Morgunblaðið - 27.11.2020, Blaðsíða 63
MINNINGAR 63
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
✝ Helga ElsaJónsdóttir
fæddist 16. ágúst
1931 í Reykjavík.
Hún lést á heimili
sínu 25. október
2020. Foreldrar
hennar voru hjónin
Jón Friðrik Matt-
híasson loftskeyta-
maður, f. 1901, d.
1988, og Jónína
Jóhannesdóttir
húsmóðir, f. 1907, d. 1996.
Systkini hennar eru: Jóhannes
Helgi, f. 1926, d. 2001, Björg S.,
f. 1929, Hrönn, f. 1933, d. 2017,
Matthildur, f. 1936, Marsibil, f.
1938, Ólafur, f. 1940, Ingibjörg
K., f. 1942, Elín, f. 1944, og
Matthías J., f. 1945.
Maki Björn Stefán Bjart-
marz, f. 17.5. 1930, d. 17.3.
2012. Þau giftust 16.10. 1954.
Börn þeirra eru: 1) Jónína,
frkvstj., áður alþingismaður og
ráðherra, f. 23.12. 1952, gift
Pétri Þór Sigurðssyni lög-
manni, f. 29.3. 1954. Synir
þeirra: a) Birnir Orri, stjórn-
málafræðingur og heimspek-
ingur, f. 25.6. 1985, sambýlisk.
hans er Anna M. Ingólfsdóttir
félagsráðgjafi, b) Ernir Skorri,
lögfræðingur og frkvstj., f. 27.2.
ur Ingibjörgu Jóhannsdóttur
leikskólakennara, f. 14.10. 1959.
Börn þeirra; a) Guðrún hjúkr-
unarfræðingur, f. 11.3. 1982,
sambýlism. Þorri Björn Gunn-
arsson verkfræðingur, synir
þeirra eru Alexander Jóhann, f.
17.7. 2007, og Emil Arnar, f.
2.12. 2014, b) Arnar lögfræð-
ingur, f. 18.3. 1988. 4) Björn
lögreglufulltrúi, f. 23.4. 1962.
Dóttir hans og Rögnu Lóu Stef-
ánsdóttur, fyrrv. sambýlisk., er
Elsa Hrund þjónustustjóri, f.
29.6. 1993, sambýlism. Hinrik
H. Marinósson. Eiginkona
Björns er Sigríður María Jóns-
dóttir lögfræðingur, f. 10.12.
1970, börn hennar og stjúpbörn
Björns eru: Jóhann Gunnar,
MSc-nemi í verkfræði, f. 8.10.
1995, sambýlisk. Guðrún S. Þór-
hallsdóttir MSc-nemi í lyfjavís-
indum, Tómas Ingi verk-
fræðinemi, f. 16.12. 1999, og
Eva María menntaskólanemi, f.
17.8. 2004.
Elsa fæddist í Reykjavík og
bjó þar nær alla sína ævi. Hún
lauk gagnfræðaprófi frá Aust-
urbæjarskólanum. Eftir skóla-
göngu vann hún lengst á Loft-
skeytastöðinni í Gufunesi og
þar kynntist hún eiginmanni
sínum, Birni Stefáni heitnum.
Síðar vann hún í Jónasarbúð í
Búðargerði, á Löggildingarstof-
unni og í 26 ár hjá Lög-
reglustjóranum í Reykjavík.
Útför Elsu fór fram í kyrrþey
frá Árbæjarkirkju 20. nóv-
ember 2020.
1989, sambýliskona
hans er Harpa
Guðlaugsdóttir við-
skiptafræðingur,
börn þeirra eru
Pétur Úlfar, f. 7.11.
2015, og Móey, f.
11.10. 2018. 2) Ósk-
ar yfirlög-
regluþjónn, f. 14.3.
1956. Börn hans og
fyrrv. eiginkonu,
Kristínar I. Gunn-
arsdóttur hjúkrunarfræðings;
a) Björn Rúnar sérfræðingur, f.
19.11. 1977, b) drengur, f. og d.
29.11. 1979, c) Brynhildur Ásta
þyrluflugmaður, f. 23.12. 1980.
