Morgunblaðið - 27.11.2020, Side 74
74 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
BLACK FRIDAY
TILBOÐ Í DAG
20%
afsláttur
af öllum
meðferðum og
gjafabréfum
Fjárfestu í þinni
meðferð núna á
frábæru verði og
nýttumeðferðin
þegar þér hentar.
GELÍSPRAUTUN – LASERLYFTING
DERMAPEN – HOLLYWOODGLOW
Nánar ummeðferðirnar áhudfegrun.is
Hægt er að skoða og versla tilboðið í vefverslunHúðfegrunar. Einnig er hægt að
koma við hjá okkur í Vegmúla2 og ganga frá kaupum í afgreiðslunni.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er alltaf gaman að geta komið
öðrum á óvart, láttu það eftir þér. Vertu
óhrædd/ur við að koma hugmyndum þín-
um á framfæri í vinnunni.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú munt líklega hitta einhvern sem
lítur heiminn allt öðrum augum en þú í
dag. Einhver mun ögra styrkleika þínum.
Hvaða bardaga sem þú heyrð endist þú
lengst.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur eignast marga nýja vini
undanfarið og ert að velta fyrir þér hvernig
þú getir sinnt þeim. Notaðu ímyndunar-
aflið til að leita nýrra lausna.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ef þú ert fastur einhverra hluta
vegna er dagurinn í dag sá rétti til þess að
losa sig.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þetta ætti að verða góður dagur. Ein-
hvern tímann í dag leyfir þú ástvinum að
finnast þeir merkilegasta fólk í heimi.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Vertu vandlátur á það sem þú
kaupir því betra er að fjárfesta í einum
dýrum hlut en fá marga fyrir lítið. Sýndu
þroska og leggðu þitt til lausnar málunum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarft að tala þínu máli og veist að
enginn getur gert það fyrir þig. Ruglingur
gærdagsins er liðinn hjá, í dag muntu af-
kasta miklu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú verður hugsanlega valinn
til að gegna tilteknu hlutverki með mjög
áberandi hætti í dag. Flýttu þér samt
hægt og gefðu öðrum möguleikum gaum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það kæmi sér betur fyrir þig
að leyfa öðrum að ráða ferðinni og halda
þig til hlés um tíma. Það léttir alla vega af
þér mestu spennunni.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú getur ekki neitað að axla
þinn hluta ábyrgðarinnar þegar þú hefur
stofnað til samstarfs með öðrum. Hóg-
værð er dyggð.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Gefðu þér tíma til að íhuga
hvar þú vilt verða eftir fimm og tíu ár. En
stundum hefur maður líka unnið til þess
sem gott er.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Rómantík er eins og skilningsríkt
samkomulag. Njóttu líðandi stundar betur
og ekki reyna að halda í neitt.
enn. Síðan spilaði hann með Ragnari
Bjarnasyni í fjögur ár, með Ríó Tríó,
Sumargleðinni, Lúðrasveit Siglu-
fjarðar, Karlakórnum Vísi og Karla-
kór Fjallabyggðar.
Rabbi er gallharður Tottenham-
aðdáandi og fylgist vel með bolt-
anum. Síðan er hann mikill fjöl-
skyldumaður, en hjónin fluttu til
Siglufjarðar 2018. „Ég er núna að
gefa út disk, Að kvöldi dags, en hann
er ekki til sölu, heldur bara fyrir
systkini mín og kunningja. Hólm-
fríður Ósk, dóttir mín, syngur eitt lag
og svo syngjum við eitt lag saman, en
hún er alveg hörkusöngkona, eins og
mamma hennar líka.“
Fjölskylda
Eiginkona Rafns er Guðrún
Hrefna Bragadóttir, f. 11.11. 1951,
spiluðum mikið í Húnaveri og við
strákarnir vorum alltaf að grínast og
vorum mjög góðir saman. Einhvern
tíma vorum við að spila í Húnaveri.
