Morgunblaðið - 27.11.2020, Page 86
86 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Það hefur lengi blundað í mér að
skrifa sögu hennar, enda var ég
skírð í höfuðið á henni,“ segir Ingi-
björg Sigurðardóttir, aðjúnkt við
Háskólann á Akureyri, sem nýverið
sendi frá sér bók um móðurömmu
sína sem nefnist Sjálf í sviðsljósi:
Ingibjörg Steinsdóttir leikkona
(1903-1965) og sjálfsmyndasafn
hennar. Bókin er sú 25. í ritröð
Háskólaútgáfunnar sem nefnist
Sýnisbók íslenskrar alþýðumenn-
ingar. „Allt frá því að ég var barn hef
ég heyrt sögur um ömmu, því hún
þótti mjög sérstök kona. Hún hegð-
aði sér til að mynda ekki samkvæmt
viðteknum hugmyndum um það
hvernig konur áttu að hegða sér,“
segir Ingibjörg og bætir við að það
sé ekkert launungarmál að ævi
ömmu hennar hafi verið stormasöm.
„Hún var nútímakona sem hrærð-
ist í skáldskap. Utan sviðs gegndi
hún ólíkum hlutverkum, m.a. sem
pólitískur aðgerðasinni, bóndi, spá-
kona, spunaskáld, þáttagerðarkona í
útvarpi, ráðskona og leiðbeinandi,
fyrir utan að sinna hefðbundnum
fjölskylduhlutverkum. Hún var virk í
stjórnmálum ásamt fyrri eiginmanni
sínum, Ingólfi Jónssyni, en bæði
Jafnaðarmannafélagið á Akureyri og
Kommúnistaklúbbur Ísafjarðar voru
stofnuð á heimilum þeirra.“
Þótti fáheyrt á sínum tíma
Ingibjörg rifjar upp að árið 1929
hafi amma hennar hlotið eins árs
styrk frá Alþingi til leiklistarnáms
erlendis. „Styrkinn nýtti hún til að
fara til Berlínar haustið 1929 þar
sem hún sótti einkatíma hjá þekktri
leikhúskonu við Max-Reinhardt-
skólann,“ segir Ingibjörg og rifjar
upp að þegar amma hennar hélt til
Berlínar hafi þau hjónin átt tvær
ungar dætur sem urðu eftir á Ísafirði
hjá föður sínum. „Þetta var auðvitað
fáheyrt á sínum tíma,“ segir Ingi-
björg og bendir á að þegar námstíma
Ingibjarg ar í Berlín var lokið hafi
hún á vegum Komintern farið til
Moskvu til að kynna sér sviðslistir.
Seldi utan af sér fötin
„Hún fór aldrei dult með að þetta
var hápunkturinn í lífi hennar, enda
komst hún á sannkallað menningar-
fyllerí þar sem hún náði að sjá mik-
inn fjölda leiksýninga og kvikmynda
sem höfðu mikil áhrif á hana og
hennar listsköpun,“ segir Ingibjörg
og rifjar upp að þegar nafna hennar
hélt til Moskvu hafi hún ekki átt fyr-
ir farinu heim. „Komintern sá henni
fyrir húsnæði og fæði, en þegar kom
að heimför greip hún til þess ráðs að
selja fötin utan af sér til að eiga fyrir
farmiðanum heim til Íslands,“ segir
Ingibjörg og bendir á að sögur á
borð við þessa hafi leitt til þess að
amma hennar þótti í huga margra
vera mjög sérstök.
Náin trúnaðartengsl
Langt er síðan Ingibjörg fór að
rannsaka markvisst ævi nöfnu sinn-
ar, en hún skrifaði um hana
meistararitgerð í bókmenntafræði
sem hún lauk 2015. „Fyrst var hug-
myndin að skrifa ævisögu um hana,
en eftir því sem efnið vannst áfram
fannst mér meira heillandi að nálg-
ast efniviðinn frekar með fræði-
legum gleraugum,“ segir Ingibjörg
sem skiptir bókinni upp í fimm kafla
sem kallast á við hin ólíku hlutverk í
lífinu sem nafna hennar tók að sér.
