Morgunblaðið - 27.11.2020, Qupperneq 60
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
Hér á K100 stefnum við ávallt
að því að „hækka í gleðinni“ og
er því viðeigandi að í hverri
viku sé einhverjum gefið upp-
byggilegt hrós.
Það er sér-
staklega mik-
ilvægt að hrósa
því sem vel er
gert. Bæði höf-
um við öll gott
af því að fá
hrós, sem og
að gefa það
áfram. Hvað þá
núna þegar vetur konungur er
mættur í öllu sínu veldi og tak-
markanir vegna Covid hafa ver-
ið gífurlegar.
Algjör jarðýta þegar kemur
að kynfræðslu ungs fólks
Það er söngkonan Stefanía
Svavarsdóttir sem gefur hrós
vikunnar að þessu sinni.
„Ég vil hrósa henni Sólborgu
Guðbrandsdóttur fyrir nýju
bókina sína „Fávitar“ og fyrir
að vera algjör jarðýta þegar
kemur að kynfræðslu ungs
fólks. Hún vílar ekkert fyrir sér
og er svo ótrúlega kraftmikil og
það er svo aðdáunarvert. Svo er
hún líka dásamleg manneskja
og á hrós skilið fyrir það.“
Fylgist með á K100.is þar
sem við höldum áfram með hrós
vikunnar og ef þú lumar á
hrósi, endilega deildu því með
okkur.
Sólborg Guðbrandsdóttir Gefur út bókina Fávitar.
Stefanía Svavarsdóttir Hrósar
Sólborgu fyrir framúrskarandi
starf með ungu fólki.
Hrós vikunnar fær Sólborg Guðbrandsdóttir
„Já, það verður heldur betur stuð á
K100 í dag þegar við förum með
þær Sigurbjörgu Magnúsdóttur,
sigurvegara „Black Friday“-
leiksins, og vinkonu hennar, Jó-
hönnu Laufdal Friðriksdóttur, á
sannkallað
eyðslufyllerí,“
segir Heiðar
Austmann,
þáttastjórnandi
á K100.
Fyrir nokkr-
um vikum fædd-
ist hugmynd um
að taka svartan
föstudag skref-
inu lengra og
vildi Heiðar
gera meira úr
deginum en vanalega.
„Við vorum að spá í hvernig við
gætum tekið svarta föstudaginn
skrefinu lengra og gert hann aðeins
öðruvísi í ár þar sem margt hefur
verið töluvert öðruvísi í ár en síð-
ustu ár. Við höfðum samband við vel
valin fyrirtæki og lögðum fram þá
hugmynd að við kæmum með tvo
hlustendur til þeirra og þessir hlust-
endur myndu ekki þurfa að taka
upp veskið á meðan þeir væru hjá
þeim.
Hlustendurnir yrðu sóttir á bíl frá
Heklu og síðan myndum við rúnta á
milli verslana og fyrirtækja allan
daginn og bjóða upp á vörur og
varning ásamt því að kanna „stemn-
inguna“ hjá þessum fyrirtækjum á
„Black Friday“,“ segir hann.
Fyrirtækin tóku vel í hugmynd-
ina og á facebooksíðu K100 skráðu
ríflega tíu þúsund manns sig til
leiks.
„Óhætt er að segja, miðað við
skráninguna, að við séum að bjóða
upp á skemmtidag sem mjög margir
vilja upplifa. Eina skilyrðið var í
raun og veru að þessir hlustendur
tækju frá allan daginn og væru auð-
vitað með góða skapið með í för og
við sjáum um afganginn,“ segir
hann.
Sigurbjörg og Jóhanna fara því í
dag og heimsækja fyrirtækin Cinta-
mani, Vero Moda í Kringlunni, Ecco
skó, Comma í Smáralind, Tölvutek í
Mörkinni, Vogue fyrir heimilið í
Síðumúlanum og Momo konur í
Nóatúni en alls ekki í þessari röð.
„Hver veit nema það bíði glaðn-
ingur fyrir þær í bílnum líka þegar
þær verða sóttar,“ segir Heiðar.