Tóti Gautur var elstur í sveitinni og
það kemur gamall maður upp að hon-
um á sviðinu og biður um að spila
Dalakofann. Þá teygir Elli sig í átt að
karli og segir: „Það er ekki hægt, það
er búið að rífa hann.“ Þá segir sá
gamli við Tóta: „Þú ert bara með ein-
tóma geldinga með þér,“ og strunsar
burtu í fýlu.“
Eftir að flytja þrjú ár til Akureyr-
ar árið 1985 fór fjölskyldan suður til
Reykjavíkur og þar hélt Rabbi áfram
í bransanum en vann líka í 30 ár sem
vélvirki í Straumsvík. Hljómsveit-
irnar voru margar og þá helst Dans-
sveitin og Hafrót, en Rabbi fór í þá
síðarnefndu 1994 og spilar með þeim
R
afn Erlendsson fæddist
27. nóvember 1950 á
Akureyri og ólst upp á
Siglufirði á síðustu ár-
um síldarævintýrisins.
„Ég man eftir mér sem gutti með
mömmu Guðrúnu á Ísfirðingaplan-
inu, þar sem ég stóð uppi á saltkassa
og var að raða í tunnu. Seinna sem
unglingur fór ég að vinna á planinu
og þá voru böll sex kvöld í viku á síld-
arárunum, þegar ég var unglingur og
mikið líf og fjör í bænum.“
Rafn var í Grunnskóla Siglufjarðar
og fór síðan í Iðnskóla Siglufjarðar
þar sem hann lærði vélvirkjun og
varð síðar meistari í faginu. Hann
lærði snemma á trommur og hefur
verið í tónlist frá 13 ára aldri.
„Það var mikil tónlist og músík í
báðum ættum, og ég var í mörgum
hljómsveitum og spilaði á böllum
flestar helgar.“ Fyrsta hljómsveitin
sem Rafn var í var sveitin Skuggar
og jöklar og síðan hljómsveitin MAX,
sem hann stofnaði ásamt skóla-
bræðrum sínum á Siglufirði. Síðan
komu Los Bandidos, Stormar og svo
Gautar, en sú sveit var mjög vinsæl
og Rafn er enn þann dag í dag alltaf
kallaður Rabbi í Gautum, en hann
var í sveitinni frá 1969-1985 og bæði
söng og spilaði á trommur, eftir að
Jónmundur Hilmarsson trommari
flutti suður.
Rabbi kynntist eiginkonu sinni,
Guðrúnu Hrefnu, þegar hann var að
spila á balli með MAX árið 1969. „Við
giftum okkur árið 1970 á prestsetrinu
á Siglufirði í brjáluðu veðri á afmæl-
isdaginn minn 27. nóvember 1970,
svo í dag eigum við gullbrúð-
kaupsafmæli,“ segir Rabbi eldhress.
Það hefur alltaf verið mikið að
gera hjá Rabba. Á Siglufirði vann
hann í síldarverksmiðjunni og síðan á
SR vélaverkstæði í 11 ár. „Maður er
búinn að vinna eins og vitleysingur.
Eftir vinnu var komið við í tónskól-
anum og svo var spilað allar helgar
og svo var ég með bílaleigu líka,“ seg-
ir hann og hlær. „Svo á sumrin var
farið beint eftir vinnu á föstudögum
og keyrt um landið og spilað. Maður
hafði sko engar áhyggjur af því hvort
einhver kæmi, því það var alltaf troð-
fullt. Það var mikið fjör á þessum
tíma og alveg rosalega gaman. Við
skrifstofustjóri. Foreldrar hennar
eru Hólmfríður Hallgrímsdóttir
Ehrat, f. 15.1. 1931, d. 9.3. 1995, far-
arstjóri og bóndi á Hallfríðarstöðum í
Hörgárdal og Bragi Árnason, f. 12.7.
1928, d. 3.12. 1997, bryti og sjómaður
í Reykjavík. Þau voru gift en skildu.
Börn Rafns og Guðrúnar eru 1) Sól-
veig, f. 7.2. 1970, stuðningsfulltrúi í
Hveragerði, gift Sigurði Birgissyni,
vinnur á gróðrastöð. Börn Sólveigar
eru Linda Ósk Vestmann, f. 13.2.
