Morgunblaðið - 27.11.2020, Qupperneq 62
62 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
✝ Þröstur Ingi-marsson fædd-
ist í Reykjavík 18.
apríl 1963. Hann
lést á líknarstofu
Heilbrigðis-
stofnunar Suð-
urnesja 19. nóv-
ember 2020. Hann
var næstyngsta
barn hjónanna
Ingimars Einars
Ólafssonar, f. 1936,
d. 2016, og Ingibjargar Ólafs-
dóttur, f. 1937, d. 2002. Alsystk-
ini Þrastar eru Ólafur Haf-
steinn, f. 1961, Ingibjörg Hrönn,
f. 1962, og Rúnar Hrafn, f. 1965.
Hálfsystkini Þrastar sammæðra
eru Margrét Helga Ólafsdóttir,
f. 1955, Ásta Guðmundsdóttir, f.
1957, og Þorvaldur Árni Þor-
valdsson, f. 1975. Hálfsystkini
ið 1983 og útskrifaðist síðar sem
kerfisfræðingur frá Tölvu-
háskólanum árið 1988. Hann
starfaði sem slíkur meðal ann-
ars hjá OZ og Orkuveitu Reykja-
víkur. Eins sinnti hann kennslu,
meðal annars hjá Stjórnunar-
félagi Íslands og Rafiðnaðar-
skóla Íslands. Síðustu árin starf-
aði hann sem félagsliði á réttar-
og öryggisgeðdeild Landspítal-
ans.
Hugaríþróttir og síðar pílu-
kast áttu hug Þrastar allan og í
þeim greinum raðaði hann sér í
fremstu röð. Ungur keppti hann
fyrir Íslands hönd í skák með
góðum árangri. Þá var hann um
árabil í landsliðum Íslands í
bridge og pílukasti.
Útför Þrastar fer fram frá
Langholtskirkju í dag, 27. nóv-
ember 2020, klukkan 13.
Vegna fjöldatakmarkana
verður útförinni einnig streymt.
Stytt slóð á streymi:
https://tinyurl.com/y6c4qwzm
Virkan hlekk á streymið má
einnig nálgast á:
https:/www.mbl.is/andlat
Þrastar samfeðra
eru Margrét, f.
1958, og Ólafur
Helgi, f. 1959.
Stjúpfaðir Þrastar
er Þorvaldur Þor-
valdsson, f. 1945.
Þröstur kvæntist
Ingibjörgu Gríms-
dóttur og eignuðust
þau dótturina Ingi-
björgu Sunnu, f.
29.5. 1986. Þau
skildu. Börn Ingibjargar Sunnu
eru Ingibjörg Andrea Jóns-
dóttir, f. 4.2. 2006, og Karl Birg-
ir Jónsson, f. 10.9. 2012. Eftirlif-
andi eiginkona Þrastar er
Elínborg Steinunnardóttir, f.
1973. Sonur hennar er Agnar
Dofri Stefánsson, f. 1995.
Þröstur varð stúdent frá
Menntaskólanum í Kópavogi ár-
Elsku besti Þröstur minn, ég
trúi ekki að þú sért farinn því án
þín get ég ekki lifað. Þú ert svo
góður maður hefur reynst syni
mínum sem faðir í 17 ár og
reynst okkur svo vel í veikindum
hans. Að fá ekki að heyra þig
hlæja, gefa fimmu og taka dans-
spor verður sárt. Heimurinn
verður aldrei eins án þín elskan
mín.
Ég gleymi ekki hvað þú
varðst óánægður með að fá ekki
að fylgjast betur með mér og
heimsækja mig á deildirnar í
veikindum mínum. Harpa vin-
kona okkar var daglegur gestur
í kaffi og þér þótti voða vænt um
hana og gott að fá hana í heim-
sókn, sérstaklega þegar ég var á
spítalanum og þú einn heima eft-
ir 17 ár.
Svo þegar þú veikist komstu
inn á sömu deild og ég. Þar
fengum við að eyða síðustu vik-
unum þínum saman. Þú sagðir
alltaf að það væri ekkert að þér.
