Morgunblaðið - 27.11.2020, Page 44
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Í tillögum sem starfshópur heil-
brigðisráðherra um „aðgerðaáætlun
um beitingu efnahagslegra hvata til
eflingar lýðheilsu“ hefur sent frá sér
eru lagðar fram viðamiklar tillögur
um breytingar á skatta- og gjalda-
kerfi ríkissjóðs. Athygli vekur að í
tillögunum, sem eiga að draga úr
sykurneyslu, er sérstaklega tilgreint
að aðgerðirnar eigi ekki að ná til
hreinna ávaxta- og grænmetissafa
og heldur ekki mjólkurdrykkja, sem
þó innihalda oft mikið magn sykurs.
Þá leggur hópurinn til að aðgerð-
irnar nái til neysluvöru sem geti haft
neikvæð áhrif á tannheilsu fólks,
jafnvel þótt sykurmagn í þeim
vörum sé ekki mikið. Ástæðan fyrir
afstöðu nefndarinnar er sú að vör-
urnar sem undaskildar eru innihalda
í mörgum tilvikum næringarefni sem
ekki er að finna í öðrum sætum
drykkjum.
Einn nefndarmanna lagðist gegn
tillögum um breytingar á virðisauka-
skattskerfinu, þ.e. fulltrúi fjármála-
og efnahagsráðuneytisins. Í séráliti
hans kom fram að ekki væri rétt að
gera breytingar á vsk-kerfinu þar
sem það gæti leitt til aukins óhag-
ræðis auk aukins flækjustigs og
ójafnræðis í kerfinu „en markvisst
hefur verið unnið að því að einfalda
virðisaukaskattskerfið síðustu ár
með breikkun skattstofna og fækkun
undanþága með aukna skilvirkni að
leiðarljósi“.
Hlutdeild drykkjanna 35%
Tillögur starfshópsins, sem í
grunninn byggjast á yfirlýsingu
stjórnarsáttmála núverandi ríkis-
stjórnar um að skoða beri efnahags-
lega hvata til eflingar lýðheilsu,
byggjast á því að neysla á sykur-
ríkum matvælum hér á landi sé meiri
en annars staðar á Norðurlöndunum
og einnig að algengi offitu sé meira
hér á landi. Það ástand eigi sterk or-
sakatengsl við sykruð matvæli, sér í
lagi sykraða drykki eins og það er
orðað í niðurstöðum hópsins.
Byggt á réttum gögnum?
Frumniðurstöður úr landskönnun
á mataræði landsmanna fyrir árin
2019-2020 og aldurshópinn 18-50 ára
sýna að framlag sykraðra gos- og
svaladrykkja, íþrótta- og orku-
drykkja til sykurneyslu (viðbættur
sykur) sé 35%. Þá sé framlag sæl-
gætis til sykurneyslu 19% og fram-
lag kex, kaka og sætabrauðs 16%.
Í erindi sem Félag atvinnurek-
enda hefur sent heilbrigðisráðherra í
kjölfar þess að tillögur starfshópsins
voru opinberaðar 11. nóvember síð-
astliðinn er vafi sagður uppi um
hvort töluleg gögn sem liggi til
grundvallar tillögunum standist
skoðun. Segir í erindi FA að tölur
Hagstofunnar um gosdrykkjaneyslu
feli ekki í sér sundurliðun á sykruð-
um og ósætum drykkjum, þ.m.t. kol-
sýrðu vatni. „Þessi gögn eru ekki
sambærileg við þau gögn um neyslu
sykraðs goss sem önnur ríki nota,“
segir í erindinu og einnig bent á að
þau séu að hluta til 7-8 ára gömul.
Hins vegar bendir FA á að markaðs-
greining fyrirtækisins Nielsen, gögn
úr kassakerfum mikils meirihluta
verslana á Íslandi um sölu sykraðra
drykkja, sýni að innan við fimmtung-
ur sykurneyslu Íslendinga komi úr
gosdrykkjum, ef miðað er við útgefn-
ar tölur landlæknisembættisins um
sykurneyslu á mann.
Segir FA mikilvægt að ákvarðanir
sem teknar yrðu í þessu efni yrðu
byggðar á réttum gögnum. Samtök-
in hafi ítrekað boðið heilbrigðisráðu-
neytinu aðstoð við að útvega réttar
upplýsingar um neysluna en erindi
þar um hafi ekki verið svarað.
Neyslan minnkað af öðrum
ástæðum síðasta áratuginn
Þá spyrja samtökin einnig hví ekki
sé litið til þróunar neysluvenja á
undanförnum áratugum þegar
ákvarðanir um neyslustýringu eru
ákvarðaðar. Þannig hafi hlutfall
sykraðra gosdrykkja lækkað úr 59%
í 38% á árunum 2011-2020 og hlutfall
kolsýrðra vatnsdrykkja tvöfaldast,
farið úr 15% í 28%. Þarna sé um
hraða og áþreifanlega þróun að ræða
sem eigi rætur að rekja til breyttra
áherslna gosdrykkjaframleiðenda og
breyttar kröfur neytenda sem komn-
ar eru til vegna aukinnar meðvitund-
ar um mikilvægi þess að draga úr
sykurneyslu.
FA tekur undir minnihlutaálit full-
trúa fjármála- og efnahagsráðherra
og segir að ef tillögurnar næðu fram
að ganga myndi það hafa í för með
sér mikið óhagræði og kostnað fyrir
atvinnulífið sem einmitt hefði verið
unnið að því að draga úr með einföld-
un skattkerfisins á síðustu árum.
Lækki álögur á hollustu
Tillögur starfshópsins ganga þó
ekki aðeins út á að auka álögur á
sykraðar neysluvörur heldur hvetur
hann einnig til þess að draga úr álög-
um á ávexti og grænmeti. Það verði
gert með því að færa þessa vöru-
flokka í 0% þrep vsk-kerfisins auk
hollustustyrkja grænmetis- og
ávaxtastunda í leik- og grunnskólum.
Tekur FA undir tillögur um að
lækka álögur á innflutt grænmeti og
að því markmiði yrði best náð með
því að fella niður tolla á innflutt
grænmeti sem geti stuðlað að „tvö-
eða þreföldun á verði þess“.
Vörugjöld gegn sykurneyslu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gosmarkaður Hlutfall sykraðra gosdrykkja á markaðnum hér á landi hefur lækkað úr 59% í 38% á áratug.
Starfshópur vill ekki skattleggja hreina ávaxta- og grænmetissafa og heldur ekki mjólkurdrykki
FA gagnrýnir samráðsleysi og segir stuðst við rangar tölur Harmar tillögur sem flæki skattkerfið
BREYTINGARNAR
» Sykraðar vörur að mjólk-
urvörum undanskildum beri
24% vsk í stað 11%.
» Vörugjöld verði tekin upp að
nýju og lögð á sætindi.
» Ávextir og grænmeti beri
0% vsk í stað 11%.
» Hollustustyrkir fyrir græn-
metis- og ávaxtastundir í leik-
og grunnskólum.
44 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
Búum í haginn
fyrir atvinnulíf
framtíðarinnar
arionbanki.is