Morgunblaðið - 27.11.2020, Side 79
MENNING 79
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALINánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
71%
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
HÖRKUSPENNANDI MYND
BYGGÐI Á SANNRI SÖGU.
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
SPLÚNKUNÝ GR ÍNMYND
Heimsfaraldur hefur umstund stöðvað straumhollywoodfæribandsinssem nærir jafnan bíó-
keðjurnar. Djassvélin malar ei meir,
smá hökt er komið á hrynsveitina.
Óvíða hefur hlutfall bandarískra
kvikmynda verið jafn hátt af heildar-
fjölda kvikmyndasýninga og í ís-
lenskum bíóhúsum. Því er gaman að
sjá Sambíóin líta til annarra fram-
leiðslusvæða í leit að efni sem passar
inn í áherslur þeirra. Meginstraums-
myndir eru nefnilega framleiddar út
um allan heim og eru síður en svo
tæknilegir eftirbátar afurða draum-
verksmiðjunnar vestra. Þessi ástr-
alska stórmynd hefur fengið tölu-
verða útbreiðslu og ætti tvímæla-
laust að eiga sér áhorfendahóp hér á
landi.
Hættulega nálægt: Orrustan um
Long Tan er stríðsmynd með hefð-
bundnu sniði sem segir sögu ástr-
alsks-nýsjálensks herflokks í Víet-
namstríðinu. Sá ófriður hefur verið
afar vinsælt sögusvið í kvikmynda-
sögunni og slær næstum seinni
heimsstyrjöldinni við í þeim efnum.
Kvikmyndir á borð við Apocalypse
Now og Platoon eru löngu orðnar sí-
gildar og eru ekki endilega stríðs-
ádeilur í eðli sínu. Styrjöld er viðvar-
andi ástand í gegnum mannkyns-
söguna, og þó að sumum kunni að
finnast það ótrúlegt getur sá veru-
leiki verið spennandi að taka þátt í
og/eða fylgjast með. Það hlýtur að
vera helsta ástæða fyrir vinsældum
þessarar kvikmyndagreinar. Að því
sögðu kemur á óvart að sjá verk sem
á blygðunarlausan máta gerir sér
ekki grein fyrir eða er sama um hug-
myndafræðilegt baksvið og merk-
ingu þeirra sögulegu atburða sem
það fjallar um. Hermennirnir tala
ekki með amerískum hreim og
myndin er ögn ferskari fyrir vikið.
Það breytir því þó ekki að söguhetj-
urnar eru hluti af innrásarher í
stríði, sem kostaði meira en milljón
innfæddra lífið og var háð í valda-
baráttu og tortímingarþrá heims-
velda þess tíma. Hættulega nálægt
skeytir ekki um þetta og færir
áhorfendum þess í stað ímynd af
ástralskri karlmennsku og hetju-
skap.
Kvikmyndin hverfist um orr-
ustuna um Long Tan sem átti sér
stað hinn 18. ágúst árið 1966 í Phuoc
Tuy-héraði í Suður-Víetnam milli
ástralsk-nýsjálenskrar herdeildar
og Víetkong-liða. Báðar fylkingar
lýstu yfir sigri að henni lokinni. Frá-
sagnartíminn spannar tæplega tvo
sólarhringa – og hefst frásögnin
kvöldið áður en bardaginn fer af stað
og lýkur morguninn eftir. Ítarleg
línuleg framvinda einskorðast nán-
ast alfarið við sjónarhorn Ástrala.
Einungis nokkur myndskeið gefa
víetnömsku mótherjunum gaum, oft-
ast rétt áður en þeir verða fyrir skoti
(ein sena færir áhorfandann þó inn í
stjórnklefa bandarískrar herþotu er
hún lætur sprengjuregn falla yfir
frumskóginn og hverfur síðan aftur
á braut mikilvægari verkefna). Fjöl-
mennt lið ástralskra leikara deilir
skjátímanum og leitast er við að gefa
breiða mynd af þeim mikla fjölda
persóna, frá fótgönguliðanum til
hershöfðingjans, sem skipa
virðingarröð herdeildarinnar.
