanfarið hefur verið unnið að
salernisbyggingum á þremur stöð-
um í þinghelginni. Tíu salerni bætast
við á nýjum bílastæðum við Hakið
sem þjóna munu þeim gestum sem
koma á fólksbílum. Fyrir neðan Al-
mannagjá koma 15 salerni við end-
ann á Almannagjá og við Valhallar-
reitinn. Einar segir að um talsverðar
framkvæmdir sé að ræða sem kallað
hafi verið eftir lengi, en þessi að-
staða verður komin í notkun næsta
vor.
Sunnan megin í þinghelginni er
unnið að nýjum uppbyggðum timb-
urstíg sem er hluti af átaksverk-
efnum ríkisstjórnar vegna farald-
ursins. Með gönguleiðinni verða til
ný sjónarhorn á fjölbreyttar búða-
rústir og fornleifar svæðisins en sér-
stök gát er höfð við framkvæmdina
sem er unnin í nánu samstarfi við
Minjastofnun og minjavörð Suður-
lands. Einar segir að með þessari
framkvæmd verði aðgengi bætt fyrir
hreyfihamlaða og fólk í hjólastólum.
Þá hefur Rarik að undanförnu
unnið að því að bæta afhendingu raf-
magns í Þingvallasveit með því að
setja rafmagn í jörðu og stækka
spenna á lykilstöðum. Samhliða hef-
ur Bláskógabyggð unnið að tengingu
bæja í Þingvallasveit við ljósleiðara.
Ljósmynd/Landslag ehf.
Þingvellir Suðurhluti þinghelginnar. Sjá má legu og undirstöður nýja búðastígsins vestan við Öxará.
Fækkun um milljón
gesti á Þingvöllum
Lítið varð úr afmælishaldi Hugsað til framtíðar
Einar Á.E.
Sæmundsen
Almannagjá Tómlegt um að litast.