Morgunblaðið - 27.11.2020, Page 56
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
Snjallari lausnir í
greiðslumiðlun á
Íslandi
Fjártæknilausnir Rapyd bjóða þér
upp á snjallari greiðslumiðlun.
Við bjóðum upp á fjölmargar
greiðsluleiðir og virðisaukandi
þjónustur sem henta þínum
rekstri. Við setjum þjónustu
við söluaðila í fyrsta sæti.
Vertu í sambandi
558 8000 | hallo@rapyd.net | rapyd.net/is
Einfaldari
Snjallari
Betri
Leyfðu okkur að
þjónusta þig.
Á bak við fyrirtækið er Harpa Atladóttir og fjölskyldan
hennar. Hún segir fyrirtækið vera sannkallað fjölskyldu-
fyrirtæki þar sem öll fjölskyldan sé á bak við það. Þannig
hafi allir alltaf lagst á eitt þegar verið að að prufa og þróa
uppskriftir á heimilinu, ekki síst synir hennar, en mikil
vinna liggur að baki verkefninu sem
skilar sér í afburðavöru sem vert er
að mæla með.
Harpa segir að hugmyndin hafi
kviknað fyrir tveimur árum þegar
hún sá hvað tilbúið deig var að
verða vinsælt. „Strákunum mínum
hefur alltaf fundist rosalega gaman
að baka frá grunni svo mig langaði
að gera einstaklingum og fjöl-
skyldum auðveldara að baka frá
grunni úr gæðahráefnum. Pakk-
arnir okkar innihalda allt sem þarf
til baksturs fyrir eina uppskrift og hráefnunum er pakk-
að í einingar eftir númerum á uppskriftinni. Þetta gerir
baksturinn auðveldari en heldur samt í töfrana sem
fylgir því að baka frá grunni. Það er svo frábært að baka
heima og búa til gæðastundir í eldhúsinu. Það sem við
horfum líka til er að með því að kaupa pakkana minnkum
við matarsóun þar sem ekki þarf að kaupa stórar ein-
ingar af vöru sem við notum einungis lítið af,“ segir
Harpa en vörurnar frá Bökum saman er hægt að kaupa í
Krónunni Lindum og Selfossi, auk
þess sem þær verða til sölu á Jóla-
markaðinum í Hafnarfirði. Á kom-
andi ári fer síðan vefsíða í loftið og
vörulínan stækkar í kjölfarið auk
þess sem boðið verður upp á heim-
sendingu.
Hægt er að fá þrjár bragðteg-
undir fyrir jólin; lakkrís-, hesli-
hnetu- og bóndakökur. „Bóndakök-
urnar eru frábærar til að baka með
börnunum þar sem þau geta dund-
að sér við að setja súkkulaðidropa
ofan á hverja köku. Heslihnetu- og lakkrískökur eru til-
valdar með kakó- og kaffibolla. Við munum svo koma
með nýja vörulínu eftir áramót sem inniheldur sauma-
klúbbstertu, girnilega snúða og margt fleira.“
Bökum saman frá grunni
Þjóðin veit fátt skemmtilegra en að baka þessa dagana og nú eru komnir á
markað smákökupakkar frá fyrirtækinu Bökum saman sem auðvelda fjölskyld-
unni enn frekar að gera þessa mikilvægu samverustund ógleymanlega.
Ljúffengar
Bökum
saman fæst
í Krónunni
Lindum og
Selfossi
Einfalt og þægilegt Bökum saman er
fullkomin lausn fyrir þá sem vilja baka
frá grunni en einfalda ferlið.
Við fengum hina einu sönnu Elenoru
Rós til að baka fyrir okkur smákök-
ur að eigin vali og eins og við var að
búast brást henni ekki bogalistin.
Útkoman er stórhættuleg og
kransæðastífluvaldandi
stórprengjusmákaka sem hún kallar
einfaldlega hnetusmjörsköku en
okkur finnst að hún ætti að heita
eitthvað miklu virðulegra – eins og
Fröken Hnetusmjör eða Hnetu-
smjörsdraumur.
Hnetusmjörsdraumur
Elenoru Rósar
318 g hveiti
4 g matarsódi
4 g lyftiduft
4 g salt
113 g mjúkt smjör
202 g hnetsumjör
100 g sykur
200 g púðursykur
2 egg
1 eggjarauða
200 g súkkulaðibitar
100 g ljóst súkkulaði
smá auka hnetusmjör
Aðferð:
1. Blandið saman hveiti, matarsóda,
lyftidufti og salti.
2. Bræðið svo smjörið í annarri skál.
3. Hrærið hnetusmjörinu saman við
brædda smjörið þar til það hefur
blandast alveg saman við.
4. Hrærið sykri og púðursykri sam-
an við hnetusmjörsblönduna og
síðan eggjunum saman við þetta
allt.
5. Blandið núna þessu öllu saman við
þurrefnin og hrærið þar til allt er
komið saman.
6. Bætið súkkulaðibitunum saman
við.
7. Búið til kúlur og setjið á papp-
írsklædda bökunarplötu.
8. Bakið í 10-12 mínútur við 180°C.
9. Bræðið súkkulaði og dýfið hálfri
kökunni í það og skvettið síðan
smá hnetusmjöri yfir.
Ljósmynd/Elenora Rós
Hnetusmjörs-
smákökur að
hætti Elenoru
Hnossgæti Þessar kökur voru
að sjálfsögðu gæðavottaðar af
ritstjórn matarvefjar mbl.is og
fengu fjórar stjörnur.