Það var svo gott að vera í kring-
um þig og á spítalanum var svo
gott að geta alltaf borðað hádeg-
is- og kvöldmat. Núna get ég
ekki borðað, af því þú ert ekki
með mér. Ég gat heimsótt þig
hvenær sem var, sem var svo
gott. Við ætluðum að vinna þetta
fjandans ár 2020, 2-0, ég færi að
labba og þú að sigrast á krabba-
meininu. Við ætluðum ekki að
láta þetta ár vinna okkur og fyr-
ir þig ætla ég að standa við minn
part, elskan, þú tapaðir baráttu
þinni 17. nóvember.
Það var gott að búa með þér,
við gerðum mikið grín hvort að
öðru og höfðum við það virkilega
gott með dýrunum okkar fjór-
um. Þetta verður erfiðast fyrir
Golíat greyið, hann er svo mikill
pabbakall en þeir fá að koma í
kistulagninguna að kveðja þig
sem betur fer og vonandi skilja
þeir að pabbi þeirra sé farinn.
Það voru margar ferðirnar sem
þú fórst í Sandvíkina með þá ég
kom með ef veðrið var gott.
Við áttum sameiginlegt
áhugamál píluna, þar áttir þú
marga góða vini sem hafa misst
góðan vin. Þú varst vinsæll í píl-
unni og hefur það samfélag
misst mikið. Þegar ég slasaðist
voru það vinir þínir úr pílunni
sem voru til staðar fyrir þig.
Einu sinni fórum við á pílumót á
Akureyri og þú fékst áminningu
fyrir hávaða og Siggi góður vin-
ur þinn kvartaði af hverju
skemmtilegasti maður mótsins
gat verið áminntur.
Ástin mín, ég elska þig enda-
laust og mun sakna þín alla ævi.
Ég stend við mitt loforð og
hugsa um Sunnu og krakkana.
Þín
Elínborg (Ella).
Elsku pabbi. Sorgin er allt-
umlykjandi og við söknum þín
sárt, ég og börnin. Efst í huga er
þó þakklæti. Þú markaðir líf
okkar á afgerandi hátt með góð-
mennsku þinni, æðruleysi, húm-
or og jafnaðargeði. Þú mættir
áskorunum með stóískri ró og
barst af í öllu sem þú tókst þér
fyrir hendur. Allar stundir voru
góðar stundir með þér.
Svo viðkvæmt er lífið sem
vordagsins blóm
er verður að hlíta þeim lögum
að beygja sig undir þann
allsherjardóm
sem ævina telur í dögum.
Við áttum hér saman svo indæla
stund
sem aldrei mér hverfur úr minni.
Og nú ertu genginn á guðanna fund
það geislar af minningu þinni.
(Friðrik Steingrímsson)
Ingibjörg Sunna
Þrastardóttir og börn.
Minn yndislegi bróðir Þröstur
(eða Sössi eins og við fjölskyldan
kölluðum hann) hefur kvatt
þennan heim eftir stutta baráttu
við erfiðan sjúkdóm.
Það var honum mikið áfall að
veikjast, en hann tókst á við
hlutskipti sitt af einstöku æðru-
leysi, staðráðinn í að yfirstíga
sérhverja hindrun sem á vegi
hans varð.
Það var erfitt að vera kippt
svo skyndilega út af vinnumark-
aði og þátttöku í píluæfingum og
mótum með félögum sínum sem
voru hans líf og yndi.
Hann hélt góðu sambandi við
vinnufélaga og píluvini allt fram
að hinsta degi og var það honum
mikils virði. Alltaf var stutt í
hláturinn og grínið og sagðist
hann stundum ekki fara á vakt
þennan daginn en kannski síðar.
Hann bar mikið traust og þakk-
læti til allra sem önnuðust hann
í veikindum sínum, en síðustu
vikurnar lá hann á Heilbrigð-
isstofnun Suðurnesja (HSS) þar
sem hann lést í faðmi fjölskyld-
unnar.