Synir Björns og fyrrv. eig-
inkonu hans, Helgu J. Stef-
ánsdóttur, eru Fenrir Dagur, f.
8.3. 2014, og Ægir Máni, f. 17.2.
2015. Eiginmaður Brynhildar
er Eiríkur Jónsson verkfræð-
ingur, börn þeirra eru Kristín
Ósk, f. 16.5. 2014, og Jón Gunn-
ar, f. 12.4. 2017. Sambýliskona
Óskars er Svava Schiöth flug-
freyja, f. 19.11. 1957, sonur
þeirra er Ottó Axel, BS í kvik-
myndaframleiðslu, f. 7.11. 1996,
eiginkona hans er Cristina
Bjartmarz, BA í kvikmynda-
fræðum. 3) Jón Friðrik yfirlög-
regluþjónn, f. 27.8. 1957, kvænt-
Með þessum orðum langar
mig að minnast elsku Elsu,
tengdamömmu minnar, sem lést
í faðmi fjölskyldunnar á heimili
sínu hinn 25. október sl. Kær-
leiksrík og ákveðin kona með
sterkan persónuleika, stórt
hjarta og hlýjan faðm sem öllum
vildi vel og allt fyrir alla gera.
Við sem nutum þeirra forrétt-
inda að fá að verða henni sam-
ferða stöndum í ævarandi þakk-
arskuld fyrir þá miklu umhyggju
sem hún sýndi okkur um leið og
við minnumst eldklárrar konu,
sem hafði svo mikið að gefa og
frá mörgu skemmtilegu að
segja.
Elsa var ætíð svo innilega
stolt af fólkinu sínu og áhuga-
söm um líf okkar, dugleg að
hrósa öllum um leið og stutt var
í húmorinn og glettnina alveg
fram á síðasta dag.
Það var einstakt hvernig hún
og Björn heitinn tóku á móti
mér og börnum mínum þegar
við Bjössi urðum ástfangin. Elsa
rifjaði oft ljúflega upp, nú síðast
á dánarbeðnum, þegar þau hjón-
in hittu börnin mín í fyrsta sinn.
Þau tóku þeim opnum örmum
og frá þeirri stundu voru þau
elskuð eins og öll hin barnabörn-
in og fyrir það eru ég og börnin
svo innilega þakklát.
Elsa kvaddi þennan heim um-
vafin ást og kærleik og í veik-
indum hennar var svo fallegt að
upplifa hvað fjölskyldan annað-
ist hana af mikilli alúð og vænt-
umþykju og hvað börn hennar
og barnabörn bera henni fagurt
vitni. Ég er bæði stolt og þakk-
lát fyrir að vera hluti af svona
sterkri og einstakri fjölskyldu.
Takk fyrir allt elsku Elsa
mín, það hefur verið dýrmætt að
fá að eiga þig að og söknuður
okkar allra er mikill. Minning
þín lifir í hjörtum okkar allra.
Hvíl í friði.
Þín
Sigríður María Jóns-
dóttir (Sigga Maja).
Í gegnum tíðina þegar ég hef
heyrt orðið kvenskörungur þá
hefur mér alltaf orðið hugsað til
ömmu Elsu. Hún var einstök
kona, mikill karakter og töffari.
Hún lét ekki bjóða sér hvað sem
var og var óhrædd við að segja
ef henni líkaði ekki eitthvað.
Ég á sterka minningu af
henni frá því að Arnar bróðir
var hvað veikastur. Þá misbauð
henni og öllum í kring fram-
koma heilbrigðisstarfsmanns
sem hafði komið í heimsókn og
hún og Jóhann móðurafi minn,
sem einnig var mjög ákveðinn
maður, létu vel í sér heyra. En
þó að amma væri ákveðin tók
hún fólki alltaf opnum örmum og
mátti ekkert aumt sjá. Hún var
skemmtileg og með mikinn húm-
or, ekki síst fyrir sjálfri sér.
Hún var alltaf svo stolt af
okkur stórfjölskyldunni sinni og
dugleg að safna okkur saman.
Eitt af því sem mér fannst hvað
aðdáunarverðast við hana var
hvað hún var óhrædd við að tak-
ast á við ný viðfangsefni. Hvort
sem það var að ferðast um heim-
inn, læra að mála eða spila golf.
