Morgunblaðið - 27.11.2020, Síða 49
49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
Kalt Þessir verkamenn létu næðinginn, frostið og skafrenninginn ekki aftra sér frá erfiðisvinnu við höfnina í Hafnarfirði.
Eggert
Um þessar
mundir er verið að
kynna „viðauka við
aðalskipulag
Reykjavíkur“. Í
raun er þetta nýtt
aðalskipulag enda
er gildistími þess
tíu árum lengri en
nú er. Áherslan í
viðaukanum er á
húsnæðismálin. Á
fyrri hluta tímabilsins er áhersla
á uppbyggingu á Ártúnshöfða
þar sem nú er atvinnusvæði.
Flutningur á atvinnufyrirtækj-
unum mun taka tíma, en jafn-
framt mun kostnaður við aðföng
aukast og þar með byggingar-
kostnaður í Reykjavík.
Reynslan af því að flytja at-
vinnustarfsemi úr Reykjavík
ætti að hafa kennt okkur ým-
islegt. Rekstur Björgunar liggur
nú niðri þar sem atvinnulóð fé-
lagsins var tekin af því. Í stað-
inn átti félagið að fá aðstöðu í
Álfsnesi, sem enn er ekki í
hendi. Fjölmörg fyrirtæki og
stofnanir hafa þurft að flytja úr
borginni. Nýlegt dæmi er
Tryggingastofnun ríkisins sem
var við Hlemm og fór í Kópavog
á síðasta ári. Þá er Tækniskól-
inn að hugsa sér til hreyfings og
borgin á það á hættu að missa
þá mikilvægu stofnun frá sér.
En það er fleira sem byggt er á
veikum grunni.
Húsnæðisáætlunin
Í viðaukanum er lagt upp með
að byggja íbúðir á svæðum þar
sem nú er starfsemi fyrir. Þetta
er ekki bara dýrt þar sem það
þarf að rífa byggingar og færa
starfsemi, heldur eru þarna
mikil höft á upp-
byggingu. Ekkert á
að byggja á Keldna-
landinu næstu tíu
árin þrátt fyrir að
þar sé gríðarlega
mikið og hagstætt
byggingarland inn-
an borgarinnar. Þá
er hætt við íbúðir í
Úlfarsárdal, engin
íbúð leyfð í Örfir-
isey eða í Laugar-
nesi þrátt fyrir góða
staðsetningu. Í staðinn fyrir
þessa góðu og hagstæðu kosti er
einblínt á atvinnusvæði sem eiga
að víkja.
Á síðari hluta skipulagstímans
gerir borgin beinlínis ráð fyrir
því að unnt sé að byggja þar
sem flugvöllurinn er. Það sjá all-
ir að hafi verið líkur á því að
nýr flugvöllur yrði byggður í
Hvassahrauni á næstu árum
hafa þær horfið með kórónu-
kreppunni. Að ekki sé minnst á
jarðhræringahrinu á Reykja-
nesi. Húsnæðisáætlun borg-
arinnar er byggð á því að at-
vinnufyrirtæki flytji burt og að
nýr flugvöllur sé fullbyggður í
Hvassahrauni. Ekki er ofsögum
sagt að segja þessa áætlanagerð
lýsa mikilli „bjartsýni“. Betra er
að byggja á hagkvæmum og
traustum byggingarsvæðum.
Ekki á sandi.
Eftir Eyþór
Arnalds
» Betra er að byggja
á hagkvæmum og
traustum bygging-
arsvæðum. Ekki á
sandi.
Eyþór Arnalds
Höfundur er oddviti sjálfstæð-
ismanna í borgarstjórn.
Að byggja á sandi
Tuttugu dögum eft-
ir kjördag eða mánu-
daginn 23. nóvember
gaf Donald Trump,
fráfarandi forseti
Bandaríkjanna, emb-
ættismönnunum sem
vinna að stjórn-
arskiptunum 20. jan-
úar 2021 loks leyfi til
að opna fjárheimildir
og opinberar bygg-
ingar fyrir starfsmönnum Joes Bi-
dens, verðandi forseta. Þá höfðu
allar tilraunir Trumps til að ógilda
kosningarnar í einstökum ríkjum
mistekist.
Þetta leyfi Trumps var þá
stærsta viðurkenning hans á að
hafa tapað kosningunum. Joe Biden
hlaut 306 kjörmenn (þurfti 270), um
79,9 milljón atkvæði eða 51%, Do-
nald Trump hlaut 232 kjörmenn,
um 73,9 milljón atkvæði eða 47%.
Glæsileg úrslit fyrir báða. Engir
hafa áður fengið svo mörg atkvæði
í forsetakosningum. Barack Obama
er þriðji í röðinni með 69,5 milljónir
atkvæða árið 2008.