Ég minnist Þrastar með
þakklæti og hlýju og höfum við
systkinin ætíð haldið góðu sam-
bandi og glaðst yfir þeim tíma
sem við áttum saman í annríki
dagsins. Við ólumst upp í for-
eldrahúsum og hafði Þröstur
gaman af því að láta okkur
systkinin leysa hinar ýmsu
stærðfræðiþrautir og kenndi
okkur að tefla og spila vist og
kana og síðar bridge og oft var
glatt á hjalla. Það gat verið
áskorun að spila með Þresti,
enda kappsamur og staðráðinn í
að vinna. Á æskuárunum var
hann alltaf skemmtilegur og
uppátækjasamur og átti það til
að bæta nokkrum jólagjöfum
undir tréð merktum sér frá jóla-
sveininum ef honum fannst vera
þunnt smurt þau jólin.
Á háskólaárum okkar bjugg-
um við Þröstur saman í mið-
bænum, ekki langt frá æsku-
heimili okkar á Þórsgötu. Ég
minnist þess tíma með þakklæti
og mun sakna nærveru hans,
hlýju og hans einstöku sýn á lífið
og tilveruna, rökvísinnar, hlát-
ursins, stríðnislegs glottsins og
húmorsins sem aldrei var langt
undan. Þröstur átti eina dóttur,
Ingibjörgu Sunnu, sem sér nú að
baki ástkærum föður sínum.
Hvíl í friði kæri bróðir.
Hrönn systir.
Mig langar til að minnast
Þrastar bróður míns í nokkrum
orðum og þegar ég lít yfir farinn
veg þá koma æskuminningarnar
hvað sterkast í gegn.
Það var alltaf líf og fjör á
æskuheimili okkar við Þórsgötu.
Við vorum mörg í heimili og
stutt á milli okkar systkinanna í
aldri. Frá því að ég man eftir
mér sem krakki og fram að ung-
lingsárum lékum við Þröstur
okkur saman flestum stundum
utan skóla. Til að það væri gam-
an þurftum við alltaf að vera að
keppa; einhver varð að vinna,
annars var ekkert varið í leikinn.
Allt frá því að rúlla kúlum í tin-
dáta eða skjóta þá með teygju í
að spila fótbolta á Skólavörðu-
holtinu og handbolta á vellinum
hjá Vörðuskóla fram í myrkur.
Flesta daga vorum við saman og
Þröstur passaði upp á mig þar
sem hann var tveimur árum
eldri.
Hann var yfirburðamaður á
heimilinu í skák og mátaði mig
gjarnan með bakið í taflið, ég
held ég hafi aldrei svo mikið sem
náð jafntefli við hann. Á jólum
og öðrum hátíðisdögum var mik-
ið spilað á okkar æskuheimili.
Alveg sama hvort það var
bridge, vist eða kani þá stóð
hann yfirleitt uppi sem sigurveg-
ari í lok kvölds og stundum flugu
spilin frá mér yfir borðið eftir
sárt tap. Þröstur naut þess að
vinna þessa leiki, stundum var
það mitt eina svar að reyna að
lumbra aðeins á honum og við
flugumst á þar til annar gafst
upp. Þar hafði ég kannski oftar
betur af því að ég gat orðið svo
brjálaður eftir að hafa tapað.
Ég var 11 ára og Þröstur 13
ára þegar við fluttum í Víði-
grundina í Kópavoginum. Þar
áttum við nokkur góð ár saman í
boltaleikjum í dalnum og flesta
daga var farið í handbolta
(sokkabolta) á svefnherbergis-
ganginum. Myndir og aðrir
munir sem mamma hafði komið
fyrir á ganginum viku smátt og
smátt og var forðað frá
skemmdum.
Þröstur lifði alltaf í núinu og
fyrir það sem hann hafði áhuga
á; hvort heldur sem það var
skák, bridge eða píla þá átti það
hug hans allan og árangurinn
var eftirtektarverður. Þegar
hann afboðaði sig í fjölskyldu-
boðin í gegnum tíðina var það
vegna þess að hann þurfti að
keppa í bridge eða pílu á sama
tíma og fór ekkert á milli mála
hvað hafði forgang hjá honum.
Um tíma bjó hann hjá okkur
Birnu í kjallaranum á Urðar-
stígnum og þá var gaman að
kíkja í kjallarann og kasta pílu
eða spjalla.