Hún var glæsileg kona með
skemmtilegan fatasmekk og var
óhrædd við að klæðast litríkum
fötum. Heimilið hennar bar þess
einnig merki hvað hún var litag-
löð og hrifin af margs konar
smáhlutum sem sumir kalla
glingur. Þar eigum við eitthvað
sameiginlegt.
Ég á margar góðar minningar
tengdar ömmu Elsu og afa
Birni.
Þau voru alltaf samstiga þótt
þau væru ólík. Maður fann hvað
hlýtt var á milli þeirra jafnvel þó
að amma ætti það til að tuða
svolítið í afa. Við frænkurnar
fengum oft að gista hjá ömmu
og afa í Norðurásnum og þá var
sko stuð. Mér er sérstaklega
minnisstætt hversu dugleg þau
voru að fara með okkur barna-
börnin í leikhús og á söfn.
Eftir því sem ég verð eldri
þykir mér æ vænna um að sjá
hvað þau voru dugleg að skrifa
kveðjur og fróðleik inn í bækur
sem þau hafa gefið mér. Þar er
ýmsan fróðleik að finna enda
voru amma og afi bæði mjög vel
lesin og fróð.
Mér þykir mjög vænt um
stundirnar sem við áttum saman
síðasta mánuðinn áður en hún
kvaddi okkur. Þær gáfu manni
mikið þótt þær væru einnig erf-
iðar.
Á rúmum tveimur mánuðum
hafa báðar ömmur mínar kvatt
þennan heim. Það var því mjög
táknrænt að líta út um stofu-
gluggann morguninn eftir að
amma Elsa lést og sjá tvo smá-
fugla sitja á þakskegginu á
næsta húsi.
Læt fylgja með ljóðið sem
minnir mig alltaf á ömmu Elsu
og heyri hana syngja það í hug-
anum.
Lóan er komin að kveða burt
snjóinn,
að kveða burt leiðindin, það getur
hún.
Hún hefur sagt mér að senn komi
spóinn,
sólskin í dali og blómstur í tún.
Hún hefur sagt mér til syndanna
minna,
ég sofi of mikið og vinni ekki hót.
Hún hefur sagt mér að vaka og
vinna
og vonglaður taka nú sumrinu mót.
(Páll Ólafsson)
Hvíl í friði elsku amma mín.
Nú ertu komin heim til afa.
Þín
Guðrún.
Í dag kveð ég ömmu Elsu.
Minningunum frá því í sumar og
haust skýtur fyrst upp í hugann,
gönguferðirnar að bekknum þín-
um, ferðin í bókabúðina og
skemmtilegu og fróðlegu sam-
tölin sem við áttum á þessum
stundum.
Þá eru það minningarnar um
allar ferðirnar austur í höll sum-
arlandsins með okkar nánustu.
Það er gott að eiga minningar
eins og þessar á svona stundum.
Það var aðdáunarvert og mikill
lærdómur í því hvernig þú til-
einkaðir þér nýja hluti, hvort
sem það var að mála, spila golf
eða læra á snapchat til að vera í
nánara sambandi við barnabörn-
in og barnabarnabörnin.
Það var ekkert sem stoppaði
þig. Nokkuð sem ég vona að ég
geti tileinkað mér.
Hvíldu í friði amma mín.
Arnar Bjartmarz.
Helga Elsa
Jónsdóttir
✝ Áróra Helga-dóttir fæddist í
Reykjavík 21. júlí
1923. Hún lést í
Sunnuhlíð í Kópa-
vogi 12. nóvember
2020. Foreldrar
hennar voru Helgi
Guðmundsson, f.
13.4. 1889, og Ást-
rós Sigurðardóttir,
f. 17.10. 1892.
Systkini Áróru
voru Guðríður Málfríður, f. 2.7.
1916, d. 19.7. 1994, versl-
unarmaður. Guðbjartur Magn-
ús, f. 22.8. 1917, d. 30.7. 1949,
gullsmiður. Eygló, f. 25.1.
1919, d. 22.9. 1938. Guð-
mundur, f. 20.5. 1920, d. 26.2.
1990, verkamaður. Sveinn, f.
