Morgunblaðið - 27.11.2020, Blaðsíða 42
42 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 • Vefverslun: selena.is
Black Friday • Cyber Monday
20% afsláttur
af öllum aðhaldsundirfatnaði
og undirkjólum
Frá föstudegi 27. nóvember og
út mánudaginn 30. nóvember
Frí
heimsending
ef verslað er
yfir 10.000
Í kjólinn
fyrir jólin
Tilboðið
gildir í verslun
og í vefverslun
selena.is
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Eins og fram kom í samtali Við-
skiptaMoggans fyrr í vikunni við
Þórstein Ágústsson, fram-
kvæmdastjóra ræstingafyrir-
tækisins Sólar,
hafa auknar
sóttvarnir og
hreinlæti leitt til
færri veikinda-
daga starfsfólks
Sólar. Spáir Þór-
steinn því í sam-
talinu að kór-
ónuveiru-
faraldurinn
muni hafa áhrif
á sóttvarnir í
framtíðinni, og telur að eitthvað af
sóttvarnaaðgerðum sé komið til að
vera. Nefnir hann sem dæmi að
það kæmi sér ekki á óvart þótt
fyrirtæki færu í markvissar sótt-
varnaaðgerðir næsta vetur þegar
flensutíminn hefst. Þær aðgerðir
stæðu þá í einn til tvo mánuði.
Hefur heyrt um minni veikindi
Ásdís Kristjánsdóttir, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins, segir í samtali við
Morgunblaðið að SA hafi ekki tek-
ið saman gögn um áhrif veirunnar
á veikindi starfsfólks hjá aðildar-
fyrirtækjum, en hún hafi þó heyrt
frá fleiri en einu fyrirtæki að
minna væri um veikindi. „Það
kemur ekki á óvart. Við erum að
upplifa mjög óvenjulega tíma.
Annars vegar eru allir að passa
upp á sínar persónulegu sótt-
varnir. Hins vegar hafa verið hér í
gildi samkomutakmarkanir með
einum eða öðrum hætti, við hittum
því færra fólk frá degi til dags, sem
hefur vitaskuld líka áhrif,“ segir
Ásdís.
Hún telur að ef fyrirtæki upplifi
að auknar sóttvarnir dragi úr veik-
indadögum hljóti þau að huga að
áframhaldandi sóttvörnum eins og
að tryggja aukin þrif og spritt fyrir
viðskiptavini. „Þó að því fylgi ein-
hver kostnaður er ábatinn ávallt
meiri sem felst í færri veikinda-
dögum starfsmanna.“
Hugarfarsbreyting möguleg
Hún telur að mögulega verði
einnig hugarfarsbreyting hjá öllum
almenningi og persónulegar sótt-
varnir verði hluti af daglegri rút-
ínu. Hún segir að þó svo fyrirtæki
viðhaldi áfram sínum sóttvörnum
telji hún að fólk sé jafnframt með-
vitaðra um mikilvægi þeirra.
„Ég held að við sem einstakl-
ingar munum passa betur upp á
persónulegar sóttvarnir í framtíð-
inni. Aukinn handþvottur sem
dæmi. Ég held að við komum líka
til með að passa okkur betur á
sameiginlegum snertiflötum. Ef
fyrirtæki sjá ábata fólginn í því að
huga almennt að sóttvörnum hjá
starfsfólki sínu og viðskiptavinum
munu þau viðhalda þeim upp að
einhverju marki og það er vel.“
Spítalinn lært mikið
Eins og kom fram í Morgun-
blaðinu í gær dró mjög úr alvar-
legum sýkingum af völdum þriggja
algengra baktería þegar gripið var
til sóttvarnaaðgerða gegn út-
breiðslu kórónuveirufaraldursins
fyrr á þessu ári, en það er niður-
staða fjölþjóðlegrar rannsóknar
sem Ísland tók þátt í.
Læknir á Landspítalanum sem
Morgunblaðið ræddi við sagði að
spítalinn hefði lært mikið í faraldr-
inum og starfsfólk hefði unnið við
mjög ströng sóttvarnarskilyrði frá
því í júlí-ágúst. Mjög líklegt væri
að sóttvarnir yrðu auknar á heil-
brigðisstofnunum til framtíðar,
enda væri það ekki mjög íþyngj-
andi á þeim vinnustað. Greiður að-
gangur væri þar að öllum búnaði
sem þessu tengdist.
Ábati ef veikindi minnka
Auknar sóttvarnir hafa leitt til færri veikindadaga Aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins telur að einstaklingar muni passa betur upp á persónulegar sóttvarnir í framtíðinni
Morgunblaðið/Eggert
Veira Mögulega eru sóttvarnir eins og þessar ekki á útleið, þó svo að takist að vinna bug á kórónuveirufaraldrinum.
Ásdís
Kristjánsdóttir