Þröstur fór sínar eigin leiðir,
var glaðlyndur, forðaðist átök og
erjur en gat samt verið þrjósk-
ur. Það var alltaf gaman að vera
með Þresti, mikill húmoristi og
alltaf stutt í hans hlýja innilega
tárahlátur og alltaf voru létt og
skemmtileg umræðuefni.
Á milli okkar var alltaf hlýtt
og gott samband þó svo sam-
gangur hafi ekki alltaf verið
mikill í seinni tíð.
Ég geymi minningar um góð-
an dreng og kæran bróður.
Rúnar.
Nú hefur hann Þröstur bróðir
minn kvatt þennan heim eftir
erfið veikindi. Þröstur var fjórði
í aldursröð okkar sex systkin-
anna sem ólumst upp saman á
Þórsgötu í Reykjavík og síðar í
Víðigrundinni í Kópavogi.
Það er stutt á milli okkar
systkinanna í aldri og þráðurinn
okkar á milli var þéttur í upp-
vextinum. Það var oft mikið fjör,
íþróttir, spil og leikir. Eins og
gengur oft einhver metingur.
Flestu var stillt upp sem keppni.
Til að jafnvægis væri gætt og
eining héldist í systkinahópnum
passaði mamma upp á að líkt
væri gert við alla. Það gerðist þó
á jólum að Þröstur fékk stund-
um fleiri jólagjafir en við hin,
gjafirnar komu frá jólasveinin-
um og einu sinni man ég að hann
fékk líka gjöf frá aðdáanda.
Þessar gjafir orsökuðu öfund
okkar hinna, við vorum stund að
átta okkur á að jólasveinninn og
aðdáandinn hans Þrastar voru
einn og sami maðurinn, hann
sjálfur.
Við bræðurnir spiluðum oft og
tefldum, yfirleitt vann Þröstur,
jafnvel þótt hann sneri baki í
taflborðið og tefldi við tvo eða
fleiri í einu.
Þröstur var skarpgreindur,
kurteis og ljúfur. Hann var hæg-
látur og hljóðlátur, lét ekki mik-
ið fyrir sér fara. Þröstur var af-
reksmaður og náði miklum
árangri í því sem hann tók sér
fyrir hendur í leik sem starfi. Ís-
landsmeistaratitlarnir hans
Þrastar eru ófáir, þeir komu fyr-
ir skák, bridge og pílukast. Það
skipti Þröst öllu að vinna hverja
keppni, verðlaunagripirnir
skiptu minna máli og stór stafli
verðlaunagripa Þrastar er í
kjallaranum hjá mér og hefur
verið í mörg ár.
Einn besti vinur Þrastar, liðs-
félagi í pílunni, er líka afreks-
maður í golfi. Þröstur nefndi það
við mig í sumar að gaman væri
að prófa golfið, ég áttaði mig
fljótt á að hann langaði að skáka
vini sínum á golfvellinum. Hann
var ótrúlegur keppnismaður.
Þröstur var útskrifaður tölv-
unarfræðingur, hann vann heil-
mikið við fagið við forritun og
kennslu. Hann vann við forritun
hjá OZ, þá mest með starfsstöð í
Svíþjóð. Við Þröstur unnum tals-
vert saman í tölvugeiranum, inn-
leiddum meðal annars tölvunotk-
un við úrvinnslu gagna á
hestamannamótum, smíðum
stóðhestavef Eiðfaxa og Þröstur
vann við forritun fyrstu útgáfu
WorldFengs sem er uppruna-
ættbók íslenska hestsins. Hann
kenndi hjá Stjórnunarfélagi Ís-
lands, við Tölvuskóla Halldórs
Kristjánssonar og við Tölvuskóla
Rafiðnaðarsambandsins. Í seinni
tíð starfaði Þröstur svo á Lands-
spítalanum sem gæslumaður á
réttar- og öryggisgeðdeild.