31.10. 1921, d. 8.1. 1922. Ólöf
1973, og Helga, f. 8.4. 1977.
Börn Sólveigar eru Jóhannes
Hjaltason, f. 20.11. 1972, d.
29.8. 1991, Árni Kristinn Gunn-
arsson, f. 10.4. 1980, Hörður
Gunnarsson, f. 4.10. 1981, og
Gunnar Snær Gunnarsson, f.
17.12. 1991. Langömmubörnin
eru níu.
Áróra starfaði við ýmis
verksmiðjustörf auk þess að
vera húsmóðir.
Útför Áróru fer fram frá
Digraneskirkju í dag, 27. nóv-
ember 2020, klukkan 13.
Vegna aðstæðna verða aðeins
nánustu aðstandendur við-
staddir en streymt verður frá
athöfninni:
https://youtu.be/DYfSLYQlGo0
Virkan hlekk á slóð má nálg-
ast á:https://www.mbl.is/andlat
Hulda, f. 18.3.
1925, d. 1925.
Ásta, f. 17.10.
1926, d. 22.10.
2020, húsmóðir.
Sigurður, f. 23.11.
1933, d. 1933. Elín,
f. 8.8. 1936.
Hinn 20. janúar
1945 giftist Áróra
Jóhannesi Krist-
berg Árnasyni, f.
24.7. 1921, d. 10.6.
2004. Börn þeirra eru: Árni, f.
30.1. 1948, og Sólveig, f. 27.3.
1952. Maki Árna er Laufey
Valdimarsdóttir, f. 7.3. 1946.
Maki Sólveigar er Gunnar
Árnason, f. 21.6. 1952. Börn
Árna eru Sigurlaug Margrét
Guðmundsdóttir, f. 30.11. 1967,
Jóhannes Kristberg, f. 3.8.
Þótt móðir mín
sé nú aðeins minningin ein
mun ég ávallt minnast hennar
með glöðu geði
og dýpstu virðingu,
hugheilu þakklæti
og hjartans hlýju,
fyrir allt og allt.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Sólveig.
Elsku amma Róra, nú hefur
þú kvatt í hinsta sinn og eftir
sitjum við með margar góðar
minningar.
Efst í huga eru óteljandi
samverustundir okkar í sum-
arbústaðnum við Meðalfells-
vatn og heimsóknir til ykkar
afa í Efstahjallann þar sem vel
var tekið á móti okkur með
hlýjum knúsum og kossum. Við
munum sakna þessara dýr-
mætu stunda um ókomna tíð.
Langömmubörnin þín Ilmur
og Ernir skila kveðju. Ilmur
kom svo oft með ömmu sinni og
afa til þín í Sunnuhlíð síðustu
árin. Þau systkinin tala mikið
um hvað þau sakna langömmu.
En við segjum þeim að þú hafir
átt langt og gott líf og loksins
fengið að fara til Jóa langafa og
nafna frænda.
Takk fyrir óendanlega ást og
umhyggju. Við sjáumst síðar,
yndislega amma.
Helga og Jóhannes.
Elsku amma, það eru margar
góðar minningar sem koma upp
í hugann þegar ég læt hann
reika aftur í bernskuna. Þið afi
voruð okkur bræðrunum svo
góð og það var ómetanlegt að
búa í sama stigagangi og þið
efst í Efstahjallanum fyrstu ár-
in.
Í minningunni er eins og ég
hafi hlaupið upp stigann á
hverju einasta kvöldi, sest í
fangið á afa og bankað á nef-
tóbaksdósina hans á meðan þú
sóttir eplasafa handa mér og
stundum Pepsi eða Sprite (eða
Pefsí og Sprey eins og þið köll-
uðuð það). Svo sátum við oft og
spiluðum fram eftir kvöldi og
áður en ég fór heim laumaðir
þú stundum að mér nokkrum
hundraðköllum. Þegar við flutt-
um svo neðst í Efstahjallann
var aðeins lengra að fara, en
það stoppaði mig ekki í að
stökkva á milli. Ég man að ég
hljóp alltaf til ykkar eins hratt
og ég gat og tók tímann í hvert
skipti.