Aðalpersónan er majórinn Harry
Smith, leikinn af Travis Fimmel
(þekktastur sem Ragnar loðbrók í
Víkinga-þáttaröðinni vinsælu), sem
stýrir Delta-sveitinni. Undirmenn
hans eru mestmegnis óstýrilátir
drengir, sem taka starfinu af temmi-
legri alvöru og vilja helst spila póker
og kyngja hálfpottum eins og ástr-
ölskum ungmennum er lagið. Maj-
órinn unir fíflalátum illa og bregður
sér í loðbrókarham er hann tekur
óbreyttan trúðinn Paul Large
kverkataki til þess að kenna honum
lexíu. Þessi sena virkar afar ótrú-
verðug í mynd sem gengur undir
yfirskini einhvers konar sögulegs
sannleika. Samband majórsins
Smiths og óbreytts Large myndar í
framhaldinu tilfinningalega miðju
frásagnarinnar. Eftir erfiða ákvörð-
un majórsins inni á vígvellinum, sem
gæti kostað meðbræður þeirra lífið,
ræðst óbreyttur Large að yfir-
manninum og ásakar hann um skort
á mennsku. Síðar komast kump-
ánarnir að því að þeir eiga ýmislegt
sameiginlegt og tengjast tilfinninga-
böndum yfir ljósmyndum af unn-
ustum sínum og hjali um heimahag-
ana. Sú einfalda og nostalgíska
mynd sem dregin er upp af karl-
mennsku og vináttu karlmanna er
afar fábrotin og klisjukennd. Til-
raunir til þess að vekja samlíðan
féllu fyrir ofan garð og neðan hjá
rýni. Myndin hefur á sér yfirbragð
þess að stríð sé stuð og góður vett-
vangur fyrir drengi að verða að
mönnum, en virðist alveg ómeðvituð
um áfallastreituröskunina og aðra
fylgikvilla sem óneitanlega fylgja í
kaupbæti.
Helsti styrkur myndarinnar er
tæknilegur en klipping milli fjögurra
mismunandi sviða orrustunnar er
vel heppnuð og gefur skýra mynd af
atburðarás og tíma. Tölvubrellum er
haldið í lágmarki en fanga á stöku
stað athyglina. Áberandi nær-
myndarmyndskeið sem fylgir
fallbyssuskoti frá gini vopnsins að
áfangastað sínum er í senn dæmi um
stílíska hugmyndaauðgi og ofbeldis-
dýrkun verksins. Þótt frásagnarlega
dýpt skorti fá aðdáendur stríðs-
mynda og hasars eflaust þó nokkuð
fyrir sinn snúð. Endatitlar mynd-
arinnar básúna sigri hrósandi töl-
fræðilegar upplýsingar (sem eru
sögulega umdeildar) um mannfall
orrustunnar og sýna fram á skýra
pólitíska afstöðu verksins.
Hefðbundin „Þótt frásagnarlega dýpt skorti fá aðdáendur stríðsmynda og hasars eflaust þó nokkuð fyrir sinn
snúð,“ segir rýnir um Hættulega nálægt: Orrustan um Long Tan, mynd sem sýnir ástralska karlmennsku.
Sambíóin
Hættulega nálægt / Danger Close
bbnnn
Leikstjórn: Kriv Stenders. Handrit: Stu-
art Beattie, James Nicholas, Karel Seg-
ers, Paul Sullivan, Jack Brislee. Kvik-
myndataka: Ben Nott. Aðalleikarar:
Travis Fimmel, Luke Bracey, Daniel
Webber, Alexander England. Ástralía,
Bretland, 2019. 119 mín.
GUNNAR
RAGNARSSON
KVIKMYNDIR
Hvítir strákar fara í stríð
Djasspíanóleikaranum og tónskáld-
inu Önnu Grétu Sigurðardóttur
hefur verið boðið að vera ein sjö
tónlistarmanna sem koma fram við
afhendingu Nóbelsverðlaunanna
10. desember næstkomandi. Þau
verða afhent í gyllta salnum í Stats-
huset í Stokkhólmi. Anna Gréta
starfar í Svíþjóð og við afhend-
inguna koma fram nokrir af þekkt-
ustu tónlistarmönnum landsins,
einnig þar á meðal hin hálfíslenska
söng- og leikkona Edda Magnason.
Anna Gréta er á síðustu árum
orðin einn af eftirsóttustu djass-
píanóleikurum Svíþjóðar og hefur
unnið til margra verðlauna þar í
landi og á Íslandi. Hún hlaut til að
mynda hin virtu Monica Zetter-
lund-verðlaun árið 2019 og var val-
in bjartasta vonin á íslensku
tónlistarverðlaununum árið 2015.
Leikur við afhend-
ingu Nóbelsins
Djasspíanisti Anna Gréta Sigurðardóttir.
Hin árlega Þor-
láksmessu-
tónleikaröð
Bubba Morthens
hefur verið færð
til loka janúar
vegna sóttvarna-
aðgerða en rúm-
lega 2.000 miðar
hafa þegar verið
seldir á tón-
leikana í Hörpu, Bæjarbíói, Bíóhöll-
inni og Hofi. Verða þeir haldnir
dagana 19. janúar til 6. febrúar.
Bubbi ætlar engu að síður að
halda sína hefðbundnu tónleika á
Þorláksmessukvöld. Enginn fær að
kaupa miða í salinn en allir verða
velkomnir í gegnum myndlykla
símafyrirtækjanna, svokallað pay-
per-view.
Tónleikaröð Bubba
færð fram í janúar
Bubbi Morthens