1993 (barnabarn Ares Rafn Birki-
sson, f. 16.3. 2015), og Róbert Berg-
mann Eiríksson, f. 19.10. 1998. 2)
Guðrún Linda, f. 11.3. 1974, húsmóðir
á Siglufirði, gift Magnúsi Tómassyni
verktaka. Börn hennar eru Guðríður
Harpa Elmarsdóttir, f. 5.1. 2002, og
Hólmfríður Dögg Magnúsdóttir, f.
4.2. 2010. 3) Hólmfríður Ósk Norð-
Rafn Erlendsson vélvirki, trommuleikari og söngvari – 70 ára
Gautar frá Siglufirði F.v.: Elías Þorvaldsson, Þórhallur
Þorláksson (Tóti Gauti), Sverrir Elefsen, Guðmundur
Óli (Gauti) Þorláksson og Rafn, eða Rabbi í Gautum.
Sungið og spilað allar helgar
Hafrót Hljómsveitin spilaði í 16 ár á Ránni í Keflavík og alltaf nóg að gera.
Frá vinstri: Sigurður Hafsteinsson, Rafn og Pétur Sveinsson.
Danssveitin Frá vinstri: Sigurður Hafsteinsson, Mark
Brink, Eva Ásrún Albertsdóttir, Rabbi, Kristján Ósk-
arsson og Ragnar Bjarnason á góðri stundu.
MAX F.v.: Ólafur Ægisson, Rafn,
Sverrir Elefsen og Kristján Hauksson.
Gunnar Marel fæddist 27.11. 1945 í
Vestmannaeyjum og hefur búið þar
og starfað alla sína tíð að frátöldum
nokkrum mánuðum í Vest-
mannaeyjagosinu 1973 þar sem fjöl-
skyldan bjó á Selfossi.
Það lá snemma fyrir honum að
gera sjómennskuna að ævistarfi því
faðir hans var vélstjóri og útgerð-
armaður og afi hans og langafi
landsþekktir skipasmíðameistarar.
Að lokinni grunnskólagöngu réð
hann sig í sitt fyrsta pláss í Eyjaflot-
anum, aðeins 15 ára. Gunnar Marel
var háseti á strandferðaskipinu
Herðubreið 1962-63. Hann hafði frá
unga aldri mikla bíla- og mót-
orhjóladellu og því lá beint við að
hann fetaði í fótspor föður síns og
hann fór í Vélskóla Íslands í Vest-
mannaeyjum og tók þar annað stig
vélstjóramenntunar 1968-69. Meg-
inhluta starfsævinnar var hann því
vélstjóri hjá nokkrum útgerðum en
1976 tók hann við útgerð föður síns,
ásamt Stefáni Friðrikssyni, og sam-
an gerðu þeir út Erling VE-295 í um
áratug. Eftir að Gunnar Marel hætti
í útgerð var hann vélstjóri á nokkr-
um skipum í Vestmannaeyjaflot-
anum þar sem einkennismerki hans
var að halda vélarrúminu í topp-
standi. Um sextugt hætti hann á sjó
og síðustu starfsárin vann hann hjá
Pétursey og Nethamri. Eins og gef-
ur að skilja var lítill tími fyrir sjó-
mann að sinna miklum félagsstörf-
um en hann sat um tíma í stjórn
Vélstjórafélags Vestmannaeyja.
Gunnar er mikill áhugamaður um
pólitík, fylgist vel með þjóðfélags-
umræðunni og hefur alla tíð tilheyrt
vinstri vængnum. Í íþróttapólitík-
inni í Eyjum var hann Týrari en öll
börn hans og niðjar eru harðir Þór-
arar og sum þeirra hafa leikið fyrir
ÍBV og fleiri lið í fótboltanum.
Eiginkona Gunnars er Sigurbjörg
Vatnsdal Sigurðardóttir og eiga þau
börnin Þorstein, Drífu, Tryggva og
Ingu Rós. Barnabörnin eru orðin sjö
og barnabarnabörnin tvö.
Á sjómannadaginn 2019 var
Gunnar Marel heiðaður af Vélstjóra-
félagi Vestmannaeyja fyrir ævistarf
sitt sem vélstjóri.
Gunnar Marel Tryggvason
vélstjóri - 75 ára