Bandarískir stjórnarhættir
næstu ára mótast af því hvernig
aukakosningar til öldungadeild-
arinnar fara í Georgíuríki 5. janúar
2021. Sigri repúblikanar festir það
Biden á miðjunni, annars verða
vinstrisinnaðir demókratar of ráð-
ríkir.
Daginn sem Trump gaf græna
ljósið birtust nöfn þeirra sem Biden
tilnefnir til að fara með stjórn utan-
ríkis- og þjóðaröryggismála. Þeir
eru Antony Blinken og Jack Sulliv-
an. Valið á þeim sýnir að Biden vill
halda í hefðirnar sem ríktu við
stjórn utanríkis- og þjóðarörygg-
ismála fyrir daga Trumps.
Antony Blinken, verðandi utan-
ríkisráðherra, hefur
unnið árum saman fyr-
ir Biden. Hann vill að
Bandaríkjastjórn beiti
sér innan alþjóðastofn-
ana. Með þeim
stjórnarháttum eru
strax dregin skil á
milli þess sem vænta
má af stjórn Bidens og
hins sem menn kynnt-
ust í forsetatíð Do-
nalds Trumps. Hann
taldi sér til fram-
dráttar að fara niðr-
andi orðum um NATO áður en
hann varð forseti og hafa í heit-
ingum við bandamenn sína eftir að
hann settist í embætti. Hann gerði
lítið úr fjölþjóðakerfinu sem
Bandaríkjastjórn mótaði á fimmta
áratug 20. aldarinnar.
Nú gefst frjálslyndum lýðræðis-
ríkjum að nýju tækifæri til að vinna
með fulltrúum Bandaríkjanna í
þessu kerfi sem reynst hefur þeim
og samfélagi þjóðanna best á und-
anförnum áratugum. Þar eiga nor-
rænu ríkin fimm að skipa sér í
fremstu röð í þágu gildanna sem
einkenna stjórnarhætti þeirra: lýð-
ræðis, mannréttinda og virðingar
fyrir réttarríkinu.
John Sullivan er tilnefndur sem
þjóðaröryggisráðgjafi. Hann starf-
aði með Hillary Clinton, utanríkis-
ráðherra Baracks Obama, á sínum
tíma. Sullivan og Blinken eru sam-
stiga um gildi hagsmunagæslu í
fjölþjóðastofnunum. Afstaða þeirra
er talin harðari en stefnan sem
Obama-stjórnin fylgdi. Sullivan
vildi til dæmis að Bandaríkjastjórn
léti Úkraínumönnum í té öflugri
vopn en Obama samþykkti. Trump
lét þá síðan hafa vopnin. Blinken
studdi innrásina í Írak árið 2002.
Hann sagði oft „risaveldi blekkja
ekki“ og gagnrýndi þannig að
Obama stóð ekki við yfirlýsingu
sína um „rauðu línuna“ þegar efna-
vopnum var beitt í Sýrlandi.
Hvíta-Rússland
Ástandið í Hvíta-Rússlandi er
ömurlegt. Nú hafa mótmælaað-
gerðir gegn forseta landsins staðið
í 110 daga í höfuðborginni Minsk.
Hann er sakaður um kosn-
ingasvindl.
Eftir að mótmælandinn Raman
Banderenka, 31 árs, dó 12. nóv-
ember vegna harkalegra barsmíða
lögreglu efldust mótmælin eftir
stutta lægð. Tóku þúsundir manna
þátt í útför Banderenka 20. nóv-
ember og hrópuðu: Þú ert hetja! og
Lengi lifi Hvíta-Rússland.
Svetlana Alexievitsj (72 ára) sem
fékk bókmenntaverðlaun Nóbels
árið 2015 yfirgaf Minsk í sept-
ember 2020 til lækninga í Berlín. Í
minningu Banderenka ræddi hún
við Der Spiegel 20. nóvember. Hún
ætlar ekki að snúa aftur til Minsk
fyrr en Alexander Lúkasjenkó for-
seti er farinn frá völdum. Frá kjör-
degi 9. ágúst hafi 27.000 ein-
staklingar verið teknir fastir.
Lúkasjenkó eyðileggi landið, segir
hún.
Alexievitsj segir að nú ráði vopn-
in í Hvíta-Rússlandi. Blaðamaður
Der Spiegel víkur að því að ólga sé
í mörgum ríkjum við jaðar Rúss-
lands: Hvíta-Rússlandi, Úkraínu,
Georgíu, Kirgistan, Moldóvíu,
Aserbaídsjan og Armeníu, þremur
áratugum eftir fall Sovétríkjanna.