„Ég leitaði víða fanga í heimilda-
öflun minni og skoðaði sendibréf,
leikdóma, blaðagreinar og viðtöl,
ljósmyndir, smásögur og barnasögur
sem hún skrifaði, auglýsingar og
minningargreinar auk þess sem ég
nýtti viðtöl og munnlegar frásagnir,“
segir Ingibjörg og tekur fram að það
hafi reynst sér ómetanlegt í rann-
sóknarvinnuni að hafa aðgang að
eldri blöðum á vefnum timarit.is.
„Takmark mitt er að nýta texta-
safnið með þeim hætti að sem flestar
raddir heyrist,“ segir Ingibjörg og
tekur fram að sitt hlutverk hafi síðan
verið að velja úr, tengja saman og
túlka heimildirnar. „Vegna tengsla
minna við ömmu er ljóst að ég er að
vissu leyti hluti af heimildasafninu,“
segir Ingibjörg og tekur fram að
þótt amma hennar hafi látist ári áður
en hún fæddist séu tengslin milli
þeirra sterk. „Það má nánast segja
að það liggi naflastrengur milli okk-
ar vegna náinna trúnaðartengsla
ömmu við mömmu og síðan mömmu
við mig,“ segir Ingibjörg og rifjar
upp að amma hennar hafi, stuttu
áður en hún lést, beðið dóttur sína að
skíra eftir sér.
Andlegu sárin gróa seint
Aðspurð fer Ingibjörg ekki dult
með að skrifin hafi á köflum gengið
nærri henni, enda ýmislegt í lífi
ömmu hennar sem tekið hafi á.
„Ættingjar mínir hafa eindregið
hvatt mig áfram og ítrekað brýnt
fyrir mér að skauta ekki framhjá erf-
iðu hlutunum,“ segir Ingibjörg og
vísar ekki síst til þess hversu sárt
hafi verið þegar Ingibjörg skildi við
Ingólf eftir 17 ára hjónaband og
börnum þeirra var skipt upp. „Stuttu
síðar giftist hún Einari Magnússyni
járnsmið, sem var afi minn. Hún
keypti jörð og hóf búskap með hon-
um,“ segir Ingibjörg og rifjar upp að
tvö barna ömmu hennar af fyrra
hjónabandi hafi búið á heimilinu, en
þau voru fimm og 13 ára þegar
seinna hjónabandið hófst.
„Einar var bæði drykkfelldur og
ofbeldisfullur,“ segir Ingibjörg, sem
í bókinni lýsir því hvernig hann gekk
í skrokk á bæði eiginkonu sinni og
fósturbörnum. „Börnum ömmu af
fyrra hjónabandi fannst hún því hafa
svikið sig,“ segir Ingibjörg og tekur
fram að andlegu sárin grói oft seint.
Að sögn Ingibjargar einkenndist
líf ömmu hennar af miklum þver-
stæðum. „Hún starfaði sem leikkona
í borginni, en dreymdi á sama tíma
um að vera bóndi. Hún var stórhuga
og hafði sterkar skoðanir á þjóð-
félagsmálum,“ segir Ingibjörg og
rifjar upp að amma hennar hafi eftir
heimkomuna frá Moskvu ferðast vítt
og breitt um landið og gerst nokkurs
konar talsmaður söfnunar sem ætl-
að var að kaupa traktor til handa
sovésku samyrkjubúi.
Gagnrýnd fyrir ofleik
Spurð hvaða kafla henni hafi þótt
erfiðast að skrifa segir Ingibjörg
það vera kaflann sem snúi að
sviðslistaferli ömmu hennar. Eins og
Ingibjörg rekur í bókinni lék amma
hennar töluvert með leikfélögunum
á Akureyri, Ísafirði og Reykjavík.
Hún lék í fyrstu íslensku talkvik-
myndinni, Milli fjalls og fjöru eftir
Loft Guðmundsson, sem frumsýnd
var 1948 og var lausráðin við Þjóð-
leikhúsið á fyrsta starfsári þess, en
hætti stuttu síðar að leika á sviði og
sneri sér að leikstjórn og leiklistar-
kennslu á landsbyggðinni.
