Morgunblaðið - 27.11.2020, Page 82
82 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
HÓLAR barnabolir
Kr. 2.970.-
KAROL stuttermabolur
Kr. 3.990.-
LOGAN stuttermabolur
Kr. 2.990.-
KAROL barnabolir
Kr. 2.970.-
2 FYRIR1
AF ÖLLUM BOLUM
Þegar ég renndi þessariplötu í fyrsta sinn vorusjálfsefasemdir um hæfnimína til að dæma slíka
plötu fyrirferðarmestar í huga mín-
um. Það er ekkert að marka mig,
ef mig skyldi kalla, þegar kemur að
tilfinningaríkri
popptónlist
dagsins í dag.
Ég hlusta á
þunga og til-
raunakennda
tónlist og leik
mér að því, en
poppið á ég erfiðara með. Ég ákvað
því að renna plötunni bara aftur og
aftur og vona að með tímanum
myndi platan sjálf segja mér hvað
ég gæti skrifað um hana.
Bríet hefur verið opinská með að
textar plötunnar séu um ástarsorg
og flækjustig sem skapast sökum
hennar. Ég á erfitt með slíkt á
þessum tímapunkti í lífi mínu og
verð að minna mig á að þarna er
um 21 árs stelpu að ræða. Ég
ákvað að hlusta ekki nema einu
sinni í heyrnartólum heldur splæsa
í diskótek í stofunni og þá fór
margt að gerast.
Til að byrja með má nefna að
hljóðvinnsla plötunnar er til fyrir-
myndar og diskósmellirnir „Fimm“,
„Hann er ekki þú“ og „Nær þér“
ná mér í dansstuð. Ég fer að óska
þess að öll platan væri full af dans-
poppi því þá væri mun léttara að
fjalla um hana. Þessi plata er
nefnilega langt frá því að vera eitt-
hvert léttmeti, þótt um popptónlist
sé að ræða. Laglínur og rödd
Bríetar eru grípandi og þar er ein-
hver tónn sem vinnur á. Ég skil vel
að platan höfði til ungra karla og
kvenna sem eru að vinna með til-
finningar sínar alla daga og bæði
góðir textar á íslensku og fínn
hljómur hjálpa þar tvímælalaust til.
Bríet kýs að fara þá leið að
skrúfa upp persónulega upplifun
stúlku sem er í nýju sambandi en
samt enn í ástarsorg út af fyrrver-
andi og það þarf auðvitað ríkulegan
skammt af hugrekki til að standa
að baki slíkri útgáfu. Samt er eitt-
hvert ójafnvægi í gangi að mínu
mati og ég vona innilega að þar sé
ekki bara kynslóðabil milli mín og
hennar að verki en mér finnst ég
bara ekki ná að tengja við plötuna.
Maður er svo rækilega minntur á
að þarna er óhamingja og vansæld
í gangi að maður nær ekki að
gleyma sér. Fyrir mér er tónlist
eins og tæki til að gleyma stað og
stund og ég er ekki enn komin
þangað með plötuna, þrátt fyrir
yfir tuttugu hlustanir. Hún er fín
til að hlusta á í baði og einnig til að
hafa í stofunni þar sem maður
hoppar upp úr sófanum og dansar
við lögin þrjú, en er það nóg? Tím-
inn einn getur skorið úr um það
hvort þessi plata verði álitin meist-
araverk 21 árs stúlku og hennar
fyrsta breiðskífa á löngum og far-
sælum tónlistarferli. Ég vona það
innilega því Bríet á mikið inni. Í
bili læt ég mér nægja að segja að
„Nær þér“ nær mér alltaf og ég
dansa til að gleyma.
„Nær þér“ nær mér
Morgunblaðið/Hari
Opinská „Tíminn einn getur skorið úr um það hvort þessi plata verði álitin
meistaraverk 21 árs stúlku og hennar fyrsta breiðskífa á löngum og farsæl-
um tónlistarferli. Ég vona það innilega,“ segir rýnir um fyrstu plötu Bríetar.
Popp
Bríet – Kveðja, Bríetbbbmn
Fyrsta breiðskífa Bríetar Ísis Elfar, sam-
in og unnin af Bríeti og Pálma Ragnari
Ásgeirssyni. Aðrir flytjendur á plötunni
eru Gabríel Örn Ólafsson í „Djúp sár
gróa hægt“ og „Rauðar rósir fölna“ og
Rubin Pollock í „Eltum sólina (Inter-
mission)“. Útgáfudagur er 10. október
2020.
RAGNHEIÐUR
EIRÍKSDÓTTIR
TÓNLIST
Þetta rit fjallar um kristallaog hagnýtingu þeirra í vís-indum, einkum silfur-bergs. „Sérstaða silfur-
bergsins er sú að á um 250 ára
tímabili [frá því um 1668 að telja]
var aðeins einn staður í heiminum,
Helgustaðanáman við Reyðarfjörð,
þar sem finna
mátti kristalla af
slíkri gerð, stærð
og tærleika að
nýta mætti þá til
vísindarann-
sókna“ (12).