Sigruðu í „Black Friday“-
leik K100 og eru á leið á
sannkallað eyðslufyllerí
Sigurbjörg Magnúsdótt-
ir og vinkona hennar Jó-
hanna Laufdal Friðriks-
dóttir sigruðu í „Black
Friday“-leik K100.
Vinkonurnar Sigurbjörg og
Jóhanna: Eru spenntar og
þakklátar fyrir sigurinn
Svartur föstudagur
Margir ætla sér að
gera góð góð KAUP.
Bjarni Fritzson er eigandi sjálfstyrk-
ingarfyrirtækisins Út fyrir kassann,
sem heldur meðal annars námskeið
fyrir stráka og stelpur, unglinga,
ungt íþróttafólk og foreldra. Bjarni
er einnig rithöfundur og hefur meðal
annars skrifað bækurnar um Orra
óstöðvandi og Öflugir strákar – Ár-
angur er engin tilviljun.
Í gær kom út bókin Öflugir strákar
– Trúðu á sjálfan þig og tengir Bjarni
bókina við námskeið sitt Öflugir
strákar sem er sjálfstyrking-
arnámskeið fyrir unga stráka.
Bjarni mætti í viðtal til þeirra Ás-
geirs Páls, Jóns Axels og Kristínar
Sifjar í morgunþættinum Ísland
vaknar og ræddi við þau um börn og
mótlæti.
„Bókin og námskeiðið eru svona
byggð upp saman og svo það sem ég
geri í þessari bók er að ég tengi hana
rosa mikið við Orra óstöðvandi-
bækurnar. Ég er kannski að kenna
hvernig á að takast á við mótlæti og
þá er svona lítil saga af því hvernig
Magga Messi tókst á við mótlæti þeg-
ar hún lenti í að meiðast á stóru móti.
Þannig að hún á að vera rosalega að-
gengileg og með fullt af flottum
myndum fyrir krakka,“ segir Bjarni.
Bjarni segir að foreldrar hafi í
raun gert meira fyrir börnin sín und-
anfarin ár en áður fyrr.
„Áður fyrr voru krakkar látnir
gera aðeins meira sjálf og þjálfuðu
þá kannski með sér meiri þraut-
seigju en ef við gerum allt fyrir þau.
Þannig að í raun og veru verðum við
að leyfa krökkunum að takast á við
lítið mótlæti þegar það kemur þegar
þau eru lítil. Til dæmis ef eitthvað
kemur upp á í skólanum sem þú telur
að barnið þitt geti leyst sjálft, þá á að
láta barnið leysa það. Sem dæmi ef
þjálfarinn setur barnið í b-liðið, ekki
þá grípa í símann og hringja í þjálf-
arann og segja honum að hann verði
að bjarga þessu, heldur leyfa
barninu að reyna að vinna sig út úr
því og koma sér aftur í það lið sem
það telur sig eiga heima í. Besta leið-
in til að þjálfa börn í þrautseigju er
að leyfa þeim að takast á við smá
mótlæti og sigrast á því,“ segir
Bjarni.
Bjarni segir foreldra halda sig
vera að gera börnunum gott en í
raun og veru séu þeir alls ekki að því.
„Það sem getur gerst ef þú færð
aldrei að þjálfa þig í að takast á við
mótlæti – og lendir svo í einhverju
miklu mótlæti þegar þú ert táningur
eða eitthvað – þá veistu ekkert
hvernig þú átt að bregðast við og þá
verður höggið svo ótrúlega þungt,“
segir hann.
Viðtalið við Bjarna má sjá í heild
sinni á vef K100.is.
Mikilvægt að börn fái að
leysa vandamálin sjálf
Sjálfsstyrkingarbók Bjarni Fritz-
son segir mikilvægt að börn fái að
vinna sjálf úr vandamálum sínum.
Bjarni mætti í viðtal við þeirra Ásgeirs Páls, Jóns Axels og Kristínar Sifjar
í morgunþættinum Ísland vaknar og ræddi við þau um börn og mótlæti.