Morgunblaðið - 27.11.2020, Page 55
farið saman á brennur og alls konar.
Við vinnum þetta eftir kærleika og
vináttu. En ég á strákinn minn með
öðrum manni sem elskar strákinn
sinn einnig heitt og við munum sníða
einhverja dagskrá með þarfir Arn-
aldar í forgangi.“
Hvað er það flóknasta við að vera
einstæð móðir þegar kemur að jól-
unum?
„Ég held að það flóknasta við að
vera einstæð móðir eða bara móðir
og manneskja séu væntingar. Vænt-
ingar sem við setjum á okkur sjálfar.
Á aðra og oft
einhverja fyr-
irfram
ákveðna mynd
af því hvernig
hlutir eiga að
vera. Fyrstu
jólin mín sem
einstæð
tveggja barna
móðir voru í
fyrra. Þau
voru svo falleg.
Við þrjú að
njóta saman og
fara í veislur
og krúttast.
Ég var ör-
magna eftir þessi jól enda erfitt að
vera með fjögurra mánaða barn á
brjósti og fimm ára orkubolta innan
um margt fólk og gista ekki heima
hjá sér til að mæta í veislurnar og
boðin sem voru í Reykjavík. Ég bý í
Hveragerði og vildi ekki vera að
keyra með þau fram og til baka.
Þetta var kannski aðeins of mikið
þegar ég lít til baka en engu að síður
okkar jól. Það besta er bara að fá að
vera til og að geta haldið upp á jólin
og að sjá gleðina í gegnum þau.“
Hamingjan ekki bundin
í hinum eina rétta
Þórunn er einstaklega sjálfstæð og
óttast það ekki að vera ein með börn-
in sín í lífinu. Hún hefur ekki trú á
hinum eina rétta og er með ráð fyrir
konur sem eru áhyggjufullar í sam-
bandi en þora ekki að stíga inn í að
vera sjálfstæðar sjálfar.
„Já elsku þú. Þú ert sterk og fal-
leg. Þú ert nóg. Þess virði að vera
elskuð. Ekki vera í sambandi
barnanna vegna. Þeirra hagur er að
þú sért glöð og óhrædd. Finndu von-
ina.
Taktu ábyrgð á þér sama hversu
erfitt það er. Taktu ábyrgð í aðstæð-
unum. Oft er skilnaður og áföll byrj-
unin á besta kaflanum. Við berum
ábyrgð á okkar hamingju og tilfinn-
ingum. Það getur engin manneskja
gert okkur hamingjusöm nema við
sjálf. Það er erfitt að heyra. En það
er byrjunin. Svo er hamingjan ekki
bundin í hinum eina rétta eða full-
komna starfinu eða einhverjum
mælieiningum þar sem við höldum að
himnarnir opnist og það rigni yfir
okkur glimmeri þegar við náum
þeim. Að vera óhræddur við að finna
allar tilfinningarnar er meira virði og
ennþá meira virði fyrir mér er að sjá
húmor og þakklæti í flestöllu. Ef ein-
hver er að lesa þetta sem vill vita að
það er betra að vera ein að sjá um lítil
börn en með einstaklingi sem er ekki
til staðar, sem ekki elskar þig eða þú
elskar ekki, þá er
til líf sem er fal-
legt og gott og al-
veg jafn dýrmætt
og meðtekið. Það
er svo gömul
tugga að það sé
sorglegt eða erf-
itt að vera ein-
stæð móðir. Við
getum allt.“
Hvað er það
dýrmætasta í líf-
inu að þínu mati?
„Börnin mín,
að eiga djúpa og
fallega tengingu
við þau. Fólkið
mitt, fjölskyldan mín, vinir mínir. Í
raun allt sem lætur mann brosa og
hjartað slá hraðar. Ég er ótrúlega
heppin með hvað ég á mikið af ótrú-
lega skemmtilegu og frábæru fólki
sem veitir mér gleði og innblástur.“
Skemmtilega úrræðagóð
sem barn á jólunum
Áttu skemmtilega minningu af þér
sem barni á jólunum?
„Ég var alltaf að gera einhver
prakkarastrik eða mjög misskilin
góðverk. Eitt af þeim var þegar móð-
ir mín sagðist bara vilja hvít jól er ég
spurði hana þriggja ára hvað hún
vildi í jólagjöf. Ég náði í hveitipoka og
reddaði móður minni hvítum jólum
innandyra. Ég hellti meira að segja
hveiti yfir alla stofuna og öll hús-
gögnin. Þetta var ekki jafn vinsælt og
ég hafði vonast eftir.“
Eru börnin þín mjög lík þér frá því
þú varst lítil?
„Já mjög. Fyrir mig var það og er
mjög heilandi ferli að sjá sjálfa mig
sem barn bregða fyrir í þeim.“
Hvað gerir þú með þeim á aðvent-
unni?
„Ég er mjög lítið fyrir að plana al-
mennt en ætli ég byrji ekki á því að
setja upp jólatré með þeim og von-
andi búum við til fastar hefðir öll
saman. Bakarofninn minn er reyndar
bilaður og hefur verið í rúmt ár.
Þetta er jafnvel tími til að græja það
til að fara að baka smákökur.“
Taktu ábyrgð á þér sama
hversu erfitt það er. Taktu
ábyrgð í aðstæðunum. Oft
er skilnaður og áföll byrj-
unin á besta kaflanum.
Við berum ábyrgð á okkar
hamingju og tilfinningum.
Það getur engin mann-
eskja gert okkur ham-
ingjusöm nema við sjálf.
Þórunn Antonía segir
jólin einstakan tíma.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
Soffía hjá Skreytum hús
með nýja liti og sjónvarpsþætti
Skoðaðu litina og horfðu á þættina á Slippfelagid.is
Litur á stofu: YLJA
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
Sími 588 8000
slippfelagid.is
YLJA
VÆNN MISTUR
ÓSK VÆRÐ
SPES LEKKER
RÓ