Þröstur var ekki upptekinn af
lífsgæðakapphlaupinu, hann lifði
fyrir daginn í dag og athygli
hans og orka fór í það sem hann
fann sig í þá stundina. Við systk-
inin heyrðum minna frá Þresti í
seinni tíð, hann var sjálfum sér
nógur og varði tímanum með
Ellu sinni sem hann giftist sum-
arið 2019, eftir margra ára sam-
búð. Tíðindin af giftingu þeirra
Þrastar og Ellu bárust okkur
systkinum Þrastar á facebook að
giftingu lokinni, Þröstur gerði
ekki mikið úr hlutunum.
Elsku bróðir, takk fyrir allt
sem þú gafst af þér, hvíldu í
friði. Minningin um einstakan
mann lifir. Þinn bróðir,
Ólafur H. Einarsson.
Í dag kveðjum við Þröst eða
eins og við vinirnir oft kölluðum
hann, „Bíbí“, með hlýju og sökn-
uði.
Í okkar hópi ríkir nú mikil
sorg en í senn mikil lotning fyrir
minningu um fallna hetju. Þú
kynntir mér pílukast fyrir all-
nokkrum árum. Ég á margar
góðar minningar með þér sem
nú streyma nú fram þegar ég
sest hér niður til að skrifa til þín
hinstu kveðju. Þú varst alltaf svo
stoltur af mér þegar ég vann þig
í leik; þrátt fyrir að þú tapaðir
varstu svo stoltur af mér þar
sem ég var afleggjari frá þér í
pílunni. Man ég þegar pílan var
húsnæðislaus eitt árið, þá tókst
þú málin í þínar hendur og leigð-
ir stórt húsnæði og settir upp
aðstöðu fyrir bæði áhugamálin
þín, píluna og bridge. Það var
gaman að standsetja þetta hún-
sæði með þér ásamt öðrum vin-
um og fjölskyldu.
Þú varst einstakur, Þröstur,
einstakt eintak af manni að mínu
mati. Þú gafst seint þinn hlut og
talaðir oft ekki til vinsælda. En
það var oft sem á því var þörf.
Þú hafðir þínar skoðanir og
varst ófeiminn við að opinbera
þær. Skapaðir margar góðar og
hressilegar umræður innann
hópsins. Fannst mér oft gaman
að takast á við þig í orði eins og í
leik.
Þú ferðaðist víða um heiminn,
þú áttir vini um alla veröld. Þú
varst oft í tveimur landsliðum á
sama tíma; pílu og í bridge.
Stundum var erfitt fyrir þig að
púsla saman í hvaða landsliðs-
ferð þú ætlaðir. Þú varst mikill
gleðipinni og var gaman að
ferðast með þér innanlands sem
utan. Það var alltaf jafn gaman
að sjá þig vinna mikla spennu-
leiki í pílunni, þegar þú tókst
þinn gleðidans. Hvernig þú
spriklaðir um og fékkst flesta
sem sáu þig til að springa úr
hlátri því það verður að viður-
kennast að þú hafðir ekki mikla
danshæfileika og voru þessi spor
þín algjörlega einstök. Það var
alltaf jafn gaman að sjá þig taka
þessi frábæru spor.
Nú í vor greindist þú skyndi-
lega með heilaæxli. Þú tókst því
með einstöku æðruleysi og barð-
ist hetjulega við sjúkdóminn.
Drekinn þinn kom eins og
þruma aftan að öllum, því að þín
heittelskaða kona lenti í hörmu-
legu slysi í janúar, héldum við að
það hefði verið nóg á ykkur lagt.
Þú varst búinn að vera hennar
stoð og stytta og þegar hún var
að komast aftur á kreik greinist
þú með þinn sjúkdóm. Þetta var
allt saman eitthvað svo óraun-
verulegt og er enn.
Ég er þakklát fyrir að hafa
fengið að kynnast þér, með
trega í hjarta kveð ég þig elsku
vinur.
Ég mun alltaf minnast þín
með bros á vör og verð ævinlega
þakklát fyrir allar dýrmætu
góðu minningarnar sem þú hef-
ur gefið mér í gegnum árin.
Ella mín, Sunna, Andrea,
Kalli, Agnar og aðrir ástvinir,
sendi ég ykkur mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur. Megi allar
góðir vættir í heiminum gefa
ykkur styrk á þessum erfiðu
tímum.