„Ég ólst upp við sögur um það
hvað amma hafði verið góð leikkona,
en þegar ég fór að skoða leikdómana
um hana blasti við önnur og flóknari
mynd sem kom á óvart. Fram til árs-
ins 1939 virðist Ingibjörg einkum
hafa fengið meðalstór hlutverk hjá
Leikfélagi Reykjavíkur, en hún
hlaut ekki náð fyrir augum gagnrýn-
enda blaðanna í höfuðstaðnum sem
sögðu hana ofleika, skorta kven-
legan yndisþokka og að hún passaði
ekki í hlutverkin,“ segir Ingibjörg
og tekur fram að ýmislegt bendi til
þess að amma hennar hafi ekki náð
að þroska með sér þá hæfileika sem
hún var talin búa yfir áður en hún
hélt til náms ytra. „Í þessu sam-
hengi er samt mikilvægt að hafa í
huga menningarátökin milli höfuð-
staðarins og landsbyggðarinnar á
þessum tíma, skilgreiningu á
atvinnuleikurum andstætt áhuga-
leikurum og deilurnar um Leikfélag
Reykjavíkur. Ingibjörg var virkur
þátttakandi í allri þessari þróun.
Hún var til dæmis ein fárra sem fóru
utan til að nema leiklist.
Dýpri skilningur á sögunni
Vitað er að námið í Berlín snerist
að hluta til um leikstjórn og umgjörð
leiksýninga, en kannski hefði þurft
að leggja meiri áherslu á undir-
stöðuatriði í leikstíl,“ segir Ingibjörg
og tekur fram að amma hennar hafi
alltaf þráð að mennta sig og prófa
eitthvað nýtt. „Hún lét sig dreyma
um að skara fram úr en tókst það í
raun frekar sjaldan,“ segir Ingi-
björg og tekur fram að hefðin sé sú
að skrifa sögu sigurvegaranna og
þeirra sem skarað hafa fram úr.
„Við vitum öll að það er ógrynni af
fólki sem tekst á við ýmis verkefni
án þess að takast fyllilega ætlunar-
verk sitt. Mér finnst felast ákveðin
verðmæti í því að segja líka sögur
þeirra brautryðjenda sem ekki telj-
ast sigurvegarar, því þannig fáum
við dýpri skilning á sögunni,“ segir
Ingibjörg.
Tengslin við Sölku Völku
Spurð hvort rannsóknum hennar
um ömmu sína ljúki nú með útgáfu
bókarinnar svarar Ingibjörg því
neitandi og tekur fram að hún eigi
eftir að skrifa eina grein til viðbótar
áður en hún lætur grúski sínu lokið,
en sú grein fjallar um tengsl Ingi-
bjargar Steinsdóttur við Sölku
Völku. Ingibjörg rifjar upp að Hall-
dór Laxness hafi búið um sum-
artíma hjá Ingibjörgu og Ingólfi á
Ísafirði árið 1930, þegar hann var að
skrifa skáldsöguna. „Heimildir mín-
ar benda sterklega til þess að amma
og bróðir hennar, Steinþór Steins-
son, hafi að einhverju leyti verið
fyrirmyndir Halldórs að Sölku
Völku og Steinþóri í skáldsögunni,“
segir Ingibjörg sem hlakkar til að
gera nánar grein fyrir þessum
tengslum í væntanlegri grein með
vísan í þær heimildir sem hún hefur
aflað sér í gegnum tíðina.
Nöfnur Ingibjörg Sigurðardóttir við ljósmynd af ömmu sinni, leikkonunni Ingibjörgu Steinsdóttur.
„Hún var nútímakona“
„Hún hegðaði sér ekki samkvæmt viðteknum hugmyndum,“ segir Ingibjörg Sigurðardóttir um
ömmu sína Ingibjörgu Steinsdóttur Í nýrri bók skoðar hún ævi og sjálfsmyndasafn ömmu sinnar