Sumarbústaðurinn við Með-
alfellsvatn var algjör paradís
og í minningunni vorum við þar
hverja einustu helgi. Ég sótti
mikið í að fá að fljóta með ykk-
ur afa, frekar en með mömmu
og pabba.
Ég viðurkenni að það var að
hluta til vegna þess að það var
auðveldara að fá ykkur til að
stoppa í sjoppu á leiðinni, en
ekki síður vegna þess að það
var svo gaman að sitja í bílnum
með ykkur og spjalla þótt hann
hafi stundum verið reykfylltari
en hollt myndi teljast í dag.
Það var alveg sama hvað ég
tók mér fyrir hendur, alltaf
studduð þið afi mig með ráðum
og dáðum, hvort sem það var í
fótboltanum, náminu eða bara í
lífinu almennt. Ég er svo óend-
anlega þakklátur fyrir allan
stuðninginn og samverustund-
irnar sem ég átti með þér elsku
amma og mun alltaf minnast
þín með hlýju í hjarta.
Þér fannst ofsalega gaman
að segja sögur af okkur bræðr-
unum og það kom fyrir að þú
segðir sömu söguna oftar en
einu sinni. Sagan sem þú sagðir
oftast var af því þegar við vor-
um að tala saman um Guð þeg-
ar ég var örugglega um fimm
ára gamall.
Ég man ekki nákvæmlega
hvert umræðuefnið var, en sag-
an endaði alltaf á því að ég átti
að hafa sagt brúnaþungur: „Ég
vil ekki fara til Guðs því þá
kem ég aldrei aftur.“ Þú náðir
sjaldan að klára setninguna því
þú hlóst svo mikið með grófa
en glaðlega hlátrinum þínum
sem ég sakna svo mikið.
Og nú er svo komið að þú ert
farin til Guðs og kemur aldrei
aftur, en minningin um ynd-
islegustu ömmu sem hægt er að
hugsa sér mun lifa og ylja mér
um hjartarætur um ókomna tíð.
Takk fyrir allt, elsku besta
amma.
Árni Kristinn Gunnarsson.
Amma mín var alveg ynd-
isleg kona. Ég veit að hún pass-
aði mig oft þegar ég var lítill,
þótt ég muni ekki mikið eftir
því. Ég fór oft með ömmu og
afa í sumarbústað hér og þar.
Þær helgar með þeim voru allt-
af skemmtilegar.
Ömmu þótti rosalega gaman
að spila. Ég man eftir ófáum
stundum þar sem við sátum
saman og spiluðum manna og
rússa. Síðast þegar við spiluð-
um rússa var amma komin vel
yfir nírætt og ég átti enn fullt í
fangi með hana.
Ég mun sakna ömmu Áróru
mjög.
Gunnar Snær.
Áróra Helgadóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HELGA ELSA JÓNSDÓTTIR,
Eirarhúsum 5, Reykjavík,
lést á heimili sínu laugardaginn 31. október.
Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að
hennar eigin ósk, að viðstöddum nánustu
aðstandendum.
Jónína Bjartmarz Pétur Þór Sigurðsson
Óskar Bjartmarz Svava Schiöth
Jón Friðrik Bjartmarz Ingibjörg Jóhannsdóttir
Björn Bjartmarz Sigríður María Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
DÓRA MARÍA INGÓLFSDÓTTIR,
Miðleiti 7,
áður Álfheimum 4,
lést föstudaginn 13. nóvember.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju
mánudaginn 30. nóvember klukkan 15.
Vegna aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir
en útförinni verður jafnframt streymt á eftirfarandi slóð:
https: //www.facebook.com/Útför-Dóru-Maríu_Ingólfsdóttur-10
2564361697299/
Lilja Sigurðardóttir
Anna Sigurðardóttir Konráð Ingi Jónsson
Erna Sigurðardóttir Tonny Espersen
Gylfi Ingi Sigurðsson
Berglind Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
KATLA VIGDÍS HELGADÓTTIR,
lést á Landspítalanum Fossvogi
laugardaginn 21. nóvember.
Útför auglýst síðar.
Ólafur Bragi Ásgeirsson María Björk Traustadóttir
Ásgeir Þór Ásgeirsson
barnabörn og barnabarnabarn