Margir af þekkt-
ustu vísinda-
mönnum heims-
ins notuðu þetta
silfurberg við athuganir sínar og
leystu með þeim ýmsar gátur um
eðli ljóss, uppbyggingu efnisheims,
víxlverkun ljóss og efnis, raf- og
seguláhrif o.fl. Sá sem þetta ritar
hefur engar forsendur til þess að
lýsa þessum rannsóknum en las
bókina með augum áhugamanns um
hugmynda- og vísindasögu. Lausnir
og skýringar á skautun ljóss sem
fundust með notkun silfurbergs
gegna lykilhlutverki í rannsóknum
og eftirliti „í matvælaiðnaði, í lyfja-
fræði, læknisfræði og á fleiri svið-
um“ (249). Nýjar uppfinningar á
millistríðsárunum, t.d. nýjar skaut-
unarsíur sem kallaðar voru Polar-
oid, drógu mjög úr mikilvægi silf-
urbergs (265).
Sagan er sögð með hliðsjón af
rannsóknum einstakra vísinda-
manna, sá elsti fæddur 1625, sá
yngsti á fyrsta áratug 20. aldar.
Stiklað er á stærstu steinum í ævi-
sögu þeirra, grein gerð fyrir mennt-
un og athugunum. Allt voru þetta
eldklárir karlar, sannkallaðir fjöl-
fræðingar því að mörk milli ein-
stakra vísindagreina voru óljós;
Newton, Nicol, Malus, Faraday,
Röntgen, Einstein, svo einhver nöfn
séu rakin. Hér má líka nefna Eng-
lendinginn Thomas Young sem var
menntaður læknir, flutti fyrirlestra
um eðlisfræði og rannsakaði ljós og
liti og afrekaði auk þess að lesa
fyrstur manna egyfska letrið á Rós-
ettusteininum fræga (74).
Pólitík og vísindi ríma stundum
illa saman. Nasistar viðurkenndu
t.d. ekki „gyðingaeðlisfræði“ og
megum við e.t.v. þakka fyrir það;
þeir hefðu hugsanlega komið sér
upp kjarnorkuvopnum ella (253).
Hliðstæða í samtímanum er sú skoð-
un ýmissa stjórnmálamanna að
loftslagsvísindi séu eins konar sápu-
kúla. Hérlendis báru menn litla virð-
ingu fyrir rannsóknum fiskifræð-
inga um nokkurt skeið; hagsmuna-
varslan bar skynsemina ofurliði.
Inn í þessa vísindasögu er skotið
köflum þar sem greint er frá atburð-
um hér á landi, ekki síst þeim sem
tengjast einokunarverslun, stöðu
landsins í Evrópusögu og náma-
vinnslu á Helgustöðum. Einn maður
lést við gröftinn í námunni 1923
(246). Síðustu tilraunir til að vinna
silfurberg úr námunni voru gerðar
1946-7 og 1952 og silfurbergssalli
var malaður til steiningar húsa fram
um 1950 (272). Út voru flutt mörg
hundruð tonn af silfurbergi, einkum
á 19. öld.
Þetta er ljómandi læsileg bók,
ekki síst vegna þess að höfundar
hafa traustatök á íslensku máli og
beita því fjörlega við flóknar útskýr-
ingar. Það er í rauninni stór-
merkilegt hvað fyrri tíðar menn
lögðu ótrauðir á brattann með hug-
myndir sínar einar að vopni en lítið
af tækjum. Fram kemur í formála
að Leó hafi lesið meira en 10 þúsund
vísindaritgerðir og hundruð bóka
um kristalla og ljósfræði, enda dag-
ljóst að hér er hvergi kastað til
höndum. Leó lést 13. mars 2020.
Margar myndir prýða bókina, m.a.
fágætar ljósmyndir frá árdögum
ljósmyndunar á Íslandi.
Silfurberg,
ljósfagurt orð!
Fræði og saga
Silfurberg. Íslenski kristallinn sem
breytti heiminum bbbbn
Eftir Kristján Leósson og
Leó Kristjánsson.
Mál og menning 2020. Innb., 286 bls.
SÖLVI
SVEINSSON
BÆKUR
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Faðirinn Leó Kristjánsson jarð-
eðlisfræðingur með silfurberg.
Morgunblaðið/Eggert
Sonurinn Kristján Leósson hampar
einnig fallegu og björtu silfurbergi.
Nocturne er yfirskrift
ljósmyndasýningar Hröfnu
Jónu Ágústsdóttur sem opn-
uð hefur verið í Skoti Ljós-
myndasafns Reykjavíkur.
„Verkið fangar ævintýraver-
öld næturinnar í hversdags-
legu íslensku borgarlands-
lagi, lágstemmdan en
margslunginn heim sem
hreyfir við tilfinningum
áhorfandans,“ segir í til-
kynningu.
Hrafna Jóna lauk diplóm-
anámi í skapandi ljósmyndun í Ljós-
myndaskólanum 2020. Hún leitast
við að tjá dekkri hliðar eigin hugs-
ana og skynjunar í gegnum ljós-
myndun og aðra listmiðla. Um sýn-
inguna segir hún: „Ég er náttfari
og hef alltaf verið, ég er á heima-
velli í rökkrinu, sköpunarkraftur
minn nærist á myrkrinu og ég lifna
við. Myrkrið dregur fram og ýkir
upp það sem við sjáum ekki með
eigin augum, öll skúmaskotin, alla
skuggana.“
Sýningin, sem stendur út janúar
2021, er opin virka daga kl. 12-17
og laugardaga kl. 13-16.
Nocturne í Skoti Ljósmyndasafnsins
Nocturne Ljósmyndaverk eftir Hröfnu.