Morgunblaðið - 27.11.2020, Page 72
72 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
Magnús Ólafsson
Glæsileg lituð ljósmynd frá Þingvöllum
1914, í ramma, stærð 100/80.
Höfundur Magnús Ólafsson (1862 - 1937).
Upplýsingar í síma 898 9475.
Tilkynningar
Deiliskipulag
Reykja í Fnjóskadal
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar samþykkti þann 19.
nóvember 2020 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi af
Reykjum, Fnjóskadal í samræmi við 1. mgr. 41. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillaga að deiliskipulagi Reykja snýr að skilgreiningu
frístundabyggðar á um 9 ha svæði sem er stofnað út úr
landi Reykja 2. Nú þegar eru 2 frístundahús á svæðinu
og miðar tillagan við að 10 frístundahúslóðir verði
skipulagðar á svæðinu.
Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð munu liggja
frammi á skrifstofu Þingeyjarsveitar, Kjarna, 650
Laugar, frá og með föstudeginum 27. nóvember 2020
með athugasemdarfresti til og með föstudeginum 8.
janúar 2021. Þá eru upplýsingar einnig aðgengilegar á
heimasíðu Þingeyjarsveitar, www.thingeyjarsveit.is undir
skipulagsauglýsingar.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn
kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Frestur
til að skila inn athugasemdum rennur út föstudaginn 8.
janúar. Skila skal athugasemdum skriflega til skrifstofu
Þingeyjarsveitar, Kjarna, 650 Laugar og/eða með
tölvupósti á netfangið: atli@skutustadahreppur.is. Þeir
sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins
frests teljast henni samþykkir.
Atli Steinn Sveinbjörnsson
Skipulagsfulltrúi Þingeyjarsveitar
Alþýðusamband Íslands er stærsta fjöldahreyfing launafólks á landinu
með ríflega 130 þúsund félagsmenn í 46 aðildarfélögum. Alþýðusambandið
berst fyrir bættum kjörum félagsmanna sinna og stendur vörð um réttindi
þeirra. Félagsmenn í aðildarfélögum ASÍ eru starfandi á flestum sviðum
samfélagsins, á almennum vinnumarkaði og hjá ríki og sveitarfélögum. ASÍ
sinnir margvíslegri þjónustu við aðildarfélög og félagsmenn og tekur virkan
þátt í erlendu samstarfi samtaka launafólks.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Halla Gunnarsdóttir
framkvæmdastjóri ASÍ í síma 535 5600.
Vinnumarkaðs-
sérfræðingur
Alþýðusamband Íslands auglýsir eftir sérfræðingi í vinnumarkaðsmálum til liðs við
öflugan hóp starfsmanna. Leitað er að einstaklingi sem hefur ríka þekkingu og brennandi
áhuga á vinnumarkaðsmálum og kjörum og hagsmunum launafólks. Viðkomandi þarf að
vera kraftmikill og jákvæður og geta sýnt frumkvæði í starfi og sjálfstæð vinnubrögð.
Fólk af öllum kynjum og ólíkum uppruna er hvatt til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Stefnumótun og greiningar á sviði
vinnumarkaðsmála.
• Þátttaka í nefndum og ráðum fyrir
hönd ASÍ.
• Umfjöllun um málefni vinnumarkaðar
framtíðar með tilliti til loftslagsbreytinga
og nýrrar tækni.
• Samstarf við kjörna forystu og aðildar-
félög ASÍ og önnur samtök launafólks.
Fríðindi í starfi
• Sveigjanlegur vinnutími.
• Samgöngustyrkur.
• Íþróttastyrkur.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun í vinnumarkaðsfræði eða í
öðrum sambærilegum greinum sem veita góðan
undirbúning fyrir starfið.
• Staðgóð þekking á íslenskum vinnumarkaði,
stofnunum hans og umhverfi kjarasamninga.
• Góð þekking á helstu forritum Microsoft Office.
• Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni til að
tjá sig í ræðu og riti. Kunnátta í Norðurlandamáli,
pólsku eða öðrum tungumálum er æskileg.
• Góð samskiptahæfni.
• Þekking á norrænum vinnumarkaði og reynsla af
félagsstörfum er kostur.
Alþýðusamband Íslands
Raðauglýsingar
Til sölu
Að gera betur í dag en í gær
er drifkraftur nýrra hugsana
og betri árangurs.
Starfsmenn eru lykill
að árangri allra fyrirtækja.
Rannsóknir auka þekkingu
og gera ákvarðanir markvissari
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.