Nóbelshöfundurinn segir að
stórveldið hafi veikst og elíta
kommúnista sé alls staðar í vanda.
Nú berjist þeir innbyrðis sem enn
haldi velli. Þetta sé stór pottur þar
sem allt kraumi: gamlir komm-
únistar, nýir kapítalistar.
Fyrir forsetakosningarnar gagn-
rýndi Joe Biden keppinaut sinn,
Donald Trump, fyrir að sýna mót-
mælendum í Hvíta-Rússlandi of lít-
inn áhuga og stuðning. Sjálfur
sagðist Biden standa með almenn-
ingi í Hvíta-Rússlandi og styðja
lýðræðisvonir hans gegn mannrétt-
indabrotum Lúkasjenkó-stjórn-
arinnar.
Nú kveður því við annan tón
gagnvart einræðisherrum á borð
við Lúkasjenkó hjá ráðamönnum í
Washington. Trump hélt gjarnan
aftur af stóryrðaflaumi sínum þeg-
ar kom að Valdimír Pútín og ýms-
um af svipuðu sauðahúsi.
Ögranir Rússa
Á nýlegu árlegu málþingi Finna
og Svía um varnar- og öryggismál,
svonefndu Hanatingi, var Peter
Hultqvist, varnarmálaráðherra
Svía, meðal ræðumanna. Hann
sagði varnarstefnu Svía reista á
tveimur stoðum, alþjóðlegu varn-
arsamstarfi og eigin herafla. Með
því að nefna þessa tvo þætti stað-
festi ráðherrann enn einu sinni
gjörbreytinguna á sænskri varn-
armálastefnu frá því fyrir 30 árum.
Þá treystu Svíar alfarið á eigin
varnarmátt, áréttuðu hlutleysi sitt
og stöðu utan hernaðarbandalaga.
Eftir að Vladimir Pútin Rúss-
landsforseti innlimaði Krímskaga í
Rússland árið 2014 endur-
skipulögðu Svíar varnir sínar Á
föstu verðlagi vaxa útgjöld Svía til
varnarmála um 85% á árunum 2014
til 2025. Þeir starfa nú náið með
Bandaríkjamönnum og NATO.
Peter Hultqvist sagði að enn
stæðu Svíar og aðrir frammi fyrir
Rússum sem ögruðu skipan örygg-
ismála í Evrópu og hefðu al-
þjóðalög að engu. Árásir Rússa á
Georgíu og Úkraínu sýndu að
Rússar hikuðu ekki við að beita
hervaldi til að ná pólitískum mark-
miðum sínum. Nú síðast hefðu við-
brögð ráðamanna í Moskvu við
mótmælum almennings í Hvíta-
Rússlandi, nánasta samstarfsríki
Rússa, vakið athygli. Af þeim
mætti álykta að Rússar hindruðu
að andstæðingar Lúkaskjenkós
kæmu honum frá völdum eða mót-
uðu stefnu fyrir Hvíta-Rússland án
áhrifa Rússa. Með frjálsum aðgangi
Rússa að yfirráðasvæði og lofthelgi
Hvíta-Rússlands skapaðist óvissa
og óljóst ástand. Ráðamenn í
Moskvu hefðu þá í hendi sér að
flytja herafla sinn inn í Hvíta-
Rússland, vildu þeir ógna öðrum á
þann hátt.
Sænski varnarmálaráðherrann
vék einnig að sívaxandi hervæðingu
Rússa meðal annars með
kjarnorkuvopnum í nágrenni Sví-
þjóðar. Þá ykju Rússar hernaðar-
umsvif sín á norðurslóðum, beittu
fjölþátta aðferðum, netárásum og
undirróðri gagnvart öðrum ríkjum.
„Því verður haldið áfram á morgun
á sama hátt og gert er í dag,“ sagði
Peter Hultqvist.
Framvindan í Hvíta-Rússlandi er
mikilvægur prófsteinn. Ekki aðeins
fyrir lýðræðisþjóðirnar heldur
einnig fyrir ráðamenn í Moskvu.
Pútín kann að nota umþóttunartím-
ann í Washington og farsótt-
arástandið til að sölsa Hvíta-
Rússland undir sig og láta nýja
bandaríska stjórnarherra standa
frammi fyrir orðnum hlut. Stjórn-
arskiptin í Washington eru ör-
lagarík í mörgu tilliti.
Eftir Björn
Bjarnason » Framvindan í
Hvíta-Rússlandi er
mikilvægur prófsteinn.
Ekki aðeins fyrir
lýðræðisþjóðirnar
heldur einnig fyrir
ráðamenn í Moskvu.
Björn Bjarnason
Höfundur er fv. ráðherra.
Hvíta-Rússland er prófsteinn