Góðar minningar um einstak-
an mann munu lifa í hjörtum
okkar allra.
Hvíl í friði Bíbí.
Petrea Kr. Friðriksdóttir.
Þvílíkt reiðarslag var að
heyra það að þú værir dáinn,
maður á besta aldri og áttir allt
lífið framundan. Þú sem hafðir
allt að bera og varst svo hörku-
duglegur. Ég hafði fengið fregn-
ir að þú hefðir veikst en ég fann
það á mér að þú myndir rífa þig
upp úr þessu því að viljastyrk-
urinn var eitthvað sem þú svo
sannarlega hafðir.
Ég man að við höfðum hist
áður þar sem við áttum nú sam-
eiginlega vini en ekki gat ég sagt
að ég hafi byrjað að kynnast þér
fyrr en við fórum að vinna sam-
an á Öryggisgeðdeildinni og þar
byrjuðu kynnin. Þú varst öðling-
smaður og alltaf vildir þú allt
fyrir alla gera. Þú varst fluttur í
Hafnir og ég í Ásbrú, ekki vant-
aði almennilegheitin þar sem þú
bauðst til þess að sækja mig og
við gátum verið samferða í vinn-
una. Það var rosalega gott að
leita til þín þar sem þú áttir svo
auðvelt með að gefa þér tíma til
að rétta manni hjálparhönd, eins
og t.d. í sambandi við tölvumál
þar sem ég var gjörsamlega
blautur á bak við eyrun en þú
ávallt til staðar. Ég get nefnt
dæmi þar sem ég og kærastan
mín vörum föst á Reykjanes-
brautinni og ég á leiðinni í vinn-
una, þá sprakk hjá mér dekk og
ég var gjörsamlega strandaglóp-
ur í þessum nístingskulda í
marsmánuði. Þá hringdi ég í
Þröst og ekki varstu lengi að
koma mér til hjálpar og keyrðir
mig í vinnuna. Ég gæti skrifað
endalaust um þig en það væri
efni í heila bók. Ég er mjög
ánægður að hafa fengið að kynn-
ast þér og mun ég aldrei gleyma
þér. Þú munt ávallt vera í mínu
hjarta.
Kæra Ella og Sunna, ég sendi
ykkur mínar innilegu samúðar-
kveðjur og mun ég biðja góðan
Guð að styrkja ykkur á þessum
sorgartíma.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Guðmundur Árni
Sigurðsson.
Lítill fugl á laufgum teigi
losar blund á mosasæng,
heilsar glaður heiðum degi,
hristir silfurdögg af væng.
Flýgur upp í himinheiðið,
hefir geislastraum í fang,
siglir morgunsvala leiðið,
sest á háan klettadrang.
Þykist öðrum þröstum meiri,
þenur brjóst og sperrir stél,
vill að allur heimur heyri,
hvað hann syngur listavel.
Skín úr augum skáldsins gleði,
skelfur rödd við ljóðin ný,
þó að allir þrestir kveði
þetta sama dírri-dí.
Litli fuglinn ljóða vildi
listabrag um vor og ást.
Undarlegt að enginn skyldi
að því snilldarverki dást.
(Örn Arnarson)
Sú harmafregn barst um
helgina að elsku Þröstur, pabbi
hennar Sunnu okkar, væri dá-
inn. Þessi ljúfi og góði maður
sem greindist með heilaæxli í
sumar er nú allur. Sunna hugs-
aði vel um pabba sinn þennan
stutta tíma sem hann átti eftir í
jarðvist sinni og Þröstur sýndi
æðruleysi og styrk í veikindum
sínum. Þröstur var vinmargur,
hrókur alls fagnaðar enda
skemmtilegur og fyndinn með
góða nærveru, ótrúlega góður í
skák og bridge og vel liðinn í
vinnu. Nú er skarð fyrir skildi,
mikill er missir fjölskyldu og
ættingja og sár söknuður. Minn-
ing Þrastar mun lifa með okkur
um ókomna tíð. Fjölskyldu
Þrastar sendum við innilegar
samúðarkveðjur.
Ingibjörg Grímsdóttir
og fjölskyldan
Kleppsvegi 106.
Þröstur
Ingimarsson